Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Qupperneq 42
42 | Lífsstíll 30. september–2. október 2011 Helgarblað
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 14–16
Bókauppboð
stendur til 11. október
Síðasta sýningarhelgi
Hrafnhildur Inga
Straumar
lýkur sunnudaginn 2. október
Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð
Íslensk listasaga
Fullt verð 49.990 kr.
Tilboð 39.990 kr.
Tilboðið gildir fyrir félaga
í Safnaranum og þeirra sem
eru á póstlista gallerísins
N
orræn tíska og hönn-
un ásamt norrænni
menningu verður
efni sýningar í Seattle
í Bandaríkjunum
frá 30. september þegar Nor-
ræna sögusafnið (The Nordic
Heritage Museum) í Seattle
og Norræna húsið í Reykja-
vík opna Norræna tískutvíær-
inginn 2011 í samvinnu við
Iceland Naturally. Sýningin
er opin almenningi og mun
standa til 13. nóvember í Nor-
ræna sögusafninu í Seattle.
Með áhugaverðum innsetn-
ingum verður varpað ljósi á
margt það fremsta í norrænni
tískuhönnun, með áherslu á
Ísland, Grænland og Færeyjar.
Kjölfesta Norræna tísku-
tvíæringsins er sýning-
in Look ing Back to Find
our Future þar sem lögð er
áhersla á norræna tísku- og
skartgripahönnun samtíma-
hönnuða á Norðurlöndum,
þar með talið frá Íslandi,
Færeyjum, Grænlandi, Finn-
landi, Danmörku, Noregi og
Svíþjóð. Tískutvíæringur-
inn mun fá mikla athygli og
fjallað verður um sýninguna í
helstu tískutímaritum og fjöl-
miðlum ytra, svo sem Vogue,
Marie Claire og fleiri.
Listakonan Hrafnhild-
ur Arnardóttir (eða Shop-
lifter), sem hefur aðsetur í
New York, var valin til að vera
listrænn stjórnandi sýning-
arinnar. Shoplifter er kunn
fyrir störf sín með Museum
of Modern Art í New York og
samstarf sitt með Björk.
„Norræni tískutvíæring-
urinn er vettvangur þar sem
við hyllum og gefum innsýn í
norrænan anda; sýnum sam-
runa sköpunargleði og hag-
kvæmni í tískuhönnun og
einnig hinn ótrúlega glæsi-
lega árangur sem norrænir
tískuhönnuðir hafa náð,“ seg-
ir Hrafnhildur. „Ég ber djúpa
virðingu fyrir sögu tískunnar
og sköpunargleði fólks þegar
kemur að skreytingum okkar
sjálfra á okkur og umhverf-
inu. Á Norræna tískutvíær-
ingnum getur fólk séð hvern-
ig mennirnir eru líkir og ólíkir
hnattrænt og skapað eigin
tengsl á milli veruleika fortíð-
ar og nútíma.“
Til viðbótar tísku- og
hönnunarinnsetningum
mun á þessari sex vikna sýn-
ingu einnig vera norræn
götutísku-ljósmyndasýning
með myndum frá Reykja-
vík, Nuuk, Færeyjum, Kaup-
mannahöfn, Helsinki, Ósló
og Stokkhólmi. Þar hafa ver-
ið valdir ljósmyndarar frá
hverju landi Norðurlandanna
til sýningar. Athygli vekur að
Jói Kjartans fer frá Íslandi og
Hildur Hermannsdóttir fer
frá Ósló.
Buffalóskór
aftur í tísku?
Sumir af helstu tískuspek-
úlöntum heimsins vilja meina
að buffalóskórnir, sem gerðu
allt vitlaust hér á landi sem
og víða annars staðar á seinni
hluta 10. áratugarins, verði
með endurkomu inn í tísku-
heiminn. Líklega eru buffaló-
skórnir ein af þeim tískuból-
um sem gert hefur verið hvað
mest grín að í gegnum tíðina.
Nú gætu hins vegar einhverjir
þurft að kyngja tískustoltinu
því margir tískufróðir fullyrða
að skórnir hefji nú innreið sína
í vetrartískuna. Ef þessi spá
reynist sönn geta eflaust ein-
hverjir grafað djúpt í geymsl-
una sína og fundið þar gömlu
góðu buffalóskóna eða þá bara
fjárfest í nýjum.
Skærir litir
í haust
Skólarnir eru byrjaðir og
fyrir yngri stelpur segja tís-
kúgúrúarnir ytra að málið
þetta haustið séu litir. Allt
snýst um liti. Villta neon-
liti eins og skærfjólubláa,
græna, eitraða bleika liti og
rosalega bláa. Til að reyna
gleyma því að lægðin liggur
yfir landinu og það rignir
nær hvern dag má líka leika
sér með að blanda litunum
saman og búa til ferskt og
frjálslegt útlit. Fyrir þá sem
vilja ekki skæra liti eru svart-
ar og hvítar rendur einnig
málið sem og köflótt pils í
svörtu og hvítu. Oft blandast
skærir litir við rólegri liti eins
og brúnan í hausttískunni
en þetta haustið á að gleyma
sér í litavalinu og vera áber-
andi, ferskur og flottur.
Fjölmargir
Íslendingar
í sviðsljósinu
Mundi Vondi
Mundi sýnir
nýja línu sína í
Seattle
Flík frá Aftur Þema sýningarinnar
er horft til fortíðar, sem er einmitt það
sem gert er í Aftur þar sem gömul föt
fá framhaldslíf í nýrri hönnun.
Par frá Íslandi kynnir
götutískuljósmyndir Hildur
Hermanns kynnir götutískuljós-
myndir frá Ósló, fulltrúi Íslands er Jói
Kjartans, kærasti hennar. Þau búa
saman í Ósló.
n Norræni tískutvíæringurinn hafinn í Seattle