Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2011, Síða 56
Einn
tvöfaldan,
takk!
Jóhanna fundin
n Jóhanna Sigurðardóttir forsætis
ráðherra sagðist ætla að taka við
undirskriftum Hagsmunasamtaka
heimilanna þegar Andrea Ólafsdótt-
ir, formaður samtakanna, spurði
hana um það í opnum spurninga
tíma forsætisráðherra í Kastljósi á
fimmtudagskvöld. Miklar vanga
veltur hafa verið um hvort Jó
hanna tæki við listanum og hefur
DV heimildir fyrir því að þeir sem
standa að samstöðutónleikum á
Austurvelli á laugardaginn hafi ætl
að að auglýsa
eftir Jóhönnu
í dagblöð
um um
helgina til
að tryggja
að hún veitti
undirskrift
um 30.000
Íslendinga við
töku. Þá átti
jafnvel að veita
þeim fund
arlaun sem
fyndi hana.
Óttaðist að
missa röddina
n Björk Guðmundsdóttir tónlistar
maður segir í viðtali við tímaritið
Mojo að hún hafi um tíma óttast
að hún missti röddina eða skaðaði
hana. Árið 2008 mynduðust hnúðar
á raddböndum hennar. Björk segir
að hún hafi ekki viljað gangast
undir aðgerð til að láta fjarlægja þá,
þar sem hún óttaðist að það myndi
skaða söngrödd sína. „Þegar ég
komst að því að ég væri með hnúða
á raddböndunum vissi ég ekki hvort
ég gæti sungið aftur, eða að minnsta
kosti ekki eins og ég
er vön,“ segir
Björk. Með
teygjuradd
æfingum
tókst henni
þó að vinna
bug á vand
anum og háir
þetta henni
ekki
lengur.
Sölvi og dópsalan
n „Ég fékk mér þrefaldan espresso á
Kaffi Conditori á Suðurlandsbraut í
morgun og vínarbrauðsstubb með.
Leið eins og ég hefði fengið amfeta
mínsprautu í rassinn og afkastaði
heilum vinnudegi á klukkutíma,“
skrifar sjónvarpsmaðurinn Sölvi
Tryggvason á bloggsíðu sína undir
fyrirsögninni „Dópsala á Suður
landsbraut“. Hann segist mæla ein
dregið með kaffidrykkju enda bendi
nýlegar rannsóknir til
þess að hún dragi
úr þunglyndi og
hjartasjúkdómum.
Að endingu biður
hann þá velvirð
ingar á fyrirsögn
inni sem langaði í
„annars
konar
efni“.
É
g hef bara farið tvisvar upp í
Hádegismóa þær sex vikur sem
Data Cell hefur haft þar aðset
ur,“ sagði Kristinn Hrafnsson í
samtali við DV aðspurður um ferð
ir sínar í Hádegismóa, en Árvak
ur, eigandi Morgunblaðsins, mun
vilja losna við fyrirtækið Data Cell
út úr húsnæði sem það deilir með
blaðinu.
Fram hefur komið að stjórnend
um Árvakurs þyki nærvera Data
Cell óþægileg, og í raun eins og að
vera með WikiLeaks í fanginu. Frá
þessu hefur Ólafur Sigurvinsson,
framkvæmdastjóri Data Cell, greint.
Data Cell hefur nokkur tengsl við
WikiLeaks, en fyrirtækið hefur unn
ið fyrir WikiLeaks og meðal annars
aðstoðað við að millifæra framlög
beint inn á reikninga uppljóstrun
arsíðunnar. Eins og frægt er orðið
lokuðu stóru kreditkortafyrirtæk
in á Data Cell og hefur fyrirtækið,
ásamt WikiLeaks, unnið að skaða
bótamáli á hendur VISA og Mast
ercard og krefst 50 milljón evra. Í
Fréttatímanum í síðustu viku sagði
Ólafur að ákveðnir menn hefðu vilj
að losna við Data Cell. „Það komu
ákveðnir menn frá fyrirtæki sem
leigir með okkur og gáfu það sterk
lega í skyn að þeir vildu losna við
okkur.“ Hann sagðist vera tilbúinn
til þess að íhuga flutninga ef hann
fengi 25 milljónir til þess að dekka
allan þann kostnað sem fylgdi
þeim. Árvakur tók sér tvær vikur til
að svara og hefur enn ekkert gert að
því er DV kemst næst. „Ég skil ekk
ert í þeim að fjargviðrast svona yfir
þessu,“ sagði Kristinn í samtali við
DV. Hann var þá á leið til London
en vildi ekki upplýsa um erindi sitt
þangað.
„Ég skil ekkert í þeim“
n Kristinn Hrafnsson segist aðeins hafa komið tvisvar í Hádegismóa
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 30. SepTemBer–2. oKTÓBer 2011 112. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr.
Kristinn Hrafnsson Enginn aufúsu-
gestur í Hádegismóum.