Fréttatíminn - 10.10.2014, Side 8
Umferðin í nýliðnum september var
mjög mikil á höfuðborgarsvæðinu,
jókst um 5,8 prósent frá september
í fyrra. „Þetta var umferðarmesti
mánuður ársins og annar umferðar-
mesti mánuður frá upphafi en ríf-
lega 140 þúsund bílar fóru um þrjú
mælisnið Vegagerðarinnar,“ að því
er segir á heimasíðu stofnunarinnar.
Áætlað er að umferðin hafi aukist
um 5,8% á milli september mánaða
2013 og 2014. „Þetta er önnur mesta
aukning á milli mánaða, það sem af
er ári, en þó í samræmi við það sem
búist var við. Áætlað er að umferðin
hafi dregist saman á Hafnarfjarðar-
vegi en aukist mikið um Reykjanes-
braut og Vesturlandsveg. Samanlögð
meðalumferð um mælisniðin þrjú var
tæplega 140.200 bílar á sólarhring
en sá fjöldi gerir þennan mánuð að
þeim stærsta á þessu ári. Nýliðinn
mánuður er einnig næst umferðar-
mesti mánuður frá upphafi. Apríl
2008, heldur enn metinu, en þá fóru
rúmlega 140.800 bílar á sólarhring
yfir sniðin. Þessi bílafjöldi, samsvar-
ar því að næstum hver einasti íbúi á
höfuðborgarsvæðinu, á aldursbilinu
17-80 ára, hafi ekið einu sinni á dag,
yfir sniðin þrjú.“ -jh
Samgöngur September nálægt meti
Mikill umferðarþungi
á höfuðborgarsvæðinu
Umferð á höfuðborgarsvæðinu hefur
aðeins einu sinni mælst meiri en í
nýliðnum september.
Mardís Sara Karlsdóttir, verkefnisstjóri Heilsutorgs og Sóley Bender, formaður stýrihóps Heilsutorgs. Mynd/Hari
Sextíu prósent háskólanema frestuðu því að leita sér heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar. Nýrri
heilsugæslu fyrir þennan hóp er ætlað að koma til móts við þarfir hans með því að bjóða ódýrari
þjónustu. Þjónustan, Heilsutorg, markar ákveðin tímamót í íslenskri heilbrigðisþjónustu.
n ý heilsugæsla fyrir háskóla-nema markar ákveðin tíma-mót í íslenskri heilbrigðis-
þjónustu þar sem það eykur aðgengi
ungs fólks að heilbrigðisþjónustu
ásamt því að veita framtíðar heil-
brigðisstarfsmönnum betri undir-
búning, að sögn forsvarsmanna.
Sex af hverjum tíu háskólanemum
sögðust hafa beðið með að leita sér
heilbrigðisþjónustu og var ástæðan
fyrst og fremst kostnaður. Nú hef-
ur sérstök heilsugæsla verið opnuð
til að koma á móts við þarfir þessa
hóps. Árið 2011 var gerð skýrsla á
vegum velferðarráðuneytisins þar
sem fram kom að heilsugæslu ungs
fólks væri ábótavant hér á landi og
brýnt að bæta þar úr.
„Aðgengi að þverfræðilegri heil-
brigðisþjónustu fyrir ungt fólk þar
sem kostnaði er haldið í lágmarki
er ábótavant,“ segir Mardís Sara
Karlsdóttir, verkefnisstjóri Heilsu-
torgs. Mardís og Sóley Bender, for-
maður stýrihóps Heilsutorgs, segja
að auka þurfi aðgengi að þjónustu
þar sem líkamleg jafnt sem andleg
heilsa er skoðuð heildrænt fyrir eitt
komugjald.
Framhaldsnemendur úr átta
fræðigreinum við skólann veita
þjónustuna undir handleiðslu leið-
beinenda en mikil áhersla er lögð
á þverfræðilegt samstarf teyma.
„Hugmyndirnar sækjum við að
mörgu leyti erlendis frá. Í nokkurn
tíma hefur verið lögð áhersla á þver-
fræðilegt nám við erlenda háskóla
þar sem það er talið nauðsynlegt að
nemendur ólíkra fræðigreina læri
að vinna saman. Þannig öðlast þeir
kunnáttu í því að takast sameigin-
lega á við ýmiss heilbrigðisvanda-
mál. Mikilvægt er að slíkt nám eigi
sér stað áður en farið er að starfa
í heilbrigðiskerfinu,“ segir Sóley.
Víða erlendis er starfrækt heilsu-
gæsla í háskólum fyrir nemendur.
„Háskóli Íslands er stórt samfélag
með um 14.000 nemendur, þar af
um 1000 erlenda nemendur. Í þessu
samfélagi hafa nemendur verið að
glíma við alls kyns heilbrigðis-
vandamál sem geta skipt máli varð-
andi námsframvindu þeirra.“
Verkefnið markar viss tímamót
í í íslenskri heilbrigðisþjónustu
þar sem það eykur aðgengi ungs
fólks að heilbrigðisþjónustu ásamt
því að veita framtíðar heilbrigðis-
starfsmönnum betri undirbúning.
„Verkefnið veitir mikilvægan undir-
búning fyrir verðandi heilbrigðis-
starfsmenn. Þjónustuþeginn er
miðpunktur þjónustunnar og vanda-
mál hans er skoðað heildrænt út frá
líkamlegum, andlegum og félags-
legum þáttum. Hann tekur virkan
þátt í eigin meðferð en slík nálgun
á heilbrigðisvandamál er að aukast í
öðrum löndum. Hún getur minnkað
líkur á mistökum í heilbrigðiskerf-
inu auk þess að vera fjárhagslega
hagkvæmari fyrir þjónustuþegann
og heilbrigðiskerfið í heild,“ segir
Mardís.
Á Heilsutorgi er veitt svipuð þjón-
usta og á heilsugæslustöðvum. Lögð
er mikil áhersla á forvarnir og inn-
grip áður en vandamálið verður of
stórt. Þá er bæði andlegt og líkam-
legt heilsuástand tekið til skoðun-
ar. „Það er vel þekkt að sálfræðilegt
ástand og andleg líðan spilar inn í
margvísleg heilsufarsleg vandamál
og því er nauðsynlegt að huga að
þessum þætti,“ segir Mardís. Kostn-
aðurinn við heilbrigðisþjónustu get-
ur verðið verulega íþyngjandi og því
er mikilvægt að bjóða námsmönn-
um heilbrigðisþjónustu þar sem
kostnaði er haldið í lágmarki. „Það
er fjárhagslega hagkvæmt að borga
eitt komugjald og fá að hitta þver-
fræðilegt teymi sem vinnur saman
við úrlausn á heilbrigðisvanda þjón-
ustuþegans, sérstaklega þegar ein-
staklingar eru að glíma við fleiri en
eitt vandamál. Fjölþætt heilbrigðis-
vandamál eru stöðugt að aukast í
nútíma samfélögum,“ segir Mardís.
Hugrún Björnsdóttir
hugrun@frettatiminn.is
HeilbrigðiSmál ný HeilSugæSla HáSkólanema markar tímamót
Fresta því að leita til
læknis vegna kostnaðar
8 fréttir Helgin 10.-12. október 2014
www.icewear.is
ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR
VETRAR- OG ÚTIVISTARFATNAÐUR
FÁKAFEN 9 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 555 7412
STORMUR Dúnparka
Verð áður: 39.950
Verð nú: 19.975
Aðventa 2 28. nóvember - 5. desember
Aðventuperlur Þýskalands
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Aðventan er sá tími þegar borgir og bæir Þýskalands
skarta sínu fegursta og ilmur frá jólaglöggi liggur í
loftinu. Farið verður m.a. til tónlistarborgar Richards
Wagners, Bayreuth og Nürnberg sem er með elsta
jólamarkað Þýskalands, að ógleymdri
miðaldaborginni Rothenburg ob der Tauber.
Verð: 179.800 kr. á mann í tvíbýli. Örfá sæti laus
Sp
ör
e
hf
.
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
Kynningarfundur um neyðar-
varnahlutverk Rauða krossins
í almannavörnum og landsæfinguna
„Eldað fyrir Ísland“ verður haldinn
miðvikudaginn 15. október kl.
8.30–9.30 í húsi Rauða krossins,
Efstaleiti 9.
Skráning á raudikrossinn.is
Allir velkomnir!
Hvar er þín
öldahjálparstöð?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
4
-2
1
8
4