Fréttatíminn - 10.10.2014, Side 68
ALÞJÓÐLEG BARNA- OG UNGLINGABÓKMENNTAHÁTÍÐ
Í REYKJAVÍK 9.–12. OKTÓBER 2014
WWW.MYRIN.IS
WWW.NORRAENAHUSID.IS
Páfugl úti í m
ýri
Viðburðir alla
helgina,
fyrir alla fjöls
kylduna
í Norræna hús
inu.
12. september – 11. október 2014
TVEIR HRAFNAR
listhús, Art Gallery
Baldursgata 12 101 Reykjavík
+354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885
art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is
Opnunartímar
12:00-17:00 fimmtudaga til föstudaga
13:00-16:00 laugardaga
og eftir samkomulagi
Parísar-pakkinn/The Paris Package
HAllGRímuR
HElGAsON
22. OKTÓBER Kl. 20:00
í SAlNUM í KÓpAvOgi
Aðeins þet tA einA kvöld!
3 0 ár A Afmælistónleik Ar
M i ðA SAl A á SAlU R i N N . i S O g M i d i . i S
Guðrún Gunnarsdóttir sópran
Þuríður Jónsdóttir sópran
Hrafnhildur Halldórsdóttir alt
Skarphéðinn Hjartarsson tenór
Þór Heiðar Ásgeirsson bassi
Hljómsveit
Gunnar Gunnarsson píanó
Ásgeir Ásgeirsson gítar
Þorgrímur Jónsson bassi
Hannes Friðbjarnarson trommur
Völd fatanna
Rakel Sölvadóttir opnar sína fyrstu
einkasýningu í Deiglunni á Akureyri á
laugardaginn, klukkan 15, undir yfir-
skriftinni #1. Á sýningunni skoðar Rakel
listrænt og samfélagslegt hlutverk fata-
hönnunar og snertir á ýmsum flötum
tísku og fatnaðar. Kíkt verður undir
yfirborðið og skoðað hverskonar völd
fötin búa yfir.
Rakel Sölvadóttir útskrifaðist með BA
gráðu frá fatahönnunardeild Listahá-
skóla Íslands vorið 2013. Auk þess að
starfa sem fatahönnuður hefur hún
hannað sviðsmyndir fyrir tískusýningar
og unnið að ýmiskonar innsetningum og
samvinnulistaverkefnum. „Rakel vinnur
á skúlptúrískan hátt og með líkamann
sem útgangspunkt notar hún form til að
ýkja, brjóta upp eða afbyggja silhúett-
una,“ segir enn fremur.
Sýningin stendur til 9. nóvember og
er opin alla daga nema mánudaga,
klukkan 12-17. Aðgangur er ókeypis.
Rakel Sölvadóttir.
TónlisT Jazz- og blúsháTíð í Kópavogi
Fremstu hljóðfæraleikarar landsins
koma saman um helgina á tvenn-
um tónleikum Jazz- og blúshátíðar í
Kópavogi. Í dag, föstudag, klukkan
20, verða tónleikar með Guitar Isl-
andico í Salnum. Hljómsveitin hefur
gert garðinn frægan með skemmti-
legum útsetningum á íslenskum
þjóðlögum. Tríóið skipa Gunnar
Þórðarson, Björn Thoroddsen og
Jón Rafnsson.
Icelandic All Star Jazzband spilar
síðan í Salnum á morgun, laugar-
dag, klukkan 20. Sveitin er skipuð
djassleikurum sem hlotið hafa viður-
kenningu víða. Í henni eru: Sigurður
Flosason, Tómas R. Einarsson, Einar
Valur Scheving, Kjartan Valdemars-
son og Björn Thoroddsen.
Jazz- og blúshátíð Kópavogs
hófst um síðustu helgi þegar Björn
Thoroddsen gítarleikari hélt um 20
mínútna tónleika í heimahúsum.
Bæjarbúar gátu sótt um að fá tón-
leikana heim til sín, en þeir voru
haldnir á föstudags- og laugardags-
kvöld. „Það var mjög skemmtileg
upplifun að spila heima í stofu hjá
Kópavogsbúum,“ segir Björn Thor-
oddsen.
Þá eru í vikunni tónleikar í Gull-
smára, félagsmiðstöð aldraðra, í
Molanum ungmennahúsi og í Snæ-
landsskóla. -jh
Snillingar stilla saman strengi
Björn Thoroddsen lék í heimahúsum hjá
Kópavogsbúum um síðustu helgi.
Lífsneistar Leifs
Þórarinssonar
TónlisT CapuT hópurinn heiðrar minningu TónsKálds
C aput hópurinn stendur fyrir tónleikum í Norður-ljósasal Hörpu með tónlist
Leifs Þórarinssonar næstkomandi
sunnudag klukkan 17.15. Með
tónleikunum vill hópurinn heiðra
minningu Leifs í tilefni þess að
í ágúst voru liðin áttatíu ár frá
fæðingu hans. Leifur lést árið 1998.
Flutt verða nokkur af meistaraverk-
um tónskáldsins, verk sem heyrast
nær aldrei, en efnisskráin spannar
nánast allan tónsmíðaferil Leifs.
Barnalagaflokkurinn fyrir píanó
var skrifaður í Vínarborg árið 1954
fyrir Rögnvald Sigurjónsson. Hann
sagði síðar: „Sérstaka ánægju hef
ég af Barnalagaflokknum hans
Leifs, enda er hann orðinn klass-
ískur og hefur í sér lífsneista, sem á
eftir að endast lengi.“
Hitt píanóverk tónleikanna,
Klasar, er af allt öðrum toga. Þetta
er ódagsett dadaískt tilraunaverk
og hefur sennilega ekki verið flutt
síðan árið 1967 þegar Leifur og Atli
Heimir Sveinsson léku það í sam-
einingu í Ríkisútvarpinu.
Afstæður, samdar í New York
árið 1960, fyrir fiðlu, píanó og selló
er eitt höfuðverk íslensk mód-
ernisma, stutt og spennandi verk
sem gerir feiknalegar kröfur til
flytjenda.
Strengjakvartettinn frá 1969 er
aftur á móti í hæsta máta express-
jónískt verk með trúarlegum undir-
tóni. Kvartettinn hefur sárasjaldan
verið spilaður enda ekki áhlaupa-
verk, að því er fram kemur í til-
kynningu.
„Leifur skrifaði líka af sjald-
gæfu næmi fyrir flautuna en hann
starfaði um árabil náið með flautu-
snillingnum Manuelu Wiesler. Hún
frumflutti Flautukonsertinn, sem
síðar hlaut nafnið Vor í hjarta mínu,
á tónleikum í Þjóðleikhúsinu árið
1983.“
Frá síðasta tónsmíðatímabili
Leifs verður flutt eitt fallegasta verk
hans, Grafskrift fyrir Bríeti, við ljóð
Matthíasar Jochumsonar. Verkið
er samið fyrir kvenraddir og hörpu
og var frumflutt við útför Bríetar
Héðinsdóttur leikkonu árið 1996 og
hefur ekki verið flutt á opinberum
tónleikum áður.
Í tilefni tónleikanna verða
gefnar út tvær ritgerðir Kolbeins
Bjarnasonar, flautuleikara Caput
hópsins, um tónlist Leifs. Einnig
verður opnuð heimasíða tileinkuð
Leifi.
Stjórnandi á tónleikunum er
Hákon Leifsson, sonur tónskálds-
ins. -jh
Caput hópurinn heiðrar minningu Leifs Þórarinssonar tónskálds (1934-1998)
með tónleikum á sunnudaginn. Mynd/Andrés Kolbeinsson
68 menning Helgin 10.-12. október 2014