Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Side 4
4 | Fréttir 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað
Halda leikhúsinu
þrátt fyrir þrot
H
elgi Björnsson, faðir fjár-
festisins Magnúsar Ármann,
og lögmaðurinn Bernhard
Bogason, fyrrverandi yfir-
lögfræðingur FL Group,
eiga áfram hlut í leikhúsinu Admi-
ralsPalast í Berlín. Rekstrar félag leik-
hússins, Admiralspalast Produktions
GmbH, var tekið til gjaldþrotaskipta í
fyrra, líkt og greint var frá í DV. Helgi
og viðskiptafélagar hans áttu 25 pró-
senta hlut í rekstrarfélaginu, sem fór
í þrot, ásamt því að eiga hlut í fast-
eignafélaginu sem á húsið.
Helgi greindi frá því í viðtali við
DV í fyrrasumar að leikhúsrekstur-
inn gengi vel en að þessi bransi væri
áhættusamur. Sagði Helgi að hann
og viðskiptafélagar hans hefðu tapað
100 milljónum króna á Mel Brooks-
sýningunni The Producers. Í viðtal-
inu sagði Helgi: „Þessi rekstur er mjög
áhættusamur og það þarf lítið út af
að bera. Við lentum til dæmis mjög
illa í því í fyrra þegar The Producers,
sem er Mel Brooks-sýning, floppaði
hjá okkur. Þetta var mjög stór sýn-
ing og mikil fjárfesting. Þar töpuðum
við einhverjum 100 milljónum og
við vorum nánast við dauðans dyr.“
Nokkrum mánuðum síðar lá ljóst
fyrir að rekstrarfélag leikhússins yrði
gjaldþrota.
Ágúst keypti af Magnúsi
Leikhúsið er sögufrægt og stendur
við Friedrichstrasse í Mitte-hverfinu í
Berlín. Húsið var var byggt árið 1910
og var óperuhús Berlínarborgar um
nokkurra ára skeið eftir seinni heims-
styrjöldina á meðan unnið var að
endurbótum á óperuhúsinu við göt-
una Unter den Linden sem var opnað
aftur árið 1955.
Aðspurður segir Bernhard Boga-
son að hann og Ágúst Ármann, faðir
Magnúsar, hafi keypt 75 prósent í ís-
lenska eignarhaldsfélaginu Admiral
Reykjavík sem heldur utan um 13,5
prósenta hlut í leikhúsinu í Berlín í
gegnum félagið Admiralspalast Berl-
in & Co. KG . Helgi Björnsson á hin
25 prósentin í íslenska eignarhalds-
félaginu. Draga verður í efa að mjög
skörp skil sé hægt að greina á milli
hagsmuna Magnúsar og föður hans í
málinu.
Vinnur að uppgjöri fyrir Magnús
Bernhard, sem í dag starfar hjá lög-
mannsstofunni Nordik, segist vinna
að því um þessar mundir að ganga frá
félögum sem tengjast Magnúsi. „Ég
hef verið að vinna í því að ganga frá fé-
lögum Magnúsar Ármann sem hann
átti. Ég og Ágúst Ármann, faðir Magn-
úsar, keyptum 75 prósenta hlut í Admi-
ral Reykjavik ehf. [áður Mógull ehf.] í
gegnum Golden Gate Holding ehf. og
höfum síðan verið að reyna að bjarga
þeim verðmætum sem voru inni í fé-
laginu,“ segir Bernhard. Magnús Ár-
mann átti áður 32 prósent í félaginu
og kvikmyndaframleiðandinn Jón
Tryggvason átti 43 prósent í félaginu.
Byrjað var á verkefninu í Þýskalandi
árið 2003. Helgi, Jón og Magnús borg-
uðu 1,5 milljónir evra fyrir fasteignina
og tóku svo 15 milljóna evra lán fyrir
framkvæmdum við það hjá bönkum
í Þýskalandi. Samkvæmt ársreikningi
fasteignafélagsins þýska fyrir árið 2009
á félagið eignir upp á tæpar 12 millj-
ónir evra – leikhúsið sjálft – en skuld-
ar rúmlega 15 milljónir evra. Stærstur
hluti skuldanna er tryggður með veði í
fasteigninni.
Nýr leigutaki í leikhúsinu
Aðspurður um stöðu Admiralspal-
ast-leikhússins í Berlín í dag segir
Bernhard að nýr leigutaki hafi nýlega
komið að rekstri leikhússins. Um er
að ræða Maik Klokow, þýskan söng-
leikja- og leikhúsframleiðanda frá
Düsseldorf. Leigir hann fasteignina af
félaginu Admiralspalast Berlin & Co.
Helgi Björnsson segir aðspurð-
ur að hann sé alfarið kominn út úr
rekstri leikhússins í kjölfarið á þessum
hræringum. „Það er engin rekstrar-
leg ábyrgð lengur,“ segir Helgi. Tengsl
hans og íslenskra viðskiptafélaga hans
við þýska leikhúsið í Mitte-hverfinu
eru því eingöngu eigendalegs eðlis.
Helgi segir að hann reikni ekki með
öðru en að þeir geti haldið eignar-
hlut sínum í þýska leikhúsinu. „Þessi
sem er búinn að taka við rekstrinum
er með mjög sterkt bakland þannig að
þetta lítur vel út. Leigan dekkar bara
afborganirnar af húsinu,“ segir Helgi.
Hann segir að ekki standi til að Íslend-
ingarnir selji eignarhlut sinn í leikhús-
inu að svo stöddu.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Viðskipti
n Rekstrarfélag Helga Björnssonar og viðskiptafélaga hans í Berlín varð gjaldþrota
n Eiga hlut í þýsku leikhúsi n Magnús Ármann kominn út úr eigendahópi leikhússins
„Ég hef verið
að vinna í
því að ganga frá
félögum Magnúsar
Ármann sem
hann átti
Eigendaskipti Helgi Björnsson
og Magnús Ármann eiga áfram hlut í
leikhúsi í Mitte-hverfinu í Berlín þrátt
fyrir gjaldþrot rekstrarfélags hússins.
Þinghald yfir síbrotamanni í Héraðsdómi Suðurlands:
Grunaður um aðra nauðgun
Þingfesting í kynferðisbrotamáli
sem kom upp á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum á dögunum var í Hér-
aðsdómi Suðurlands á fimmtudag.
Þinghaldið er lokað. Þolandinn,
sem er tvítug kona, sagði mann-
inn hafa nauðgað sér við salernin
í Herjólfsdal á milli klukkan 4 og 5
um nóttina. Hún gat gefið greinar-
góða og ítarlega lýsingu á árásar-
manni sínum og gátu gæslumenn
og lögregla handtekið hann mjög
fljótlega aðfaranótt mánudags. Lög-
regla krafðist fjögurra vikna gæslu-
varðhalds á grundvelli almanna-
hagsmuna þar sem maðurinn hefur
komið við sögu lögreglu áður vegna
kynferðisbrota og er talinn síbrota-
maður.
Maðurinn sem er fæddur 1987,
var dæmdur fyrir nauðgun árið
2006, þá neyddi hann ungra stúlku
til kynferðisathafna við tjaldstæði
í Hrossabithaga í Hornafjarðarbæ.
Maðurinn hitti stúlkuna þar sem
hún hafði tjaldað ásamt vinum sín-
um og bað hana um að rölta að-
eins með sér. Hann síðan nauðgað
henni í trjálundi, meðal annars með
að halda um háls hennar og rífa í
hár hennar svo hún hlaut áverka.
Stúlkan sagði piltinn hafa hleg-
ið að sér eftir nauðgunina og hót-
að að drepa hana ef hún segði ein-
hverjum frá. Hún leitaði hins vegar
til lögreglunnar og aðhlynningar
á heilsugæslustöð og fékk maður-
inn upphaflega tveggja ára fangelsi
í Héraðsdómi Reykjavíkur auk þess
sem honum var gert að greiða stúlk-
unni 1 milljón í skaðabætur. Hæsti-
réttur mildaði hins vegar dóminn í
átján mánuði og 800 þúsund krónur
í skaðabætur.
Þjóðhátíð í Eyjum Þingfesting í máli 24
ára manns sem grunaður er um nauðgun á
ungri stúlku á Þjóðhátíð var í Héraðsdómi
Suðurlands á þriðjudag.
Risalækkun
á bensíni
Öll olíufélögin nema Skeljungur
lækkuðu í gærmorgun, fimmtudag,
verð á bensíni og dísilolíu um 13
krónur. Lítrinn kostar nú um 219,5
krónur en verðmunurinn á milli
félaga mælist í nokkrum aurum.
Hjá Skeljungi hafði verðið ekki
enn verið lækkað, þegar þetta var
skrifað en þar kostar lítrinn 234,5
krónur. Sá sem kaupir 40 lítra af
bensíni sparar sér um 600 krónur
ef hann velur ekki Skeljung. Verðið
gæti þó lækkað fljótlega. Lækkunin
í morgun er óvenju mikil en sjald-
gæft er að verðbreytingar á bensíni
séu meiri en tvær til fjórar krónur í
einu. Því má segja að um risalækk-
un sé að ræða.
Önnur tvíbura-
systirin látin
Önnur af tvíburasystrunum sem
börðust fyrir lífi sínu á vökudeild
Landspítalans lést laugardaginn 20.
ágúst. Hún verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju á mánudag ásamt
móður sinni sem lést af barnsförum.
DV greindi frá því í síðustu viku að
nýfæddar tvíburasystur hefðu bar-
ist fyrir lífi sínu á vökudeild Land-
spítalans. Talið er að móðirin hafi
látist eftir að hafa fengið blóðtappa í
lungun. Stúlkurnar komu í heiminn
sunnudaginn 14. ágúst síðastliðinn.
Á vef DV og víðar má finna upplýs-
ingar um söfnunarreikning til styrkt-
ar fjölskyldunni.
www.xena.is
Mikið af
fínum skóm í
leikfimina
no3 - st. 36-41 verð kr. 2500.-
Opið virka daga 11-18
laugardag 11-16
Grensásvegur 8 og Nýbýlavegur 12 - Sími 517 2040
SKÓMARKAÐUR
no2 - st. 41-46 verð kr. 6795.-
no1 - st. 28-35 verð kr. 3995.-
TILBOÐ