Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Page 12
12 | Fréttir 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað É g fann fyrst fyrir vilja til að segja frá þessu eftir að ég las bókina Graf- arþögn í íslensku. Ég sá bara fyrir mér fjöl- skylduna mína. Það vakti upp svo margar minn- ingar að ég gat bara ekki meir. Ég gat ekki einu sinni klárað bókina – mér fannst þetta bara eins og heima hjá okkur,“ seg- ir sautján ára piltur sem setti sögu sína af heimilisofbeldi á netið. Hann lýsti því hvernig faðir hans hafði haldið heim- ilislífinu í heljargreipum í mörg ár og segir frá því hvern- ig hann hefur haldið því áfram eftir skilnað foreldranna. Þau standa í forræðisdeilu sem hefur staðið í þrjú ár. Hann vill þó ekki koma fram undir nafni þar sem faðir hans er og verður ávallt faðir hans. „Ég flutti aftur til mömmu um það leyti þegar síðast var samið um forræði. Ég sagði nokkrum frá ofbeldinu, fyrst júdóþjálfaranum mínum og svo kærustunni minni. Þegar ég sagði þjálfaranum mínum frá þessu þá grét ég – ég hágrét. En ég hef hingað til ekkert ver- ið að ræða þetta En ég fann að það var gott að segja frá þessu,“ segir hann og það er eins og þungu fargi sé af honum létt. Skrifaði sig frá reiðinni „Svo hringdi ég og talaði við pabba um ofbeldið – hann vissi auðvitað af þessu – en hann sagði mér að fara til hel- vítis og að mamma mætti bara eiga mig. Ég hef ekkert talað við hann síðan og ég vil bara vera heima hjá mömmu. Eldri krakkar fá að ráða meira hvað þau gera í forræðismálum og ég vil bara vera þar.“ Það er lífsreyndur ungur maður sem gengur upp stig- ana á Tryggvagötunni til að hitta blaðamann. Hann er hik- andi og með í för er kærasta hans. Þrátt fyrir hikið er ljóst að hann er með ákveðin skilaboð og hann veit hvað hann vill að komi fram í viðtalinu. „Það á engum að líða illa,“ segir hann. Hann segist þreyttur á því að líta um öxl og vera hræddur – hann er ekki lengur hræddur. Það er líka margt sem honum liggur á hjarta. „Ég er búin að vera svo reiður undanfarna daga og vikur – svo rosalega reiður. Ég er búin að hugsa að mig langi sjálfan að fara heim til pabba og bara berja hann. Svo ákvað ég bara að losa um þetta með því að skrifa þetta sjálfur og koma þessu frá mér. Ég gat ekki sofnað á mánudagskvöld- ið. Það voru allir sofnaðir og ég ákvað að opna Word og byrja að skrifa. Ég var að skrifa í smá tíma og þá leið mér aðeins bet- ur. Svo fór ég bara að sofa. Þeg- ar ég fór á fætur daginn eftir ákvað ég að setja þetta á netið.“ Hann sagði engum frá því að hann hefði sett þetta á Facebo- ok-síðu sína, ekki einu sinni móður sinni. „Hún varð ekki reið, en hún var mjög hissa. Ég varð bara svo reiður og sár allt í einu – ég ætlaði fyrst að gera þetta að dagbók. Ég vil bara skrifa þegar tilfinningin kemur yfir mig. Það var rosalega gott að gera þetta. Ég vil gera þetta út af tilfinningum.“ Óttaðist föður sinn „Það er ekki flott að vera of- beldismaður. Hann reyn- ir að fela það. Hann spyr mig kannski: „Ég beiti þig ekki of- beldi – er það nokkuð?“ Þú segir ekkert: „Jú, þú gerðir það“ við ofbeldismann! Mér finnst ég vera bara í fangelsi – andlegu fangelsi. Mér líður ekki vel. Ég er með svo mikið af minningum um þetta, þetta gerðist svo oft.“ Foreldrar hans bjuggu sam- an í 15 ár. Hann segist ekki muna eftir öðru en að búa við heimilisofbeldi. Hann segir að mamma sín hafi ekki haft burði til að stöðva þetta. „Þetta er ekki auðvelt. Þetta er hræði- legt andlegt ofbeldi. Ég þekki lítið annað, þetta var algengt. Ég var alltaf hræddur við pabba. Ég var hræddur við að fara heim.“ Minningarnar renna samt margar saman í eitt og honum finnst erfitt að gera greinar- mun á ofbeldisverkunum. Þau eru mörg og minningarnar erf- iðar. En hann man að ofbeld- ið hófst þegar hann var bara barn. „Hlutirnir renna saman í eitt, ég veit ekki stundum hve- nær hvað gerðist, þetta hefur verið svo mikið og stöðugt.“ Mamma drakk En hann er heldur ekkert að fela það að móðir hans á við sín eigin vandamál að stríða. Hún er kvíðasjúklingur og óvirkur alkóhólisti. „Mamma reyndi oft að fyrirfara sér og þetta var erfiður tími. Einu sinni reyndi hún að hoppa niður af svölum og ég þurfti að halda henni. Það er erfitt líf að búa með ofbeldismanni. Stundum drakk hún rosalega mikið, en hún var ekkert alltaf full allan sólarhringinn. Hún drakk oft, en ekki eins oft og sagt er um hana.“ Það er augljóst að pilturinn vill vernda mömmu sína, en hann segir að hún sé sú sem alltaf er til staðar fyrir sig. „Hún gekk alltaf á milli – ég veit ekki hvort ég myndi þora því. Hún var ótrúlega hugrökk.“ En minningarnar eru slæmar og það er erfitt að eiga við þær. Hann segir föður sinn vera í ófrægingarför til að koma óorði á mömmu hans. „Þetta eru svo slæmar minningar. Pabbi, hann skrifar svona bréf úti um allan bæ um mömmu. Sumt er satt – hún er óvirkur alkóhólisti. Hún gerði þó eitt- hvað í sínum málum og ákvað að hún gæti ekki lifað svona.“ Stundum gistu þau í Kvennaathvarfinu. Hann man sérstaklega eftir einu atviki þar sem pabbi þeirra sótti þau þangað. „Ég man eftir einu skipti þegar pabbi var búin að vera að lemja mömmu. Hún var búin að tala um að fara í Kvennaathvarfið lengi, en hún drakk á þessum tíma svo það varð aldrei neitt úr því. Svo fór pabbi út að skemmta sér þetta kvöld og hafði áður lagt hend- ur á okkur og við fórum þang- að með leigubíl. Þegar hann komst að því að við vorum far- in þá hringdi hann og fór að keyra fyrir utan alveg enda- laust og grátbað mömmu að koma til baka. Hann sagðist gera allt fyrir hana. Svo fórum við heim og þar réðst hann á hana aftur.“ Hættur að vera hræddur „Hann henti hlutum í mömmu, sparkaði í hana. Við horfðum alltaf á – stundum reyndum við að gera eitthvað. Þetta með bónusferðina – það var sérstakt – þess vegna man ég það svona vel. Hann byrjaði ekki venjulega bara þegar við komum heim, ég man líka eftir bónuspokanum – alveg skýrt. Hann sparkaði í mig og ég flaug á hurðina. Ég man bara eftir þessu eins og þetta hefði gerst í gær. Ég flaug á hurðina og hálfrotaðist. Ég var bara lít- ill. Ég var örugglega bara í leik- skóla.“ Hann segir pabba sinn fyll- ast ofsafullri reiði og á erfitt með að skilja hana. „Pabbi verður svo rosalega reiður. Það er ótrúlegt að fólk geti orð- ið svona reitt. En það á öll- um að líða vel, það á engum að líða illa. Eftir þetta ofbeldi hjá pabba hef ég verið svo- lítið óhræddur við ofbeldi frá krökkum á mínum aldri. Ég er bara óhræddur því ég hef lent í þessu svo oft,“ segir hann. „Mér líður eins og þetta gæti ekki verið verra. Ef mamma hefði ekki staðið svona vel með okkur þá hefði þetta samt verið verra.“ Það bregðast allir Hann segir að barnavernd- arnefnd hafi komið mikið að málum en hún hafi verið mátt- laus og ekki staðið sig. „Það sjá bara ekki allir í gegnum svona ofbeldi. Þegar maður talar við svona fólk, þá þorir mað- ur ekkert að segja frá ofbeld- inu. Maður er svo hræddur um að pabbi frétti það. Það er mjög erfitt að vera svona ung- ur og vita ekki hvað er hægt að gera. Það erfitt fyrir alla – mað- ur þorir ekki að segja neinum. Núna þori ég.“ Þau hafa þó fengið einhverja aðstoð. „Mamma fór með okk- ur til sálfræðings í smá tíma, en svo fluttum við heim til pabba. Við töluðum aldrei um ofbeld- ið, bara um áfengisneysluna.“ Sárin í hjartanu gróa aldrei Honum líður best best hjá mömmu sinni enda fyllist hann öryggi þar. „Mér líður best heima hjá mömmu. Þar finn ég fyrir öryggi. Svo líður mér vel í júdósalnum.“ Hann segir að júdóið hafi gert mikið fyrir sjálfsmynd hans og fyllt hann öryggi. „Ég held að þetta Núna þori ég n 17 ára drengur opinberaði heimilisofbeldi á Facebook n Varð að fá útrás fyrir reiðina n Pabbinn segist saklaus n Systir hans, móðir og nágrannar staðfesta frásögnina Framhald á næstu opnu Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Viðtöl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.