Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Page 16
16 | Fréttir 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað
n Engeyingar borguðu mörgum milljörðum of mikið fyrir N1 árið 2006 n Einar Sveinsson var
þá stjórnarformaður Íslandsbanka sem sá um söluferlið og fjármögnun n Skuldsett yfirtaka
Keyptu N1 á yfir-
verði í góðærinu
Þ
að tók 60 ár að byggja Olíu
félagið upp en á þremur
árum tókst Engeyingum og
Hermanni Guðmundssyni
að leggja félagið í rúst. Svip
að orðalag notaði Hermann Guð
mundsson, núverandi forstjóri N1,
um sögu Eimskips. „Það tók 100 ár
að byggja Eimskip upp en það tók 4
ár að leggja þá vinnu í rústir einar,“
voru orð hans í pistli á Pressunni árið
2009. Óhætt er að segja að árangur
hans sjálfs hafi síst verið glæsilegri
hjá N1. Í ár eru 65 ár frá því að Olíu
félagið var stofnað, árið 1946, af Sam
bandi íslenskra samvinnufélaga (SÍS)
og kaupfélögum landsins. Nafni þess
var breytt í N1 árið 2007.
Skuldsett yfirtaka
Árið 2006 yfirtóku Engeyingar ásamt
minni fjárfestum félagið með skuld
settri yfirtöku sem nær alfarið var fjár
mögnuð af Íslandsbanka og Kaup
þingi. Hafði Ker, félag í meirihlutaeigu
Ólafs Ólafssonar, sem kenndur er við
Samskip, fengið Íslandsbanka til þess
að sjá um söluferlið á Olíufélaginu.
Varð niðurstaðan sú að bankinn lánaði
Einari Sveinssyni, þáverandi stjórn
arformanni Íslandsbanka, og öðrum
fjárfestum sem áttu varahlutafyrirtæk
ið Bílanaust fyrir hluta af kaupunum á
Olíufélaginu og afganginn fjármagn
aði Kaupþing. Nánar er fjallað um yfir
tökuna í greininni hér til hliðar.
Bjarni og Hermann nánir vinir
Líkt og flestir þekkja var Bjarni Bene
diktsson, formaður Sjálfstæðisflokks
ins, gerður að stjórnarformanni Olíu
félagsins þegar Engeyingar yfirtóku
félagið árið 2006 með skuldsettri yfir
töku. Samkvæmt heimildum DV eru
Bjarni og Hermann Guðmundsson,
forstjóri N1, nánir vinir. Bjarni var
mjög vel inni í rekstri N1 sem stjórn
arformaður félagsins. Í lok árs 2008
hætti Bjarni síðan sem stjórnarfor
maður og sagðist við það tilefni ætla
að einbeita sér að stjórnmálum.
Lífeyrissjóðir vilja losna
við Hermann
Í samtali við Viðskiptablaðið nýlega
fullyrti Hermann að allir lánar
drottnar félagsins væru sáttir við
fjárhagslega endurskipulagningu
þess. Samkvæmt heimildum DV eru
íslenskir lífeyrissjóðir, sem þegar
hafa tapað 4,4 milljörðum króna á
N1, mjög óhressir með að Hermann
Guðmundsson skuli enn starfa sem
forstjóri N1. Hann hafi farið með
stjórn félagsins sem leiddi til gjald
þrots þess og beri því mikla ábyrgð á
óförum þess. Það sé því óskiljanlegt
að hann skuli áfram fá að vera for
stjóri olíufélagsins.
Yfirtóku Bílanaust 1999
Samstarf Engeyinga og Hermanns
Guðmundssonar má rekja allt aftur
til ársins 1999 þegar SjóváAlmenn
ar og Burðarás, félög þar sem bræð
urnir Einar og Benedikt Sveinssyn
ir komu að stjórn, og Slípivörur og
verkfæri ehf., sem Hermann Guð
mundsson fór fyrir, yfirtóku vara
hlutafyrirtækið Bílanaust. Hafði
Íslandsbanki milligöngu um yfir
tökuna og eignaðist bankinn sjálfur
13 prósent í Bílanausti. Á þessum
tíma sat Einar Sveinsson líka í stjórn
Tölur úr rekstri N1 2004 til 2010
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010
Eignir 11.505 11.637 15.114 20.063 25.298 25.292 16.897
Eigið fé 3.440 3.689 -302 5.355 6.361 6.638 5.186
Eiginfjárhlutfall 29,9% 31,7% -2% 26,7% 25,1% 26,2% -30,7%
Skuldir 7.425 7.332 15.416 14.708 18.937 18.645 22.083
Hagnaður 672 883 -6.810 861 -1.111 277 -11.824
Arður 500 634 0 0 0 0 0
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf
stæðisflokksins, var í svokölluðu
föstudagsviðtali hjá Fréttablaðinu
síðasta föstudag. Þar fullyrti hann að
Engeyingar og aðrir sem komu að yf
irtökunni á Olíufélaginu (N1) í upp
hafi árs 2006 hefðu komið með mik
ið eigið fé inn í reksturinn. „Ég tel að
fólk sjái það í hendi sér að það eru
ytri aðstæður sem gjörbreytast og
valda vandræðum hjá þessu félagi og
um allt þjóðfélagið. Í því samhengi
skiptir líka máli að eigendur félags
ins komu með mikið eigið fé í rekst
urinn og það stóð vel eftir kaupin,“
sagði Bjarni við Fréttablaðið.
Íslandsbanki og Kaupþing
fjármögnuðu
Samkvæmt heimildum DV var yfir
taka Engeyinga og annarra fjárfesta
sem keyptu Olíufélagið af Ólafi Ólafs
syni, sem kenndur er við Samskip,
í upphafi árs 2006 nær alfarið fjár
mögnuð af Íslandsbanka og Kaup
þingi. Var um svokallaða skuldsetta
yfirtöku að ræða. Stærstu hluthafar
BNT ehf., sem fór með eignarhlut fjár
festanna í Olíufélaginu sem breyttist
í N1 árið 2007, fengu lán til þess að
setja hlutafé inn í félagið.
Heimildarmaður sem DV ræddi
við segir að Ólafur hafi fengið miklu
meira fyrir Olíufélagið en hann bjóst
við. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka
sá um söluna og segir heimildarmað
urinn að nokkrir aðilar hafi sýnt því
áhuga að yfirtaka Olíufélagið en Eng
eyingar hafi einfaldlega verið tilbúnir
að borga miklu meira en aðrir. Ekki
liggur fyllilega ljóst fyrir hversu mikið
var greitt fyrir Olíufélagið árið 2006.
Fréttablaðið fullyrti að greiddir hefðu
verið 20 milljarðar króna en sam
kvæmt heimildum DV er kaupverðið
talið nærri 16 til 18 milljörðum króna.
Hafði Ólafur Ólafsson talið að hann
myndi fá um 11 til 12 milljarða króna
fyrir félagið. Talið er að hann hafi
hagnast um minnst fimm milljarða
króna á umræddri sölu árið 2006.
Lántökur Engeyinga hjá
Íslandsbanka náðu hámarki
Ástæða þess að Kaupþing var fengið
til að fjármagna hluta af kaupunum
var sú að við yfirtökuna á Olíufélag
inu náðu lántökur Engeyinga hjá Ís
landsbanka hámarki. Hlutaféð sem
sett var inn í BNT árið 2006 upp á átta
milljarða króna var að mestu feng
ið með lánum frá Íslandsbanka. Þá
fékk BNT líka lán upp á 6,3 milljarða
króna í erlendum myntum. Kaup
þing lánaði síðan BNT tíu milljarða
króna sem fóru til Umtaks, sem hélt
utan um 35 fasteignir Olíufélagsins
víða um land sem samtals telja 63
þúsund fermetra.
Skuldir einkahlutafélagsins Haf
silfurs, sem var í eigu Benedikts
Sveinssonar föður Bjarna, jukust
um 1.150 milljónir króna árið 2006.
Er talið að það hafi að hluta til ver
ið vegna lána frá Íslandsbanka til að
fjármagna hlutafé N1. Hafsilfur átti
28 prósent í N1 árið 2006.
Skuldir einkahlutafélagsins
Hrómundar, sem var í eigu Einars
Sveinssonar, föðurbróður Bjarna
og þáverandi stjórnarformanns Ís
landsbanka, jukust um 1.200 millj
ónir árið 2006. Er talið að það hafi
að hluta verið vegna lána frá Ís
landsbanka til að fjármagna hlutafé
í N1. Ekki liggur ljóst fyrir hversu
stóran hlut Hrómundur átti í N1
árið 2006.
Íslandsbanki fór síðan með 12
prósenta hlut í N1 árið 2006 og Fjár
festingafélagið Máttur 12 prósent.
Á þeim tíma átti bankinn 50 pró
sent í Mætti og einkahlutafélagið
SJ1 50 prósent. SJ1 var dótturfélag
Sjóvár og sá um fjárfestingar trygg
ingafélagsins. Á þessum tíma fór Ís
landsbanki enn með 33 prósenta
hlut í Sjóvá.
Eignuðust meira í N1 árið 2007
Árið 2007 seldi bankinn 12 pró
senta hlut sinn í N1 til Máttar. Jafn
framt seldi bankinn 50 prósenta
hlut sinn í Mætti til Hrómundar og
Hafsilfurs, félaga Einars og Bene
dikts Sveinssona. Varð hlutur Mátt
ar í N1 þar með 29,4 prósent. Bjarni
Ármannsson, bankastjóri Glitnis,
hafði setið í stjórn Máttar ásamt
Jóni Diðriki Jónssyni, forstjóra
bankans á Íslandi, en þeir hættu
hjá bankanum eftir að nýir hluthaf
ar náðu undirtökunum undir for
ystu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
vorið 2007. Þá hætti Einar Sveins
son líka sem stjórnarformaður
Glitnis. Þannig virðist sem nýr hlut
hafahópur Glitnis hafi viljað losa
sig við hlut bankans í N1. Bjarni
Benediktsson og Einar Sveinsson
settust í stjórn Máttar þegar Bjarni
Ármannsson og Jón Diðrik hættu
þar. Á sama tíma seldu Engey
ingar að stærstum hluta hlutabréf
sín í Glitni með miklum hagnaði.
Aukinn hlutur þeirra í N1 í gegn
um Mátt árið 2007 hefur því lík
lega að hluta til verið fjármagnaður
með fjármunum sem komu af sölu
hlutabréfanna í Glitni.
Bjarni Benediktsson fullyrti að fjárfestarnir hefðu komið með mikið eigið fé:
Skuldsett yfirtaka fjármögnuð af bönkum
Lítið eigið fé Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fullyrti í samtali við
Fréttablaðið síðasta föstudag að Engeyingar og aðrir fjárfestar hefðu komið með mikið
eigið fé við yfirtökuna á Olíufélaginu (N1). Samkvæmt heimildum DV er það ekki rétt.
Annas Sigmundsson
as@dv.is
Viðskipti
Upphæðir eru í milljónum króna