Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 24
24 | Erlent 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað
S
tanislav Alenzynovich og
uppáhaldsfrænka hans, Jan-
ina, búa í 120 metra fjarlægð
hvort frá öðru. Þrátt fyrir ná-
lægðina er erfitt fyrir þau að
eiga í samskiptum. Ef þau vilja ræða
saman þurfa þau nánast að hrópa
sín á milli. Járntjald aðskilur þau og
skiptir þorpinu í tvennt. Annar hlut-
inn, Norviliskes, er í Litháen, aðildar-
ríki ESB, og hinn hlutinn, Pizkuny, er
í Hvíta-Rússlandi, síðasta einræðisríki
Evrópu.
Landamærin eru opin þrisvar á
ári, um jól, páska og hvítasunnu. Á
þeim tímum lifnar aldeilis yfir þorp-
inu þegar íbúar þess streyma í báð-
ar áttir yfir landamærin. Alenzyno-
vich heimsækir þá frænku sína og
færir henni munaðarvörur á borð við
súkku laði og síga rettur. Hann dettur í
það með manni hennar, Genady, og
áður en þeir vita þá líður að kvöldi og
þarf Alenzynovich þá að halda aftur
yfir landamærin. Tilfinningarnar taka
völdin með hjálp frá Bakkusi. „Fáðu
þér annan drykk og við löbbum sam-
an að landamærunum og brjótum
niður þessa vesælu girðingu,“ segir
Genady.
Hert eftirlit
Á öðrum tímum ársins þurfa íbúar
Norviliskes hins vegar brottfararleyfi.
Til að fá leyfið þarf að ferðast 30 kíló-
metra og borga rúmlega fjögur þús-
und krónur, til þess eins að komast í
hinn hluta þorpsins. Einnig er rándýrt
fyrir fólk að borga fyrir símtöl til ætt-
ingja sinna sem kunna að búa hinum
megin við girðinguna. Þá þurfa íbúar í
Pizkuny að fara yfir landamærin til að
grafa ættingjana en kirkjugarðurinn
er í Norviliskes.
Ekkert tiltökumál þótti á dögum
kalda stríðsins að hafa þorpið í tveim-
ur mismunandi ríkjum Sovétríkjanna.
Eftir að Sovétríkin liðuðust í sund-
ur fyrir tuttugu árum var hins vegar
landamæragirðing reist. Í upphafi var
þó lítil gæsla og fékk fólk að smygla
pökkum af sígarettum óáreitt eða tína
bláber handan landamæranna. Það
breyttist þó allt árið 2004 þegar Lithá-
en gekk í Evrópusambandið. Þá var ný
girðing úr járni reist og gæslan hert.
„Stundum vakna ég við gelt þýskra
Schäfer-hunda þegar landamæra-
verðir eru að störfum snemma morg-
uns,“ segir Alenzynovich.
Vilja Sovétríkin aftur
Beggja vegna járntjaldsins lifa von-
ir um að Sovétríkin verði endurreist.
„Pútin mun sameina okkur á ný,“ segir
Genady fullur bjartsýni. Alenzynovich
er þó ekki jafn bjartsýnn. „Við höfðum
í það minnsta atvinnu í gamla daga
en núna vitum við ekki hvað gerist á
morgun,“ segir Alenzynovich. Hann
hefur orðið af miklum tekjum vegna
þess að stór huti af jörð hans liggur á
hvítrússnesku landsvæði sem hann
getur ekki ræktað. Nágranni Alen-
zynovich, Leokadija, kýs að horfa frek-
ar á hvítrússneskar fréttir en litháísk-
ar. Þar horfir hún með aðdáun á fréttir
af Alexander Lukashenko, forseta
Hvíta-Rússlands, heilsa upp á verk-
smiðjustarfsfólk og tala um samstöðu
með Kúbu og Venesúela. Tungumálið
minnir hana jafnframt á æsku sína í
Sovétríkjunum.
Þrátt fyrir að Litháar búi við miklu
meira frelsi en Hvít-Rússar standa
samyrkjubúin í Hvíta-Rússlandi mun
betur að vígi en mörg bóndabýli í
Litháen sem hafa orðið undir í sam-
keppni við vesturevrópsk býli sem
bjóða vörur fyrir mun lægra verð.
Þannig má nefna að gamla sam-
yrkjubúið Druzhba, nálægt Norvilis-
kes, hafði 800 kýr þegar best lét en hef-
ur núna einungis þrjár.
Ræddi við Pink Floyd
Auk járntjaldsins verða íbúar Norvil-
iskes varir við önnur landamæri sem
þó eru öllu ósýnilegri. Það eru mörk-
in á milli íbúanna og auðmanna sem
eiga kastala og fleiri eignir í nágrenn-
inu. Einn af þeim er Gedrius Klimke-
viius, kaupsýslumaður frá Vilnius,
sem nýlega gerði upp kastala á hæð-
inni nálægt kirkju þorpsins. Klimke-
viius hefur barist gegn járntjaldinu
og haldið tónleika undir yfirskrift-
inni „be2gether“. Upphaflega ætlaði
hann að hafa tónleikana báðum meg-
in við landamærin og þá ræddi hann
við hina goðsagnakenndu hljómsveit
Pink Floyd um að koma fram og spila
meðal annars The Wall. „Þetta er hinn
nýi múr sem skilur meginland okkar
í sundur. Við þurfum að brjóta hann
niður,“ segir Klimkeviius.
Pink Floyd kom þó ekki og tónleik-
arnir voru einungis í litháíska hlutan-
um. Þrátt fyrir það tókst Klimkeviius
að sannfæra hvítrússnesk stjórnvöld
um að leyfa íbúum að fara yfir landa-
mærin án sérstaks brottfararleyfis, að
vísu undir vökulu eftirliti.
n Járntjald skilur að þorpsbúa á landamærum Litháens og Hvíta-Rússlands n Dreyma um
endurreisn Sovétríkjanna n Auðmaður reyndi að fá Pink Floyd í baráttu gegn járntjaldinu
Járntjald á milli ESB
og Hvíta-Rússlands
„Pútin mun sam-
eina okkur á ný.Björn Reynir Halldórsson
bjornreynir@dv.is
Austur-Evrópa
Samyrkjubú í Hvíta-Rússlandi
Samyrkjubúin í Hvíta-Rússlandi þykja
mun betri en mörg býli í Litháen.
Bandaríski útvarpsmaðurinn Glenn
Beck, sem var rekinn frá Fox-sjón-
varpsstöðinni fyrir að vera of hægri-
sinnaður, ætlar að standa fyrir fjölda-
fundi í Jerúsalem til að mótmæla
friðarsamkomulagi við Palestínu-
menn. Nir Bakat, borgarstjóri í Jerú-
salem, og leikarinn Jon Voight verða
honum innan handar á fundinum.
„Það eru öfl í Bandaríkjunum og
um allan heim sem vilja ganga af
okkur dauðum. Þau ráðast á hjarta
okkar sameiginlegu trúar, Jerúsalem.
Ekki með byssuskotum og sprengj-
um heldur með milliríkjasamkomu-
lagi sem mun aðskilja Jerúsalem frá
umheiminum,“ sagði Beck.
Fundurinn verður haldinn í
David son-miðstöðinni og hefur
hvert einasta sæti verið frátekið fyr-
ir boðsgesti. Fundurinn verður þó
sýndur á skjá utandyra í miðborg
Jerúsalem og sjónvarpað beint í
meira en 60 löndum.
Búist er við fjölda Bandaríkja-
manna sem hafa keypt sérstak-
ar pakkaferðir til Jerúsalem, meðal
annars til að hlýða á Beck. Margir
þeirra eru kristnir zíonistar sem
trúa því að gyðingar þurfi að safnast
saman í Landinu helga til að Krist-
ur snúi aftur. Að vísu krefjast þeir að
gyðingarnir snúist til kristni áður en
að Kristur snúi aftur. Þá verða tugir
bandarískra þingmanna einnig við-
staddir samkomuna.
Ísraelsmenn eru margir ekkert
allt of hrifnir af Beck en hann hefur
meðal annars varpað fram andsem-
itískum samsæriskenningum og tal-
að óvarlega um helförina. Þá þykir
staðsetningin óheppileg en heilög-
ustu staðir bæði gyðinga og múslima
eru nálægir.
Samtök ísraelskra vinstrimanna
hafa boðað til mótmæla gegn þess-
um „hræðilega viðburði“ og þá hef-
ur Facebook-síða verið stofnuð und-
ir yfirskriftinni „Glenn Beck Stay
Home“. Ólíklegt er þó að Beck verði
við þeirri beiðni.
bjornreynir@dv.is
Mótmælir friði
Þótti of hægrisinnaður Glenn Beck ætlar að mótmæla friðarsamkomulagi við Palestínumenn.
Lifði af bý-
flugnaárás
Bandaríkjamaður lifði af býflugna-
árás þar sem hann var stunginn
meira en 400 sinnum af hópi bý-
flugna í Redondo Beach í Kali-
forníuríki. Maðurinn er 95 ára að
aldri. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni var maðurinn á gangi
nærri heimili sínu þegar hann varð
fyrir árásinni sem er talin hafa átt
sér stað vegna misheppnaðrar til-
raunar meindýraeyðis til að eyða
býflugnabúi í nálægum garði. Bý-
flugurnar virðast hafa ráðist á næsta
mann sem fyrir tilviljun var gamli
maðurinn. Hann var fluttur á spít-
ala og er þar enn til aðhlynningar.
„Flestir hefðu dáið en hann virðist
ætla að hafa þetta af,“ sagði lögreglu-
fulltrúi í samtali við The Los Angeles
Times um málið á fimmtudag.
Steve Jobs
yfirgefur Apple
Forstjóri og helsti hugmyndasmiður
Apple-samsteypunnar, Steve Jobs,
er hættur störfum sem forstjóri fyrir-
tækisins. Hann hefur verið í veik-
indaleyfi frá því í janúar en hann
berst við krabbamein. Þegar Jobs
tók við sem forstjóri fyrirtækisins
árið 1996 var hver hlutur í fyrirtæk-
inu metinn á 6,05 dali en í dag er
hluturinn metinn á 376 dali. Hug-
vit og framtíðarsýn Jobs er það sem
flestir hafa talið vera ástæðuna fyrir
velgengni Apple á undanförnum
árum. Jobs er þó langt í frá horfinn
úr stjórnendateymi Apple en hann
mun setjast í stól stjórnarformanns
fyrirtækisins. Tim Cook tekur við af
Jobs.
Mannýgar kýr
í Sviss
Göngufólk hefur tvisvar orðið fyrir
árásum kúa í Graubünden-kantónu
í Sviss undanfarinn hálfan mánuð.
Frá þessu er greint á fréttavefnum
thelocal.ch. Þann 14. ágúst réðst
kýr með nýfæddan kálf á konu eina
og karlmann sem reyndi að koma
henni til aðstoðar.
Í seinna skiptið réðst kýr á
þrennt, tvær konur og karlmann,
sem voru í gönguferð um fjalllendi í
héraðinu. Þau slösuðust öll töluvert
og voru sótt af björgunarþyrlu eftir
að þeim tókst að gera neyðarlínu
viðvart. Svissnesk yfirvöld hafa ekki
fellt dýrin heldur gefið frá sér leið-
beiningar um það hvernig umgang-
ast beri kýrnar.
n Glenn Beck heldur fjöldafund í Jerúsalem