Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Blaðsíða 46
46 | Sport 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað
Tvöfalt
stjörnulið
Mancinis
B
láliðar Manchester-
borgar í City hafa far-
ið vel af stað í ensku
úrvalsdeildinni.
Milljarðalið Robertos
Mancini hefur unnið tvo fyrstu
leiki sína sannfærandi, skorað
í þeim sjö mörk og virkað afar
sterkt. Nú þegar eru spark-
spekingar farnir að spá þeim
velgengni á tímabilinu, nokk-
uð sem kannski er viðbúið í
ljósi þess hversu sterkum og
rándýrum leikmönnum liðið
hefur sankað að sér síðustu ár.
Pressan er mikil. Eftir tugmillj-
arða fjáraustur í marga eftir-
sóttustu leikmenn Evrópu er
nú svo komið að Mancini get-
ur með góðu móti stillt upp
ógnarsterku byrjunarliði, skip-
uðu heims klassaleikmönnum
í hverri stöðu, og átt annað
byrjunarlið til taks, skipað ekki
lakari leikmönnum ef mark-
mannsstaðan er undanskilin.
Leikmannahópur City
er ekki aðeins rándýr og vel
mannaður hann er einnig
afar stór. Ljóst er að einhver
stór nöfn verða skilin eftir úti
í kuldanum þegar kemur að
því að Mancini þurfi að skera
niður og skila inn 25 manna
leikmannahópi sínum á næst-
unni. Leikmenn sem eiga sér
enga framtíð hjá liðinu, á borð
við Emmanuel Adebayor og
Craig Bellamy, eru líklegir
til að finna sér ný lið á næst-
unni ef marka má slúður síð-
ustu daga. Áætlað markaðs-
virði hópsins sem Mancini
hefur úr að moða nú er um
410 milljónir punda, sem gera
ríflega 76 milljarða íslenskra
króna. Það má spila fótbolta
fyrir svoleiðis upphæðir, en
krafan er líka hvellskýr. Að
allar þessar stjörnur skili ár-
angri á vellinum og bikurum í
hús í lok tímabils. Ætla má að
leikmannahópurinn sé full-
skipaður nú eftir að City festi
kaup á franska miðjumann-
inum Samir Nasri frá Arsenal
í vikunni. Lúxusvandamál
Mancinis er nú að koma öll-
um þessum leikmönnum fyr-
ir því hann er ekki undanskil-
inn þeirri reglu að mega bara
tefla fram 11 leikmönnum á
vellinum í einu frekar en aðrir
stjórar.
Það var ekki dónalegt fyrir
stjórann ítalska að geta stillt
upp sterku liði milljarða-
stjarna gegn Bolton í síðustu
viku. Leikmenn á borð við
Carlos Tevez, Mario Balotelli,
Gael Clichy, Nigel de Jong og
Adam Johnson máttu ýmist
sætta sig við að sitja á bekkn-
um eða vera ekki einu sinni
Sigurður
Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Fótbolti
Alexsandar
Kolarov
James Milner
Joe Hart
Vincent
Kompany
Yaya Toure
Edin Dzeko
Joleon
Lescott
Gareth Barry
Sergio Aguero
Micah
Richards
David Silva
Byrjunarliðið
gegn Bolton 21. ágúst
„Varaliðið“
Pablo
Zabaleta
Shaun
Wright-Phillips
Stuart Taylor
Stefan Savic
Nigel de Jong
Mario Balotelli
Kolo Toure
Samir Nasri
Carlos Tevez
Gael Clichy
Adam
Johnson
valdir í hópinn. DV ákvað að
athuga hvort ekki væri hægt að
stilla upp tveimur samkeppn-
ishæfum liðum úr leikmanna-
hópi Manchester City. Það var
lítið mál eins og sjá má á með-
fylgjandi myndum.
n Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur keypt fjölmargar
stórstjörnur dýrum dómum n Gæti auðveldlega teflt fram tveimur byrjunarliðum
Þessir
komast
ekki að
Wayne BridgeEmmanuel Adebayor Roque Santa Cruz Craig Bellamy
Leikir
helgarinnar
Enska úrvalsdeildin
27. ágúst
11.05 Aston Villa – Wolves
11.30 Wigan – QPR
14.00 Blackburn - Everton
14.00 Chelsea – Norwich
14.00 Swansea – Sunderland
16.30 Liverpool – Bolton
28. ágúst
12.00 Newcastle – Fulham
12.30 Tottenham – Man City
14.00 West Brom – Stoke City
15.00 Man Utd - Arsenal
Aftur til
starfa á
Spáni
Leikmenn spænsku La Liga-
deildarinnar snúa aftur til
starfa á laugardag eftir viku-
langt verkfall. Á fimmtudag
lýstu samtök leikmanna því yfir
að ásættanlegt samkomulag
hefði náðst við forráðamenn La
Liga um tryggingasjóð vegna
launa leikmanna fari svo að
félög fari í þrot. Samtök leik-
manna segja félög á Spáni
skulda yfir 200 leikmönnum
rúmlega 50 milljónir evra í
ógreidd laun. Fyrsta umferð,
sem frestað var, verður leikin
eftir jól en önnur umferð hefst
á laugardag samkvæmt áætlun.
Riðlarnir klárir
Dregið var í riðla Meistara-
deildar Evrópu á fimmtudag og
er að venju von á áhugaverðum
viðureignum. Nokkrir riðlanna
gera tilkall til titilsins „dauða-
riðillinn“ alræmdi. Manches-
ter City bíður erfitt verkefni
í A-riðil þar sem enska liðið
mætir Bayern Munich, Villar-
real og Napoli. Grannar þeirra
í Manchester United sluppu
vel í C-riðli og mæta Benfica,
Basle og Otelul Galati. D-rið-
ill er athyglisverður þar sem
Real Madrid, Lyon og Ajax eru
saman og ljóst að Kolbeinn Sig-
þórsson og félagar í Ajax munu
standa í ströngu. Evrópumeist-
arar Barcelona drógust í riðil
með AC Milan. Chelsea mætir
meðal annars Valencia og Ba-
yer Leverkusen á meðan Arse-
nal bíður erfitt verkefni í riðli
með Marseille, Olympiakos og
Borussia Dortmund.