Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2011, Page 54
54 | Fólk 26.–28. ágúst 2011 Helgarblað
Vinkonurnar
til varnar
Vikan sem nú er að ljúka ein-
kenndist heldur betur af
dramatík og særðu egói fjöl-
miðlakvenna sem hófst á
lýsingu Ellýjar Ármanns á
væntanlegum sjónvarpsþætti
hennar og Tobbu Marinós.
Femínistum þótti strax nóg
um en Tobba gerði allt vitlaust
þegar hún sagðist stolt í út-
varpsviðtali hafa fært jafnréttis-
baráttuna aftur til ársins 1980.
Nú hafa nýjar raddir tekið þátt
í umræðunni en bæði Marta
María, ritstjóri Smartlands, og
Björk Eiðsdóttir blaðamaður
hafa skrifað pistla vinkonum
sínum til varnar. Eflaust hafa
færri áhuga á þessu orðaskaki
þeirra en þær grunar enda týp-
ískt dæmi um það þegar fjöl-
miðlar fá sjálfa sig á heilann.
Bryndís
skammar
Icelandair
„Ég get svo svarið það að ég
hef engan áhuga á að ferðast
nokkurn tímann aftur með
Icelandair,“ segir Bryndís Gyða
Michelsen fyrirsæta sem hefur
verið á ferðalagi um heim-
inn. Hún er nýkomin heim
og segir frá því á Facebook-
síðu sinni að flugfélagið hafi
týnt töskunni hennar í þriðja
skiptið og að hún sé orðin ansi
illa farin eftir barninginn. Í
töskunni voru lyf sem Bryndís
Gyða tekur að staðaldri og hún
fékk hana ekki í hendur fyrr
en þremur dögum eftir að hún
kom til landsins. Þess utan er
taskan stórskemmd og stórt
gat á henni. Bryndís Gyða seg-
ir einnig frá sms-skilaboðum
sem hún fékk frá flugfélaginu
og ollu henni vonbrigðum. Í
skilaboðunum stóð: „Taskan
kom, en var óvart send aftur til
köben.“
Hleypur í kringum Mont Blanc
n Veðurfréttakonan Elísabet Margeirsdóttir tekur þátt í fjallamaraþoni
V
eðurfréttakonan og
hlaupagarpurinn
Elísabet Margeirs-
dóttir tók á fimmtu-
daginn þátt í ofurfjalla-
maraþoninu Ultra-Trail du
Mont-Blanc þar sem hlaup-
ið er í kringum Mont Blanc
sem er hæsta fjalla Alpanna
og hæsta fjall í Vestur-Evr-
ópu. Þrjár vegalengdir eru
í boði í hlaupinu og mun
Elísabet hafa reynt við 112
km sem þykir ansi gott. Þeir
sem til þekkja segja hlaup-
ið eitt það erfiðasta sem er í
boði en hækkunin í hlaupinu
eru 7.100 metrar. Samkvæmt
síðu kapphlaupsins, ultratra-
il.mb.com, taka yfir 2.000
hlauparar þátt en hægt er að
fylgjast með gangi mála á síð-
unni. Heimildir DV herma að
Elísabet hafi æft stíft síðustu
mánuði fyrir hlaupið en hún
tekur þátt ásamt litlum hópi
Íslendinga. Það getur ekki
hver sem er fengið að taka
þátt í Ultra-Trail du Mont-
Blanc heldur er aðeins um
vana hlaupagarpa að ræða.
Þegar blaðið fór í prent var
Elísabet búin að hlaupa í átta
og hálfan tíma og var þá í 276
sæti sem hlýtur að þykja frá-
bær árangur. Þeir allra bestu
eru um 20 tíma að klára
hlaupið en langflestir hlaup-
ararnir koma í mark eftir
30 til 45 klukkutíma. Engir
peningar eru í verðlaun fyrir
efstu sætin.
Hlaupagarpur Samkvæmt
heimildum DV er Elísabet búin að
æfa stíft í marga mánuði enda ekki
hlaupið fyrir hvern sem er.Ultra-Trail du Mont-Blanc Myndin er tekin í keppninni árið 2010 en
útsýnið á greinilega ekki eftir að svíkja Elísabetu og félaga.
Fær ekki
staðist
sushi
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son er sem kunnugt er á
ströngum en alíslenskum mat-
arkúr og bíður eftir að kílóin
renni af sér. Ein helsta freisting
sælkerans Sigmundar er hins
vegar japanskt sushi sem er nú
strangt til tekið forboðin fæða.
Sigmundi finnst sushi algert
sælgæti og getur ekki hugsað
sér að sleppa því úr hinu ís-
lenska mataræði og samkvæmt
nánum aðstandendum stenst
hann ekki freistinguna en fær
sér bara sashimi. En sashimi-
bitar eru einfaldlega hrár fiskur
og þá er hráefnið alíslenskt!
V
ið vorum þarna
úti að kynna Okk-
ar eigin Osló. Þetta
er ein stærsta kvik-
myndahátíðin í
Skandinavíu,“ segir leikstjór-
inn Reynir Lyngdal en hann
er nýkominn heim af kvik-
myndahátíð í Haugasundi í
Noregi. Þar var myndin hans
Okkar eigin Osló sýnd ásamt
tveimur öðrum íslenskum
kvikmyndum, Roklandi eftir
Rúnar Rúnarsson og Eldfjalli
eftir Martein Þórisson. Svo
skemmtilega vill til að eigin-
kona Reynis, Elma Lísa Gunn-
arsdóttir, leikur í öllum þess-
um myndum. „Mér fannst
það eiginlega merkilegast.
Þessar þrjár íslensku myndir
voru valdar inn og Elma leik-
ur í þeim öllum. Ég er ofsalega
stoltur af henni,“ segir Reynir
einlægur.
Hann segir Norðmenn
hafa verið ánægða með Okk-
ar eigin Osló. „Ég held þeir
hafi bara tekið ágætlega í
þetta. Annars erum við með
norskan meðframleiðanda
að myndinni þannig við
erum í ágætis málum í Nor-
egi. Nú bíðum við bara og
sjáum hvort hún fari í bíó eða
í sjónvarp. Annars var það
frekar fyndið að ég kveikti á
sjónvarpinu þarna úti og þá
var verið að sýna Hamarinn
sem ég gerði í norska sjón-
varpinu,“ segir hann hlæj-
andi.
Það er nóg að gera hjá
Reyni og margt í pípunum.
Meðal annars vinnur hann
að skemmtilegu verkefni
ásamt Elmu Lísu. „Við feng-
um nýlega kvikmyndaréttinn
að Fólkinu í kjallaranum eftir
Auði Jónsdóttur. Við erum að
vinna handrit að því í sam-
vinnu við Ólaf Egilsson,“ seg-
ir hann. Elma Lísa leikur ein-
mitt í leikhúsuppfærslunni af
Fólkinu í kjallaranum í Borg-
arleikhúsinu þar sem það
verður tekið aftur til sýninga
í haust, annað leikárið í röð.
En þetta er ekki eina verk-
efnið sem Reynir vinnur að.
„Ég er að vinna ásamt Pega-
sus að handriti upp úr bók-
inni Garðinum eftir Gerði
Kristnýju. Kristófer Dig-
nus skrifar handritið. Þetta
verður svona unglingahroll-
vekja eða draugasaga ef svo
má segja. Það er fjármögn-
un í gangi núna og við von-
umst til að komast í þetta
sem fyrst. Ég held þetta verði
mjög skemmtileg mynd fyrir
unglinga og fullorðna líka.“
viktoria@dv.is
Ofsalega
stOltur af
elmu lísu
Stoltur af Elmu sinni Reynir var
ánægður með eiginkonu sína en hún
leikur í öllum íslensku myndunum
sem sýndar voru á hátíðinni.
Mörg járn í eldinum
Það er nóg af verk-
efnum framundan hjá
Reyni og má þar nefna
kvikmynd eftir bókinni
Fólkinu í kjallaranum og
unglingahrollvekju.