Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Síða 10
ástæða „til að ætla
að hann sé að ljúga“
10 Fréttir 14.–16. desember 2012 Helgarblað
Iceland hangikjötið best í ár
n Kjarnafæði framleiðir kjötið fyrir verslunina
V
ið erum afskaplega ánægðir
með þessa viðurkenningu,“
segir Ólafur Már Sigurðs-
son, sölustjóri Kjarnafæðis,
en fyrir tækið framleiðir Iceland
hangikjötið. Hangikjötið fékk hæstu
einkunn í árlegri hangikjötssmökkun
DV með 8,7 í meðaleinkunn.
Ólafur segir viðurkenninguna
hafa mikla þýðingu fyrir fyrirtækið.
„Þetta er virkilega gott framtak og
gaman að vera með. Svo kemur alltaf
sölukippur í kjölfarið, það er alveg
ljóst.“ Kjarnafæði átti fleiri tegundir
af hangikjöti í smökkuninni og má
þar nefna Kofareykt hangilærið sem
hreppti þriðja sætið.
Jónatan Friðriksson, verslunar-
stjóri Iceland-verslunarinnar við
Fiskislóð tekur í sama streng og
Ólafur og segir að þar á bæ séu menn
alsælir. „Þetta er sérstaklega ánægju-
legt fyrir okkur þar sem þetta er fyrsta
árið okkar. Það er ekki dónalegt að fá
þetta,“ segir hann.
Smökkunin fór fram í fyrr í
mánuðinum og voru það valinkunnir
matreiðslumenn sem voru fengnir í
dómnefndina. n
gunnhildur@dv.is
Segir kýrnar
hafa það gott
„Fjölmiðlar hafa farið offari. For-
dæming mikil. Ég tók þátt í því. Því
miður!“ segir Árni Stefán Árna-
son, lögfræðingur og sérfræðingur
í dýrarétti, á bloggsíðu sinni og
vísar þar til umræðu um að starfs-
leyfi tveggja mjólkurbúa hafi
nýverið verið afturkallað vegna
brota á reglum um hollustuhætti
við framleiðslu mjólkur og með-
ferð sláturgripa. Um er að ræða
Ingunnarstaði í Reykhólahreppi
og Brúarreyki í Borgarfirði. Fjall-
að hefur verið ítarlega um mál-
ið í fjölmiðlum undanfarna daga
og hafa myndir úr fjósinu á Brú-
arreykjum farið fyrir brjóstið á
mörgum. Í samtali við DV.is segir
Árni að hann hafi ákveðið að
heimsækja Brúarreyki til að sjá
sjálfur hvernig aðstæðurnar væru.
Hann segir að það hafi verið auð-
sótt að fá heimsóknarleyfi og hafi
Bjarni og kýrnar tekið vel á móti
honum. Hann segir að kýrnar hafi
verið afar hressar.
S
tjórnarmaður í stéttarfé-
laginu VR, Ragnar Þór Ing-
ólfsson, hefur farið fram á
það að óháður aðili verði
fenginn til að skoða tölvu-
póstsamskipti og símasamtöl for-
manns VR, Stefáns Einars Stefáns-
sonar, vegna ráðningar Söru Lindar
Guðbergsdóttur til félagsins. Þetta
segir Ragnar Þór í samtali við DV.
Ragnar Þór segist hafa borið þetta
erindi upp á stjórnarfundi hjá VR
á miðvikudagskvöldið. Ragnar Þór
segist telja að Stefán Einar hafi ekki
sagt sannleikann um ráðningu Söru
Lindar: „Ég hef ástæðu til að ætla að
hann sé að ljúga.“
Líkt og DV greindi frá á mánu-
daginn í síðustu viku var Sara Lind,
sem er 27 ára, ráðin úr hópi meira
en hundrað umsækjenda í stöðu
deildarstjóra ráðgjafardeildar VR í
apríl síðastliðnum. Sara Lind hafði
á þessum ekki lokið lögfræðinámi
sínu frá Háskóla Íslands og hafði tak-
markaða starfsreynslu. Um fimmtán
starfsmenn vinna undir Söru Lind
hjá VR. Sara Lind er sambýliskona
Stefáns Einars um þessar mundir en
formaðurinn ber því við samband
þeirra hafi ekki verið hafið þegar hún
var ráðin. Ragnar Þór hefur efasemd-
ir um að þetta sé rétt.
Ætti að fagna athuguninni
„Ég bað um að óháður aðili yrði
fenginn til að fara yfir tölvupóst- og
símasamskipti Stefáns Einars við
Söru Lind fyrir ráðningu hennar, eða
frá 1. janúar 2012. Þegar ég bar þetta
upp á fundinum þá hélt ég að hann
ætlaði að drepa mig með augunum.
En ég sagði við hann að ef hann hefði
ekkert að fela þá myndi hann fagna
þessu,“ segir Ragnar Þór.
Í síðustu viku var samþykkt álykt-
un í stjórn VR þar sem lýst var yfir
óánægju með umfjöllun DV um ráðn-
ingu Söru Lindar. Orðrétt sagði í álykt-
uninni: „Stjórn VR lýsir yfir óánægju
vegna fréttar DV mánudaginn 3.
desember 2012 þar sem ráðist er að
starfsheiðri framkvæmdastjóra og
einkalífi formanns VR. Stjórn VR fór
yfir ráðningarferlið á fundi sínum 5.
desember og telur að rétt hafi verið
staðið að ráðningu deildarstjóra Ráð-
gjafardeildar VR. Stjórn VR lýsir því
fullum stuðningi við störf formanns
og framkvæmdastjóra.“
Ragnar segist ekki vera sammála
þessari ályktun og að hann hafi verið
staddur erlendis þegar hún var sam-
þykkt. „Ég styð ekki stjórnina í því að
styðja hann í þessu máli. Ég hef rök-
studdan grun um að samskipti Stef-
áns Einars og Söru Lindar hafi verið
hafin áður en hún var ráðin til VR. Ég
sé enga ástæðu til að fela það að það
er ekki eining um þetta mál innan
stjórnar VR.“
Niðurstaða liggur fyrir í janúar
Ragnar segir að niðurstaða um hvort
orðið verði við þessari beiðni hans
um athugun óháðs aðila á samskipt-
um Stefáns Einars og Söru Lindar
muni liggja fyrir á næsta stjórnar-
fundi hjá VR, í janúar 2013. „Ég er
búinn að biðja um þessar upplýs-
ingar um samskipti Stefáns Einars og
Söru Lindar fyrir ráðninguna til að fá
úr því skorið hvort hann þekkti hana
eða ekki. Ég hef ástæðu til að ætla að
samskipti þeirra hafi verið öðruvísi
en hann lýsir. Ég get ekki sætt mig við
það að Stefán Einar komist upp með
þetta.“ n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„En ég sagði við
hann að ef hann
hefði ekkert að fela þá
myndi hann fagna þessu.
n Stjórnarmaður í VR krefur Stefán Einar Stefánsson um upplýsingar
Beðið um athugun Stjórnarmaður í VR vill að óháður aðili fari yfir síma- og tölvupóst-
samskipti formanns stéttarfélagsins, Stefáns Einars Stefánssonar, vegna ráðningar á
starfsmanni sem í dag er sambýliskona hans. MYND HÖRÐUR SVEINSSON
Efins Ragnar Þór segist telja að Stef-
án Einar hafi ekki sagt sannleikann um
ráðningu Söru Lindar.
Fá gjafir sem
þeir vilja ekki
Meira en fjórði hver lands-
maður fær jólagjöf sem hann
vill ekki eða nýtist hon-
um ekki. Þetta kemur fram
í könnun sem Félagsvís-
indastofnun Háskóla Íslands
gerði fyrir UNICEF á Íslandi.
Spurt var hversu margar
jólagjafir fólk fékk í fyrra sem
það vildi ekki eða nýttust ekki.
Í ljós kom að 29 prósent fólks
fengu eina eða fleiri slíkar gjaf-
ir. Athygli vekur að fimm pró-
sent landsmanna fengu fimm
eða fleiri gjafir sem þeir kærðu
sig ekki um eða höfðu engin
not fyrir. Samkvæmt könnun-
inni má ætla að fólk á Íslandi
fái um það bil 155.000 gjafir
fyrir jólin sem það vill ekki eða
nýtast ekki.
Viðurkenning veitt
Fulltrúar Iceland, Jóna-
tan, t.v., og Kjarnafæðis,
Ólafur Már, t.h., tóku á
móti viðurkenningum í
höfuðstöðvum DV.