Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Qupperneq 23
Erlent 23Helgarblað 14.–16. desember 2012 Svipmyndir liðinnar viku n Brot af því besta frá ljósmyndurum Reuters-fréttastofunnar víðs vegar að úr veröldinni Gordon Brown var sybbinn Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, virðist hafa verið ansi syfj- aður á ráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna um menntun barna. Ráðstefnan var haldin í höfuð- stöðvum Menn- ingarmálastofn- unar Sameinuðu þjóðanna og sér- staklega tileinkuð Malölu Yousafazi, pakistönsku tán- ingsstúlkunni sem varð fyrir skotárás herskárra talibana eftir að hún hafði barist fyrir menntun stúlkna. Myndin í bakgrunni er af Malölu en hún liggur þungt haldin á breskum spítala. Gengið frá dómsátt Hér sést Diallo, hótelþernan sem kærði Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, fyrir nauðgun, yfirgefa Hæstarétt í New York ásamt lögmanni sínum. Gengið hefur verið frá dómsátt í málinu og óstaðfestar fregnir herma að Strauss-Kahn verði látinn borga þernunni upphæð sem jafn- gildir meira en 700 milljónum íslenskra króna. Átök við landamærin Líbanskir hermenn taka sér stöðu í Trípólí í norðurhluta Líbanons, en þar hafa geisað hörð átök milli súnní- og sjíta múslima. Nýlega voru fjórtán líbanskir og palestínskir hermenn drepnir af sýrlenskum öryggis- sveitum við landamæri Sýrlands og Líbanons. Kátir leiðtogar Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Francois Hollande, forseti Frakklands, voru í sjöunda himni á hátíðarathöfn friðarverðlauna Nóbels sem haldin var í byrjun vikunnar. Eins og kunnugt er hlaut Evrópusambandið verðlaunin í ár vegna þess stöðugleika og friðar sem ríkt hefur meðal aðildarríkja sambandsins allt frá dögum seinni heimsstyrjaldarinnar. Frakkland og Þýskaland eru einhver valdamestu ríki sambandsins og voru leiðtogar þeirra kampakátir við athöfnina. Harmleikur í London Hér sést Lisha Barboza ásamt föður sínum sem heldur á mynd af eiginkonu sinni heitinni, hjúkrunar- fræðingnum sem framdi sjálfsvíg eftir að hafa orðið fyrir barðinu á símahrekk ástralskra útvarpsmanna. Málið vakti heimsathygli í vikunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.