Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Blaðsíða 39
gang. Þetta er mitt verkefni og ég verð að fylgja eigin sannfæringu.“ Aðspurð um álit sitt á listafólki sem notar útlit sitt og kynþokka til að ná langt hugsar hún sig lengi um. „Fyrsta orðið sem mér dettur í hug er fyndið. Ég myndi aldrei gera þetta. Ég er alltaf í síðerma lufsukjól á sviðinu. Ég held líka að ég sé að spila fyrir allt annan hóp. Þeir sem koma á mína tónleika eru ekkert að spá í slíkt. Auðvitað kemur til mín fólk, og þá aðallega stelpur, eftir tónleika og hrósa mér fyrir flott hálsmen eða kjól. Það er hægt að vera í flottum fötum án þess að reyna vera kynþokkafull og sexí. Persónulega myndi ég aldrei fara þá leiðina en ég veit ekki hvort mér finnst það beint kjánalegt. Það hentar mér ekki en aðrir mega gera slíkt fyrir mér. Allir þeir listamenn sem ég fylgist með eru nokkurn veg­ inn í klæðum á sviðinu en fólk má gera það sem það vill. Alveg eins og ég má gera það sem ég vil.“ Minna djamm – meiri hlaup Sóley er í sambúð með myndlistar­ manninum Héðni Finnssyni en parið hefur verið saman í fjögur ár. „Héðinn er að klára myndlist í Lista­ háskólanum og svo vinnur hann líka í Máli og menningu. Hann er svona bókanörd. Og tónlistarnörd líka,“ segir hún en þau Héðinn eru barn­ laus. Aðspurð viðurkennir hún að langa til að eignast fjölskyldu í fram­ tíðinni. „Maður sér bara hvað ger­ ist. Það er allt hægt varðandi ferða­ lög og fleira. Slíkt krefst bara meira skipulags.“ Hún segir minna um djamm þegar hún ferðast um heiminn í dag en þegar Seabear var á tón­ leikaferðalagi. „Þá var ég miklu meira túr­partýdýr. Ég hef aldrei prófað eiturlyf og hef engan áhuga á því en auð vitað fær maður sér bjór eða eitthvað. Seabear var partí­ hljómsveit og með þeim var mikið stuð. Þar spilaði ég líka bara á hljóm­ borð og söng bakraddir. Núna þarf ég að passa mig meira. Ef maður er að partíast mikið getur röddin farið. Þessi ferðalög eru mikil vinna. Maður er að spila mjög mikið og oftast á hverjum degi. Því gefst ekki mikill tími til að hvíla sig. Annars er ég með yndislega drengi með mér. Þeir eru báðir mjög rólegir auk þess sem annar drekkur ekki. Við fáum okkur því í mesta lagi eitt rauðvínsglas og erum svo farin að sofa. En svo tekur maður betur á því þegar við erum ekki að fara að spila. Þetta hefur því verið rólegt. Ég hef líka verið dugleg að taka með mér hlaupaskóna á tónleikaferða­ lög. Maður getur nefnilega tjúllast á löngum ferðalögum að sitja í bíl allan daginn. Því er gott að halda í geðheilsuna með því að halda lík­ amanum gangandi og fara út að hlaupa og borða hollt.“ Vill halda í virðinguna Sóley fékk sérkennilegt tilboð á dögunum þegar henni var boðinn tveggja ára samningur hjá hinum heimfræga Cirque du Soleil. „Ég hefði kannski íhugað þetta betur ef ég hefði verið beðin um að koma til að semja músík og flytja mína eigin. Þeir vildu fá mig sem söng­ konu. Ég er ekki lærð söngkona og ef ég hefði farið hefði ég þurft að setja mitt verkefni á „hold“ í tvö ár,“ segir hún og bætir við að hún hafi rætt tilboðið við plötufyrirtæki sitt. „Ég hefði eflaust fengið einhvern pen­ ing fyrir þetta en ég held að þetta hefði allt saman verið á skjön við mína ímynd. Þetta er svona eins og með kynþokkann. Maður er búinn að búa sér til ákveðna ímynd og vill einnig halda í virðinguna sína. Ég vil frekar vera virt sem manneskja sem býr allt til sjálf, semur og spilar, túrar og rótar heldur en einhver strengja­ brúða sem skoppar á milli.“ Sóley vinnur sem tónlistar­ kennari meðfram tónlistarsköpun­ inni. „Ég tók mér frí frá venjulegu vinnunni minni í haust. Mér finnst gaman að kenna en ég var það mikið í útlöndum að það var ekki að ganga upp. Núna er ég ekki að fá neina mánaðarlega innkomu en ég sé hvað gerist,“ segir hún og bætir við að hún stefni á að byrja að vinna að nýrri plötu fljótlega. „Planið var að hún kæmi út næsta haust en ég er ekkert byrjuð af viti. Við Héðinn vorum að flytja og fengum bíl­ skúr með sem við ætlum að inn­ rétta sem stúdíó og vinnurými. Það er lítið að gerast í þeirri vinnu svo ég held að platan komi ekki út fyrr en á þar næsta ári. En þetta kemur í ljós. Kannski verð ég „on fire“ þegar ég fæ bílskúrinn. En mér finnst samt óþarfi að vera eitthvað að flýta sér.“ Á peninga einhvers staðar Hún segir mikla pressu á nýrri plötu en að það sé hægara sagt en gert. „Nú bíða allir spenntir en maður þarf peninga til að lifa. Það tekur langan tíma að gera plötu og ég klúðraði öllum styrkjum í haust. Það var svo mikið að gera og ég gleymdi að sækja um. Ætli Héðinn verði ekki bara að hætta í skólanum og fara að vinna,“ segir hún brosandi en bæt­ ir við að hún eigi peninga einhvers staðar í heiminum. „Ég held að þannig séð séu einhvers staðar pen­ ingar sem ég á. Eins og með þetta You Tube dæmi. Ég veit ekki hvernig þetta virkar með greiðslur og slíkt en umboðsmaðurinn minn er að garfa í því öllu saman. Ég lifi ekkert hræði­ legu lífi, ekki ennþá, og mér líður vel eins og þetta er núna. Ég held líka að maður verði ekkert hamingjusamur með of mikla peninga. Þeir gera mann bara gráðugan. Nema maður sé það góður og viljasterkur að geta gefið til góðgerðarsamtaka eða eitt­ hvað þannig.“ n Menning 39Helgarblað 14.–16. desember 2012 „Hljómfagur Hljómskáli“ „Veisla í veröld hugmyndasögu“ „Áræðið verk frá Hjaltalín“ Hljómskálinn RÚV ð ævisaga Höfundar margir Enter-4 Hjaltalín Myndi aldrei nota kynþo kann Sóley Sóley finnur fyrir mikilli pressu að koma út nýrri plötu en segir það hægara sagt en gert. Mynd Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.