Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Side 41
Smákökur 41Helgarblað 14.–16. desember 2012 Amerískar smákökur bestar 1 Amerískar kökur Sendandi: Ingibjörg Sunna Þrastardóttir Ummæli dómnefndar: Þessar eru klassískar – Þetta eru þessar gömlu klassísku sem allir geta gert – Ekta smákökur – Mjög góðar – Mættu vera aðeins minni – Stökkar og góðar með góðum kaffibolla – Gott eftirbragð Uppskrift: n 2 bollar haframjöl n 1 ½ bolli hveiti n 2 bollar sykur n 1 bolli rúsínur n 250 gr smjörlíki n ½ tsk. natron n ½ tsk. hjartarsalt n ½ tsk. ger n 2 egg Blandið þurrefnum saman í skál. Bætið smjöri og eggjum saman við og hnoðið. Hnoðið rúsínur að lokum upp í deigið. Hnoðið litlar kúlur úr deiginu, þrýstið létt á og raðið á bökunarplötu með góðu bili á milli. Bakið við 180°C við blástur í 5–10 mín. 3-4 Sætir kókostoppar Sendandi: Svava Gunnarsdóttir Ummæli dómnefndar: Klassískur kókostoppur – Góður – Aðeins of mikið súkkulaði, of þykkt Uppskrift: n 2/3 bolli niðursoðin sæt mjólk n 1 stór eggjahvíta n 1 ½ tsk. vanillusykur n 1/8 tsk. salt n 3 ½ bolli sætar kókosflögur n 200 gr suðusúkkulaði Hitið ofninn í 160°C. Hrærið saman niðursoðinni mjólk, eggjahvítu, vanillusykri og salti þar til allt hefur blandast vel saman. Bætið kókosflögum út í og blandið öllu vel saman. Setjið deigið með teskeiðum á bök- unarpappírsklædda ofnplötu og mótið það í toppa. Bakið í 15–20 mínútur. Látið kökurnar kólna áður en botninn á þeim er hjúpaður með súkkulaði. Bræðið suðusúkkulaði yfir vatnsbaði og dýfið kókostoppunum í bráðið súkkulaðið þannig að það fari aðeins upp á hliðarnar. 5-8 Rauð jól Sendandi: Eyrún Eggertsdóttir Uppskrift: n 4 dl dökkt súkkulaði (2 plötur 70% og 1 plata 50%) n 3 eggjahvítur við stofuhita n 6 dl flórsykur n 1 ¼ dl ósætt kakóduft n 2 msk. maizena-mjöl n ¼ tsk. salt n 2 msk. kaffi (uppáhellt) n 1 chili 5-8 Gullmolar Sendandi: Hrönn Bjarnadóttir Uppskrift: n 300 gr hveiti n 1 tsk. matarsódi n 230 gr mjúkt smjör n 50 gr sykur n 115 gr púðursykur n 1 tsk. vanilludropar n 1 pakki Royal-vanillubúðingur n 2 egg Sett út í : n Hvítir súkkulaðidropar n Dökkir súkkulaðidropar n Súkkulaðihjúpað karamellukurl n Hakkaðar heslihnetur Smjör, sykri, púðursykri og vanillu hrært saman. Vanillu- búðingi hrært út í og eggin sett eitt í einu. Hveiti og matarsóda bætt út í og hrært vandlega. Súkkulaði, hnetum og sælgæti blandað út í deigið. Magn fer eftir smekk hvers og eins. Mótið kringlóttar kökur úr deiginu, um það bil 7–8 sentímetra í þvermál, 1– 2 sentímetra á þykkt. Bökun: Bakið við 180°C í um það bil 10 mínútur. Athugið að þær eiga að vera svolítið eins og hráar þegar þær koma út. Þrýstið ofan á kökurnar með flötum spaða til að gera þær þynnri um leið og þær hafa verið teknar út. Kælið. 2 Karamellukökur Sendandi: Thelma Þorbergsdóttir Ummæli dómnefndar: Þessar höfða örugglega mjög til unga fólksins – Sætar, mjúkar og góður karamellukeimur Uppskrift: n 225 gr smjör við stofuhita n 200 gr dökkur púðursykur n 100 gr sykur n 2 egg n 1 ½ tsk. vanilludropar n 2 msk. síróp n 150 gr hveiti n 3 tsk. kanill n 1 ½ tsk. matarsódi n ½ tsk. maldon salt n 350 gr dökkt súkkulaði, gróf saxað n 200 gr H-berg pekanhnetur n 200 gr hafrar Karamella: n 30 stk. Nóa Síríus ljósar töggur n 6 msk. rjómi n 4 msk. síróp 1. Hitið ofninn í 180°C. Hrærið smjöri, sykri og púðursykri vel saman. Bætið við eggjum og hrærið vel saman á milli. Bætið við vanilludropum og sírópi. 2. Blandið saman hveiti, kanil, salti og matarsóda og bætið rólega saman við. 3. Grófsaxið súkkulaðið og hneturnar niður og blandið saman með sleif. Bætið saman höfrum og hrærið vel saman. 4. Setjið um það bil 30 gr í hverja köku. Myndið litla bolta og setjið á plötu með smjörpappír. Bakið í 10–12 mínútur. Passið að baka þær ekki of lengi. Kökurnar eru mjög linar þegar þær eru teknar út úr ofninum. Þegar kökurnar eru teknar út úr ofninum er stráð maldon salti yfir þær. Kælið í 15 mínútur. Á meðan kökurnar kólna er gott að undirbúa karamelluna sem er svo hellt léttilega yfir hverja köku. 5-8 Jólafjólur Sendandi: Hugrún Jóhannesdóttir Uppskrift: n 500 gr hveiti n 375 gr smjör n 250 gr púðursykur n 1 egg n ½ tsk. hjartarsalt n ½ tsk. vanilludropar n 2 tsk. kanill n 1 tsk. kakó n 1 msk. birkifræ Hnoðið allt saman og geymið í kæli í klukkutíma. Búið til litlar kúlur og raðið á smurða plötu og gerið holu í hverja þeirra. Bakið í miðjum ofni við 250°C í 8–10 mínútur. Fylgist vel með. Takið út, þrýstið teskeið eða sleifarskafti ofan í hverja köku svo holan haldist og kælið síðan. Krem: n 4 eggjarrauður n 2 dl rjómi n 1 dl sykur n 50 gr smjör n ½ tsk. vanilla Setjið allt í pott og hitið og hrærið kröftuglega og alveg stöðugt þar til kremið er orðið þykkt og gullið. Ef það skilur sig skal setja eina matskeið af sjóðandi vatni út í. Kælið. Skraut: Hitið rólega saman 50 gr möndluflögur og 150 gr sykur. Hrærið stöðugt og hellið á disk þegar blandan er orðin fallega brún. Kælið. Þegar allt innihaldið er orðið kalt er krem sett á hverja köku með teskeið. Krókantið mulið í morteli og sett vel á hverja köku. Takið nokkrar kökur og myljið í morteli og stráið yfir kökurnar ásamt örlitlu af birkifræi. Kökumylsnan minnkar líkur á að kremið smitist út. 5-8 Stúfur Sendandi: Eva María Hallgrímsdóttir Uppskrift: n 1 1/3 bolli hveiti n 1 tsk. lyftiduft n 1 tsk. matarsódi n ¼ tsk. salt n 1 bolli haframjöl n 200 gr hvítir Nóa Síríus dropar n ½ bolli púðursykur n ½ bolli sykur Allt sett í skál og hrært vel saman með sleif. Bætið svo við: n 1 egg n 1 tsk. vanilludropar n ½ bolli mjög lint smjör Hnoðið þetta vel saman í höndunum ofan í skál- inni. Búið til kúlur og setjið í 170°C heitan ofn í 10 mínútur. Leyfið kökunum að kólna í 10–15 mínútur en búið til karamelluna sem fer ofan á á meðan. Karamella: n 30 stk. Nóa Síríus töggur n 4 msk. síróp n 6 msk. rjómi 3-4 Spesíurnar hans afa Sendandi: Elín Hróðný Ottósdóttir Ummæli dómnefndar: Góð smákaka – Minnir á mömmu og gamla tíma Uppskrift: n 400 gr smjör n 500 gr hveiti n 150 gr flórsykur n 200 gr Síríus- suðusúkkulaði Hnoða saman mjúkt smjör, hveiti og flórsykur. Gott að vinna hráefnin saman fyrst í hrærivél. Skera suðusúkkulaðið í hæfilega bita og blanda að endingu saman við deigið. Búa til lengjur úr deiginu og kæla í að minnsta kosti klukkustund. Lengjurnar skornar í sneiðar og raðaða á smjörpappír á bökunarplötu. Bakað við 175°C í um það bil 12–15 mínútur. Fallegasta kakan Líkt og fyrir ári valdi dómnefndin fallegustu kökuna. Var það samhljóma ákvörðun þeirra að Pekan- karamellukaka Völu Hauks- dóttur væri sú fallegasta. n 1 bolli hveiti n 1/3 bolli kakó n ¼ tsk. salt n 110 gr lint smjörlíki n 2/3 bollar sykur n 1 eggjarauða n 2 eggjahvítur n 2 msk. mjólk n 1 tsk. vanillusykur n 150 gr pekanhnetur Karamella: n 250 gr rauðar töggur n 2 msk. rjómi Þeytið vel saman smjörlíki og sykri. Bætið eggjarauðum og mjólk út í og þeytið vel. Blandið hveiti, kakói, salti og vanillusykri saman við og hrærið. Setjið deigið í plast- filmu og inn í ísskáp í klukkustund. Þeytið eggjahvítur saman þar til þær freyða og setjið í skál. Saxið pekanhnetur smátt og setjið í aðra skál. Búið til kúlur, um 2,5 sentímetra í þvermál, dýfið í eggja- hvíturnar og rúllið svo upp úr hnetunum. Setjið kúlurnar á bökunarpappír og búið til holu í miðja kökuna. Gott er að nota mæliskeið, stærð ½ teskeið. Bakið í 12 mínútur við 180°C. Þegar kökurn- ar eru teknar út þarf að móta holuna aftur. Karamella: Setjið karamellurnar og rjómann í pott og bræðið yfir lágum hita. Setjið svo um það bil ½ teskið af karamellu á hverja köku. Skreytið með bráðnuðu súkkulaði. Bílaverkstæði Varahlutaverslun Smurstöð Dekkjaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa www.bilaattan.is Allt á einum stað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.