Listin að lifa - 01.06.2014, Page 4

Listin að lifa - 01.06.2014, Page 4
Ljósmjnd: Hermann Sigurðsson. Afmæliskveðja r frá forseta Islands Þegar landssamtökum eldra fólks var ýtt úr vör var það til vitnis um þátíaskil í þróun íslensks samfélags. Með bættum efnahag og framförum í heilbrigðismálum náðu landsmenn sífellt hærri aldri og æ fleiri héldu fullum kröftum. Þarfirnar og viðhorfin voru að taka stakkaskiptum. Landssamband eldri borgara hefur nú í aldarfjórðung verið vettvangur umræðu og baráttu fyrir betri þjónustu og marg- víslegum hagsmunum, en um leið eins konar samviskuvaki: minnt þjóðina á framlag fyrri kynslóða til þess Islands sem við nú njótum og líka á skyldur hinna yngri við fólkið sem með lífsverki sinu lagði grundvöll að hagsæld og framförum okkar tíma. Jafnframt hefur sambandið og félög þess áréttað kraftinn sem enn býr i hínum eldri; að nauðsynlegt sé að endurskoða hefðbundin viðhorf til getu og réttar, þjónustu og aðbúnaðar. Málflutningurinn hefur ávallt verið efnisríkur og sannfærandi enda hefur Landssambandið notið forystu úrvalssveitar sem hert var í glímunni við önnur vandamál, kom úr flokkum og samtökum sem eiga fjölbreyttar rætur. Garnlir mótherjar gerðust vinir og baráttufélagar í samtökum hinna eldri. Hún er skemmtileg minningin frá því þegar ég tók á móti fulltrúum Landssambands eldri borgara hér á Bessastöðum og í salinn gengu glaðir og brosandi margir félagar sem áður voru-í forystu andstæðra flokka, skipuðu stjórnir í samtökum launafólks og atvinnulífs; andlitin sem þjóðin hafði áður þekkt úr kappræðu daganna en voru nú sameinuð á vettvangi hagsmuna hinna eldri. Landssambandið og aðildarfélögin öll hafa því á margan hátt orðið okkur til gæfu - fært þjóðinni dýrmæta lærdóma: að kynslóðirnar eru í þakkarskuld hver við aðra og samstaðan gerir okkur sterkari. Ég færi Landssambandinu árnaðaróskir á þessum tímamótum og jafnframt þakkir íslendinga fyrir framgöngu og máb flutning í þágu betra samfélags. 4

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.