Listin að lifa - 01.06.2014, Side 32

Listin að lifa - 01.06.2014, Side 32
Frá sameiginlegum kvöldverði fulltrúa frá félögum eldri borgara á Norðurlöndum. Fréttir frá Samstarfsnefnd eldri borgara á Norðurlöndum Formaður LEB á sæti í Norrænu samstarfsnefndinni sem Landssamtök eldri borgara á Norðurlöndunum hafa myndað. Hér eru nokkur af þeim atriðum sem komið hafa fram á þeim fundum uppá síðkastið. Færeyjar: Ný lög um eldri borgara eru í vinnslu og eiga að taka gildi 1. janúar 2015. Þar er áætlað að flytja málaflokkinn frá ríki til sveitarfélaga. Petta hefur verið í vinnslu frá 2012. Landsfélag Pension- ista í Færeyjum telur að löggjöfin komi ekki til móts við þeirra tillögur um sjálfsákvörðunarrétt og þarfir aldraðra. Peir telja einnig að fátækt sé ríkjandi meðal eldra fólks í Færeyjum. Noregur: Þar er mikið rætt um hreyfingu og hollt mataræði. Pann 12. jan. sl. var ráðstefna í Noregi sem bar heitið: Omsorg gjen- nom mat og maltider. Par var fjallað um mat, máltíðir og heilsu. Pví verður fylgt eftir með annarri ráðstefnu 16. septem- ber n.k. þar sem sjónum er beint að heilsu og næringu. Peir leggja áherslu á að velferðartækni fyrir aldraða sé þjón- usta sem býðst en ekki vara sem á að selj- ast. Peir vilja fá umboðsmann aldraðra og meiri fjármuni til að efla hreyfingu aldraðra og helst að fá „Aktivitetssen- ter“ sett á fót. Pó að rannsóknir sýni að í Noregi sé best að eldast þá eru 25% með lágmarkseftirlaun og margir sagðir undir fátæktarmörkum. Par er algengt að fara á eftirlaun 61 árs, en fólk kemur líka seint út í atvinnulífið. I Noregi er búið að lögleiða notkun GPS tækja við vöktun alzheimersjúklinga. Danmörk: í Danmörku var sett aukafjárveiting í fjár- lögin um betri heimilishjálp. Par er lögð áhersla á endurhæfingu aldraðra, einnig menntun starfsfólks i heimaþjónustu. Sveitarfélögin sóttu það stíft að fá meira í þennan málaflokk og Danir telja að hin nýju öldungaráð hafi þar áhrif. Brýnt sé að virkja öll öldungaráð og að þar fari fram pólitísk umræða um stöðu eldri borgara. Lélegt tölvulæsi eldri borgara er vandamál vegna síaukinnar tölvuvæð- ingar og verið að stofna tölvumiðstöðvar til að leiðbeina eldri borgurum. Samtök eldri borgara vilja einnig vera meira sýni- leg meðal framtíðarfélaga sem eru nú á milli 50 og 60 ára. Svíþjóð: Umræður um aðbúnað aldraðra hafa verið háværar í Svíþjóð. Par virðist lítill pólitískur áhugi á málefnum aldraðra. I rannsókn kom fram að 16% kvenna og 13% karla eldri en 65 ára eru beitt ofbeldi í Svíþjóð. Par hefur verið hleypt af stokkunum herferð sem ber yfirskriftina: „Ofbeldi gegn öldruðum á ekki að líðast.“ I Svíþjóð eru helstu áherslumál hjá Samtökum eldri borg- ara eftirfarandi: Heimilislæknar fari í heimavitjanir. Ókeypis tanneftirlit annað hvert ár. Mikilvægi góðrar heilsu og næringar. Leggja áherslu á fjölgun heilsuræktarstöðva fyrir eldri borgara. Málefni aldraðra verði EKKI flutt til sveitarfélaga. Leggja meiri áherslu á menningu og frelsi. Pá vilja þeir að allir sem þurfa af heilsufarsástæðum að dvelja á hjúkrunarheimilum eigi hafa til þess lagalegan rétt. Finnland: Par gengu ný öldrunarlög í gildi 1. júlí 2013. Tilgangur þeirra er m.a. að bæta heilsufar og velferð eldri borgara og draga úr misskiptingu velferðarinnar; að styðja þátttöku aldraðra í samfélaginu; að bæta sjálfstæði aldraðra með því að grípa snemma til aðgerða til að koma í vég fyrir minnkandi hreyfigetu; að aldraðir hafi greiðan aðgang að mati á þeirri þjónustu sem þeir þarfnast. Öldungaráð er lögfest sem ópólitískt og ráðgefandi ráð. í Finnlandi er þó eins og hjá flestum öðrum talið að of litlu fé sé varið til öldrunarmála. JVK tók saman. Alþýðusamband íslands óskar eldri borgurum til hamingju með 25 ára afmæli Landssambandsins og þakkar öflugt samstarf á liðnum árum. Alþýðusamband ísland: 32

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.