Listin að lifa - 01.06.2014, Side 14

Listin að lifa - 01.06.2014, Side 14
Fjármál við starfslok VÍB hefur á undanförnum mánuðum boðið upp á fræðslufundi um fjármál við starfslok. Þegar starfsævinni lýkur taka fjármálin meiri breytingum en margir eru búnir undir og geta flækst til muna. A fundunum er farið yfir nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa á hreinu. Tryggingastofnun Allar nauðsynlegar upplýsingar um greiðslur og skerðingar Tryggingastofiv unar er að finna á vefsíðunni www. tr.is. Misskilningur vegna kerfisins er afar útbreiddur en má auðveldlega leið- rétta með því að eyða nokkrum mín- útum á vefsíðunni. I reiknivél lífeyris, á forsíðu tr.is, er hægt að fá nákvæma mynd af þeim áhrifum sem tekjur geta haft á greiðslur og þar má meðal annars sjá að vextir hafa talsvert minni áhrif á bætur en margir halda. Að auki er mikilvægt að gleyma ekki að skila inn tekjuáætlun, þannig má draga úr líkum þess að stofnunin sendi rukkun seinna meir. Björn Berg Gunnarsson frá VIB. Að fresta eða flýta töku lífeyris Því fer fjarri að allir hætti að vinna 67 ára og því er fullt tilefni til að kynna sér reglur lífeyrissjóða varðandi töku lífeyr- is. Reglurnar eru misjafnar milli sjóða en þeir geta allir með lítilli fyrirhöfn gefið upp skerðingu eða aukningu rétt- inda vegna slíkrar tilfærslu. Petta eru mikilvægar upplýsingar sem auðvelt er að verða sér út um. Er skynsamlegt að taka út séreignarsparnað? Séreignarsparnaði (viðbótarlífeyri) er ætlað að vega á móti þeirn tekjumissi sem við verðum flest fyrir þegar lífeyris- sjóðsgreiðslur taka við af launum. Eftir 60 ára aldur er ráðstöfun sparnaðarins frjáls og er heimilt að leyfa honum að ávaxtast áfram (sem hann gerir án fjármagnstekjuskatts) eða að fá hann greiddann út. Lítið mál er að fá reglu- legar greiðslur úr séreignarsparnaði, stórar og srnáar og frjálst er að gera breytingar á greiðslutilhögún. Vert er að muna að við ráðum sjálf hvernig séreignarsparnaður er ávaxt- aður og ef sparnaðurinn er á Islandi er lítið mál að gera breytingar. Við útgreiðslu er mikilvægt að muna eftir þrepaskipta tekjuskattskerf- inu og vera meðvituð um þann skatt sem þarf að greiða. Fjármál við starfslok Upptaka af námskeiði VIB um fjármál við starfslok er aðgengileg á vefnum www.vib.is. Á forsíðunni er smellt á „Sjónvarp“ og er þar fjölmörg fræðslu- myndbönd að finna. Ráðgjafar eigna- og lífeyrisþjónustu VÍB hafa sérhæft sig í ráðgjöf um fjár- mál við starfslok. Velkomið er að hafa samband í síma 440-4900 eða á vib@vib.is. 14

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.