Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 6
6 Fréttir 19.–21. apríl 2013 Helgarblað Maðurinn ófundinn n Ekkert spurst til Íslendingsins í S-Ameríku Þ að eru ýmsar sögur í gangi og við viljum ekkert tjá okk- ur um það. Það hefur ekkert komið út úr þessari eftir- grennslan, segir Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn aðspurður um Íslendinginn sem enn er leitað í Suður-Ameríku. Líkt og sagt hefur verið frá óskuðu íslensk lögregluyfirvöld eftir því við lögregluyfirvöld í Paragvæ og Brasilíu að hafin yrði eftirgrennslan eftir manninum. Maðurinn hefur ekki verið úti lengi en fyrr í vikunni var fullyrt í fjölmiðlum að leitað væri tveggja manna og þeir hefðu verið viðriðnir fíkniefnaviðskipti þar í landi. Sagt hefur verið frá því að einnig væri leitað af öðrum Íslendingum í tengslum við hvarfið. Friðrik segir það ekki vera rétt, lögregla hafi einungis óskað eftir því að reynt væri að hafa uppi á einum Íslendingi, manni fæddum árið 1983. Lögreglan staðfestir að leit hafi hafist eftir að lögreglu bárust ábendingar um grunsamlegt hvarf hans. Íslenska lögreglan hefur átt í samstarfi við Interpol og lögreglu- yfirvöld í Paragvæ við leitina. n J ón S. von Tetzchner, fjárfestir og stofnandi norska hugbún- aðarfyrirtækisins Opera, er stærsti einstaki fjárfestirinn á bak við hugbúnaðarfyrirtæki Guðjóns Guðjónssonar í OZ. Félagið heitir OZ, líkt og hugbúnaðarfyrir- tækið fræga sem Guðjón var kennd- ur við um síðustu aldamót. Nýlega jók OZ hlutafé fyrirtækisins um 300 milljónir króna. Aðspurður segir Guðjón að Jón von Tetzchner hafi lagt fram mest hlutafé allra sem settu fjármuni í OZ. „Það voru um tíu aðilar sem tóku þátt í þessari frumfjármögn- un á félaginu.“ Jón er stærsti fjár- festirinn en þar á eftir má nefna fjárfestingarfélagið Investa, sem er í eigu fyrrverandi starfsmanna gamla OZ, meðal annars Hilmars Gunnarssonar. Meirihlutinn ,,englafjárfestar“ Guðjón segir að meirihluti þeirra aðila sem tóku þátt í hlutafjáraukningunni séu svokallaðir „englafjárfestar“: Menn sem koma snemma inn í fyrir- tæki sem eru í þróun. „Allir sem eru að fjárfesta í fyrirtækinu hjá mér eru ekki að horfa til íslenska markaðar- ins. Stóra myndin okkar er að keppa við Netflix og Hulu á alþjóðlegum markaði. Við ætlum að nota íslenska markaðinn sem byrjunarskref til að prófa og þróa vöruna áfram. Íslenskur markaður ber ekki þá vöruþróun sem við erum að vinna að. Þannig að við þurfum að komast á erlendan mark- að, helst á næsta ári,“ segir Guðjón. Persónulegt sjónvarp OZ sérhæfir sig í að smíða tækni sem á að gera áhorfendum kleift að nota sjónvarp án þess að þurfa að reiða sig á krónólógískar útsendingar á hefð- bundnum sjónvarpsrásum. Hug- myndin er sú að sjónvarpsáhorf- andinn horfi á það sem hann vill þegar hann vill. Sjónvarpsnotandinn kaupir aðgang að geymsluplássi í gagnaveri sem gerir honum kleift að vista efni sem hann hefur áhuga á að horfa á og á hann svo að geta ákveðið hvenær hann notar efnið. „Við erum að hjálpa sjónvarpsstöðvum til að umbreyta dagskrárútsendingunni þannig að hún verði ekki línuleg leng- ur. Þú átt að geta fylgst með þeim dag- skrárliðum sem þú vilt þegar þú vilt. Þeir dagskrárliðir sem þú vilt horfa á safnast þá bara saman í þínu persónu- lega geymsluplássi,“ segir Guðjón. Guðjón segist vongóður um að OZ geti byrjað að bjóða upp á þessa þjónustu hér á landi eftir nokkr- ar vikur eða mánuði. Hann segir að um þessar mundir sé hugbúnaður- inn til prófunar hjá 200 manna hópi Íslendinga. „Þetta er svo gott sem tilbúið. Við búumst við að opna þetta eftir nokkrar vikur eða mánuði. Við erum svo að horfa til Skandinavíu þar sem Bandaríkjamarkaður er mjög erfiður.“ Hefur komið með tvo milljarða Jón S. von Tetzchner hefur komið með um tvo milljarða króna hingað til lands síðastliðin ár. Fjármagnið hefur Jón komið með í gegnum fjár- festingaleið Seðlabanka Íslands. Jón hefur fjárfest fyrir hluta þessara peninga, meðal annars í atvinnu- húsnæði, tölvu- og hátæknifyrir- tækjum, vefverslunum auk OZ auðvitað. Líkt og DV greindi frá á miðvikudaginn flutti félag Jóns, Dvorzak á Íslandi ehf., meira en 650 milljónir til landsins í gegnum fjár- festingaleið Seðlabanka Íslands í byrjun mánaðarins. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Tetzchner stærstur hjá Guðjóni í nýja OZ n 300 milljóna hlutafjáraukning n Vilja búa til persónulegt sjónvarp „Það voru um tíu aðilar sem tóku þátt í þessari frumfjármögn- un á félaginu. Mest „englafjárfestar“ Guðjón segir að flestir af fjárfestunum á bak við OZ séu „englafjárfestar“, menn sem fara snemma inn í fyrirtæki og gerast hluthafar. Leitað Maðurinn er enn ófundinn. Árétting Á forsíðu miðvikudagsblaðs DV var birt mynd af Eiríki Tómas- syni, forstjóra Þorbjarnar hf. í Grindavík, með forsíðutexta sem vísaði til viðskipta annars útgerðarfélags í Grindavík, Vís- is hf. Áréttað er að textinn vís- aði ekki til viðskipta Þorbjarn- ar heldur til viðskipta Vísis í Kanada. Eiríkur Tómasson er beðinn afsökunar á þessum mistökum. Önnu er enn leitað Heil vika er nú liðin frá því að leit hófst að Önnu Kristínu Ólafs- dóttur. Hennar hefur verið sakn- að frá því á fimmtudagskvöld fyrir rúmri viku. DV greindi frá því á miðvikudaginn að yfirhöfn, skór og veski í eigu Önnu Kristínar hafi fundist í fjörunni við Ægisíðuna, skömmu eftir að leit hófst. Leitin hefur af þeim sökum aðallega beinst að strandlengj- unni í Vesturbænum og út á Sel- tjarnarnes. Þó hefur leitin teygt anga sína að Gróttu, í norðri, og út til Straumsvíkur, í suðri. Leitað hefur verið á sjó, landi og úr lofti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Önnu Kristínar er leitað því í nóv- ember síðastliðnum var einnig lýst eftir henni. Þá fannst hún skömmu eftir að leit hófst. Anna Kristín er 57 ára, stjórn- sýslufræðingur að mennt og starfar hjá Umhverfisstofnun. Áhyggjur af ójöfnuði Á Prestastefnu, sem haldin var í Háteigskirkju 16. til 18. apríl, var meðal annars samþykkt ályktun um baráttu gegn misskiptingu og fátækt. „Sameinumst gegn mis- skiptingu og fátækt á Íslandi og í samfélagi þjóðanna. Baráttan gegn fátækt og misskiptingu auðs er eitt brýnasta mannréttindamál samtímans,“ segir meðal annars í ályktuninni. Þar var einnig lýst yfir áhyggjum vegna aukinnar mis- skiptingar eftir efnahagshrun, en þess má geta að mjög hefur dregið úr ójöfnuði frá efnahagshruni og mælist hann nú minni en víðast hvar í heiminum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.