Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 56
Að barma sér yfir lýðræðinu! Óákveðinn Þorsteinn n Leikarinn og uppistandarinn Þorsteinn Guðmundsson virðist eiga erfitt með að gera upp hug sinn fyrir kosningarnar. Fréttamaður- inn Jóhannes Kr. Kristjánsson birti eftirfarandi mynd á Facebook- síðu sinni en eins og sjá má á henni þá hefur hann ákveðið að gera ekki upp á milli flokkanna og styðja þá alla. Þorsteinn hefur því safnað að sér barmmerkjum allra flokkanna og fest þau framan á jakkann sinn og ber þau með stæl fram að kosningum. Dansa fyrir Davíð n Zumbakennarar í World Class ætla að styrkja söngvarann Davíð Þorstein Olgeirsson og fjölskyldu hans með því að hafa svokallaðan Ofur-Zumbatíma í dag, föstudag, í World Class Laugum. Davíð var að spila fótbolta 14. febrúar síð- astliðinn þegar hann fékk bolta í höf- uðið sem olli heilablæð- ingu. Blæðingin hafði áhrif á talstöðvar og hreyfigetu Davíðs og hann lamaðist á hægri hlið líkam- ans. Hann er nú í endurhæfingu. 2.000 króna aðgangsgjald er í Zumba- tímann og allur ágóði rennur til Davíðs og fjöl- skyldu hans. Bogomil Font mun tromma í tímanum. Ekki sykursæt n Marta María Jónasdóttir tekur til varna fyrir nýjasta mataræðis- æðinu sem tröllríður land- anum þessa dagana. Í pistli á Smartlandinu segist Marta María hafa reynt að lágmarka sykur- og kolvetnaneyslu undanfarin fimmtán ár. Segir hún það hafa bætt lífsgæði sín talsvert. Hún skýtur föstum skotum á gagn- rýnendur LKL-mataræðisins, sem gengur út á að lágmarka kol- vetnaneyslu og kallar Steinar B. Aðalbjörnsson „ljósbekkjabrúnan næringarfræðing“ og segir hann vísa í gamaldags fræði. „[...] ekki leið á löngu þar til ljósabekkja- brúnn næringar- fræðingur reis upp á afturlappirnar og vísaði í löngu úrelt- an fæðupíramída. Sá ljósabekkja- brúni vill endi- lega að við höldum áfram að dæla í okk- ur kornvör- um og sykri,“ segir hvassyrt Marta María alsæl og sykur- snauð. L ogi Bergmann hefur átt í mjög stífu og einkennilegu sambandi við Facebook-ið mitt,“ segir sjónvarpskonan Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir í samtali við DV. Sig- ríður varð fyrir hressilegum hrekk af hans hálfu á fimmtudaginn. Logi komst inn á Facebook-síðu hennar og sendi inn spurningu á Beina línu DV þar sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sat fyrir svörum. „Hvernig finnst þér ég standa mig í sjónvarpinu? (Ísland í dag)“ spurði Logi í nafni Sigríðar. Það stóð ekki á svari frá Bjarna: „Æ, bara alveg óaðfinnanlega. Alltaf svo einlæg.“ Þetta er langt frá því að vera í fyrsta skipti sem Logi hrekkir Sigríði á Face- book, en hann virðist vera mjög lunk- inn við að komast inn á síðuna hennar. „Þar sem ég er ekkert voðalega dug- leg á Facebook þá hefur Logi eiginlega bara séð um þetta síðustu vikur,“ segir Sigríður hlæjandi. „Hann hefur á löngum Facebook- misþyrmingarferli bætt við svona þús- und manns sem heita Rodriguez á síð- una mína. Og þegar hann var búinn klára alla Rodriguez þá fór hann yfir í fræga Íslendinga og „addaði“ öðrum hverjum manni sem hefur birst í sjón- varpi eða skrifað bók.“ Það er ljóst að metnaðurinn hjá Loga er mikill en hann tók sig líka til á dögunum og bætti langflestum fram- bjóðendum í Alþingiskosningunum á vinalistann hjá Sigríði. En þeir eru ófáir líkt og flestir vita. „Best væri náttúrulega ef Logi gæti fengið sér dagvinnu og þyrfti ekki að hafa eitthvað svona sér til dundurs.“ Sigríður segir að flestir sem þekki hana séu orðnir vanir því að hún segi skrýtna hluti á Facebook og þeir geri sér grein fyrir því að hún ber ekki ábyrgð á nema litlum hluta. „Restin er algjörlega í boði Loga Bergmann.“ n „Alltaf svo einlæg“ n Logi Bergmann hrekkti Sigríði á Beinni línu Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 19.–21. Apríl 2013 44. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr. Ekki á Beinni línu Sigríður birti mynd af sér á Facebook þar sem hún er önnum kafin við að slípa gólf, til að sanna að hún hefði aldeilis ekki verið á Beinni línu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.