Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 18
18 Fréttir 19.–21. apríl 2013 Helgarblað Sjálfstæðar konur settu síðan á flot innan flokksins. Það voru aldeilis ekki allir sammála þeirri nálgun en stór hópur fólks náði að knýja þetta í gegn meðal annars með dyggum stuðn- ingi manna eins og Geirs H. Haarde og Péturs Blöndal. Það var ómetan- legt að fá stuðning þessara manna í svona mikilvægu baráttumáli en það er engin spurning í mínum huga að þarna var einn stærsti sigurinn í jafn- réttisbaráttunni unninn. Ólöf: Ég get bara svarað fyrir mig. Mér hefur ekki þótt svo vera. Kannski fyrst þegar ég var að byrja, þá fannst mér eins og fólk tryði mér ekki eins vel og næsta manni þegar ég talaði um efnahagsmál en það breyttist. Bæði af því að ég hef lagt mig í líma við að tala um þau og svo af því að ég öðlaðist meira sjálfstraust og þar með meiri styrk. Lilja: Ég upplifði mun meiri dóm- hörku gagnvart konum bæði í fjöl- miðlum og meðal kjósenda. Þetta varð til þess að margar konurnar á þingi lögðu meiri áherslu á að kynna sér ítarlega mál í stað þess að eyða tíma í að kanna eða móta afstöðu annarra þingmanna til mála. Mér fannst kjósendur oft sýna konum sem ekki voru með eitthvað á hreinu meiri ósvífni en körlum á fundum. Útlit og klæðnaður kvenna Er almenn umræða um þingkonur að einhverju leyti frábrugðin umræðunni um þingmenn? Siv: Já, það er talsvert meira rætt um fatnað kvennanna, útlit, radd- beitingu og framkomu heldur en karl- anna. Faðir minn hefur klippt út alla umfjöllun um mig í dagblöðum frá upphafi og á nú 25 úrklippubækur. Þar má sjá þetta með skýrum hætti, svo sem umfjöllun um klæðnað minn og útlit. Ég gerði það að leik mínum í jafnréttisfyrirlestri fyrir nokkrum árum, sem bar heitið Rauðir pinna- hælar og gráir rykfrakkar, að taka nokkur slík úrklippudæmi og setti inn nafn karlkyns þingmanns í stað míns. Þá varð umfjöllunin sprenghlægileg og eiginlega absúrd. Svo sem, Páll Pétursson mætti brosandi á Bessa- staði í glæsilegum, stílhreinum silki- buxum og svo framvegis. Þorgerður Katrín: Ég held að fólk sé orðið meðvitað um að það er ekk- ert rosalega smart að tala bara um út- lit og klæðnað kvenna sem koma fram í sjónvarpinu. Þar var umræðan fyrir tíu árum og þegar ég tók þátt í um- ræðum um pólitísk mál í sjónvarpssal þá fannst mér helvíti fúlt þegar það fyrsta sem ég heyrði var að ég hefði verið í flottum jakka eða ég hefði fitn- að á meðgöngu. Þetta er hluti af þessari sögu, svona var þetta á fyrstu árunum mínum á þingi en við erum komin lengra núna. Sumir segja þó að það séu gerðar meiri kröfur til kvenna og ég held að það megi að mörgu leyti taka undir það. Enn er það einnig algengt að á kon- ur í íslenskri pólitík eru hengd ýmis viðhengi eins og stjórnlyndir karlar í flokknum, makar, feður eða bara hver sem hentar hverju sinni. Við fáum ekki alltaf að vera þessir sjálfstæðu einstaklingar sem við erum og í póli- tík á eigin forsendum og verðleikum. Það er ákveðin pólitík að veikja kon- ur með þessum hætti, það hentar ekki alltaf, en stundum. Ólöf: Mér finnst enn of mikið rætt um útlit þingkvenna og eins þykir enn of merkilegt að þingmenn séu að skipta á bleyjum. Það þarf að breyta þessu. Ég nenni ekki að lesa meira um að þessi og hin þingkonan sé rosa smart og vel til höfð og hann svo svakalega duglegur í eldhúsinu. Lilja: Mér hefur oft fundist þekk- ingu og málflutningi þingkvenna sýnd minni virðing en þingkarla. Menntun mín og hagfræðiþekking var mjög oft dregin í efa í umræðum um flók- in efnahagsmál af fólki sem hafði afar litlar forsendur til að gera það. Þekktir bloggarar og fjölmiðlar fjalla auk þess mun meira um um- mæli og tillögur karla í pólitík en kvenna. Þöggunin takmarkar mjög möguleika kvenna til að eiga samtal við kjósendur með sama hætti og karlar í pólitík. Ég fór framhjá þessari hindrun með því að tjá mig á Face- book um hugmyndir mínar og tillögur ásamt því að leiðrétta rangfærslur og útúrsnúninga. Nú í aðdraganda kosn- inga er nánast eingöngu fjallað um og vitnað í karla í almennri umræðu um kosningarnar. Það eru vonbrigði hvað þessi kynjahalli vekur litla athygli. Haldið frá ákvarðanatöku Stundum er talað um að konum sé haldið frá ákvarðanatöku, að ákvarð- anir séu teknar á óformlegum vett- vangi en ekki á formlegum fundum þar sem konur hafa rödd. Hvernig er þín reynsla úr pólitíkinni, standa konur jafnfætis körlum þegar það kemur að ákvarðanatöku á þingi eða öðrum störfum þingmanna? Siv: Maður hefur orðið var við það alveg frá upphafi að oft eru ákvarð- anir teknar í illsýnilegum hópum þar sem karlar eru aðallega með í ráðum. Þeir virðast stundum eiga léttara með að ráðfæra sig við sitt eigið kyn. Í gegnum þessi ár hefur maður til dæmis orðið var við það að karlarnir hringjast talsvert á til að ráðfæra sig við hvern annan eða ganga frá hlut- um. Það er síður haft samband við konurnar með þessum óformlega hætti. Þær eru þá settar í þá stöðu að þurfa að samþykkja eða andmæla á fundum eða síðari stigum þegar aðrir hafa meira og minna klárað málin. Þorgerður Katrín: Við getum kallað það glerþak, við getum kallað það múra en konur mættu ósýnileg- um hindrunum á sínum tíma. Það var ekki alveg sjálfgefið að maður væri inni í ákvarðanatökum þó að maður væri í einhverri tiltekinni stöðu. En mér finnst það hafa breyst til batnað- ar. Á endanum snýst þetta alltaf um það hvernig samskipti þú átt við fólk og hvernig tengslanet þú byggir upp. Í dag tel ég að konur standi jafn- fætis körlum varðandi ákvarðanatöku en það hefur ekki alltaf verið sjálf- sagt og það hefur heldur betur ekki gerst baráttulaust. Við höfum þurft að vera í hlutverki fílsins í postulíns- búðinni og það hefur ekki alltaf verið skemmtilegt, en það var alltaf þess virði að taka slaginn. Ég held að það eigi ekkert frekar við um minn flokk en aðra flokka, ég hef horft upp á kon- ur í öllum öðrum flokkum reita hár sitt vegna þessa. Það var mikilvægt fyrir mig að sjá að konur voru í sama strögglinu og ég sjálf annars staðar, en það var jafnvel enn mikilvægara að sjá sterkar konur taka við forystunni, eins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gerði á sínum tíma. Ég var ekki alltaf sammála henni en hún hafði áhrif og það var ekki hægt að líta lengur fram hjá mikilvægi þess að hafa konur í fremstu röð. Hún sýndi það líka að hún var ekki einhver táknmynd heldur gerandi og leiðtogi. Ég tel að allar konur sem hafa ver- ið í forystusveit flokksins sendi mikil- væg skilaboð til kvenna og karla. Þær hvetja konur til þess að halda áfram og karlana til þess að fá fleiri konur inn til þess að styrkja flokkinn og auka breiddina, ekki veitir af. Ólöf: Ég hef verið mjög lánsöm í mínum störfum í stjórnmálum. Ég hef unnið með góðu fólki, konum jafnt sem körlum. Við höfum lagt áherslu á að ákvarðanir séu teknar í samráði við sem flesta – hjá okkur höfum við kom- ist sameiginlega að niðurstöðu í þing- flokki Sjálfstæðisflokksins. Lilja: Mín reynsla er að karlar voru oftar búnir að „heyra hljóðið“ í öðr- um þingmönnum þvert á flokka varð- andi afstöðu til ákveðinna mála í um- ræðu eða vinnslu mála í þinginu. Mér fannst konurnar halda sig meira við samskipti við þingmenn í eigin flokki. Grimmdin kom á óvart Hvað kom þér mest á óvart þegar þú settist á þing? Siv: Það kom mér skemmtilega á óvart hvað þingmenn voru oft góðir vinir þvert á flokka og hvað andinn gat verið góður í nefndarstörfunum. Það kom mér líka á óvart hvað bar- áttan gat verið grimm innan flokka og samkeppnisumhverfið slítandi. Odd- vitar lista eru sjaldan í skjóli og margir tilbúnir til að ná því sæti af þér. Þetta er eðli stjórnmálanna, en baráttan er harðari en margan grunar. Maður hefur því safnað þykkum skráp á þessum árum. Ólöf: Að geta ekki vitað hvenær vinnudegi lýkur – ég skildi það ekki. Að geta ekki svarað fjölskyldunni um eitt né neitt. Lilja: Hvað hæfni þingmanna skiptir litlu máli og hvað valdakerfið er fast í sessi innan veggja þingsins. Framkvæmdavaldið ræður öllu í krafti meirihlutans en þingmenn meirihlutans eru að mestu leyti valda- laust tæki þess. Stjórnarmeirihlutinn hafði aðeins samráð við stærstu þingflokkana, Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn. Aðrir vissu varla hvað var í gangi. Skemmtilegasta starf í heimi Hvað er það jákvæðasta við vinnu- staðinn? Siv: Það eru forréttindi að fá að koma hugmyndum sínum á framfæri og í verk í þingstörfunum. Þingmenn eru flestir eldhugar og brenna fyrir því að koma hugmyndafræði sinni og flokka sinna í gagnið. Þingið er vett- vangur þessarar vinnu. Mér finnst líka mjög jákvætt hvað starfsfólk Alþingis er hæfileikaríkt og duglegt. Aðstoð þeirra er ómetanleg. Þorgerður Katrín: Það sem mér fannst jákvæðast við Alþingi var að þar fékk ég ótrúlega gott tækifæri til að hitta alls konar fólk, sem sumt var skemmtilegt en annað fúllynt, sumt var skapandi annað neikvætt, en allt lifði það og hrærðist í samfélaginu og hafði sögu að segja. Það skiptir máli fyrir stjórnmálamenn að hlusta og reyna að beita stöðu sinni til þess að bæta hag þessa fólks. Það er það sem situr eftir og gerir þetta að skemmti- legasta starfi í heimi. Ólöf: Það er einhver óskiljanleg dínamík á Alþingi. Eitthvað gott þrátt fyrir allt argaþrasið. Ég hef eignast vini í öllum flokkum sem ég veit að munu fylgja mér og það finnst mér dásamlegt. Lilja: Upplýsingaskyldan sem framkvæmdavaldið hefur gagnvart þinginu. Ég fékk upplýsingar sem veittu mér einstakan skilning á stöð- unni í efnahagsmálum sem ég reyndi síðan að einfalda og miðla í gegnum blogg, Facebook og viðtöl. Starfsfólk Alþingis var afskaplega hjálplegt og reyndist mér faglega vel og var gott að starfa með því. Ég er líka þakklát eins- tökum embættismönnum sem létu mig fá upplýsingar sem ég þurfti sem þingmaður. Óvissan og skítkastið erfiðast En það neikvæðasta? Siv: Vinnutíminn er oft óútreikn- anlegur. Þorgerður Katrín: Af því að ég er frekar glöð og bjartsýn þá finnst mér erfitt að benda á það neikvæða við starfið en auðvitað var óvissan erfið sem og þetta persónulega skítkast. Sjálf hef ég byggt upp þykkan skráp en það gerir það kannski að verkum að umræðan getur magnast og farið á erfiðara plan. Sumt var eflaust rétt annað var rangt en ég hafði enga leið til þess að leiðrétta eitt eða neitt. Mín- ir nánustu tóku það nærri sér og það var vont. Ég held að það sé það erfið- asta við að vera í pólitík, að sjá vanlíð- an hjá þeim sem maður elskar. Amma sagði að það væri mannlegt að reiðast en djöfullegt að vera langrækinn og ég hef alltaf hugsað þetta á erfiðum stundum. Það eina sem gildir er að halda áfram með gleðina í farteskinu. Ólöf: Að við skulum ekki hafa bor- ið gæfu til að sýna landsmönnum betri hlið á Alþingi. Sú góða vinna sem fer fram í nefndum og það sem ekki sést á sjónvarpsskjánum. Það er mikill skaði. Lilja: Klækjastjórnmál og að vera skilgreind út frá fjölskyldutengslum og hollustu við flokksforystuna í VG. Mér sárnaði mest þegar ég fékk áskor- un frá hópi fólks úr menningar- og menntaelítunni sem skoraði á mig að segja mig frá þingmennsku vegna af- stöðu minnar til Icesave I. Þetta fólk átti að vita betur. Afstaða mín til Ice- save I og II var líka oft útskýrð af for- ystu VG með tilvísun til þess að for- eldrar mínir og nokkrir ættingjar hefðu kosið Sjálfstæðisflokkinn í ára- tugi. Ég gleymi því heldur aldrei þegar forysta VG setti mig af sem formann Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins þremur dögum áður en ég átti að fara til Strassborgar og flytja ræðu sem full- trúi flokkahópsins míns um skýrslu OECD um efnahagsmál. Taka slag á eigin forsendum Hvað þarf maður að hafa til brunns að bera til að ná langt í pólitík á Íslandi? Þorgerður Katrín: Ef ég á að tala út frá eigin reynslu hefur það alltaf kom- ið mér vel að vera glöð, raunsæ og hafa trú á samfélagið og því að við getum náð lengra. Án þess að vera einhver Pollýanna þá skaðar það ekki að vera bjartsýnn eða vongóður. Sumir segja að ég sé strákastelpa, ég veit ekki hvort það er jákvætt eða neikvætt en ég held að við stelpurn- ar eigum að gera það sem okkur líður best með að gera og við trúum á. Það hefur hjálpað mér að vera strákastelpa að því leytinu til að þá er ég eins og ég er. Á meðan ég er ekki að þykjast vera önnur en ég er styrkist ég. Það að ég sé strákastelpa tengist ekki bara því að ég fékk strákalykil í sundlaugunum þar til ég var fjórtán ára heldur þykja mér ákveðnir hlutir skemmtilegri en aðrir og það er búið að kyngera þá sem strákahluti. En það þarf ekkert endilega að vera strákalegt að hafa áhuga á bílum og smíðum og rífa kjaft. Það getur líka verið stelpu- legt. Við megum ekki halda að við séum allar eins, við nálgumst hlutina með mismunandi hætti en við getum háð slagi á okkar forsendum. Mér þótti vænt um það þegar vin- kona mín sendi mér tilvitnun í Noru Ephron því þegar hún las það þá hugs- aði hún strax til mín: „Whatever you choose, however many roads you tra- vel, I hope that you choose not to be a lady. I hope you will find some way to break the rules and make a little trou- ble out there. And I also hope that you will choose to make some of that trou- ble on behalf of women.“ Ég held til dæmis að ég hafi aldrei verið nein sérstök dama. Af því að þessi ákveðna vinkona mín getur líka verið hálfgerð samviska mín þótti mér vænt um að fá þetta. Að vita að ég var ekki alltaf þæga stelpan. Ég er sjálf- stæðismaður en ég er líka femínisti og ég skammast mín fyrir hvor- ugt. Femínisti er bara ákveðið póli- tískt spektrum og það er ekki hægt að njörva alla femínista niður í sama „Maður hefur orðið var við það alveg frá upphafi að oft eru ákvarðanir teknar í ill- sýnilegum hópum þar sem karlar eru aðallega með í ráðum. Siv Friðleifsdóttir Alþingi Þrátt fyrir allt, óvissuna varðandi vinnutím- ann, baráttuna og karlaveldið er einhver óskiljanleg dínamík á Alþingi sem konurnar kunnu að meta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.