Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 10
10 Fréttir 19.–21. apríl 2013 Helgarblað Enskumælandi geta brátt gefið blóð n Blóðbankinn kemur til móts við blóðgjafa eftir gagnrýni N ú styttist í það að þeir sem eru enskumælandi geti gerst blóð- gjafar hjá Blóðbankanum. Hingað til hefur það verið þannig að aðeins þeir sem tala ís- lensku geta gefið blóð en eftir um- fjöllun Reykjavík Grapevine um mál- ið hefur Blóðbankinn lagst í að þýða eyðublöð og bæklinga fyrir blóðgjafa yfir á ensku. DV grennslaðist fyrir um málið þegar maður, sem vildi ekki láta nafn síns getið, hafði samband við blaðið og sagðist hafa verið hafnað sem blóðgjafa vegna þess að hann talaði ekki íslensku. Þegar málið var kann- að kom í ljós að Sveinn Guðmunds- son, yfirlæknir hjá Blóðbankanum, hafði lofað bót og betrun á þessu eftir umfjöllun Reykjavík Grapevine árið 2010. Þegar DV hafði samband við Svein vegna málsins sagði hann að verið væri að prenta út eyðublöðin og bæklinga fyrir blóðgjafa og væri upplagið væntanlegt innan fárra daga. „Við fórum yfir okkar praxís. Hann var skýr en við vorum með eyðublöð, upplýsingar og fleira sem við þurft- um að endurbæta. Við höfum lagt í vinnu og kostnað til að bæta þetta með okkar takmarkaða mannafla og fjármagn. Reglan á að vera skýr; að einstaklingur sem vill gerast blóð- gjafi þarf að geta gert sig skiljan legan á íslensku eða ensku. Þarf að geta les- ið upplýsingarbækling og spurninga- lista á íslensku eða ensku og þarf að geta tekið við upplýsingum og svar- að spurningum heilbrigðisstarfs- manns okkar á íslensku eða ensku,“ segir Sveinn sem segir að til séu lönd sem gera mun betur en Íslendingar en á móti eru lönd eins og Danmörk og Svíþjóð sem eru mun strangari í þessum málum. „Við erum að reyna að teygja okkur en þetta er skylda vegna til- skipunar Evrópuráðsins. Við verðum að geta tekið við upplýsingum og miðlað þeim. Það er ekki réttlætan- legt að vera með túlka því fólk þarf að geta rætt persónuleg málefni við okkar fólk án þess að nokkur annar heyri. Við höfum reynt að koma til móts við þetta, að því er ég veit best,“ segir Sveinn. n birgir@dv.is H reiðar Már Sigurðsson, þá- verandi forstjóri KB banka, ákvað að fara í samkeppni við Íbúðalánasjóð árið 2004 eftir að ljóst varð að ný íbúðabréf (HFF-bréf) ÍLS yrðu óupp- greiðanleg frá og með 1. júlí 2004. Þar með vissi hann að ÍLS gæti ekki brugðist við samkeppni frá bank- anum og fór því í beina samkeppni nokkrum vikum eftir breytinguna samkvæmt heimildum DV. Það mat Hreiðars Más reyndist rétt. Ýmsar fleiri ástæður voru líka að baki ákvörðun KB banka um að fara inn á markaðinn. Heimildarmaður sem DV ræddi við segir að þessi breyting á verðbréfaútgáfu ÍLS hafi hins vegar skipt höfuðmáli. Án hennar hefði þessi innkoma verið of áhættusöm fyrir KB banka. Aðrar ástæður voru meðal annars að lækka kostnað við útibúanet sem hafði áður heyrt undir Búnað- arbankann. Eitt af skilyrðum þess að fá íbúðalán hjá KB banka var að viðkomandi væri í almennum við- skiptum við bankann. Með því að bjóða hagstæð íbúðalán voru margir sem færðu viðskipti sín til bank- ans sem þannig jók markaðshlut- deild sína. Þá hafi erlend matsfyrir- tæki líka gagnrýnt hinn nýstofnaða banka fyrir að lítið væri af veðhæf- um eignum að baki útlánasafni hans. Einnig hefur verið nefnt að þar sem ÍLS hugðist fara í að bjóða öllum 90 prósenta fasteignalán myndi slíkt eyðileggja stöðu bankanna á íbúða- markaði. Bankarnir voru með um 20 prósent markaðshlutdeild í formi svokallaðra viðbótarlána sem fólk gat fengið á hærri vöxtum en ÍLS bauð ofan á þau 65–70 prósenta lán sem tekin voru hjá ÍLS. Uppgreiðsluvandi stærsta ógn ÍLS Í þessu samhengi má nefna að 1. júlí 2004 breytti ÍLS verðbréfaút- gáfu sinni. Hóf sjóðurinn að gefa út svokölluð HFF-íbúðabréf sem eru óuppgreiðanleg en á móti gátu þeir sem voru með lán hjá sjóðnum greitt upp sín lán. Eins og áður hefur komið fram í fréttum má rekja stærsta vanda ÍLS í dag til uppgreiðsluáhættu sjóðs- ins en á árunum 2004 til 2006 námu uppgreiðslur hjá sjóðnum 240 millj- örðum króna. Einungis nokkrum vik- um eftir breytingu á verðbréfaútgáfu ÍLS eða í ágúst 2004 hóf KB banki síðan innreið á íbúðalánamarkað- inn með krafti. Varð það til þess að Íbúðalánasjóður fór þegar í árslok 2004 að bjóða 90 prósenta íbúða- lán til allra óháð tekjum en áætlanir höfðu gert ráð fyrir að sú framkvæmd yrði ekki að fullu gengin í gegn fyrr en vorið 2007 þegar framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun og álver á Reyðar- firði yrði að fullu lokið. Frá því í júlí 2004 og fram að bankahruninu í október 2008 veitti ÍLS um 265 milljarða króna í ný íbúðalán. Á sama tímabili veittu bankarnir 450 milljarða króna í ný íbúðalán. Þannig veitti ÍLS 40 pró- sent af íbúðalánum á þessu tímabili á móti 60 prósentum hjá bönkunum. Þá lánaði ÍLS fjármálastofnunum um 100 milljarða króna sem þær lánuðu síðan sjálfir áfram í formi íbúðalána. Fóru gegn ráðleggingum sérfræðinga Nefnd um endurskipulagningu verðbréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs lagði til í október 2003 að brugðist yrði við þessum uppgreiðsluvanda með því að skuldarar sem nýttu sér uppgreiðsluheimild yrði gert að greiða að fullu þann vaxtamun sem hlytist af uppgreiðslu láns fyrir lokagjalddaga. Við þessu varð Árni Magnússon, þáverandi félags- málaráðherra, ekki þegar frum- varp hans um breytingu á verð- bréfaútgáfu var lagt fram í mars 2004. Er það rökstutt í frumvarpinu að sú leið sem nefnd um endur- skipulagningu verðbréfa útgáfu lagði til, sé talin hafa í för með sér ýmis vandkvæði, enda geti hún mögulega sett íbúðakaupendur í erfiða stöðu, torveldað sölu fast- eigna vegna áhvílandi lána og veikt samkeppnisstöðu banka í útlánum til húsnæðiskaupa. Þetta bauð hins vegar hættunni heim eins og síðar kom í ljós þegar KB banki hóf inn- reið sína á íbúðalánamarkaðinn eins og áður var rakið. n Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar annas@dv.is n Hreiðar Már vissi að ÍLS gæti ekki brugðist við samkeppni frá KB banka 2004 INNKOMA KB BANKA VAR ENGIN TILVILJUN Hafði rétt fyrir sér Samkvæmt heimildum DV ákvað Hreiðar Már Sigurðsson, þáverandi forstjóri KB banka, að fara í samkeppni við Íbúðalánasjóð um leið og hann heyrði að íbúðabréf ÍLS yrðu ekki lengur uppgreiðanleg. Upphlaup í Hörpu: Kallaði Teit drullusokk Teitur Atlason, frambjóðandi Samfylkingarinnar, segir Gunn- laug Sigmundsson, fyrrverandi þingmann Framsóknarflokks- ins og föður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Fram- sóknarflokksins, hafa kallað sig „drullusokk“ á fundi Samtaka atvinnulífsins í Hörpu á fimmtu- dagsmorgun. Teitur var staddur þar til að dreifa bæklingum um efnahags- stefnu Samfylkingarinnar. „Þarna var saman- kominn fríð- ur hópur af allskonar rík- um köllum í jakkafötum og konum í drögt- um. Ég var þarna, upplifði mig svolítið eins og kræki- ber í helvíti. Ég var að heilsa fólki sem ég þekki og sá Gunnlaug Sig- mundsson skjótast þarna um. Ég rétti fram höndina og segi: Sæll Gunnlaugur! Hann reiddist svona svakalega við það og sagðist ekki ætla að taka í höndina á mér af því ég væri drullusokkur og sagði mig mannorðsræningja. Svo fór hann bara, mér leið eins og ég hefði fengið kalda vatnsgusu framan í mig,“ sagði Teitur í samtali við DV.is. Hann segir Gunnlaug hafa horfið á brott en komið svo aftur til Teits. „Með fúkyrðaflaum. Þá sagði ég að ég hefði ekki mik- ið við hann að segja því okkar samskiptum hefði lokið í Hér- aðsdómi Reykjavíkur fyrir ári þar sem ég vann sigur í raun og veru gegn honum í meiðyrðamáli. Þá var eins og við manninn mælt að hann rauk á brott. Síðan vorum við að koma okkur inn í salinn þar sem var svolítið þröngt og ég var þarna í dyrunum. Þá æpti hann þarna yfir mig og alla sem voru í kringum mig: Farðu burt drullu- sokkur! Þá var þarna kona sem var á milli mín og Gunnlaugs og hún snéri sér við og sagði: Varstu að tala við mig? Og Gunnlaugur sagði: Nei! og byrjaði að útskýra. En þá sagði hún hátt og snjallt: Þú getur sjálfur verið drullusokkur Gunnlaugur! Þannig að ókunnug kona stóð upp mér til varnar og mér þótti óskaplega vænt um það. Síðan hélt fundurinn áfram og ég hafði engar spurnir af honum aftur,“ segir Teitur. Ekki náðist í Gunnlaug vegna málsins. Stefna Gunnlaugs Sigmunds- sonar og eiginkonu hans gegn Teiti Atlasyni var vísað frá dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur í sept- ember í fyrra. Krafðir um 16 milljarða Slitastjórn Glitnis krefur þá Lárus Welding, fyrrverandi for- stjóra bankans, og Guðmund Hjaltason, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Glitnis, um samtals sextán millj- arða króna í skaðabætur. Málið má rekja til þess að Lárus og Guðmundur voru í desember dæmdir fyrir að misnota að- stöðu sína með því að lána Mile- stone rúmar 102 milljónir evra í febrúar 2008 í Vafningsmálinu. Fengu þeir níu mánaða fang- elsisdóm, þar af þrjá skilorðs- bundna. Þeim dómum var áfrýj- að til Hæstaréttar. RÚV greindi frá málinu á fimmtudag. Enskan tekin gild Brátt geta enskumælandi einstaklingar gefið blóð hjá Blóðbankanum án allra vandkvæða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.