Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Side 9
Fréttir 9Helgarblað 19.–21. apríl 2013
KR-ingur
vann átta
milljónir
KR-ingur einn datt heldur betur
í lukkupottinn á miðvikudag
þegar hann tippaði á leiki á
svokölluðum miðvikudagsseðli
Íslenskra getrauna í vikunni.
Hann var með þrettán rétta og
hlaut rúmar átta milljónir króna í
skattfrjálsan vinning. Samkvæmt
upplýsingum frá Íslenskum get-
raunum kostaði miðinn við-
komandi 304 krónur og ávaxtaði
hann því krónurnar vel. Mun
hann hafa tvítryggt fjóra leiki
og sett 1 merki á níu leiki og allt
gekk þetta upp hjá honum.
„Ég hataði
þennan mann“
Gústaf Reynir Gylfason var á
miðvikudag dæmdur í þriggja
og hálfs árs óskilorðsbundið
fangelsi fyrir stórfellda líkams-
árás. Gústaf réðst þann 10. febr-
úar í fyrra á mann sem tengist
honum fjölskylduböndum, sló
hann í höfuð og barði hann með
þungum stól.
Í dómsúrskurði Héraðsdóms
Norðurlands eystra kemur fram
að Gústaf taldi sig eiga harma
að hefna gagnvart manninum.
Móðir Gústafs er bróðurdóttir
mannsins og hefur hún sakað
hann um kynferðislega misnotk-
un sem átti sér stað er hún var
barn. Fleiri konur hafa sakað
manninn um slíkt og hafa tvær
þeirra lagt fram kæru til lög-
reglunnar. Málin eru í rannsókn
hjá lögreglu en eru að líkindum
fyrnd.
Gústaf játaði á sig öll brotin
og gerði það skýlaust. Hann
lýsti atburðum kvöldsins svo að
hann hefði verið á göngu fram-
hjá húsi brotaþola. Gústaf var
mjög ölvaður, en sagði að það
hefði „smollið“ eitthvað í huga
hans og það hefði verið „skyndi-
hugdetta“ að ráðast á manninn.
Hann sagðist hata manninn af
öllum lífs og sálar kröftum og að
hann hefði gert það frá barns-
aldri. „Ég hataði þennan mann.
Það er ekkert leyndarmál; … Ég
hataði hann af öllu mínu hjarta,“
sagði Gústaf fyrir dómi. Hann
sagðist hafa brotið rúðu á húsi
brotaþola með því að nota tvo
stóra grjóthnullunga. Þannig
komst hann inn í stofu hússins,
en skar sig á rúðubrotum.
Gústaf sagðist ekki muna
hvað hefði gerst næst og að
hann myndi ekkert eftir árásinni
fyrir utan upphaf hennar og að
hann hafi rankað við sér þegar
hann hitti fyrir lögreglumann
fyrir utan húsið eftir árásina.
Mál hjúkrunarfræðingsins er einsdæmi
n Ljóst að brotavilji konunnar var einbeittur
E
lsa B. Friðfinnsdóttir, formaður
Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, segir mál starfs-
mannsins á Landspítalanum
sem starfaði sem hjúkrunarfræðing-
ur án þess að hafa lokið námi, vera
einsdæmi hér á landi.
Konan sem um ræðir hafði starf-
að á krabbameinsdeild Landspítal-
ans í tvö ár áður en í ljós kom að hún
hafði einungis lokið tveimur árum af
fjórum í hjúkrunarfræðinámi.
Konunni var vikið tafarlaust frá
störfum þegar málið komst upp kjöl-
far innra eftirlits hjá Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Konan var ekki
á félagaskrá og við nánari athugun
uppgötvaðist að hún hafði ekki lokið
námi. Elsa segir ekki skyldu að vera
í félaginu.
„Það kemur alltaf reglulega upp
svona misræmi en á sér þá alltaf ein-
hverjar skýringar, eins og til dæmis
að fólk sé búið að ljúka námi en hafi
ekki sótt um hjúkrunarleyfi af ein-
hverjum ástæðum,“ segir Elsa.
Björn Zoëga, forstjóri Landspítal-
ans, segir að svo virðist sem brotavilji
konunnar hafi verið einbeittur. „Það
sást í nokkur skipti við innra eftirlit
hjá okkur að viðkomandi hafði ekki
skilað inn hjúkrunarleyfi. Þá var
minnt á það og því lofað að leyfinu
yrði skilað inn.“ Það gerði konan hins
vegar aldrei. Hann segir ástæður
þess að konan fékk að starfa svo lengi
á spítalanum án þess að gengið væri
fyllilega úr skugga um að hún væri
raunverulega hjúkrunarfræðingur,
vera bæði skort á eftirfylgni vegna
yfir mannaskipta og kunningsskapur.
„Eins og oft gerist á Íslandi þá er því
bara treyst að fólk skili inn hlutunum
og svo er ekkert meira hugsað um
það.“ Honum þykir líklegt að málið
verði kært til lögreglu.
Björn segir að í fljótu bragði líti
ekki út fyrir að starfsmaðurinn hafi
valdið tjóni í störfum sínum á spít-
alanum. Hann bætir hins vegar við
að það sé ekki spítalans að rannsaka
það.
Björn segir aðalatriðið nú að
læra af mistökunum til að hægt sé
að bæta eftirlitið í framtíðinni. „Við
höfum skoðað þetta mjög nákvæm-
lega okkar megin frá og erum enn-
þá að því.“ Björn bendir á að alvöru
rannsókn geti spítalinn þó ekki gert á
sjálfum sér, en það sé höndum land-
læknisembættisins að sjá um það. n
Líklega kært Björn Zoëga segir eðlilegt
að mál sem þessi séu kærð til lögreglu.