Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 16
16 Fréttir 19.–21. apríl 2013 Helgarblað
„Við höfum þurft að berjast“
n Konurnar sem kveðja þingið n Margt breyst til batnaðar en draumheimar eru fjarri n Haldið frá ákvörðunum n Styrkur að sjá konu taka forystuna
S
iv Friðleifsdóttir, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, Ólöf
Nordal og Lilja Mósesdóttir
ræða stöðu kvenna í áhrifa-
stöðum og pólitík út frá eigin
reynslu. Að þeirra mati skiptir máli að
konur komist til áhrifa á þingi sem og
annars staðar í samfélaginu, annað sé
hættulegt lýðræðinu. Þá er það þeirra
reynsla að konur og karlar nálgist
völd með ólíkum hætti og að viðhorf
til karla og kvenna í valdastöðum
sé ólík og umræðan eftir því. Þó að
formleg staða þeirra væri áhrifamikil
sögðu þær að það hafi ekki alltaf verið
sjálfsagt að þær hafi verið hafðar með
í ráðum þegar kom að ákvarðanatöku,
ekki fyrr en kannski á seinni stigum
málsins þegar karlarnir voru búnir að
tala sig saman og gera upp hug sinn.
Spurningarnar voru sendar út á
allar konur sem tóku ákvörðun um
að kveðja þingið en sumar treystu
sér ekki til þess að svara, vegna anna,
vegna þess að spurningarnar „snertu
viðkvæm atriði“ sem þær voru ekki
tilbúnar til þess að deila með þjóðinni
eða vegna kosninganna framundan.
Ein sagði þó að það skipti alltaf
máli hvort þú værir kona eða karl
í pólitík. Það væri þó munur á því
hvernig tekið væri á konum sem fljóta
með straumnum og fylgja þeim sem
er við stjórnvölinn hverju sinni eða
konum með sjálfstæðar skoðanir sem
eru þar með „hættulegar“. „Slík kona á
margfalt erfiðara uppdráttar og fær að
finna harkalega fyrir því innan flokks-
ins jafnvel þótt hún njóti virðingar
fólks innan allra flokka fyrir starf sitt.
„Kúltúrinn“ innan flokkanna þyrfti að
breytast og þar þyrftu bæði karlar og
konur að leggja sitt af mörkum, sem
og þeir sem fjalla um pólitík.
Eina konan í ríkisstjórn
Nú hefur verið mikil umræða um kon-
ur og völd. Skiptir máli að konur séu í
áhrifastöðum?
Siv: Já, það skiptir gríðarlegu máli.
Samfélagið væri allt annað ef einung-
is karlar væru í áhrifastöðum. Konur
hafa aðra sýn á mörg mál og aðra
nálgun. Fyrir mér er ekki lýðræði
þar sem annað kynið ræður öllu. Ég
er jafnréttissinni og mun beita mér
áfram fyrir því að konur hasli sér völl
í stjórnmálum þótt ég hætti sjálf á
þingi.
Þorgerður Katrín: Það skiptir
miklu máli að konur séu við völd.
Reynslan sýnir að það skipti máli
að konur með ólíkan bakgrunn
séu í stjórnmálum rétt eins og ólík-
ir karlar einokuðu stjórnmálin lengi
vel. Reyndar tel ég að það skipti afar
miklu máli að konur séu úti um allt
í áhrifastöðum. Af því að þær hafa
flestar aðra nálgun, aðra hugsun og
annan reynsluheim en karlar. Það er
ekkert heilbrigt við það að karlar séu
einir í stjórnunarstöðum. Það skiptir
máli að það sem konur hafi fram að
færa komist líka áleiðis, jafn ólíkar
og þær eru. Þetta má ekki vera einn
karlaheimur.
Frá því að ég byrjaði í stjórnmálum
fyrir fjórtán árum hefur margt breyst
til batnaðar. Það á bæði við um þing-
ið sem vinnustað og eins stjórnmál-
in í heild sinni. Ég man til dæmis eftir
því þegar ég var eina konan fyrir hönd
Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn á sín-
um tíma. Síðan kom Sigríður Anna
inn og án þess að við værum að bera
okkur sérstaklega saman þá var samt
mikill munur að hafa hana með og
vera ekki lengur eina konan í stráka-
hópnum. Því fleiri því sterkari saman.
En hún var því miður allt of stutt inni
í ríkisstjórn og ég fann aftur mikinn
mun á því þegar hún hvarf úr ríkis-
stjórninni við það að í ráðherraliði
Sjálfstæðisflokksins fækkaði um einn.
Fyrir okkur skiptir það máli, bæði
meðvitað og ómeðvitað, að finna að
við erum margar. Þessi umræða um
hæfasta einstaklinginn er gamaldags
röksemdafærsla sem ég nenni ekki að
hlusta á lengur. Við eigum nóg af kon-
um og körlum sem eru hæf til þess að
gegna áhrifastöðum og þá er eins gott
að kynjaskiptingin sé jöfn. Það þarf
engar reglur til þess, fólk þarf bara að
vera meðvitað um þetta. Þess vegna
voru skilaboð Bjarna Benediktssonar
á landsfundi um jöfn kynjahlutföll í
ríkisstjórn mikilvæg.
Það má aldrei ekki gerast aftur
að ein kona sé notuð sem táknmynd
þess að það sé allt í lagi hjá stjórn-
málaflokknum þegar henni er stillt
upp í fremstu röð. Það má ekki gera
konum þetta því það getur engin ein
kona verið sönnun þess að það sé
allt í lagi með jafnréttismálin. En sem
betur fer hefur þetta breyst mjög mik-
ið og þegar ég horfi á minn flokk þá
sé ég sterkar konur í forystunni, eins
og Hönnu Birnu, Ragnheiðarnar
tvær, Elínu og Ríkharðsdóttur og svo
margar fleiri þannig að þetta hefur
breyst gríðarlega mikið á þeim tíma
sem ég hef verið virk í pólitík.
Ólöf: Já, það skiptir máli. Við kon-
ur lítum gjarnan öðruvísi á hlutina en
karlar gera. Við bregðumst við á ólík-
an máta og mér finnst skipta máli að
við konur reynum ekki að herma eftir
körlunum heldur leggjum áherslu á
okkar eigin styrkleika. Það er að mínu
mati mjög brýnt að viðhorf kvenna
setji mark sitt á alla þætti samfélags-
ins. Heilbrigð blanda karla og kvenna
í áhrifastöðum skilar okkur betri ár-
angri er ég sannfærð um.
Lilja: Ísland sker sig úr hvað varð-
ar atvinnuþátttöku kvenna og hlutfall
þeirra meðal kjörinna fulltrúa á þingi
og í sveitarstjórnum eftir hrun. Mikil-
vægt er að halda þessari sérstöðu en
tiltölulega jöfn þátttaka kvenna og
karla er forsenda þess að samfélagið
fái notið ávinningsins af fjölbreyttum
skoðunum og vinnulagi. Einsleitar
skoðanir um ágæti óhefts markaðs-
búskapar og vinnubrögð sem ein-
kenndust af mikilli áhættuhegðun
áttu sinn þátt í hruninu.
Nálgast völd með ólíkum hætti
Nú hefur þú verið í áhrifastöðu, hefur
þú orðið vör við einhvern mun á því
hvernig kynin nálgast völd og valda-
stöður?
Siv: Að mínu mati vanda konur sig
almennt meira, eru samviskusamari
og taka oft ígrundaðri ákvarðanir en
karlarnir. Þær eru ekki eins áhættu-
sæknar og setja sig gjarnan í spor
annarra, líta oft betur til heildarhags-
muna.
Þorgerður Katrín: Mín reynsla er
sú að flestar konur telja það hluta af
valdi að tala saman og vinna saman,
það sé hluti af því að hafa vald að út-
1916-1919
1919-1931
1931-1938 1946-1949
1949-1953
1953-1956
1918-1946
1959-1963
1963-1971
1974-1983
1956-1959 1983-1987
1987-1990 1993-1995
1996
1998
1991 1999-2002
2009-2010
20112007 20082005 20062003 2004
Konur á þingi n Karlar n Konur
„Það má aldrei
gerast aftur að ein
kona sé notuð sem tákn-
mynd þess að það sé allt í
lagi hjá stjórnmálaflokkn-
um þegar henni er stillt
upp í fremstu röð. Það má
ekki gera konum þetta.
Þorgerður Katrín
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is