Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Qupperneq 19
Fréttir 19Helgarblað 19.–21. apríl 2013
Kanónur kveðja þingið
Í
alþingiskosningunum 2009
náðu 27 konur kjöri og hlut-
fall kvenna varð 42,9%. Svo
hættu þær Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, Þórunn Svein-
bjarnardóttir og Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir, sem var sett af
sem þingflokksformaður Vinstri
grænna þegar hún sneri aftur úr
fæðingarorlofi. Við þinglok voru
konurnar því orðnar 24 og hlut-
fallið komið niður í 38%. Af þeim
sem eftir voru ákváðu sjö konur
að bjóða sig ekki fram til áfram-
haldandi setu á Alþingi. Þeirra á
meðal eru miklir reynsluboltar,
konur sem hafa setið lengi á þingi
og sett mark sitt á samfélagið. Þetta
eru konurnar sem kveðja þingið.
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Ásta Ragnheiður
hefur setið á
þingi frá árinu
1995. Hún
var félags-
og trygginga-
málaráðherra
árið 2009 og
forseti Alþing-
is síðan. Hún er í
Samfylkingunni
Fyrsta konan sem var kosin for-
seti Alþingis var Ragnhildur Helga-
dóttir sem var kjörin forseti neðri
deildar árin 1961–1962 en Guðrún
Helgadóttir varð fyrst kvenna til
þess að verða fyrirsvarsmaður Al-
þingis á árunum 1988–1991.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Engin kona hefur
setið eins lengi
og Jóhanna
sem hefur
verið á þingi
samfleytt í 35
ár eða frá ár-
inu 1978. Hún var
þriðja konan sem
varð ráðherra, en hún var fé-
lagsmálaráðherra á árunum 1987–
1994, félags- og tryggingarmála-
ráðherra á árunum 2008–2009 og
forsætisráðherra síðan 2009. Hún
er í Samfylkingunni.
Lilja
Mósesdóttir
Lilja hefur
setið á þingi
síðan 2009.
Hún er utan
flokka.
„Það var
aldrei ætlun
mín að gerast
stjórnmálamaður.
Miklar undirtektir með málflutn-
ingi mínum um fjármálakrepp-
una og stuðningur við hugmynd-
ir mínar að lausnum hennar varð
hins vegar til þess að ég bauð fram
krafta mína í síðustu alþingskosn-
ingum.
Í byrjun síðasta árs ákvað ég að
gefa þjóðinni tækifæri til að styðja
mig til setu á Alþingi í komandi
kosningum. Sá stuðningur sem ég
taldi mig þurfa til að geta haft áhrif
á þingi kom ekki og því ákvað ég að
sækjast ekki eftir endurkjöri.“
Ólöf Nordal
Ólöf hefur
setið á þingi
frá árinu
2007. Hún er
í Sjálfstæðis-
flokknum.
„Maður-
inn minn tók
við nýju starfi í út-
löndum í upphafi síðasta árs. Það
liggur fyrir að hann mun starfa
nokkuð mörg ár fjarri Íslandi og
mér fannst óraunhæft að ég væri
í viðamiklu starfi í einu landi og
hann í öðru með stóra fjölskyldu.
Ég ákvað því – eftir nokkuð langa
umhugsun að rétt væri fyrir mig
að hætta á þingi og er að flytja til
Sviss í þessum töl-
uðu orð-
um.“
Siv Frið-
leifsdóttir
Siv hefur
setið á
þingi frá ár-
inu 1995. Hún var
sjötti kvenráðherrann en hún var
umhverfis- og samstarfsráðherra
Norðurlanda frá 1999–2004 og
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra frá 2006–2007. Hún er í Fram-
sóknarflokknum.
„Nú í vor hef ég verið alþingis-
maður í 18 ár, þar af 7 ár sem ráð-
herra. Þar á undan var ég í bæjar-
stjórn þannig að þetta er að verða
langur tími. Ég lít stolt um öxl og
tel að dagsverkið hafi verið gott. Ég
kveð þingstörfin sátt og ánægð.“
Þorgerður
Katrín
Gunnarsdóttir
Þorgerður
Katrín hefur
setið á þingi frá
árinu 1999. Hún
var níunda konan
sem settist í ráðherra-
stól þegar hún varð menntamála-
ráðherra á árunum 2003–2009. Hún
var jafnframt fyrst kvenna til þess að
sitja í forsæti íslenskrar ríkisstjórnar
en það gerði hún í sumarleyfi Geirs
H. Haarde árið 2006. Hún er í Sjálf-
stæðisflokknum.
„Fyrst og fremst vegna persónu-
legra ástæðna ákvað ég að bjóða
mig ekki fram á næsta kjör-
tímabili.“
Þuríður
Backman
Þuríður hef-
ur setið á
þingi frá ár-
inu 1999. Hún
var þingsflokks-
formaður Vinstri
grænna árið 2011. n
Berit Ås er norskur femínisti og samfélags-
rýnir sem benti á fimm drottnunaraðferðir
sem eru notaðar, meðvitað og ómeðvitað,
í samskiptum fólks.
1. Að gera fólk ósýnilegt
Þegar horft er framhjá framlagi kvenna
í umræðum, hvort sem er á opinberum
vettvangi eða í persónulegum samtölum.
Framkoman er til þess fallin að konum
finnist framlag þeirra og skoðanir létt-
vægar og skipti ekki máli.
2. Að gera fólk hlægilegt
Þegar framlag kvenna í umræðum,
hvort sem er á opinberum vettvangi
eða í persónulegum samtölum, er gert
hlægilegt. Skoðanir þeirra jafnvel taldar
byggja á tilfinningasemi eða kynbundnum
líffræðilegum þáttum. Framkoman er
til þess fallin að konur efast um gildi og
réttmæti skoðana sinna og þora síður að
setja þær fram.
3. Að leyna upplýsingum
Þegar konur hafa ekki sama aðgang að
upplýsingum og karlar, hvort sem er á
opinberum vettvangi eða í persónu legum
samskiptum. Gerist á vinnustöðum, í
stjórnmálum og í félagslífi. Karlarnir
skiptast á mikilvægum upplýsingum í
eigin óformlega hópi sem aldrei koma
upp á yfirborðið á formlegum fundum og
því standa konur höllum fæti í samskipt-
unum.
4. Tvöföld refsing
Þegar konum er legið á hálsi fyrir val
sitt eða forgangsröðun í lífinu, bæði
sem hópur, en einnig einstaklingar. Þá
skiptir ekki máli hvert valið er, niðurstaða
konunnar verður gagnrýnd hvort eð er.
Velji kona t.d. að krefjast réttar síns er hún
brjáluð, geri hún það ekki, getur hún sjálfri
sér um kennt.
5. Að framkalla skömm og
sektarkennd
Þessar velþekktu tilfinningar meðal
kvenna eru framkallaðar m.a. með að-
ferðum 1–4, eða bara því sem þykir henta
hverju sinni.
Drottnunaraðferðirnar fimm
Litla Framsóknarmaddaman
23. nóvember 1995 Helgarpósturinn
Framsóknarmaður segir í samtali við
Helgarpóstinn að mörgum þyki Siv helsti
frek og ágeng, ekki síst þyki konum í
flokknum nóg um framgang hennar og
finnist hún trana sér óþarflega fram.
Október 2000 DV
„Konur eiga sem kunnugt er ekki við ris-
vandamál að stríða en sumar eru þeirrar
náttúru að fá allt til að rísa í kringum sig.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra
virðist gædd þessum náttúrutöfrum því
henni hefur tekist það sem fyrirrennurum
hennar reyndist ókleift; að láta El Grillo
rísa af hafsbotni 1 Seyðisfirði, heima-
mönnum til mikillar gleði. Sannkölluð
þjóðhátíðarstemning ríkir á Seyðisfirði
vegna þessa afreks umhverfisráðherrans
og bæjarstjórinn á bágt með að lýsa hrifn-
ingu sinni þegar hann kallar ráðherrann
hörkustelpu. Og það þarf töluvert til. Siv
tókst með kvenlegri mýkt sinni, brosi og
stelpuflissi að fá ráðherra ríkisstjórnarinn-
ar til að rísa upp á jákvæðu nótunum og
afhenda sér hundrað milljónir á silfurfati
til að lyfta El Grillo sem legið hefur flatur á
hafsbotni í hálfa öld. Það er afrek.
Dagfari á sér draum um að vera fluga á
vegg á ríkisstjórnarfundi þegar Siv vefur
körlunum um fingur sér í stutta pilsinu
með breiða brosið og fær sínu framgengt.
Ætli ráðherrafrúrnar hafi ekki áhyggjur af
þessum fundum?“
Maí 2005 Morgunblaðið
„Sæti menntamálaráðherrann okkar,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, var
að sjálfsögðu mætt í mjög pæjulegum
leðurstígvélum og bláu, listalegu pilsi.“
Nóvember 2005 Fréttablaðið
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þykir
glæsileg kona, „smart týpa“ eins og sagt
er, og hún hefur átt dæmafárri velgengni
að fagna í Sjálfstæðisflokknum sem
kaus hana varaformann á dögunum. En
það er ekki nóg að vera smart.
Febrúar 2006 DV
Apríl 2007 Fréttablaðið
„Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur
jafn mikinn kynþokka og margar af
frægustu kvikmyndastjörnum heims
og gæti sko alveg plummað sig i Basic
Instinct III.“
Desember 2007 24 stundir
„Það vill svo til að ég veit að Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir er vel upp alin
kaþólsk stúlka.“
Úr blöðunum
mót.
Ólöf: Það veit ég ekki. Er það ekki
það sama og í öðru? Vinna, vinna,
vinna, vinna.
Lilja: Vera svolítill skemmtikraftur
í sér og kunna að byggja upp og nýta
sér hóp stuðningsfólks sem oftar en
ekki tilheyrir ákveðnum hagsmuna-
öflum.
Sterkir leiðtogar þurfa gott fólk
Hvaða skoðun hefur þú á hug-
myndinni um að þjóðin þurfi sterkan
leiðtoga?
Þorgerður Katrín: Mér finnst
fyrst og fremst skipta máli að vera
með skynsamt fólk í áhrifastöðum.
Leiðtogar koma og fara. Þeir verða að
standa í lappirnar, mega ekki glepjast
af tálsýnum, geta talað hreint út og
verið heiðarlegir. Það getur verið erfitt
og á stundum óþægilegt en við höfum
ekkert að gera með stjórnmálamenn
sem þora ekki að segja hlutina eins og
þeir eru.
Ólöf: Ég held að það sé mikilvægt
að hafa sterka einstaklinga á öllum
vígstöðvum. Sterkir leiðtogar þurfa
líka gott fólk í kringum sig. Það má
ekki vera of mikil persónudýrkun –
mér líkar það ekki. Hins vegar þurf-
um við fólk í forystu sem nær öðrum
með sér.
Lilja: Hugmyndin er hættuleg lýð-
ræðinu og mun kalla yfir okkur annað
hrun. Einsleitni í skoðunum þýðir að
öll eggin eru lögð í sömu körfuna eins
og gerðist fyrir hrun.
Hvað einkennir slíkan leiðtoga að
þínu mati?
Þorgerður Katrín: Þegar ég hugsa
um það þá er það einhver sem getur
hlustað, tekið erfiðar ákvarðanir, er
fastur fyrir, segir hlutina eins og þeir
eru, hefur trú á því sem hann getur og
kann og laðar það besta fram í fólki.
Ég segi alltaf við börnin mín að þau
eigi að vera góð, dugleg, skemmti-
leg og heiðarleg og ef þau eru það þá
verði allt í lagi. Ætli það sama eigi ekki
við um leiðtoga.
Ólöf: Í mínum huga þurfa for-
ystumenn að hafa sterkar skoðanir
en jafnframt að hlusta á aðra og bera
virðingu fyrir skoðunum annarra.
Sterkur leiðtogi er manneskja sem er
óhrædd við að breyta afstöðu sinni á
grundvelli raka, manneskja sem getur
leitt fram niðurstöðu í erfiðum mál-
um og manneskja sem talar fyrir slíkri
niðurstöðu og fær fólk með sér.
Getur þú nefnt einhvern sem sem
reyndist þér vel?
Þorgerður Katrín: Í pólitíkinni
hafa margir reynst mér vel og mér er
hlýtt til margra ekki síst kvennanna í
flokknum mínum. Og seisei jú – þeir
eru líka margir karlarnir sem eru
meira en ágætir. En ég vil líka nefna
Ingibjörgu Sólrúnu sem ég ber mikla
virðingu fyrir en reyndar eru margir í
öðrum flokkum sem eru einfaldlega
vinir mínir, eins og Þórunn Svein-
bjarnardóttir og Bryndís Hlöðvers-
dóttir
Mamma og kvennalistakonurnar
Hverjar eru þínar fyrirmyndir?
Þorgerður Katrín: Mamma er
mín fyrirmynd og hefur alltaf ver-
ið það. Hún er sterk og góð kona og
mikill jafnréttissinni, eins og pabbi.
Þau hafa alltaf sagt mér að vera sjálf-
stæð og óháð. Þau hvöttu okkur
systurnar til dæmis til mennta svo
við yrðum aldrei upp á neinn komn-
ar. Þau sögðu okkur líka að við gæt-
um gert allt jafn vel og jafnvel betur
en strákarnir.
Ólöf: Ég hef aðeins eitt mottó.
Maður uppsker eins og maður sáir.
Ég hef alltaf reynt að vanda mig. Ég
hef aldrei verið með einhverja eina
fyrirmynd, er ekki nógu upptekin af
slíku. Mínar fyrirmyndir eru úti um
allt, í mínu nánasta umhverfi, í bók-
um, úti í heimi. Ég hrífst af fólki sem
syndir gegn straumnum og hef sér-
stakan áhuga á þeim sem þora að
taka áhættu og breyta út frá því sem
viðtekið er.
Lilja: Ég hugsaði oft til þing-
kvenna Kvennalistans á meðan ég
var á þingi en ég starfaði með þeim
sem almennur flokksfélagi. Minn
helsti ráðgjafi á þingi var Guðfríð-
ur Lilja Grétarsdóttir sem hafði mun
meiri reynslu af stjórnmálum en ég
og ráð hennar reyndust mér vel. Ég
leitað líka oft til Atla Gíslasonar um
álit á lögfræðilegum álitaefnum og
breytingar á kvótakerfinu og stjórn-
arskránni.
Forréttindastarf
Mælir þú með þessu starfi?
Þorgerður Katrín: Fólk má ekki
halda að stjórnmál séu ömurleg, því
fer fjarri. Fólk verður að trúa því að
þetta sé gefandi starf og gefa kost á
sér ef það hefur áhuga á stjórnmálum.
Ég bið hina um að virða það við fólk
að það gerir þetta með góðan vilja og
göfug markmið að leiðarljósi, sama í
hvaða flokki það stendur. Það á ekki
að vera þannig að um leið og fólk fer
í stjórnmál þá sé gefið skotleyfi á það.
Þannig hagar siðað fólk sér ekki.
Ólöf: Það geri ég. Það er stór-
merkilegt og mikil forréttindi að fá að
vinna fyrir land og þjóð.
Lilja: Ég vara fólk við þessu starfi
því það krefst mikilla fórna. Þú mátt
búast við að missa mannorðið ef þú
syndir gegn straumum. Þingmenn
eiga auk þess aldrei frí þar sem fólk
krefst þess að þingmenn veiti því
persónulega athygli á öllum tímum
sólarhrings.
Hvað hefur þú lært af þessu?
Þorgerður Katrín: Þessi reynsla hef-
ur þroskað mig. Ég hef lært af fólk-
inu sem ég hitti og sögum þess. Ég
hef lært að ganga aldrei að neinu
sem gefnu og meta hlutina sjálf. Það
er lexía sem ég fer með inn í næsta
tímabil í lífi mínu. Ég hef líka lært að
þó að það skipti máli að standa með
heildinni þá verður flokkurinn líka
að geta tekið tillit til einstaklinganna.
Ef þú gefur alltaf eftir þá má spyrja
hver ert þú? Ert það þú? Þú gefur eft-
ir af því að þú ert að hugsa um stóru
myndina en þú verður þá líka að vera
tilbúinn til þess að axla ábyrgð á því
og læra af mistökunum.
Ólöf: Mjög margt og ég held ég
hafi skánað ef eitthvað er af því að
hafa farið í stjórnmál.
Lilja: Þingmennska er valdalítið
embætti og ekki leiðin til að ná fram
breytingum á samfélaginu nema þú
tilheyrir stærsta stjórnmálaflokknum
á þingi og þá gerist allt mjög hægt –
jafnvel eftir heilt efnahagshrun.
Nýir tímar framundan
Hvað er framundan hjá þér?
Siv: Framundan er að ganga frá á
skrifstofunni minni á Alþingi. Síðan
að taka sumarfrí og koma mér í ann-
að starf, hvað sem það nú verður. Ég
hef næga starfsorku og hlakka til að
takast á við ný verkefni í framtíðinni.
Það er til líf eftir pólitík.
Þorgerður Katrín: Framundan
eru nýir tímar, það er það eina sem
ég veit.
Ólöf: Flytja til Sviss!
Lilja: Ferð til Grikklands í boði
SYRIZA and Nico Poulantzas Institu-
te. n
n Engin hefur setið eins lengi og Jóhanna Sigurðardóttir
„Ég var erlend
is og var spurð
við komu á fundarstað:
„Hvenær kemur ráðherr
ann?“ „Hann er kominn,“
svaraði ég. Viðkomandi
hélt í bæði skiptin að ráð
herrann væri karlmaður.
Siv Friðleifsdóttir„Það að ég sé
strákastelpa
tengist ekki bara því
að ég fékk strákalykil í
sundlaugunum þar til
ég var fjórtán ára heldur
þykja mér ákveðnir hlutir
skemmtilegri en aðrir og
það er búið að kyngera
þá sem strákahluti.
Þorgerður Katrín