Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Qupperneq 22
22 Erlent 19.–21. apríl 2013 Helgarblað
Óttast nornaveiðar í Boston
n „Okkar versta sjálf kemur fram á svona stundum.“
Þ
að hljóta að vera hundruð, ef
ekki þúsundir, mynda, mynd-
banda og annarra sönnunar-
gagna frá marklínunni,“ sagði
Timothy Alben, lögregluforingi hjá
ríkislögreglunni í Massachusetts á
blaðamannafundi á fimmtudaginn.
Rannsóknin á sprengjutilræðinu í
Boston-maraþoninu á mánudaginn
hefur tekið óvænta stefnu eftir að Al-
ben bað almenning um að liðsinna
lögreglunni við að finna tilræðis-
manninn eða -mennina. „Það gæti
verið að þér finnist eitthvað atriði
smávægilegt, en það gæti hjálpað til
við rannsóknina,“ sagði Alben og bað
almenning um að hafa augun opin.
Lögreglan telur að sökudólgur-
inn hafi borið sprengjuna í svörtum
bakpoka en hún var gerð með notk-
un sex lítra hraðsuðupotts. Nú hefur
fjöldi mynda sem tengjast málinu
fundist. Á fimmtudaginn voru komn-
ar fram á vefsíðunni imgur.com
alls 57 myndir af mönnum nærri
marklínunni með svarta bakpoka og
á vefsíðunni Reddit höfðu 1.700 not-
endur sent frá sér myndir sem þeir
töldu sýna sökudólginn á ferð. Sjálf
hefur lögreglan gefið út að hún hafi í
sínum fórum myndir af tveimur sem
gætu verið grunaðir.
Sumir óttast nornaveiðar í kjölfar
myndbirtinganna. „Það er eiginlega
ómögulegt að allir þeir sem múgur-
inn hefur bendlað við málið séu sekir
– nema kannski að um ógnarstórt
samsæri sé að ræða,“ sagði Andrew
Leonard, höfundur hjá hinu virta
vefriti Salon: „Það þýðir því miður
að hópur áhugamanna er í raun að
sverta mannorð saklauss fólks með
því að segja það bera ábyrgð á þess-
um hræðilega glæp. Okkar versta
sjálf kemur fram á svona stundum.“
Í svipaðan streng tekur Alexis C.
Madrigal, ritstjóri hjá The Atlantic.
„Ímyndið ykkur að fólk stæði úti á
götu í Boston í óða önn að benda á
þá sem eru á þessu myndum – sak-
andi þá um hryðjuverk.“ Rannsókn-
inni miðar áfram. n simon@dv.is
Myrtu sofandi
ógæfuMann
n Manaði vin sinn til að ráðast á manninn n Þriðji bróðirinn myrti í fyrra„Þú ert
sorg
leg og aumk
unarverð
manneskja
B
arnungir breskir bræður, 14
og 17 ára, auk vinar þeirra,
14 ára, hafa verið dæmdir
í sex, átta og tólf ára fang-
elsi fyrir hrottafengið morð
á varnarlausum ógæfumanni sem lá
sofandi fyrir utan verslunarmiðstöð.
Conor, eldri bróðirinn, manaði ann-
an yngri drenginn, Simon Evans, til
að berja þann heimilislausa.
„Ég er viss um að þú hefur það
ekki í þér að lemja hann,“ sagði
Connor við Simon skömmu áður en
árásin átti sér stað. Simon lét til leið-
ast og byrjaði að sparka í heimilis-
lausa manninn sem átti sér einskis
ills von, þar sem hann svaf fyrir utan
verslunarmiðstöð í Liverpool. Fljót-
lega slóst Connor í hópinn og byrjaði
að hoppa ofan á bringu mannsins,
sem lá óvígur á götunni. Á meðan
stóð yngri bróðir hans, Brandon, á
verði.
Daily Mail greinir frá málinu á
vefsíðu sinni. Linda Doran, móðir
drengjanna Brandons Doran, 14
ára, og Connors Doran, 17 ára, hlaut
einnig fangelsisdóm fyrir að reyna að
hindra framgang réttvísinnar.
Eldri bróðir þeirra myrti líka
Við dómsuppkvaðninguna sagði
dómarinn eitthvað á þá leið að fram-
ganga þeirra, tilefnislaus líkams-
árás með slíku ofbeldi á saklausan
mann, væri ömurlegur vitnisburður
um samfélagið. Móðir drengjanna
tveggja, Linda, hlaut 30 mánaða
dóm fyrir að reyna að útbúa fals-
aða fjarvistarsönnun fyrir drengina.
Þriðji sonur hennar, Ryan Doran, var
síðastliðið haust dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir að ráðast að tilefnis-
lausu á föður á skyndibitastað – og
ráða honum bana.
Dómarinn ávarpaði drengina
þrjá við dómsuppkvaðninguna á
dögunum og sagði: „Hver og einn
ykkar hefur með þátttöku ykkar í
þessum hryllilega ofbeldisverkn-
aði fyrirgert rétti sínum til að njóta
frelsis það sem eftir er æsku ykkar.“
Hann sagði enn fremur að gjörð-
ir þeirra bræðra afhjúpuðu slæmar
fjölskylduaðstæður þeirra og slæmt
uppeldi. „Þar ber Linda Doran mikla
ábyrgð.“ Hann dæmdi forsprakk-
ann, Connor, í 12 ára fangelsi hið
minnsta, Simon í átta ára fangelsi
og yngri bróðurinn, þann sem stóð
á vakt, í sex ára fangelsi. Þeim var til
viðbótar sagt að þeir yrðu innilokað-
ir þar til innanríkisráðuneytið sam-
þykkti lausn þeirra.
„Sorgleg manneskja“
Dómarinn var ómyrkur í máli í garð
móður drengjanna. „Þú ert sorgleg
og aumkunarverð manneskja. Núna
horfir þú á eftir tveimur yngstu son-
um þínum í fangelsi fyrir morð. Það
var skylda þín að vernda og kenna
strákunum þínum muninn á réttu
og röngu, sama hvað það kostaði.
Framganga þín í málinu tafði fram-
gang réttvísinnar og lagði aukið álag
á lögregluna, sem hefur nóg á sinni
könnu. Linda Doran sýndi engin
svipbrigði þegar dómarinn beindi
orðum sínum til hennar.
Maðurinn sem varð fyrir árásinni
þjáðist af áfengissýki og var ekki góð-
ur til heilsunnar. Hann hafði innbyrt
10 til 12 bjóra þegar á hann var ráð-
ist, að því er saksóknarinn í málinu
greindi frá. „Hann gerði ekkert sem
verðskuldaði að á hann yrði ráðist.“
Maðurinn kom sér fyrir fyrir utan
Iceland-verslun í Walton í Liverpool,
skömmu eftir miðnætti, með nokkra
bjóra sér við hlið. Þar fannst hann
um morguninn, þar sem hann lá í
blóði sínu, nær dauða en lífi. Hann
lést af blóðeitrun sex dögum eftir
árásina. Hann hlaut samfallið lunga,
fjölmörg beinbrot og innvortis blæð-
ingar í árásinni sem átti sér stað þann
17. ágúst í fyrra.
Einn felldi tár
Connor sýndi engin svipbrigði þegar
dómarinn beindi orðum sínum að
honum, og ekki heldur Simon sem
réðst fyrst á manninn. Yngri bróð-
irinn, sá sem stóð á verði, felldi
tár þegar dómarinn sagði honum
að hann gæti í fyrsta lagi sótt um
reynslulausn þegar hann yrði 22 ára.
„Þú gerðir ekkert til að stöðva félaga
þína, gerðir ekki minnstu tilraun til
þess, þó þú hafir ekki tekið beinan
þátt sjálfur.“ n
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Stóð á vaktinni Brandon Doran gerði
ekkert til að stöðva félaga sína.
Lét til leiðast Simon Evans lét Connor
ekki segja sér tvisvar að hann þorði ekki
að ráðast á manninn.
Hvatti til árásarinnar Connor Doran
egndi fjórtán ára félaga sinn til árásinnar
og hjálpaði svo til.
Líka dæmd Móðir drengjanna tveggja
reyndi reyndi að falsa fjarvistarsönnun
fyrir drengina.
Tugir létu
lífið í Írak
Á meðan Bandaríkjamenn náðu
áttum eftir sprengjuárásina í
Boston-maraþoninu, sem kostaði
þrjú mannslíf, á mánudag bárust
þær fréttir frá Írak að samtals
hefðu 42 látið lífið og 257 særst
í röð sprengjutilræða í landinu.
Tvær af sprengjunum sprungu
nærri alþjóðaflugvellinum í
Bagdad. Flest sprengjutilræðin
áttu sér stað á svæðum í Bagdad
þar sem sjíta-múslímar halda til.
Hryðjuverkamenn innan al-Kaída
hafa lýst sprengjutilræðunum
á hendur sér. Héraðskosningar
verða haldnar í Írak um helgina
og hafa stjórnmálamenn áhyggj-
ur af því að ofbeldið kunni að
hafa áhrif á kjörsókn ef kjósend-
ur þora ekki á kjörstað af ótta við
sprengjutilræði.
Hrossakjöt í
5% tilfella
Fáir þú þér bita af einhverju sem
búið er til úr því sem þú telur að
sé nautahakk í Evrópu eru fimm
prósenta líkur á að það sé í raun
búið til úr hrossakjöti. Þetta er
niðurstaða rannsóknar Evrópu-
sambandsins sem tók til 27 þjóða
en ráðist var í hana eftir að hrossa-
kjötshneykslið komst í hámæli í
Evrópu í upphafi árs. Samkvæmt
niðurstöðunum er staða þessara
mála verst í Frakklandi og Grikk-
landi. Til að bíta höfuðið af
skömminni þá fannst hið bann-
aða dýraverkjalyf phenylbutazone
í 0,5 prósentum þess hrossakjöts
sem uppgötvaðist. Það er skað-
legt heilsu manna. ESB lofar að
strangari reglur og viðurlög verði
við brotum gegn merkingu mat-
væla.
Á vettvangi Lögreglan hefur beðið
almenning um liðsinni í rannsókninni.