Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Qupperneq 25
Já, þetta hefur nú
tekið sinn tíma
Þetta var
erfitt fyrst
Guðmundur Jörundsson opnar búð á Laugaveginum. – DVJón stóri er edrú og alsæll. – DV
Náttúran í hættu
Spurningin
„Mögulega fer ég á víkingahátíð
en það er enn óákveðið.“
Benedikt Kristjánsson
26 ára heimspekingur
„Já, ég ætla til útlanda í sumar.“
Aðalbjörg Jóhanna Bárudóttir
30 ára móðir í fullu starfi
„Nei, ég býst ekki við því.“
Gunnar Þór Sigþórsson
34 ára kokkur
„Já maður!“
Ágústa Klara Ágústsdóttir
19 ára nemi
„Nei.“
Dagný Rut Gísladóttir
29 ára móðir í fullu starfi
Ætlar þú til út-
landa í sumar?
1 „Ég er ennþá falleg“ Kelly Davidson, frá Ottawa í Kanada,
hefur farið í þrjár aðgerðir vegna
brjóstakrabbameins. Brjóst hennar
voru fjarlægð þegar hún var 28 ára en
í staðinn fyrir að fara í lýtaaðgerð lét
hún húðflúra á sér bringuna.
2 „Eða ég fjarlægi þig …“ Kári Stefánsson stríddi manni í ræktinni
– gekk alveg upp að honum og sagði
honum að fara úr líkamsræktartæki
ellegar myndi hann fjarlægja hann
úr því. Svo hló Kári og sagðist vera að
grínast.
3 Leita að þessum manni vegna sprengjutilræðanna í Boston
Lögreglan í Boston leitar að manni
vegna sprenginganna á mánudag.
Lögreglan reynir að ná tali af manni
sem gekk í allt aðra átt en aðrir þegar
sprengingin varð.
4 „Haldið áfram drullusokk-arnir ykkar“ „Ég læt ekki bjóða mér
svona klukkan hálf níu á morgnana,“
segir Þorgerður Jóhannsdóttir ósátt við
að Gunnlaugur Sigmundsson hafi kall-
að fólk á fundi Samtaka atvinnulífsins
drullusokka.
5 Svisslendingurinn flutti inn 117 milljónir Jón von Tetzchner nýtti
sér fjárfestingarleið Seðlabankans og
fjárfesti á Íslandi fyrir 117 milljónir.
Mest lesið á DV.is
Ég er óvinur Framsóknarflokksins!
Y
ndislegu lesendur, ég leyfi
mér hér þann munað að
birta ykkur í dag, grein sem
ég ritaði fyrir svo gott sem
nákvæmlega fjórum árum. Hún
birtist semsagt í einhverju blaði í
apríl 2009 og er hún á þessa leið:
Ágætur vinur minn tjáði mér í
dag að á lista sem birtist í DV um
daginn og hefur að geyma nöfn
helstu óvina Framsóknarflokksins
sé ekki að finna mitt nafn. Þetta er
náttúrlega hneisa og til háborinnar
skammar; lýsir kannski best þeim
aumingjagangi sem þessi himpi
gimpasamkunda er frægust fyrir.
Ekki nóg með að flokkurinn hafi
stundað ýmiskonar glæpsamleg
athæfi sem sum hver hafa birst í
einkavinavæðingu, stöðuveitingum
til flokksgæðinga, umhverfisspjöll
um og gegndarlausu bruðli með
almannafé, heldur hefur margur
þjóðníðingurinn leikið þar laus
um hala og þar í flokki hefur meira
að segja verið gengið svo langt að
hygla sérstaklega mannleysum
sem hafa sér helst það til frægð
ar unnið að hafa stundað óhóflega
sjálftöku, lygar, bitlingapólitík og
brask.
Það er hrein og klár sögufölsun
að nefna mig ekki á nafn þegar
listi yfir óvini Framsóknarflokks
ins er birtur. Ég hef ort fleiri níðvís
ur um þennan flokk en nokkur ann
ar maður. Ég held ég hafi ábyggilega
kallað framsóknarmenn: lygara,
þjófa, glæpamenn, þjóðníðinga,
landráðamenn, fanta, dusilmenni,
lyddur, skítseiði, úrþvætti, vesal
menni og yfirleitt hef ég notað öll
ljótustu orð sem ég hef fundið þegar
ég hef neyðst til að fjalla um þenn
an óþverralýð. Þannig, að ég hélt að
ég þyrfti ekki að sanna það frekar,
að ég er óvinur þessa versta stjórn
málaflokks sem til hefur verið. Ég orti
meira að segja eftirfarandi grafskrift,
hér um árið, í þeirri von að flokk
urinn væri allur:
Framsókn að endingu farið nú hefur
til feðranna sinna á nábleiku skýi,
banamein flokksins var: blekkingavefur,
bitlingasýki og inngróin lygi.
Hvernig getur staðið á því að
menn hafi ekki áttað sig á þessu?
Eina hugsanlega skýringin er sú
að framsóknarmenn hafi áttað sig á
því að ég hafi ávallt notað réttu orðin
þegar ég lýsti innviðum flokksins.
Kannski hafa þeir einfaldlega áttað sig
á því að það sem sumir kölluðu níðvís
ur – voru bara eðlilegar og yndislega
lýsingar á þeim drullusokkum sem
flokkinn hafa prýtt í áranna rás.
Ég leyfi mér samt sem áður að
gera þá kröfu að vera nefndur óvinur
Framsóknarflokksins, því ef ég er ekki
óvinur þessa flokks, þá á hann engan
óvin.
Huglaus þjóð mín, hérna sést
að heimsku vilt þú sýna
ef kýst þú þann sem kann það best
að kvelja þig og pína.
Þ
að er sérkennilegt að hvorki
stóri Framsóknarflokkurinn
né litli Sjálfstæðisflokkurinn
hafa hirt um það hingað til í
kosningaumræðunni að gefa svör við
brýnum spurningum á sviði náttúru
verndar og umhverfismála – þar sem
vaxtarbrodda atvinnulífsins er ekki síst
að finna nú um stundir. Þó hafa síð
ustu fjögur ár í stjórnmálum einkennst
ekki síst af framþróun á þessu sviði, í
löggjöf annarsvegar, hinsvegar áætl
unum, áformum og framkvæmdum
bæði á opinberum vegum og hjá fyrir
tækjum og félagasamtökum. Hér koma
fjögur dæmi.
1 Á þessu kjörtímabili komust loksins í gagnið nýjar leikreglur um
orkuvinnslu og verndarnýtingu eftir
fjögurra áratuga deilur. Rammaáætlun.
Þetta var að frumkvæði Samfylkingar
innar – eitt af kjarnamálum í stefnunni
um Fagra Ísland. Fyrst voru lög um
þetta samþykkt samhljóða, og svo kom
fyrsta rammaákvörðunin – sem skilaði
víðtækari verndaráformum á náttúru
svæðum en nokkru sinni fyrr í Íslands
sögunni. Tímamót. Framsóknar og
sjálfstæðismenn greiddu atkvæði gegn
fyrstu rammaáætluninni á þingi og
hafa síðan lýst yfir að það eigi að „taka
upp“ rammaáætlun. Hvað merkir það?
Ætla þeir að færa ákvarðanir um þetta
aftur til ráðherranna, til Landsvirkj
unar og HS og OR, og til bankanna og
erlendu stóriðjufyrirtækjanna, með
gömlu formúlunni Lowest Energy
Prices?
2 Aðgerðaáætlunin um græna hagkerfið er í gangi, og í hana eiga að
renna verulegir peningar samkvæmt
fjárfestingaráætluninni. Með því erum
við að styðja til þroska atvinnufyrir
tæki framtíðarinnar, á sviði þekk
ingar, lista, náttúruverðmæta og skap
andi greina, en einnig græn verkefni í
hefðbundnum atvinnugreinum. Alger
þögn ríkir hjá stóru Framsókn og litla
FLokki um áform á þessu sviði. Vilja
þau halda áfram fyrir samtíð og framtíð
að þroska Græna hagkerfið? Eða ætla
þau að endurreisa Gamla hagkerfið?
3 Ísland er nú um heimsbyggðina talið í fyrsta flokki í loftslagsmál
um. Annarsvegar vegna þess að við
höfum gengið til samstarfs við Evrópu
sambandsríkin um losunarmarkmið
og loftslagskvóta, hinsvegar af því að
við vinnum eftir sérstakri áætlun um
aðgerðir í loftslagsmálum, ekki síst
um orkuskipti í samgöngum, sem
ásamt eldsneyti á miðunum er helsti
loftslagsvandi okkar. Eru sjálfstæðis
flokksmenn tilbúnir í metnaðarfullan
losunarsamdrátt? Ætlar Framsókn að
halda áfram loftslagssamstarfinu við
Evrópusambandið?
4 Ný náttúruverndarlög voru samþykkt í þinglok og taka við af göll
uðum lögum frá 1999. Lögin eru mikið
framfaraskref – gætu tryggt náttúru
vernd og sjálfbæra nýtingu verndar
svæða til frambúðar, leyst misjafnar
þarfir útivistarmanna og náttúruunn
enda með skynsamlegu skipulagi, eflt
möguleika ferðaþjónustunnar. Þegar
þau voru samþykkt núna í mars voru
sautján þingmenn á rauða takkan
um, úr B og D. Lögin taka ekki gildi
fyrr en á næsta ári – og þess vegna er
óskað svara við brýnni spurningu sem
enginn af þessum sautján svaraði á
sínum tíma: Hverju nákvæmlega ætla
Litli og Stóri að breyta í nýju náttúru
verndarlögunum?
Stjórnarmeirihlutinn hefur staðið
fyrir verulegum framförum á þessum
sviðum, í félagi við náttúruverndar og
umhverfissinna, við forystumenn í nýj
um greinum og stórefldri ferðaþjón
ustu, við fræðimenn og frumkvöðla.
Ætli Framsóknar og Sjálfstæðisflokk
urinn að eyðileggja þennan árangur
– þá er núna tíminn til að segja frá
því. Kjósenda er síðan að segja til um
hverjum þeir treysta best til forystu við
umhverfisframfarir, náttúruvernd og
nýja atvinnulífið.
Vorverkin Verslunarmenn á Skólavörðustíg nýttu blíðskaparveðrið á fimmtudag til að sinna hinum ýmsu vorverkum. Mynd: Sigtryggur AriMyndin
Umræða 25Helgarblað 19.–21. apríl 2013
„Ætli Framsóknar- og
Sjálfstæðis flokkurinn
að eyðileggja þennan ár-
angur – þá er núna tíminn
til að segja frá því.Aðsent
Mörður Árnason
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
Ég var alls fimm
ár í Oxford
Sigmundur Davíð fullyrðir að hann hafi verið í Oxford við doktorsnám. – DV