Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Qupperneq 28
Ari Karlsson Sæll Bjarni, ég er
16 ára og byrja í menntaskóla í
vor. Hvað ætlar þú að gera til að
ég geti fengið góða vinnu þegar ég klára?
Bjarni Benediktsson Það er mik-
ilvægast að ný störf verði til í öllum
geirum atvinnulífsins. Það tryggir
ekki bara að þú getir fengið vinnu
heldur líka vonandi vinnu við það
sem þú hefur áhuga á.
Jón Jónsson Sæll Bjarni. Hafið
þið í Sjálfstæðisflokknum
reiknað út kostnað við
skattalækkanir sem að þið hafið kynnt
sem hluta að ykkar stefnumálum? Það
hefur mikið verið talað um að
kostnaðurinn sé enginn þar sem að tekjur
aukist annars staðar en hafið þið reiknað
þetta út og þá, eru þeir útreikningar
aðgengilegir okkur kjósendum ?
Bjarni Benediktsson Heildarkostn-
aður á ári liggur í kringum 15 milljarð-
ar samkvæmt okkar útreikningum.
Á móti koma síðan aukin umsvif sem
draga úr heildarkostnaðaráhrifum
fyrir ríkissjóð.
Hjörtur Freyr Sæll Bjarni. Ertu
trúaður og ertu með eða á móti
aðskilnaði ríkis og kirkju?
Bjarni Benediktsson Ég er ekki
mjög kirkjurækinn maður en á mína
trú á almættið. Það væri æskilegt að
aðskilja ríki og kirkju enn frekar, það
sem stendur helst í vegi fyrir því eru
hin flóknu fjárhagslegu samskipti
ríkisins og kirkjunnar.
Hólmgeir Kristmundsson Sæll
Bjarni. Ert þú tilbúinn að beita
þér fyrir að setja á sjómannaaf-
sláttinn aftur sem afnuminn var af
núverandi ríkisstjórn á yfirstandandi
kjörtímabili?
Bjarni Benediktsson Það er ekki
forgangsmál í okkar skattaað-
gerðum. Ég styð einfalt gegnsætt
skattkerfi.
Natan Kolbeinsson Af hverju
hefur Sjálfstæðisflokkurinn
engar reglur til að jafna út hlut
annars kynsins á framboðslistum?
Bjarni Benediktsson Vegna þess
að hann hefur trú á því að konur
jafnt sem karlar geti náð framgangi
á grundvelli eigin verðleika. Nú eru í
efstu fimm sætunum, í kjördæmun-
um sex, jafn margar konur og karlar
hjá okkur.
Villi Bald Þið segið hagsmunum
Íslands best borgið utan ESB.
Hvernig fer þetta mat fram?
Hvernig vigtið þið hagsmuni einstakra
hópa t.d. neytenda, skuldara,
fjármagnseigenda, bænda, innflytjenda
eða útflytjenda?
Bjarni Benediktsson Þetta mat
liggur m.a. fyrir í skýrslum um tengsl
Íslands og Evrópu. Þetta er stöðugt
mat. Því lýkur ekki í eitt skipti
fyrir öll. Það sem er ráðandi í okkar
niðurstöðu, og hefur ávallt verið, er
áherslan á að við Íslendingar finnum
gott jafnvægi í því að ráða okkar
málum sem mest sjálfir og svo hins
vegar að vera opnir fyrir alþjóðlegum
viðskiptum.
Sigríður Ólafsson Hvert yrði
þitt fyrsta verk sem
forsætisráðherra?
Bjarni Benediktsson Að grípa til
aðgerða sem auka ráðstöfunartekjur
fólks. Gera því auðveldara að ná
endum saman. Ég vil heildstæða
nálgun með skýrri efnahagsáætlun
sem tekur á öllum mikilvægum
þáttum - atvinnusköpun, lækkun
skatta, aðstoð við skuldsett heimili
og jöfnuð í ríkisfjármálum.
Hafsteinn Jóhannsson Ég sá
viðtal við þig á RÚV í síðustu
viku og fattaði í fyrsta skipti
hvað álagið á stjórnmálamenn getur
verið svakalegt. Hvernig leggst það í
fjölskylduna þína að þú sért núna að
takast á við stærsta verkefni sem hefur
verið á borði stjórnmálamanna í áratugi?
Bjarni Benediktsson Fjölskyldan
hefur sýnt því ótrúlegan skilning. Mér
finnst slæmt að hafa ekki haft meiri
tíma fyrir krakkana og eiginkonuna
en þetta gengur samt sem áður
ágætlega.
Viktor Valgarðsson Hæ,
Bjarni! Ég er á leiðinni til Brussel,
hvaða bjór mælirðu með að ég
prófi fyrst og hvað á ég að segja
Evrópuþinginu að verði um aðildarum-
sóknina eftir kosningar ef þú kemst í
ríkisstjórn? :)
Bjarni Benediktsson Leffe - ljósan,
skilaðu til þeirra að það hafi skort
lýðræðislegt umboð og þess vegna
ætlum við að stöðva viðræðurnar.
Hulda Ólafsdóttir Mér finnst
áætlun ykkar um að lækka
fasteignaskuldir um margt
gáfulegri en margar aðrar, en hún nýtist
ekki lágtekjufólki eins og hátekjufólki.
Þarna er jú fólki, sem annars gæti ekki
greitt aukalega inn á lánin, gefið tækifæri
til að gera það, að því gefnu að það hafi
ekki það lágar tekjur að það skattaaf-
slátturinn geti ekki nýst þeim. Þarf ekki
að setja eitthvað þak á skattaafsláttinn
til þess að þjóðin sé ekki að greiða niður
skuldir þeirra sem hafa efni á þeim?
Bjarni Benediktsson Það er
þak á skattaafslættinum. Það er
rétt rúmlega 40.000 kr. á mán +
séreignasparnaðurinn sem fólk hefur
val um að beina inn á lánið. Varðandi
þá sem engan tekjuskatt greiða þá
þarf að skoða þeirra mál sérstaklega.
Augljóst er t.d. að það fólk þarf fyrst
og fremst að geta framfleytt sér og
sínum.
Viðar Bjarnason Hvað finnst
þér um störf sérstaks
saksóknara fram til þessa? Ertu
fylgjandi vinnu hans?
Bjarni Benediktsson Það var
mikilvægt að setja rannsóknir á
efnahagsbrotamálum strax í fastan
farveg eftir hrunið og hefja rannsókn
slíkra mála án tafa. Það eru mér hins
vegar vonbrigði hve skammt við
erum komin við að klára þau mál.
Sérstaklega með tilliti til þess hve
miklum fjármunum hefur verið varið í
að styðja við rannsókn þessara mála.
Kristinn Pálsson Sæll Bjarni,
takk fyrir að taka við
spurningum almennings.
Hvaðan kemur nafnið Bó, á hundinn þinn,
og hvað er hann gamall?
Bjarni Benediktsson Bó var
uppástunga frá mági mínum. Bó
Halldórs er í fjölskyldu konu minnar
þannig að Bó er nefndur í höfuðið á
söngstjörnunni. Hann er 3ja ára.
Þorsteinn Frímann Rafnsson
Sæll. Hvað er því til fyrirstöðu
að klára samningaviðræður við
Evrópusambandið og sjá hver
niðurstaðan verður í þeim málum sem
helst mun stranda á, sjávarútvegi og
öðrum auðlindamálum. Burt séð frá því
hvort maður er hlynntur inngöngu eða
ekki, hvað mælir gegn því að fá
niðurstöðu sem þjóðin mun annaðhvort
samþykkja eða hafna ?
Bjarni Benediktsson Innganga í
ESB er stórpólitískt mál. Þetta er
ekki eins og hvert annað verk sem
menn geta tekið að sér að klára sí
svona. Ég tel að það sé forsenda
viðræðna að hér á landi sé breiður
stuðningur við inngöngu bæði meðal
þjóðarinnar og hjá þeim sem veljast
til forystu hverju sinni. Ef þetta fer
ekki saman verður allt ferlið klúður,
eins og mér finnst það hafa verið til
þessa.
Jóhann Kristjánsson Finnst
þér að það eigi að rannsaka
starfsemi lífeyrissjóðanna?
Bjarni Benediktsson Í hruninu
töpuðu lífeyrissjóðirnir mjög háum
fjárhæðum. Það er mikilvægt já, að
það sé skýrt hvers vegna það gerðist
og hvort eitthvað megi rekja til
fjárfestingastefnu eða fjárfestinga-
hegðunar lífeyrissjóðanna í því
sambandi. Mér fannst lofsvert að
sjóðirnir skyldu setja af stað sína
eigin rannsókn.
Helga Jónsdóttir Af hverju
hefur þú ekki tekið þátt í
kosningaprófi DV?
Bjarni Benediktsson Það hefur
farist fyrir, ef ég á að segja alveg eins
og er. Þetta er eins konar próf sem ég
er í hérna er það ekki?
Björg Torfadóttir Sæll Bjarni.
Hver er stefna Sjálfstæðis-
flokksins í málefnum
innflytjenda í hnotskurn?
Bjarni Benediktsson Í einföldu
máli að gera allt sem hægt er til að
tryggja að þeir eigi auðvelt með að
aðlagast samfélaginu sem allra
fyrst.
Kristín Jónsdóttir Sæll, Bjarni.
Ertu femínisti?
Bjarni Benediktsson Já, í
besta skilningi þess orðs.
Vaka Björnsdóttir Ég er móðir,
með barn á leikskóla og er 75%
öryrki, og spyr ykkur
sjálfstæðismenn, hvað ÞIÐ ætlið að gera
til að bæta kjör öryrkja?
Bjarni Benediktsson Draga þarf
úr skerðingum, það er fyrsta skref.
Næsta skref er að styrkja getu okkar
til að gera betur við alla þá sem þurfa
á stuðningi að halda.
Guðrún Jónsdóttir Sæll Bjarni.
Hvað vilt þú gera í sambandi við
heilbrigðismál og að þetta land
skuli vera það eina af Norðurlöndunum
og miklu fleiri landa sem lætur fólk borga
eins og t.d. fyrir komur vegna
krabbameinsmeðferðar og annarra
lífshættulegra sjúkdóma? Gangi þér vel á
lokasprettinum.
Bjarni Benediktsson Heilbrigð-
ismál þurfa að vera í forgangi eftir
kosningar. Við þurfum einfaldlega
að endurheimta fyrri styrk kerfisins
með því að tryggja getu til að halda
í hæft starfsfólk, bæta aðstöðu og
meðferðarúrræði. Í engu tilviki á bág-
ur efnahagur að koma í veg fyrir að
fólk fái aðstoð vegna lífshættulegra
sjúkdóma líkt og þú nefnir. Takk fyrir
stuðningskveðjuna.
Lilja Ósk Sigurðardóttir
Myndirðu halda í íslensku
krónuna sem gjaldmiðil? Ef ekki,
hvað sérðu fyrir þér í þeim málum?
Bjarni Benediktsson Við munum
nota krónuna næstu árin til að
endurreisa efnahagslífið og sækja
fram. Með okkar eigin gjaldmiðil
verður mun auðveldara að ná niður
skuldum og styrkja útflutnings-
greinarnar. Við uppfyllum alls ekki
skilyrði þess að taka upp annan
gjaldmiðil í augnablikinu eða að
ganga í myntsamstarf.
Sigurður Hjörleifsson Sæll
Bjarni. Finnst þér núverandi
persónuafsláttur vera
viðunandi hár eða ætlarðu að beita þér
fyrir að hækka hann?
Bjarni Benediktsson Auðvitað væri
gott að geta hækkað persónuaf-
sláttinn en við munum frekar leggja
áherslu á að lækka skattprósentuna
sem aftur hækkar frítekjumarkið.
Friðrik Pink Ég er öryrki vegna
geðsjúkdóms og ég fæ 150 þús.
á mánuði og þarf að borga
leigu,lyf ,mat og af lánum og svo
framvegis. Það er ekki hægt að lifa á
þessu. Það er bara hafragrautur 2 síðustu
vikurnar af mánuðinum. Hvað verður gert
til að koma á móts við okkur?
Bjarni Benediktsson Í hvert sinn
sem ég heyri dæmi af þessum toga
hugsa ég um hvað við getum gert til
að efla og styrkja getu okkar til að
gera betur. Stjórnmálin snúast að
svo miklu leyti um leiðir til að gera
betur við þá sem þurfa stuðning og
aðstoð frá meðborgurum sínum. Ég
vil gera betur og okkar stefna fjallar
um leiðir til að geta gert það. Eitt
einfalt mál til að byrja væri að draga
úr skerðingum bóta.
María Kristinsdóttir Sæll
Bjarni! Mér finnst skorta
umræðu um menntamál. Hver
er þín sýn á menntamál og fjárframlög til
þeirra? Annað sem mér leikur forvitni á
að vita: Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að
styðja við LÍN-frumvarpið svokallaða og
þá í leiðinni tryggja að styrktarkerfið
svokallaða verði að veruleika (þ.e. að
klári einstaklingur á námslánum nám sitt
á 3 árum fái hann fjórðung lánanna
greiddan sem styrk til baka)?
Bjarni Benediktsson Menntamál
hafa of lítið verið í umræðunni. Sókn
í menntamálum er ein forsenda
þess að við höldum samkeppn-
ishæfni. Við þurfum að stytta nám
til stúdentsprófs. Bæta verk- og
tæknimenntum því atvinnulífið er
að kalla eftir færu fólki með slíka
menntun. Mér finnst góð hugsun í því
að hafa hvata á borð við þá að ljúka
námi á réttum tíma í námslánafyrir-
komulaginu.
Unnþór Torfason Virkar Ísland
án verðtryggingu?
Bjarni Benediktsson
Það ræðst af því hvort við náum
stöðugleika. Verðtyggingu var komið
á vegna þess að enginn vildi lána,
lán brunnu upp í verðbólgu. Ég er
sannfærður um að við getum bætt úr
þessu með samhentu átaki og tryggt
óverðtryggð lán með föstum vöxtum
til lengri tíma en við höfum séð til
þessa.
Aðalsteinn Guðmundsson
Hvað gerir þú þegar það er
stund á milli stríða?
Bjarni Benediktsson Það er
ýmislegt. Fer út með hundinn (alltof
sjaldan reyndar). Mér finnst mjög
gaman þegar ég kemst golfhring á
sumrin. Hef yndi af því að veiða. Yfir
árið reyni ég að hreyfa mig reglulega,
fæ mikla hvíld og útrás við það. Að
lesa bók, hlusta á tónlist og vera
með vinum og fjölskyldu er allt í
uppáhaldi hjá mér. Af hverju hefur
maður svona lítinn tíma til að gera
það sem er gaman?
Steinn Jónsson Telur þú
afleiðingar Kárahnjúkavirkjunar
á lagafljót eigi að hafa áhrif
hvort farið verði í nýtt umhverfismat á
áhrifum virkjunar í Bjarnarflagi á lífkerfið
í Mývatni?
Bjarni Benediktsson Mývatn og
nágrenni þess er einn af uppáhalds-
stöðum mínum á landinu. Það þarf
ýtrustu varúð við framkvæmdir á
þessu svæði. Nú þegar er ástæða til
að gera rannsóknir á lífríkinu þó ekki
væri nema þess sem við sjáum gerast
með kúluskítinn. Við eigum að læra
af sögunni. Hvað Lagarfljót varðar
sérstaklega þá er þessi framburður
nokkurn veginn í samræmi við það
sem spáð var af sérfræðingum. Það
gerir málið ekkert betra en þetta
var ein af fyrirséðum neikvæðum
afleiðingum.
Níels Ársælsson Sæll Bjarni.
Hver er afstaða þín til
strandveiða í núverandi mynd ?
Bjarni Benediktsson Það sem ég
hafði við strandveiðarnar að athuga
í upphafi var að ég hafði áhyggjur af
því að þetta kerfi væri ósjálfbært.
Það þýðir af of margir myndu kaupa
trillu og fara í róðra þar til of fáir
dagar væru fyrir hvern og einn til
að þrífast. Ég tel að þetta sé þegar
komið fram a.m.k. fyrir Vestur-
landinu. Við munum leitast vil að
tryggja atvinnuöryggi og styðja það
besta í kerfinu. Við kippum fótunum
ekki undan mönnum sem stunda
atvinnurekstur á grundvelli gildandi
laga.
Herdís Fjóla Ætlar þú að láta
taka út bensín skattinn sem
rennur til ríkisins, 123 kr. pr. lítra
minnir mig?
Bjarni Benediktsson Já, við viljum
lækka opinberar álögur á eldsneyti.
Ríkið hefur aldrei tekið fleiri krónur til
sín af hverjum seldum eldsneytislítra
en undanfarin misseri. Þar spila
saman sérstöku gjöldin og hár vsk.
á hátt eldsneytisverð. Fyrir lands-
byggðina er þetta orðið sérstaklega
óþolandi og alla þá sem þurfa um
langan veg að fara til vinnu. Þetta er
stór útgjaldaliður heimilanna sem
hægt er að lækka.
Bjartur Steingrímsson Nú er
talað um að íslenska ríkið eyði
hátt í 200 milljónum króna
árlega í þátttöku í NATO. Hvernig
réttlætir þú þessa eyðslu og þá
sérstaklega á þessum erfiðu tímum?
Bjarni Benediktsson Þátttaka
okkar í NATO er og hefur frá upphafi
verið liður í því að verja landið gegn
ytri ógn. Ég tel að með því að þjóðir
tóku saman höndum um að verja
hverja aðra fyrir árásum hafi tekist
að skapa frið, bjarga mannslífum og
tryggja framfarir í okkar heimshluta.
Við eigum að vera stolt af því að hafa
átt hlut að þeirri þróun sem ein af
þeim þjóðum sem stofnaði NATO.
Örvar Friðriksson Hver er
afstaða þín til greiðsluþátttöku
langveikra sjúklinga/öryrkja á
lyfjum sem tekur gildi 4. maí
næstkomandi?
Bjarni Benediktsson Það hefur
eitthvað mikið farið úrskeiðis við
upptöku þessara nýju reglna. Fjöldi
manns hefur haft samband við okkur
og sagt frá vandræðum með að
leysa út nauðsynleg lyf. Afslátt-
arkort sem gilda ár fram í tímann
væru góð hugmynd til að setja þak á
lækna- og lyfjakostnað yfir árið í stað
þess að miða við almanaksárið.
Gísli Þór Ólafsson Sæll Bjarni.
Nú talar þú mikið um
skattalækkanir og vill ég vita
hvaða skatta þú myndir þá helst vilja
lækka, hvernig þú myndir lækka þá og
hversvegna, ef þú kæmist til valda?
Bjarni Benediktsson Tekjuskattur
er nú í þremur þrepum. Miðþrepið
byrjar í 230 þús. og efsta þrepið í
rétt rúmum 700 þús. Ég myndi vilja
byrja á því að lækka neðsta þrepið og
sameina svo miðþrepið þessu lægsta
þrepi. Stefnan er á að hafa eitt þrep
en það má gerast í áföngum. Fjár-
magnstekjuskatturinn leggst á með
ósanngjörnum hætti. Veldur því að
margir eru með neikvæða ávöxtun
á sparifé (þar sem verðbætur eru
skattlagðar). Fyrir atvinnulífið er
mikilvægt að lækka tryggingagjaldið
af því að það er í raun skattur á störf.
Með lækkun þess aukum við svigrúm
til að ráða nýtt fólk eða gera betur
við þá sem eru fyrir í starfi. Svo þarf
að taka allar hinar breytingarnar
(hátt í 200) til skoðunar. Kerfið hefur
verið flækt en á að vera einfalt og
gegnsætt. Ég hef mesta trú á lágum
sköttum en breiðum skattstofnum.
Almennt að byggja meira á neyslu-
sköttum en tekjusköttum. Varðandi
þörfina fyrir niðurskurð þá trúi ég því
að skattstofnanir muni breikka og
þannig skila meiri tekjum eftir því
sem umsvifin aukast. Í fyrra var hér
1,6% hagvöxtur skv. Hagstofunni.
Það vantar fjárfestingu og fleiri
störf. Þau verða til með hagstæðara
skattaumhverfi, breyttri efnahags-
stjórn og betra samkomulagi milli
stjórnvalda og vinnumarkaðar.
Dúnna Pæja Hefurðu áhuga á
að bæta heilbrigðiskerfið á
Íslandi og á hvaða hátt þá?
Sífellt er verið að bæta kostnaði á
sjúklinga t.d. lyfjakostnaði. Niðurskurður
síðustu ára hefur komið verst niður á
landsbyggðarfólki þar sem þjónustan er
orðin skert, t.d. skurð-og fæðingaþjón-
usta. Ertu hlynntur þessari áherslu á að
allt flytjist á Landspítalann þar sem
aðrar stofnanir eru nú verr útbúnar?
Muntu beita þér fyrir launahækkunum
hjúkrunarfræðinga utan Landspítala?
Bjarni Benediktsson Já, við mun-
um setja heilbrigðismál í forgang og
verja stöðu heilbrigðiskerfisins. Það
eru komnir fram ýmsir brestir, m.a.
eins og þú nefnir á landsbyggðinni.
En það á ekkert síður við á Landspít-
alanum. Síðast í dag las ég frétt um
að sjúklingar væru á göngum spítal-
ans í rúmum. Til þess að við getum
gert betur, haldið áfram að byggja
upp aðstöðuna, gert betur við starfs-
fólkið, hvort sem eru læknar, hjúkr-
unarfræðingar eða aðrir þurfum við
að halda áfram að skapa verðmæti.
Þess vegna skiptir atvinnustefnan á
hverjum tíma svo miklu. Athugaðu
að þrátt fyrir niðurskurð undanfar-
inna ára hefur ríkið verið rekið með
miklum halla og við höfum verið að
safna skuldum. Sterkur og öflugur
Landspítali er algjört lykilatriði fyrir
heilbrigðisþjónustuna í landinu. Ég
vil ekki nálgast þetta sem hreint val
á milli þess að byggja hann upp eða
verja þjónustuna um landið. Okkar
markmið á að vera að gera hvort
tveggja. Öllum er hins vegar ljóst
að undanfarin ár höfum við ekkert
svigrúm haft til að fara í tugmilljarða
fjárfestingu og við þurfum að vanda
næstu skref í þeim áformum.
28 Umræða 19.–21. apríl 2013 Helgarblað
Ætlum að stöðva viðræðurnar
Nafn: Bjarni Benediktsson
Aldur: 43 ára
Staða: Formaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Menntun: Lögfræðipróf HÍ
1995. Nám í þýsku og lögfræði
í Þýskalandi 1995-1996. LL.M.-
gráða (Master of Laws) frá
University of Miami School of
Law í Bandaríkjunum 1997.
Formaður Sjálfstæðisflokksins var spurður um Evrópusambandið, heilbrigðismál og skattalækkanir á Beinni línu á fimmtudaginn.
M
Y
N
D
IR
SIG
TR
Y
G
G
U
R
A
R
I