Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 37
37Helgarblað 19.–21. apríl 2013
bankarán hafði lögregluforinginn Andre Stander komist upp með á áttunda
áratug síðustu aldar áður en upp um hann komst. Hann var yfirmaður hjá Kempton Park-
lögreglunni í Suður-Afríku og drýgði tekjur sínar með ránum. Hann fór fyrir „Stander genginu“
alræmda og var, merkilegt nokk, jafnan fyrstur lögreglumanna á vettvang.30
J
ohn Myles Sharpe fæddist
28. febrúar, 1967, í Morning
ton í Ástralíu og ólst upp á
þeim slóðum. Hann kynntist
Önnu Kemp á NýjaSjálandi,
þar sem þau unnu bæði í Ástralska
samveldis bankanum. Þau gengu í
hjónaband síðla árs 1994 og bjuggu á
hinum ýmsu stöðum á Mornington
skaganum, suður af Melbourne.
Þau eignuðust dóttur, Gracie
Luise, í ágúst 2002, en Grace glímdi
við mjaðmamein frá fæðingu og
fyrstu þrjá mánuði lífs síns þurfti hún
að nota sérstakt stoðbelti. Það hafði
án efa áhrif á Gracie; hún var grát
gjörn og glímdi við svefnörðugleika
– sem virtist setja mark sitt á hjóna
band John og Önnu.
Jafnvel eftir að Gracie losnaði
við stoðbeltið átti hún erfitt með að
matast og svefnörðugleikar hennar
heyrðu ekki sögunni til. Að lokum
fór svo að Anna leitað aðstoðar fag
manneskju vegna vandans.
Áberandi spenna
Árið 2003 keypti John sér skutulbyssu
og tvo skutla – sem kom mörgum á
óvart þar sem hann hafði aldrei látið
í ljósi áhuga á fiskveiðum af þeim
toga – og æfði sig að meðhöndla
vopnið í bakgarði þáverandi heim
ilis fjölskyldunnar í Spinnaker Rise.
Skömmu síðar festu hjónin kaup á
húsi í Mornington – Princestræti
númer 116.
Í nóvember 2003 jókst enn frekar
á spennu með hjónunum þegar
Anna tilkynnti John að hún væri
ekki kona einsömul. Þegar þar var
komið sögu var Gracie 15 mánaða
og John hugnaðist ekki að eignast
annað barn – eitt barn var næg byrði
að bera að hans mati. Svo slæmt
varð ástandið að John lagði nánast
fæð á Önnu og hið ófædda barn
og gestir í afmælisboði sem hjónin
voru í, í mars 2004, komust ekki hjá
að veita athygli mikilli spennu og
stuttum kveikjuþræði í samskiptum
John og Önnu.
Uppiskroppa með skutla
Að kvöldi 23. mars, 2004, rifust hjón
in, enn og aftur, áður en þau tóku á
sig náðir um tíu leytið. Skömmu síð
ar fór John fram úr náði í skutulbyss
una. Með byssuna aðeins í nokkurra
sentímetra fjarlægð frá andliti Önnu
hleypti hann af. Skutullinn lenti
vinstra megin í enni barnshafandi
eiginkonu hans. John sá að Anna var
enn með lífsmarki og skaut öðrum
skutli beint í höfuð hennar og varð
það bani hennar. John breiddi yfir lík
ið og fór niður á neðri hæð hússins og
lagðist til svefns í sófanum í stofunni.
Daginn eftir reyndi John án ár
angurs að losa skutlana úr höfði
Önnu, en tókst þó að skrúfa þá í
sundur þannig að aðeins oddarnir
sátu eftir.
Hann fór með Gracie á leikskól
ann og sótti hana síðar um daginn.
Síðan gróf hann lík eiginkonu sinnar
í grunnri gröf í bakgarðinum.
En hann var orðinn uppiskroppa
með skutla og því fór hann með
dóttur sína í sportveiðiverslun og
festi kaup á skutli fyrir byssuna.
Gracie myrt
Fjórum dögum eftir morðið á Önnu
svæfði John Gracie og fékk sér síðan
nokkur glös af viskíi í kók, til að „deyfa
skynfærin“. Síðan náði hann í skutul
byssuna, hlóð hana með nýja skutl
inum og skaut Gracie í höfuðið. En
Gracie dó ekki en grét háum og sker
andi gráti. John náði þá í sköftin sem
hann hafði skrúfað af hinum tveimur
skutlunum sínum, hlóð skutulbyss
una með þeim og skaut þeim báðum
í höfuð dóttur sinnar.
En Gracie lifði enn. John dró þá
einn skutulinn úr höfði dóttur sinn
ar, hlóð byssuna aftur og skaut hana
í höfuðið í fjórða sinn. Það dugði til.
Morguninn eftir fjarlægði hann
skutlana úr höfði Gracie, vafði lík
hennar inn í ruslapoka og vaxdúk og
reyrði utan um með einangrunarlím
bandi. Hann losaði sig við líkið á
sorphirðustöð Mornington og notaði
tækifærið til að losa sig við skutul
byssuna, skutlana og eitthvað af fatn
aði og leikföngum Gracie.
Mæðgnanna saknað
Í verkfæraverslun í Frankston festi
John, tveimur dögum eftir morðið
á Gracie, kaup á einangrunarlím
bandi, vaxdúk og rafmagnssög. Sama
dag gróf hann lík Önnu upp, hlutaði
það í þrennt, vafði líkamshlutun
um inn í vaxdúk og losaði sig við allt
heila klabbið; líkamshlutana og sög
ina, á sorphirðustöð Mornington.
Samdægur sendi hann fjölskyldu
Önnu á NýjaSjálandi rafrænan póst
þar sem hann gaf í skyn að Önnu liði
vel. Hvað vakti fyrir honum er ekki
vitað en orðsendingin hafði þver
öfug áhrif á móður Önnu, sem hafði
samband við lögregluna í Dunedin
á NýjaSjálandi og sagði að dóttir
hennar væri horfin.
Þegar til kom fullyrti John að
eigin kona hans hefði flutt með
dóttur þeirra í Chelseaúthverfið í
Melbourne og hann hefði engar frek
ari upplýsingar og væri á engan hátt
bendlaður við hvarf hennar.
John handtekinn
Í maímánuði 2004 baðaði John sig
í sviðsljósi fjölmiðla, veitti ófá við
töl þar sem hann tjáði sig um hvarf
Önnu og Gracie. Hann lýsti fjálglega
ást sinni til Önnu í sjónvarpsávarpi
sem beint var sérstaklega til hennar:
Ég elska þig enn og þú ert móðir okk
ar fallegu dóttur, Gracie, sem við bæði
dáum meira en nokkurn annan.“
Einnig biðlaði John til fólks að gefa sig
fram ef það hefði einhverjar upplýs
ingar um verustað mæðgnanna.
En lögreglan hafði í auknum mæli
fengið áhuga á málinu og 20. maí,
2004, ræddi hún við John á heim
ili hans, og 10. júní var hann aftur
tekinn til viðtals. En hann sat fastur
við sinn keip – Anna hafði farið að
heiman, af eigin hvötum, þann 23.
mars. Eitthvað hefur John verið ótrú
verðugur í augum lögreglunnar því
hann var handtekinn 22. júní.
Fyrst um sinn hélt hann fast við
frásögn sína en um síðir, eftir að hafa
rætt við fjölskyldu sína, játaði hann á
sig bæði morðin.
Mögulegt barnaníð
Sagðist John hafa fyrirkomið eigin
konu sinni því hún hefði verið
„stjórnsöm og mislynd“ og hjóna
bandið hamingjusnautt: „Ég hafði
hugsað mér að hugsa um Gracie
upp á eigin spýtur, en í þessu brjál
æði öllu saman … þá missti ég
stjórnina.“
Sú kenning komst á kreik að John
hefði myrt Önnu því hún hefði kom
ist á snoðir um að hann misnotaði
Gracie, og einhver bréf kunna að
hafa rennt stoðum undir þá kenn
ingu.
Í kjölfar viðamikillar leitar í land
fyllingu í Mornington fann lögreglan
líkamsleifar hvort tveggja móður og
dóttur.
Við réttarhöld játaði John sig sek
an og 5. ágúst, 2005, fékk hann tvo
lífstíðardóma, sem hann skyldi af
plána annan á eftir hinum. Málið
fékk mikla umfjöllun í áströlskum
fjölmiðlum og fékk John viðurnefn
in Skutulbyssumorðinginn og Morn
ingtonskrímslið.
John Myles Sharpe mun geta sótt
um reynslulausn árið 2037. n
MorningtonskríMslið
n John Sharpe myrti eiginkonu sína og dóttur n Beitti skutulbyssu við morðin
Sharpe-fjölskyldan Anna og
Gracie hlutu hryllilegan dauðdaga.
Skutulbyssu-
morðinginn Þurfti
fjórar tilraunir til að
myrða dóttur sína.
„ John dró þá einn
skutulinn úr höfði
dóttur sinnar, hlóð byss-
una aftur og skaut hana í
höfuðið í fjórða sinn.