Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Side 39
Menning 39Helgarblað 19.–21. apríl 2013
„Þessir þættir fylla mann
þakklæti fyrir hversdagslífið“
Sjónvarp
Walking Dead
„Krefjandi
en góður“
„Þættirnir hafa sjaldséðan
kost... – þeir eru trúverðugir“
God of War
Ascension
Game of Thrones
HBO
inu og vantaði með öllu þann
kvenleik sem það kallaði á. Hann
sýndi okkur ekki heldur þann
óróleika, þá angist og vanlíðan
sem persónan hlýtur að finna til.
Vissulega er hlutverkið þunnt frá
hendi höfundar; mér finnst samt
að leikarinn hefði átt að geta
fengið meira út úr því.
Svona eins og Þröstur Leó
sem var bara brilljant í hlutverki
Haralds. Hvernig Þröstur neglir
persónuna niður um leið og
hann birtist á sviðinu, hvað leik-
urinn er þéttur og sniðfastur, en
þó fullur af fínlegum smáatrið-
um; það er hrein unun á að horfa.
Enn og aftur hvet ég stjórnend-
ur leikhússins til að nýta krafta
Þrastar betur, láta hann oftar,
miklu oftar, fá að spreyta sig á
dramatískum hlutverkum – og
þá undir vitrænni leikstjórn; það
þarf víst að taka það sérstaklega
fram á þessum tímum þegar við,
varnarlausir gestir leikhúsanna,
erum hvergi óhultir fyrir mönn-
um sem hlamma sér niður í leik-
stjórnarsætið í þeirri trú að þeir
séu aðalnúmerið í leikhúsinu,
textar skáldanna ekki annað en
efni til að sýna það sem þeir telja
sína eigin snilli, sitt einkaerindi
við áhorfendur.
Helga I. Stefánsdóttir gerir að
þessu sinni bæði leikmynd og
búninga. Leikmyndin er að vísu
einkum hugsuð fyrir leik Sölku,
þar sem hún nýtur sín vel sem
fyrr segir; í hinum síðari er hún
nýtt sem hlutlaus bakgrunnur.
Það kemur í sjálfu sér þokkalega
út, en færir hvorugan leikinn í þá
raunsæisátt sem þeir vilja halda.
Búningar eru frábærir.
Eftir stendur að fram er kom-
inn höfundur sem vekur góðar
vonir og full ástæða er til að
hvetja til dáða. Það er ekki á
hverjum degi sem við getum
gengið út úr leikhúsinu og sagt
slík tíðindi. Að sjálfsögðu bíð-
um við spennt eftir því sem
Tyrfingur sendir frá sér næst. n
Þrjú ný leikskáld –
og eitt efnilegast
Skúrinn á
sléttunni
„Leikur Tyrfings
Tyrfingsson-
ar, Skúrinn á
sléttunni, er
langáhuga-
verðasta verk
kvöldsins.“
S
tuttmyndin Hvalfjörður, í leik-
stjórn Guðmundar Arnars
Guðmundssonar, hefur verið
valin til þátttöku í aðalkeppni
Cannes-kvikmyndahátíðarinnar, í
flokki stuttmynda.
Af 3.500 myndum voru níu valdar
í aðalkeppnina og Hvalfjörður er ein
þeirra. Þetta er í þriðja sinn sem ís-
lenskri stuttmynd hlotnast sá heiður
að vera valin til aðalkeppni í flokki
stuttmynda á Cannes.
Myndir sýnir sterkt samband
tveggja bræðra sem búa á litlum
sveitabæ ásamt foreldrum sínum.
Áhorfendur fá að skyggnast inn í
heim þeirra út frá sjónarhorni yngri
bróðurins og fylgja honum í gegnum
örlagaríka daga sem marka þáttaskil
í lífi bræðranna. n
n Ein níu stuttmynda sem voru valdar
Hvalfjörður á Cannes
Þorbjörg Marinósdóttir
rithöfundur og markaðsstjóri
DV þorir að
taka á erfiðum
málum og
kafa ofan í
kjölinn og
standa þannig
mikilvæga vakt
í samfélaginu.
Þess vegna
les ég DV