Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Blaðsíða 50
50 Fólk 19.–21. apríl 2013 Helgarblað
Neita sögusögn-
um um skilnað
n Ozzy datt í það
O
rðrómur hefur verið á
kreiki að undanförnu
um að Ozzy og Sharon
Osbourne væru að skilja.
Vinir þeirra skötuhjúa
segja að þau hafi flutt hvort frá hinu
um síðustu mánaðamót og búi nú
hvort í sinni íbúðinni. Ozzy greindi
frá því á Facebook-síðu sinni nýlega
að hann hefði verið í mikilli áfengis-
og eiturlyfjaneyslu undanfarið eitt
og hálft ár en tekist að halda sér
edrú í rúmar sex vikur. Hann segir
að þetta hafi verið ömurlegur tími,
hann hafi verið á dimmum stað.
Ozzy segist með framferði sínu hafa
sært þá sem hann elski mest; fjöl-
skyldu sína, en neitar því að sögu-
sagnir um skilnað eigi við rök að
styðjast. Í lok Facebook-færslunnar
biður hann Sharon, fjölskyldu sína,
vini og samstarfsmenn afsökunar á
hegðun sinni á meðan hann var í
ruglinu.
Særði fjölskylduna
Ozzy er fullur eftirsjár
Pink í París
P
ink var stödd í París í
vikunni þar sem hún
hélt tónleika. Þótt dvöl-
in hafi verið stutt reyndi
hún að gera sem mest úr
henni og skoðaði borgina með
eiginmanni sínum, Carey Hart,
og dóttur þeirra, Willow.
Litla fjölskyldan fékk sér há-
degismat á L´Avenue sem er í
uppáhaldi hjá fræga fólkinu en
Beyoncé, Jay-Z, Justin Bieber,
Rihanna and Kanye West hafa
meðal annarra snætt á veitinga-
staðnum.
Pink er á tónleikaferðalagi
og mun halda 134 tónleika á ell-
efu mánuðum en næstu tónleik-
ar hennar verða í Amsterdam í
kvöld, föstudag. Hún hefur feng-
ið mikið lof fyrir framkomu sína
og sérstaklega fyrir að ná háum
tónum á meðan hún framkvæm-
ir fimleikaæfingar.
n Naut borgarinnar með fjölskyldunni
Pink Með eiginmanni og dóttur í París.
Flottir tónleikar
Söngkonan hefur fengið
lof fyrir framkomu sína á
tónleikunum.
H
jartaknúsarinn Bradley
Cooper segir í viðtali við
Details að hann hafi búið
hjá móður sinni, Gloriu, í
tvö ár eða allt frá því faðir
hans lést.
„Það er ekki auðvelt fyrir hana
að búa með syni sínum en svona
er lífið. Við erum mjög náin fjöl-
skylda og við gengum í gegnum
mikla erfið leika þegar pabbi dó.
Við erum enn að jafna okkur og
þurfum enn hvort á öðru að halda.
Svo við búum ennþá saman,“ segir
hann.
Hann bætir við að fyrirkomu-
lagið sé þó ekki án vandkvæða.
„Það er ekki eins og ég búi í hús-
inu og mamma í gestahúsinu.
Herbergið hennar er við hliðina
á mínu. Það sleppur þó, því hún
er frábær og við náum vel saman.
Annars myndi þetta aldrei ganga.“
Þess má geta að Cooper mætti
með móður sína á Óskarsverðlauna-
hátíðina en hann var tilnefndur fyrir
hlutverk sitt í Silver Linings Play-
book.
Hugsar vel
um mömmu
n Býr hjá henni og bauð henni á Óskarinn
Hangover-stjarnan Býr með móður
sinni.
n Erfiðleikarnir virðast að baki
S
vo virðist sem Robert Pattin-
son og Kristen Stewart
séu í raun og veru tek-
in saman á ný. Pattinson,
sem hefur verið við tökur á
myndinni The Rover í Ástralíu síð-
ustu mánuðina, sást með Stewart á
tónleikahátíðinni Coachella í Kali-
forníu. Parið sást haldast í hendur og
sýna hvort öðru ástaratlot sem talið
er benda til þess að þau hafi komist
yfir erfiðleika síðasta sumars.
Tekin saman á ný
Á Coachella-tónlistarhátíðinni Virtust hamingjusöm og afslöppuð.
Tekur leiklisTina
alvarlega
Þ
ó hann sé einn af
frægustu leikurum í
heimi segist Leonardo
DiCaprio aldrei hafa
tekið feril sinn sem sjálf
sögðum hlut. Leikarinn, sem er
38 ára, viðurkennir að það hafi
verið erfitt fyrir hann að ná
frama og frægð og því láti hann
aldrei gott hlutverk fram hjá sér
fara. Þetta kemur fram í viðtali í
Esquire Magazine.
„Ég hef alltaf litið á sjálfan
mig sem lítilmagna því ég átti
ekki nógu fín föt eða hárið á
mér var ekki flott. Það var því
eins og að vinna í lottói fyrir mig
að öðlast frægð og frama.“ Hann
segist alltaf hafa sagt við sjálfan
sig: „Allt í lagi, þú fékkst þetta
tækifæri og ef þú gerir ekki þitt
allra, allra besta þá klúðrar þú
þessu ótrúlega tækifæri sem þú
fékkst.“ Slík hugsun hafi drifið
hann áfram og hann hefur svo
sannarlega komist áfram því
hann hefur leikið í nokkrum af
stærstu myndum sinnar kyn
slóðar. Þar má nefna The Avi
ator, The Departed, Blood Di
amond, Titanic og Django
Unchained.
Hann viðurkennir einnig að
hann eigi erfitt með að finna
jafnvægi á milli ferilsins og
einkalífsins en það geti verið
erfitt. DiCaprio hefur átt í sam
bandi við konur á borð við fyrir
sætuna Gisele Bündchen og
leikkonuna Blake Lively.
n Einn frægasti
leikari leit á sig sem
undirmálsmann
Leonardo DiCaprio Segist hafa þurft
að vinna fyrir frægðinni.
Django Unchained
Í hlutverki sínu í mynd Tarantino.