Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2013, Side 54
54 Fólk 19.–21. apríl 2013 Helgarblað M ikla athygli hefur vakið að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson neitar DV að- gangi að upplýsingum um meintan námsferil sinn í Oxford. Umræð- an á Facebook hefur tekið heldur háðu- legan snúning. Bryndís Björgvinsdóttir rithöfundur segir líklegast að Sigmundur hafi numið við galdraskólann Hogwarts. „Sigmundur neitar að segja okkur hvað hann hefur lært í Englandi – en er svo flinkur að hafa séð fyrir um IceSave þótt það væri öðr- um mönnum ógjörningur og ætl- ar að redda skuldunum okkar með einhverju töfrabragði. Niður- staða: Hann lærði í Hogwarts.“ R ithöfundurinn viðkunnan- legi, Guðrún Eva Mínervu- dóttir, lenti í miklum hrakn- ingum í vikunni og sagðist á Facebook varla þora fram úr. „Gærdagurinn: Týndi pen- ingaveskinu á miðri umferðar- götu, villtist í hverfi sem ég taldi mig þekkja sæmilega, tók leigubíl en átti síðan ekki fyrir fargjaldinu veskislaus, fékk veskið aftur frá rannsóknarlögreglunni vel-yf- irkeyrt, missti tvisvar af strætó og lokaði köttinn inni í skáp frá kl:20:00 til miðnættis. Í morgun þorði ég varla undan sænginni.“ Lokaði köttinn inni í skáp n Hrakfarir Guðrúnar Evu rithöfundar Hann lærði í Hogwarts n Dularfullur námsferill Sigmundar Davíðs Geðveikin er sjálfsrannsókn n Þjóðleikhúsið frumsýnir Engla alheimsins É g hef það fínt í dag. Geðhvörfin eru hluti af mér og verða það en maður lærir að takast á við sjálfan sig og umhverfið. Ég er á ágætis róli. Ég er að semja og um þessar mundir er ég að vinna að nýrri plötu með GusGus, seg- ir Högni Egilsson sem flestir kalla Högna í Hjaltalín. Auk þess að vera að semja og gera plötu tekur Högni þátt í sýningu Þjóðleikhússins á Englum alheimsins en hún er byggð á samnefndri sögu Einars Más Guð- mundssonar. Í sýningunni flytur Högni lag sem er nokkurs konar sálu- messa Páls, aðalpersónunnar í verk- inu. Páll glímir við geðsjúkdóm og Högni greindist sjálfur með geðhvörf fyrir tæpu ári. Heillandi saga „Mér finnst þessi saga bæði heillandi og falleg. Hún segir frá lífi manns sem er að kljást sjálfan sig, skuggana, myrkrið og brjálæðið. Páll var lista- maður, málari og ljóðskáld. Hjalta- lín gaf út lag á miðvikudag og text- inn við það er samsettur úr ljóðum eftir eftir Pál. Textinn er saumaður saman úr ljóðlínum hans. Sköpun er einhvers konar rannsókn á sjálf- um sér og listin í eðli sína líka. Maður temur sjálfan sig til að koma orðum að því hvernig maður upplifir raun- veruleikann. Sköpunin er nauðsyn- legur grunnur að tilvist hvers manns og tengslum hans við umhverfi sitt. Geðveikin er líka einhvers konar sjálfsrannsókn en verður að veikind- um þegar maður lokast inni í eigin hugarheimi, inn í einhverju ákveðnu hólfi og missir tengslin við umhverfi sitt. Það verður þó að hafa í huga að það er ekki til neinn einn hugarheim- ur geðveikinnar, reynsla hvers og eins er mjög persónubundin,“ segir Högni og segir erfitt að fjalla um hluti á borð við þessa í stuttu viðtali. Geðlyfin halda sjúkdómnum niðri Það er Atli Rafn Sigurðsson sem leikur Pál í verkinu en hvernig bjó hann sig undir að túlka að Pál? „Ég þekki sjálfur fólk sem býr við svipaðar aðstæður og Páll, og hef þekkt frá barnæsku. Mað- ur hefur séð milljón heimildar- myndir og bíómyndir um veikt fólk. Skoðað þeirra heim. Ég er sjálfur haldinn Tourette-heil- kenni og á tímabili háði það mér það mikið að ég þurfti að leita læknis sem setti mig á lyf. Einu lyfin sem halda þessum einkennum niðri eru geðlyf. Þannig að ég var settur á þung- lyndis- og geðklofalyf, að vísu í smáum skömmtum. Ég upp- lifði á þessum tíma mjög sterkt hvaða áhrif slík lyfjagjöf hef- ur á mann. Eftir þetta skildi ég betur þegar veikt fólk vill losna við lyfin sín því á sama tíma og lyfin halda niðri sjúkdómn- um líður sjúklingnum illa, sköpunargáfan hverfur, þú sérð allt í gegnum móðu. En sam- kvæmt samfélaginu ertu orðinn heilbrigður og það er þessi spurn- ing sem er líka sterk í Englum al- heimsins. Að lifa frjáls getur þýtt að þú þurfir að horfast í augu við dauð- ann sem að lokum eru örlög Páls.“ Nú gerist sagan á síðustu öld og mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því Páll fyrirfór sér og mikið áunnist í málefnum geðsjúkra, hefur Páll eitthvað að segja fólki í dag? „Englar alheimsins er löngu orðin klassísk bók og lifir með þjóð- inni. Bókin kemur út á tíma þar sem ekki var til staðar þessi opna um- ræða um geðsjúkdóma eins og er í dag. Það má segja að bókin hafi opnað á þessa umræðu og hún var einnig gríðarlega wwmikilvæg fyrir aðstandendur þeirra sem þjást af geðvandamálum því þeir gátu tengt við bókina og þá sögu sem þar var að finna.“ Saga um umburðarlyndi „Við sjáum samt alltaf ný og ný dæmi um hvernig brotið er á rétti minnihlutahópa og hvernig sam- félagið hefur þurft að horfast í augu við leyndarmál sín. Það hefur ekki breyst. Saga Páls er líka saga um um- burðarlyndi. Um það að við þurf- um að bera virðingu fyrir þeim sem eru öðruvísi, sjá fegurðina í fjöl- breytileikanum og passa okkur á að dæma ekki fyrirfram. Og það hefur svo sannarlega eitthvað breyst. Sjá- um bara Jón Gnarr. Hann klæðir sig í Star Wars-föt á opinberum vettvangi og hefur sett málefni minnihluta- hópa í forgrunn. En svo er ráðist á þennan mann og það segir manni að enn sé þörf á umfjöllun um efni bóka eins og Engla alheimsins. Því, hver er dómbær á hvað er rétt og rangt? Er það kóngurinn eða fíflið? Og hvað ef kóngurinn er fífl?“ spyr Atli Rafn. n Með Tourette „Ég er sjálfur haldinn Tourette-heilkenni og á tímabili háði það mér það mikið að ég þurfti að leita læknis sem setti mig á lyf,“ segir Atli Rafn Sigurðsson. „Geðhvörfin eru hluti af mér. Tókst á við sjálfan sig Högni í Hjaltalín heillaðist af sögunni af Páli sem tekst á við sjálfan sig, skuggana, myrkrið og brjálæðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.