Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Blaðsíða 6
F yrsta lagafrumvarp Illuga Gunnarssonar sem mennta- og menningarmálaráðherra snýr að skipun stjórnar Ríkis- útvarpsins. Verði frumvarp Illuga samþykkt mun skipan stjórn- arinnar ráðast af tilnefningu þing- manna þar sem allir sjö stjórnar- menn eru kosnir með hlutbundinni kosningu á Alþingi. Þetta er sams- konar fyrirkomulag og áður hefur tíðkast. Frumvarpið felur í sér að breytingar sem samþykktar voru í mars síðastliðnum að frumkvæði Katrínar Jakobsdóttur, þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra, verða dregnar til baka. Þær gerðu ráð fyrir að sérstök valnefnd skipaði fimm stjórnarmenn af sjö, Starfsmanna- samtök Ríkisútvarpsins einn og ráð- herra einn, sem jafnframt yrði for- maður stjórnarinnar. Valnefnd þessa átti að skipa samkvæmt tilnefningum frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, Bandalagi íslenskra lista- manna og Samstarfsnefnd háskóla- stigsins. Stjórnarformaður RÚV ósáttur Núverandi stjórnarformaður Ríkis- útvarpsins, Björg Eva Erlendsdótt- ir, er óánægð með fyrirhugaðar breytingar og telur þær ávísun á póli- tísk afskipti. „Þarna er verið að draga til baka vinnu sem unnin var af fyrr- verandi menntamálaráðherra með aðkomu fjölda fólks þar sem stefnt var að því að gera Ríkisútvarpið sjálf- stæðara gagnvart stjórnmálaflokk- unum. Þar með er verið að opna á ákveðnari pólitíska stýringu á Ríkis- útvarpinu en fyrri ríkisstjórn vildi hafa og stefndi að.“ Hún telur frumvarp Illuga afturför frá frumvarpi því sem samþykkt var í mars. „Þetta hlýtur að vera áhyggju- efni fyrir fjölmiðlafólk. Ráðherra leggur í rauninni til að hætt verði við boðaðar breytingar sem ætlað var að minnka bein pólitísk afskipti,“ seg- ir Björg Eva. Hún er einnig óánægð með að Starfsmannasamtök Ríkisút- varpsins fái ekki fulltrúa í stjórninni. Gegnsætt og lýðræðislegt fyrirkomulag Illugi er á öðru máli. Hann telur það fyrirkomulag sem forveri hans lagði til í vetur, að fela valnefnd að til- nefna fimm af sjö stjórnarmönnum í Ríkisútvarpið, vera ólýðræðislegt og ógegnsætt. Eðlilegast sé að lýð- ræðislega kjörnir fulltrúar kjósenda, alþingismenn, velji stjórnarmenn stofnunar á borð við Ríkisútvarpið. „Ég tel það vera heilbrigðara og gegn- særra fyrirkomulag en að valnefnd, sem ber enga beina ábyrgð, sjái um að velja stærstan hluta stjórnarinn- ar,“ segir Illugi í samtali við DV. Þá hefur Illugi ekki áhyggjur af því að slíkt fyrirkomulag leiði til póli- tískra afskipta frekar en það sem áður var í gildi. „Það er engin trygging fyr- ir því að svona valnefnd verði ekki hápólitísk,“ segir Illugi og áréttar að ekki sé um að ræða breytingar frá því sem áður hefur tíðkast. „Þetta fyr- irkomulag, að Alþingi velji í stjórn ríkisútvarpsins, er það fyrirkomulag sem við höfum haft hér í langa hríð. Því er ekkert nýtt við þessa tillögu hvað það varðar. Ástæðan fyrir því að ég vilji að það fyrirkomulag verði áfram er sú að ég vil tryggja að það sé bein tenging milli þeirra sem taka ákvörðun um hverjir sitja í stjórninni og kjósenda í landinu.“ n 6 Fréttir 14.–18. júní 2013 Helgarblað „Mér fannst ég hjálparvana“ n María Birta upplifði varnarleysi eftir kynlífsauglýsinguna J á, ég svaraði þeim. Það kom ekki til greina að láta þessa menn hringja í mig mörgum dögum seinna. Ég vildi reyna að bæta þann skaða sem hefði orðið hjá mér út af þessari auglýsingu,“ seg- ir María Birta Bjarnadóttir, athafna- kona og leikkona, í skýrslutöku fyrir Héraðs dómi Reykjavíkur á fimmtudag vegna auglýsingar sem birtist á vefn- um einkamál.is og viðbrögð Maríu við henni. María Birta hefur, eins og áður hefur komið fram, höfðað mál vegna auglýsingar sem birtist á vefn- um einkamál.is. Konan sem hún hefur stefnt, Una Jóhannesdóttir, segist ekki bera ábyrgð á auglýsingunni. Í auglýsingunni var boðið upp á margvíslega kynlífsþjónustu og síma- númer Maríu Birtu látið fylgja. María Birta ákvað að höfða einkamál eftir að málið leiddi ekki til refsingar hjá lög- reglunni í Reykjavík. Hún telur auglýs- inguna ólöglega meingerð gegn æru sinni og friði, og upplifði hún varnar- leysi og missti nokkra daga úr vinnu. „Ég var alveg brjáluð að geta ekki gert neitt. Mér fannst ég hjálparvana,“ sagði María Birta þegar hún áttaði sig á því að hún gat lítið aðhafst vegna auglýs- ingarinnar. Una segir að málið hafi verið hrekk- ur og segir að önnur kona hafi verið höfundur auglýsingarinnar og að sú hefði skrifað auglýsinguna inn á einka- mál.is. Una segist ekki bera ábyrgð á auglýsingunni og hafnar kröfum Maríu sem hefur óskað eftir skaðabótum og að Una verði dæmd til að greiða lög- fræðikostnað. Dómari í málinu hvatti lögmenn og konurnar til að reyna að ná sátt í málinu. n astasigrun@dv.is n Stjórnarformaðurinn áhyggjufullur n „Heilbrigðara og gegnsærra“ „Ráðherra leggur í rauninni til að hætt verði við boðaðar breytingar sem ætlað var að minnka bein pólitísk afskipti Ólafur Kjaran Árnason blaðamaður skrifar olafurk@dv.is Breytt fyrirkomulag Illugi Gunnarsson, nýskipaður mennta- og menningarmála- ráðherra, hefur lagt fram frumvarp þess efnis að stjórnarmenn Ríkisútvarpsins verði kosnir af Alþingi. Ósátt Björg Eva Erlendsdóttir, stjórnarformaður Ríkisútvarpsins, telur frumvarpið áhyggjuefni fyrir fjölmiðlafólk. Óþægilegt að fá símtöl María Birta fékk símtöl frá fólki sem vildi kaupa af henni kynlífsþjónustu. Sátti stýrir nýrri nefnd Heildarsamtök launafólks og vinnuveitenda ásamt stjórnvöld- um hafa skrifað undir samkomu- lag um að setja á stofn „Samstarfs- nefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamn- inga.“ Nefndin er skipuð forystu- mönnum þeirra sem að samkomu- laginu standa en ríkissáttasemjari stýrir starfi nefndarinnar. Nefndin er sett á fót með það að markmiði að bæta þekkingu og vinnubrögð við undirbúning kjarasamninga og auka skilvirkni við gerð þeirra. Nefndin mun taka saman upplýs- ingar til undirbúnings kjarasamn- inga árin 2013 og 2014 og verður starf hennar endurmetið fyrir árs- lok 2015. Nefndin hefur heimild til að ráða starfsfólk til að sinna þeim verkefnum sem henni eru falin. Starfsaðstaða nefndarinnar og starfsfólks á hennar vegum verður hjá embætti ríkissáttasemjara. Óttast pÓlitísk afskipti af RÚV Vill „ekki mikið af vinstra fólki“ „Maður vill tryggja að það sé alvöru fólk í þessari stjórn. Auðvit- að er betra að það sé ekki mikið af vinstra fólki, “ sagði Brynjar Níels- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, í einni af sínum fyrstu þing- ræðum á fimmtudaginn. Þá var rætt um nýtt frumvarp mennta- málaráðherra um skipan stjórnar Ríkisútvarpsins. Frumvarpið fel- ur í sér að stjórnarmeðlimir séu kosnir af þingmönnum en nánar er fjallað um málið hér til hliðar. Brynjar segir að samkvæmt stjórnarskrá beri ráðherra ábyrgð á RÚV sem ríkisstofnun og því eigi hann að stýra því hverjir eigi sæti í stjórn RÚV. „Hann á að skipa þetta að mínu viti og mér finnst að menntamálaráðherra hefði átt að ganga lengra og segja ein- faldlega að ráðherra skipi í þessa stjórn,“ sagði Brynjar ennfremur í ræðunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.