Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Page 13
É g er ekkert að hafna því að þetta atriði sem þú nefn­ ir sé hluti af þeim breyting­ um sem hér hafa verið gerð­ ar á kjörum. Aðalatriðið er að allir sölumenn auglýsinga hér eru á afkastatengdum launum og það er stöðugt í endurskoðun hvað við teljum að skili bestum árangri í því. Þetta á bæði við um þær upphæðir sem eru í ávinning ef tilteknum við­ miðum er náð og hvað sé í frádrátt ef tilteknum atriðum er ekki náð,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, um niðurskurð hjá auglýsingadeild­ um 365 sem ráðist var í í lok síðasta mánaðar. Starfsmenn auglýsingadeilda 365 skrifuðu þá undir samninga þess efnis að ef þeir næðu ekki tilteknum markmiðum í auglýsingasölunni myndu grunnlaun þeirra, þau lág­ markslaun sem þeir eru með óháð því hversu miklum árangri þeir ná í auglýsingasölunni, lækka á móti. Heimildir DV herma að breytingin hafi kveðið á um það að grunn­ launin myndu lækka um 50 þúsund krónur. Þannig gæti starfsmaður sem er með 400 þúsund í grunn­ laun farið niður í 350 þúsund krón­ ur ef hann nær ekki ákveðnum ár­ angri. DV hefur heimildir fyrir því að launalækkunin hafi verið kynnt þannig að ráðast þyrfti í hana til að koma í veg fyrir uppsagnir á fimm til tíu starfsmönnum. Ekki farið niður fyrir grunn- tryggingu Starfsmenn auglýsingadeilda eru oft á tíðum með launahærri starfsmönn­ um fjölmiðlafyrirtækja og byggja launin þeirra að mestu leyti á bón­ usum. Þessir starfsmenn eru þó yfir­ leitt með grunnlaun eða tryggingu sem ekki er árangurstengd. Hjá 365 er nú byrjað að ganga á þessa tryggingu. „Ég kannast við að við höf­ um verið að gera breytingar sem gera það að verkum að laun manna lækka ef tiltekinn árangur í sölu hefur ekki náðst,“ segir Ari. Ari segir að hann vilji ekki greina nákvæmlega út á hvað breytingin gengur en segir hins vegar að slíkar breytingar eigi aldrei við um kjara­ samningsbundin laun heldur að­ eins ef laun viðkomandi eru hærri en kveðið er á um í kjarasamning­ um. „Það er ekki hægt að skerða einhverjar grunntryggingar. Grunn­ tryggingin er náttúrulega laun sem ekki má fara undir samkvæmt kjara­ samningum. Við erum þá að tala um laun sem eru hærri en einhverj­ ar grunntryggingar.“ Á Ara má skilja svo að breytingin eigi aðeins við um þá starfsmenn sem eru með hærri grunnlaun en kveðið er á um í kjara­ samningum. Ari segir að almennt séð séu borguð ágæt laun í söludeildum 365. „En ég vil ekki ræða einhverja þætti þeirra launagreiðslna í smáatriðum. Það má jafnvel orða það sem svo að um hernaðarleyndarmál sé að ræða hérna í fjölmiðlasamkeppninni.“ Breytingar valda titringi Breytingarnar á kjörum sölumanna 365 hafa valdið titringi hjá starfsmönn­ um fyrirtækisins, líkt og eðlilegt má telja miðað við eðli þessara launa­ lækkana. Líkt og kemur fram í máli Ara er stöðugt verið að gera breytingar á launakjörum sölumanna 365 sem miða að því að bæta rekstrarstöðu 365. „Arðsemi“ er eitt af gildum 365 samkvæmt yfirlýstri stefnu fyrirtækis­ ins og er stöðugt verið að endurskoða starfsemina til að hægt sé að virða það gildi. Launalækkunin er liður í tals­ verðum aðhaldsaðgerðum sem ver­ ið hafa hjá 365 það sem af er árinu: Uppsagnir hafa verið hjá auglýs­ ingadeildum fyrirtækisins á árinu sem og á Fréttablaðinu þar sem starfsmönnum hefur fækkað nokk­ uð síðustu mánuðina.n Laun söLumanna 365 skorin niður Fréttir 13Helgarblað 14.–18. júní 2013 Vill veita hæli n Ögmundur vill taka við Edward Snowden Ö gmundur Jónasson, fyrirver­ andi innanríkisráðherra vill að Alþingi veiti Edward Snowden hæli á Íslandi. Snowden komst í fréttirnar nýlega en hann uppljóstraði um PRISM, njósnavef bandarískra stjórnvalda. Síðan þá hefur hann verið á flótta og er í felum. Þó enginn viti hvar Snowden er niður kominn hefur hann lýst yfir áhuga á að flýja til Ís­ lands. „Mér finnst sjálfsagt að Ís­ lendingar séu opnir fyrir því að taka við þessum manni og veita honum húsaskjól,“ sagði Ögmundur í ræðu á Alþingi á fimmtudag. Ögmundur telur auk þess að ís­ lensk stjórnvöld eigi að fara að fyrir­ mynd ESB og fara fram á upplýsingar um net­ og símanjósnir Bandaríkja­ manna. Rætt um flatkökur „Sérstök pólitísk áhersla á þjóð­ menningu hefur ekki alltaf end­ að vel,“ sagði Guðmundur Stein­ grímsson, þingmaður og annar af tveimur formönnum Bjartrar framtíðar, í sérstökum umræðum um þjóðmenningu sem Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, efndi til á Alþingi síðast­ liðinn fimmtudag. Vildi Katrín fá skýr svör við því hvernig ríkis­ stjórnin skilgreindi þjóðmenn­ ingu og hvers vegna til stæði að færa hana úr mennta­ og menn­ ingarmálaráðuneytinu í forsætis­ ráðuneytið. Furðaði hún sig á því að færa ætti háskólastofnun á borð við Stofnun Árna Magnús­ sonar undir forsætisráðherra og spurði hvort forstöðumenn þessara stofnana hefðu verið með í ráðum. Við þeirri spurn­ ingu fengust ekki svör. Illugi Gunnarsson, mennta­ og menningarmálaráðherra, sagði að ástæðan fyrir tilfæring­ unum væru sérstakar áhersl­ ur sem ríkisstjórnin ætlaði að setja á þennan málaflokk. „Það er ekkert óviðeigandi eða ank­ anna legt með neinum hætti að forsætisráðherra segi: Ég hef mikinn áhuga á þessum málum og vil flytja þau yfir til mín,“ sagði Illugi og benti á að þegar gerð­ ar voru breytingar á lögum um ráðuneytin var lagt upp með það að áherslur ríkisstjórnarinnar á hverjum tíma mætti endurspegla með flutningi málaflokka. Þingmönnum stjórnarand­ stöðunnar líst hins vegar illa á þessar áherslur. „Þjóðmenn­ ing er mjög óljóst hugtak. Tengsl mannsins við þjóð sína geta ver­ ið margs konar, stundum falleg en stundum ekki,“ sagði Guð­ mundur. „Þetta samband hefur oft verið notað í pólitískum til­ gangi til að móta einhvers konar pólitíska rétthugsun.“ Sigrún Magnúsdóttir, þing­ maður Framsóknarflokksins, hélt sína jómfrúarræðu þar sem hún fullyrti að þjóðmenningin ætti hvergi betur heima en undir forsætisráðuneytinu. Sem dæmi um þjóðmenningu nefndi hún flatkökur, flatt þunnt brauð og pönnukökur. „Það er rökrétt að menningararfinum sé komið fyr­ ir hjá forsætisráðuneytinu,“ sagði hún og bætti því við að fátt væri mikilvægara en að standa vörð um þjóðmenninguna. n Skrifuðu undir samning þar sem grunnlaun lækka ef þeir selja ekki nóg Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Ég kannast við að við höfum verið að gera breytingar sem gera það að verkum að laun manna lækka ef tiltekinn árangur í sölu hefur ekki náðst Niðurskurður hjá 365 miðlum Ari Edwald stað- festir að laun sölumanna auglýsinga á 365 hafi verið ár- angurstengd þannig að ef þeir ná ekki tilteknum markmiðum í sölunni minnki laun þeirra. Á flótta Edward Snowden uppljóstraði um PRISM, njósnavef bandarískra stjórnvalda, og hefur verið fá flótta síðan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.