Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Page 23
Fréttir 23Helgarblað 14.–18. júní 2013 orðinn ráðherra og ég er nú bara að velta því fyrir mér hvort það eigi ekki bara að leggja umhverfisráðuneytið niður. Hann er að tala hérna um eitt af ráðuneytunum í íslenskri stjórn­ sýslu og leysa þurfi það upp. Mér finnst svolítið eins og hann átti sig ekki á því að hann er ekki Guð almátt­ ugur heldur á hann að framkvæma það sem Alþingi segir honum.“ Annað atriði sem viðmælend­ ur DV staldra við er val Sigurðar Inga á aðstoðarmanni. Aðstoðar­ maðurinn heitir Helga Sigurrós Val­ geirsdóttir og er 34 ára gömul. Hún starfaði um hríð í ráðuneytinu á síð­ asta kjörtímabili áður en hún fór í fæðingarorlof. Þar áður starfaði hún á Fiskistofu. Einn af kvenkyns við­ mælendum DV nefnir að val Sigurð­ ar Inga á aðstoðarmanni sé nokkuð skrítið þar sem Helga Sigurrós hefur ekki mikla reynslu af pólitísku starfi. „Nú er ég femínisti og ég þekki þessa konu ekki neitt en mér finnst svolítið skrítið að Sigurður Ingi velji sér svo ungan og óreyndan aðstoðarmann. Þetta er ung kona með litla reynslu á hinu pólitíska sviði. En maður hugs­ ar: Sigurður Ingi er búinn að sitja á þingi í fjögur ár og þar áður var hann í sveitastjórnarmálum og hefur því nokkra reynslu af pólitísku starfi. Ég upplifi ekki að þessi aðstoðarmaður muni gefa Sigurði Inga faglega viðbót né pólitíska viðbót. Hún virkar meira eins og súperritari. Þetta val bendir til veikleika; ég upplifi þetta þannig að hann velji sér aðstoðarmann sem ógni honum ekki á nokkurn hát,“ segir viðmælandinn. Sagður hagsmunadrifinn Annar þingmaður segir Sigurð Inga ágætan í samskiptum, „þægilegan í umgengni“ og „dagfarsprúðan“. „Það má segja margt ágætt um hann Sig­ urð Inga. Við áttum alltaf gott sam­ starf og hann er ágætur í samskipt­ um. En hann er auðvitað voðalega mikill framsóknarmaður. Hann er afturhaldssamur, þetta er ekki fram­ sýnasti stjórnmálamaður landsins. Það sem hefur pirrað mig við hann er hvað hann stundar mikla hagsmuna­ gæslu, bæði fyrir Bændasamtökin og LÍÚ: Hann er hagsmunadrifinn í sinni pólitík, eins og framsóknarmenn eru upp til hópa, því miður. Hann er of mikill málsvari hagsmunaaflanna og hefur ekki sjónarmið almennings að leiðarljósi. Bara það að hann skuli líta á umhverfisráðuneytið sem einhverja annexíu af atvinnumálunum, og telja að það sé ekkert athugavert við það að hafa sérstaklega umsýslu um umhverfismál, umhverfisins vegna, finnst mér segja allt sem segja þarf. Hann hefur valdið mér vonbrigðum eftir að pólitíkin hans byrjaði að koma í ljós. Ég myndi frekar vilja eiga við hann félagsleg samskipti en pólitísk.“ Hagsmunirnir sem viðmæl­ andinn vísar til, snúast um að verja stöðu íslenskra fyrirtækja og ís­ lenskra útgerðar félaga gegn pólitísk­ um aðgerðum sem gætu með ein­ hverjum hætti veikt stöðu þessara aðila. Eitt af lykilatriðunum í þessari varnarbaráttu Framsóknarflokksins er að berjast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu en aðild að því gæti haft áhrif á fjárhagslega afkomu fyrirtækja í sjávarútvegi og landbún­ aði. Þau áhrif munu þó ekki liggja fyr­ ir fyrr en samningurinn um aðildina verður tilbúinn. Líkt og komið hef­ ur fram í opin berri umræðu, með­ al annars í máli Sigurðar Inga, hef­ ur ríkisstjórnin gefið það út að hún muni hætta aðildarviðræðum við Evrópusambandið og að þær verði ekki hafnar aftur nema að undan­ genginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá bendir sú tillaga Sigurðar Inga að leggja umhverfisráðuneytið niður til þess að áhugi ríkisstjórnarinnar á umhverfismálum sé takmarkaður. Slíkt áhugaleysi væri meðal annars hægt að skýra með því að ríkisstjórn­ in hyggist ekki beita sér mjög í um­ hverfismálum og kunni hugsanlega að líta svo á að umhverfismálin geti staðið í veginum fyrir áformum um stóriðju á íslandi, til dæmis byggingu virkjana og álvera. Sigurður Ingi er yfirlýstur stuðningsmaður virkjana, til dæmis í neðri hluta Þjórsár, líkt og komið hefur fram í máli hans á Alþingi: ,,Atvinnuuppbygging sem byggir á okkar hreinu orku er eft­ irsótt,“ sagði Sigurður í ræðustól á þingi í mars. Ýmislegt bendir því til að þessi ríkisstjórn verði stjórn útgerðarinn­ ar, landbúnaðarins og eftir atvikum stóriðjunnar. Með öðrum orðum: Ríkisstjórn hluta atvinnulífsins og hagsmuna þess. Eitt af fyrstu verkum Sigurðar Inga eftir að hann tók við embætti ráðherra var að endurskoða ramma áætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða með því að færa sex virkjunarkosti sem áður höfðu verið í biðstöðu yfir í nýtingar­ flokk. Kveðið var á um þessa breytingu í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Þetta voru Urriða foss virkjun, Holta­ virkjun, Hvamms virkjun, Skrokk öldu­ virkjun og Hágöngu virkjun I og II. Fyrri ríkisstjórn Samfylkingar og VG hafði fært þessa virkjanakosti úr nýt­ ingarstöðu í biðstöðu. Því má segja að endurskoðun rammaáætlunarinnar snúist um að vinda ofan af ákvörðun fyrri ríkisstjórnar. Situr áfram Sigurður Ingi kemur því inn í ráðu­ neytið af krafti. Ekki eingöngu í ljósi þeirra ummæla sem hann hefur látið falla sem valdið hafa titringi heldur einnig vegna þess starfs sem hann er nú þegar byrjaður að vinna. Við­ mælendur DV telja að þó að Sigurður Ingi hafi byrjað brösuglega og skað­ að stjórnina með ummælum sínum þá sé ólíklegt að hann sitji ekki áfram í embætti. „Hann er varaformað­ ur flokksins og verður ekki settur af. Ætli menn reyni ekki að róa þetta niður og sjá hvað setur,“ segir einn af þingmönnunum sem DV ræddi við en ljóst er að enginn lognmolla verð­ ur í ráðuneyti Sigurðar Inga á kjör­ tímabilinu ef marka má hvernig ráð­ herrann hefur störf. n „Hann virðist ekki höndla þetta nýja hlutverk vel og segir ítrekað ranga hluti „Hann er gamaldags þurs“ n Sigurður Ingi Jóhannsson hefur verið einn umtalaðasti ráðherra nýrrar ríkisstjórnar á stuttum líftíma hennar n Mikill stuðningsmaður virkjana Dýralæknirinn Sigurður Ingi er dýralækn- ir að mennt og er uppalinn í Hrunamanna- hreppi þar sem hann hefur meðal annars stundað landbúnað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.