Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Qupperneq 34
34 Viðtal 14.–18. júní 2013 Helgarblað hneigingu til þess að hugsa hlutina til enda en á þessum tímamótum komst ég að því að það er ekki hægt að hugsa alla hluti til enda. Stundum verður maður bara að sleppa takinu og sjá hvað verður. Á fimmtudeg­ inum þegar ég fór í viðtalið á RÚV var það mikill léttir fyrir mig þegar ég áttaði mig á því að ég þurfti ekki nauðsynlega að taka ákvörðun þenn­ an dag um hvað ég ætlaði að gera. Ég gat beðið og séð til hvað yrði. Vegna þess að ég hafði tekið þá ákvörðun leið mér vel þegar ég fór í viðtalið.“ Ætla í sumarfrí Stjórnmálamenn færa oft fórnir í einkalífinu. Það hafa allir skoðun á þeim og telja að það megi gagnrýna þá harðar en annað fólk. Bjarni hef­ ur oft og tíðum mátt sæta gagnrýni, bæði málefnalegri og ómálefnalegri. Hann var meðal annars harðlega gagnrýndur á síðasta kjörtímabili vegna Vafningsmálsins svokallaða. Sjálfur hefur hann sagt að hann þoli gagnrýni ágætlega ef hún sé sett fram með gildum rökum. En hvaða áhrif hefur gagnrýnin haft á fjölskyldu hans? „Af og til hafa komið upp atvik sem ég finn að krakkarnir hafa tekið til sín og Þóru hefur oft sárnað þegar henni finnst að mér vegið. Heilt yfir get ég þó ekki sagt að þetta hafi haft nein langvarandi áhrif.“ Það er komið sumar og flestir farnir að huga að því að fara í sumarfrí. Ráðherrann seg­ ist þurfa að finna tíma til að fara í frí. „Ég er ákveðinn í að gera það. Von­ andi kemst ég í veiði og svo langar mig að ferðast innanlands og spila golf. Það er stórkostlegt að spila golf í íslensku sumri. Svo vona ég að við Þóra og kannski eitthvað af börnun­ um komumst út fyrir landsteinana í nokkra daga.“ Á sumarþingi Á þessum fyrsta degi sumarþings mælti Bjarni fyrir frumvarpi sem kveður á um að hætta við að hækka virðisaukaskatt á gistiþjónustu úr 7 prósentum í 14. Hækkunin átti að taka gildi í haust og hefur verið afar umdeild. Frumvarpið er nú til um­ fjöllunar í nefnd. Bjarni segir að rök­ in fyrir því að hætta við að hækka virðisaukaskattinn séu mörg. Það hefði skert samkeppnisstöðu þegar kemur að því að fá ferðamenn hing­ að til lands. Að hækka skattinn hefði líka aukið útgjöld Íslendinga sem vilja njóta þess að ferðast um landið. Fjölgun ferðamanna skili sér í fram­ tíðinni í auknum tekjum til ríkisins. Annað mál var lagt fram þennan dag. Samfylkingin lagði fram frum­ varp þess efnis að gengið yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu næsta vor um hvort viðræðum við ESB um aðild Ís­ lands að sambandinu yrði haldið áfram um leið og sveitarstjórnar­ kosningar fara fram. Ég spyr Bjarna hvort hann geti samþykkt það. Hann segir að það sé ekki tímabært að taka slíka ákvörðun. „Í stjórnarsáttmálanum er ekki rætt um neina ákveðna dagsetningu varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna og á landsfundum stjórnarflokk­ anna var heldur ekki rætt um neina ákveðna dagsetningu. Báðir stjórn­ arflokkarnir eru sammála um að viðræður um aðild Íslands að sam­ bandinu verði stöðvaðar og verði ekki hafnar aftur nema að undan­ genginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Áður en hún fer fram þurfa ákveðnar forsendur að vera til staðar. Viðbrögð ESB við breyttum að­ stæðum í íslenskum stjórnmálum þurfa að liggja fyrir. Sambandið er að breytast og það þarf að ræða í hvaða átt sambandið er að þróast og á hvaða grundvelli það ætlar að starfa. Það hefur tekið miklum breytingum frá því sótt var um 2009. Málið verður rætt á haust­ þingi og staða þess metin. Þá fyrst getum við metið hvenær þjóðarat­ kvæðagreiðsla á að fara fram.“ Loforð um skattalækkanir Eitt af stóru kosningaloforðum Sjálf­ stæðisflokksins var að lækka skatta á almenning og fyrirtæki. „Þetta snýst um fleira en hrein­ ar skattalækkanir. Þetta snýst líka um að einfalda skattkerfið, draga úr flækjustiginu. Það hafa verið inn­ leiddir skattar á síðustu misserum sem eru ekki stórir tekjupóstar fyr­ ir ríkissjóð, en fæla frá og draga úr umsvifum. Við erum að skoða skatta á heitt vatn, rafmagn, olíugjöld og fleira. Við viljum líka létta undir með barnafjölskyldum og erum að skoða það að lækka virðisaukaskatt á barnafötum. Með því kæmi versl­ un aftur til Íslands sem hefur flust úr landi. Þá er hægt að gera breytingar á vörugjöldum. Þetta eru dæmi um hvernig hægt er að einfalda skattkerfið og létta um leið undir með fjölskyldum í landinu. Fyrstu skrefin getum við stigið á sum­ arþingi en við getum ekki gert allt í einu. Stærri skattkerfisbreytingar eru þær sem snúa að tekjuskattskerfinu og taka lengri tíma. Ég tel alveg á hreinu að miðjuþrepið í tekjuskattskerfinu sé of lágt. Það er allt of lágt að miða það við rúmar 240 þúsund krónur á mánuði. Það verður að vera í takt við raunverulegar millitekjur í landinu. Ef ég horfi til lengri tíma sé ég fyrir mér að hætta með þriggja þrepa skattkerfi. Það er hægt að gera það í áföngum, fækka niður í tvö þrep og síðan í eitt. Ég tel rétt að stærri skattkerfisbreytingar komi til skoðunar samhliða gerð kjara­ samninga á vinnumarkaði. Það er stefna ríkisstjórnarinnar að vinna þær í samvinnu við aðila vinnumarkaðar­ ins. Við viljum vinna að stöðugleika og friði á vinnumarkaði og breytingar á tekjuskattskerfinu eru okkar lóð á þær vogarskálar. Breytingar á tekju­ skattskerfinu eru til þess fallnar að auka ráðstöfunartekjur almennings og geta skipt sköpum ásamt öðrum ráðstöfunum sem gripið verður til að koma á stöðugleika í samfélaginu. Auðlegðarskatturinn sem lagður var á í tíð fyrri ríkisstjórnar er sérlega óréttlátur þar sem hann tekur ekkert tillit til tekna þeirra sem greiða skatt­ inn. Það eru dæmi um að menn greiði margfaldar tekjur sínar í auðlegðar­ skatt. Alls staðar þar sem menn hafa kynnt til sögunnar skatta á hina efna­ meiri hafa þeir með einum eða öðrum hætti verið tengdir við tekjur, annað hvort launatekjur eða fjármagnstekjur. Þess vegna kemur alls ekki til greina að framlengja þennan skatt. Ég tel að það orki tvímælis hvort hann standist eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar en það verður skorið úr um það fyrir dómstólum.“ Réttur hvers manns að bjarga sér Aldraðir og öryrkjar hafa mátt þola ýmsar skerðingar síðastliðin fjög­ ur ár og þær viljum við afnema hratt þótt ekki verði hægt að bæta all­ ar skerðingar sem þessir hópar hafa orðið fyrir á sumarþingi. Lífeyr­ ir þeirra hefur verið skertur eftir því hver uppruni tekna þeirra er, hvort sem það er vegna atvinnutekna, líf­ eyristekna eða fjármagnstekna. „Ég vil setja í forgang rétt hvers manns til að bjarga sjálfum sér, til að geta farið út á vinnumarkaðinn og sótt sér viðbótartekjur án þess að lenda í fátækragildru. Það mun kosta ríkið fimm milljarða á ári að draga til baka allar þær skerðingar sem þess­ ir hópar hafa mátt sæta frá því 2009 en hluta þeirra réttinda höfðu þeir þó einungis notið um mjög skamman tíma. Stóra áskorunin er hvernig við sækjum okkur styrk til að loka fjár­ lagagatinu sem stefnir í 30 milljarða á sama tíma og við viljum gera betur við aldraða og öryrkja og bæta heil­ brigðiskerfið. Við einfaldlega verðum að auka umsvif í þjóðfélaginu, við verð­ um að fá aukinn hagvöxt. Það þarf að bæta efnahagsumhverfið. Einn stærsti þátturinn í því er að afnema höft. Til þess þarf að fá niðurstöðu í samninga um þrotabú bankanna, endurfjármagna Landsbankann og leysa aflandskrónuvandann. Póli­ tískur stöðugleiki gegnir hér einnig lykilhlutverki. Þetta eru þættir sem smám saman munu örva fjárfestingu og auka hagvöxt sem síðar skilar sér beint í meiri getu ríkissjóðs til að rísa undir kröfum um góða velferðar­ þjónustu. Ákvörðun um að hækka ekki virð­ isaukaskatt af gistiþjónustu er lið­ ur í því að viðhalda samkeppnis­ hæfni landsins fyrir ferðamenn. Það má ekki horfa eingöngu á hverju hækkunin á gistingu hefði skilað til skamms tíma heldur verður að horfa á stóru myndina og sjá hve miklu skiptir að áfram komi ferðamenn sem kaupa alls kyns þjónustu og vör­ ur. Þannig skilar það sér hressilega til baka ef við viðhöldum samkeppnis­ hæfni okkar. Ákvörðun um að breyta veiði­ gjöldum er óumflýjanleg. Í fyrsta lagi var ekki hægt að leggja á gjald á næsta ári samkvæmt þeim því það ríkir full­ komin óvissa um hvert gjaldið á að vera. Nefnd sem átti að reikna út grundvöll gjaldsins hefur ekki getað lokið vinnunni. Í öðru lagi voru hug­ myndir um hækkun gjaldsins alger­ lega óraunhæfar og óskiljanlegt að til hafi staðið að taka allt að þriðja tug milljarða af atvinnugreinini í sér staka skattlagningu. Þegar við þessu er brugðist tala sumir um að ríkið sé að afsala sér tekjum en staðreyndin er að ríkið hafði áskilið sér allt of stóran hlut af tekjum þessara félaga. Í sum­ um tilvikum stærri hlut en sem nam öllum hagnaðinum.“ Afdrif stjórnarskrármálsins Formenn Vinstri grænna, Samfylk­ ingar og Bjartrar framtíðar hafa endur­ flutt frumvarp um breytingar á stjórn­ skipunarlögum. Það felur í sér að hægt verður að breyta stjórnarskrá með minnst tveimur þriðja hluta atkvæða á þingi og síðan á að bera það undir þjóðaratkvæði til samþykktar eða synj­ unar. Frumvarpið var samþykkt á síð­ asta þingi en lögum samkvæmt þar sem það felur í sér breytingar á stjórn­ arskrá þarf að samþykkja það á tveim­ ur þingum með kosningum á milli. Bjarni segir að þessi breyting komi einkum til greina ef samhljómur er um það hvernig vinna á að breytingum á stjórnarskránni á kjörtímabilinu. „Ég tel rétt að koma á fót sérstakri nefnd sem væri skipuð fulltrúum allra stjórnmálaflokka. Hún fengi í nesti alla þá vinnu sem hefur verið unnin undanfarin ár við breytingar á stjórn­ arskrá. Ég studdi ekki stjórnarskrár­ frumvarpið eins og það lá fyrir þinginu. Ég tel að það hafi verið vanbúið sem ný stjórnarskrá. Það er hins vegar margt gott í þeirri vinnu sem búið er að inna af hendi varðandi breytingar á stjórnarskránni. Ef maður skoðar stjórnarskrármálið af yfirvegun og það sem stendur upp úr í umræðum um stjórnarskrána þá eru ákveðnir hlut­ ir sem kallað er eftir að verði breytt. Það er ákall um nýtt auðlindaákvæði. Það er vaxandi krafa um að sett verði ákvæði í stjórnarskrá sem kveður á um rétt til að kalla eftir þjóðaratkvæða­ greiðslu um stór mál í samfélaginu. Þá hefur ákveðin óvissa um inntak og eðli forsetaembættisins valdið deil­ um og á tíðum stjórnskipulegri óvissu sem ég tel að sé nauðsynlegt að eyða í tengslum við endurskoðun á stjórnar­ skránni. Ég get nefnt önnur atriði sem þarf að skoða eins og stöðu Hæstarétt­ ar og samspil valdaþáttanna þriggja sem skilgreindir eru í stjórnarskránni. Mér finnst að vinnan við nýja stjórnarskrá ætti að snúa að þessum atriðum sem ég hef nefnt í stað þess að kollvarpa öllu, líka því sem reynst hefur vel í stjórnarskránni. Til dæm­ is má spyrja til hvers eigi að endur­ skrifa mannréttindakafla stjórnar­ skrárinnar sem er góður og gildur,“ segir Bjarni. Tími okkar er á þrotum, það er beðið eftir honum í þingsaln­ um. n „Ég vil setja í for- gang rétt hvers manns til að bjarga sjálf- um sér, til að geta farið út á vinnumarkaðinn og sótt sér viðbótartekjur án þess að lenda í fátækragildru.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.