Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2013, Blaðsíða 4
4 Fréttir 28.–30. júní 2013 Helgarblað
Sambýliskonu Stefáns sagt upp
n Skipulagsbreytingar hjá VR leiða til uppsagnar Söru Lindar
S
ambýliskonu fyrrverandi for-
manns VR, Stefáns Einars Stef-
ánssonar, hefur verið sagt upp
störfum hjá stéttarfélaginu.
Ástæðan er sögð vera skipulags-
breytingar hjá VR. Sambýliskona
Stefáns Einars heitir Sara Lind Guð-
bergsdóttir. Stefán Einar hætti sem
formaður VR í mars síðastliðnum
eftir að hafa beðið afhroð í for-
mannskosningunum gegn Ólafíu
Björk Rafnsdóttur.
Ráðning Söru Lindar í eitt af
æðstu störfunum hjá VR vakti tals-
verða athygli í fyrra. DV greindi frá
málinu í lok síðasta árs. Í apríl í fyrra
var Sara Lind, sem á þeim tíma hafði
ekki lokið lögfræðinámi sínu við Há-
skóla Íslands, ráðin til VR úr hópi 400
umsækjenda. Stefán Einar og Sara
Lind bjuggu ekki saman þegar Sara
Lind var ráðin til VR en nokkrum
mánuðum síðar fréttist að þau hefðu
ruglað saman reytum sínum.
Þessi ráðning olli titringi innan
VR sökum þess að Sara Lind varð síð-
ar sambýliskona formanns VR: „Mér
fannst það alltaf skrítið að verið væri
að ráða inn manneskju sem var gjör-
samlega óreynd og síðan spyrst það
út að þau eru saman,“ sagði einn af
starfsmönnum VR við DV í fyrra.
Talið var að samskipti Stefáns Einars
og Söru Lindar hefðu hafist áður en
hún var ráðin í starfið og að ráðn-
ingarferlið hefði ekki verið gagnsætt.
Stefán Einar vildi hins vegar ekki
kannast við þessa óánægju. „Það er
ekkert leyndarmál hér á skrifstof-
unni, eða nokkurs staðar annars
staðar, að Sara Lind er sambýliskona
mín. Hins vegar er það hlutur sem
ekkert var í kortunum fyrr en á síðari
hluta þessa árs. […] Það er alveg ljóst
í hvaða „krónólógíska“ samhengi
þetta var; það voru margir mánuði
sem liðu frá því hún hóf störf og þar
til samband okkar hófst.“ Nú hafa
bæði Stefán Einar og Sara Lind hins
vegar hætt störfum hjá VR. n
Össur vill greiða
arð í fyrsta skipti
S
toðtækjafyrirtækið Össur
hyggst á þessu ári greiða
hluthöfum félagsins arð í
fyrsta skipti í sögu félags-
ins. Þetta kemur fram í árs-
reikningi Össurar fyrir árið 2012
sem skilað var til ársreikninga-
skrár ríkisskattstjóra þann 18. júní
síðast liðinn. Stjórn félagsins gerir í
skýrslu sinni tillögu að arðgreiðslu
upp á átta milljónir dollara, eða
rúmlega einn milljarð króna, á
þessu ári út af hagnaði ársins í
fyrra. Össur skilaði rúmlega 38
milljóna dollara hagnaði í fyrra, eða
nærri 4,9 milljarða króna. Boðuð
arðgreiðsla nemur 22 prósentum af
heildarhagnaði félagsins.
Stærsti hluthafi Össurar er
danskur fjárfestingasjóður, Wiliam
Demant Invest, með ríflega 41
prósents hlut. Aðrir stórir hlut-
hafar eru danska félagið ATP, Líf-
eyrissjóður verslunarmanna og
Gildi - lífeyrissjóður. Stærsti hlut-
hafi Össurar til ársins 2011 var ís-
lenska fjárfestingarfélagið Eyrir
Invest, sem er að stóru leyti í eigu
feðganna Þórðar Magnússonar og
Árna Odds Þórðarsonar, en félag-
ið seldi hlut sinn í félaginu fyrir um
níu milljarða króna á því ári. Össur
var skráð í Kauphöll Íslands frá ár-
inu 1999 til 2011 en var afskráð af
hlutabréfamarkaðnum hér á landi
eftir að hafa verið skráð í dönsku
kauphöllina árið 2009.
Arðgreiðslu spáð
Árið 2011 kom fram í spá Grein-
ingardeildar Íslandsbanka að lík-
legt væri að Marel færi að hefja arð-
greiðslur þar sem fyrirtækið hefði
leitað að fjárfestingarkostum til
að stækka fyrirtækið enn frekar en
leitin hafi gengið erfiðlega. Í morg-
unkorni frá Greiningardeildinni
kom fram: „Ef stór fyrirtækjakaup
eru ekki í spilunum er líklegt að fé-
lagið fari að hefja arðgreiðslur.“
Á aðalfundi félagsins í mars 2012
sagði stjórnarformaður Össur-
ar að félagið hefði í sögu þess nýtt
fjármuni stoðtækjaframleiðand-
ans til þess að styrkja reksturinn,
til að mynda með kaupum á öðr-
um félögum en að ekki hefðu fund-
ist álitleg fyrirtæki til að kaupa.
Þar af leiðandi hygðust stjórnend-
ur Össurar leita leiða til að greiða
hluthöfum sínum arð.
Eftir að ákveðið var að stefna
að arðgreiðslunni vegna hagnaðar
ársins í fyrra hefur Össur reyndar
farið í fyrirtækjauppkaup: Í
maí síðastliðnum keypti Össur
sænska stoðtækjaframleiðandann
TeamOlmed fyrir tæpa sex millj-
arða króna.
Gríðarsterkt fyrirtæki
Össur er eitt frægasta, ef ekki fræg-
asta, íslenska fyrirtækið sem stofn-
að hefur verið. Fyrirtækið er vel
rekið og hefur skilað miklum hagn-
aði í gegnum árin, líkt og rekstrar-
niðurstaðan árið 2012 sýnir. Fyrir-
tækið hefur framleitt gervilimi
fyrir menn eins og Oscar Pistorius,
suðurafríska hlauparann sem sætir
ákæru í Suður-Afríku fyrir morð á
unnustu sinni, Reevu Steenkamp,
og aðra íþróttamenn.
Síðastliðin fimm rekstrarár hefur
Össur hf. alltaf skilað góðum hagn-
aði, á bilinu frá 28 milljónum dollara
og upp í tæpar 38 milljónir dollara í
fyrra, sem var met í rekstrar sögu fé-
lagsins. Eignir félagsins eru metnar
á tæplega 600 milljónir dollara, þar
af er viðskiptavild félagsins metin á
nærri 350 milljónir dollara. Á móti
þessum eignum eru skuldir upp
á einungis tæplega 200 milljónir
dollara. Þrátt fyrir að félagið hafi
verið skráð á markað í Danmörku,
og þrátt fyrir að einungis tæplega
300 starfsmenn af þeim 1.900 sem
vinna hjá fyrirtækinu búi hér á
landi, hefur forstjóri Össurar gefið
það út að félagið hyggist ekki flytja
úr landi.
Í ljósi þess hversu sterkt fyrir-
tækið er er því kannski ekki skrítið
að ráðgert sé að greiða hluthöfum
þess arð út úr því. n
n Mælt með arðgreiðslu eftir nærri fimm milljarða króna hagnað í fyrra
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Ógnarsterkt félag
Stoðtækjaframleiðandinn
Össur stendur mjög vel og
mælti stjórn félagsins með
arðgreiðslu upp á milljarð
króna á aðalfundi þess í
fyrra. Jón Sigurðsson er
forstjóri Össurar.
„Ef stór fyrirtækja-
kaup eru ekki í
spilunum er líklegt að
félagið fari að hefja arð-
greiðslur.
Fallið frá 15
milljarða
króna kröfu
Skiptastjóri Baugs hefur fallið frá
skaðabótamáli sem höfðað var
gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni,
fyrrverandi stjórnarformanni
fyrir tækisins. Málið var höfðað
vegna meintra brota Jóns Ásgeirs í
aðdraganda bankahrunsins þegar
Baugur var látinn kaupa hluta-
bréf í sjálfum sér af Jóni Ásgeiri og
fjölskyldu hans, skömmu áður en
hrunið varð. Skiptastjóri þrota-
búsins hugðist sækja 15 milljarða
króna skaðabætur vegna við-
skiptanna en krafan var dregin til
baka á miðvikudaginn. Jón Ásgeir
hafði vísað kröfunni á bug á þeim
forsendum að hluthafar hefðu
tapað mestu á viðskiptunum en
ekki þrotabúið þar sem hluthafar
hefðu gengist í persónulega
ábyrgð fyrir láni sem Kaupþing
veitti fyrir kaupunum.
Ekki þótti fært að höfða málið
og ljóst þótti að litlar bætur yrðu
sóttar til Jóns Ásgeirs. Hann hefur
lýst því yfir að hann sé eignalítill
og skilað um það gögnum til ís-
lenskra og breskra yfirvalda. Þá
hefur þrotabú Baugs einnig krafist
bóta af þrotabúi Kaupþings en það
mál hefur ekki verið útkljáð.
Aðalritari SÞ
til Íslands á
sunnudaginn
Ban Ki-moon, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, kemur í opin-
bera heimsókn til Íslands í næstu
viku. Hann kemur til landsins á
sunnudag en heimsóknin hefst
formlega daginn eftir. Ráðgert
er að Ban Ki-moon dveljist hér
á landi í tæpa þrjá sólarhringa. Í
heimsókninni mun hann meðal
annars eiga fundi með forseta Ís-
lands, sem og nýjum forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra. Þá
mun Ban Ki-moon einnig halda
opinn fyrirlestur í hátíðarsal Há-
skóla Íslands á þriðjudaginn kl.
15.00 um baráttuna gegn fátækt og
hlutverk Sameinuðu þjóðanna í
friðarmálum. Ban Ki-moon hyggst
einnig halda í stutta skoðunarferð
um landið.
Skipulagsbreytingar Miklar breytingar
hafa verið innan VR síðustu mánuði.