Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2013, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2013, Blaðsíða 33
 33Helgarblað 28.–30. júní 2013 stungusár voru á líkama hins 15 ára gamla Kriss Donald þegar lík hans fannst í Glasgow í mars 2004. Hópur manna af pakistönskum uppruna rændi Donald og myrti vegna kynþáttafordóma. Eina sem Donald gat talist sekur um var að vera hvítur á hörund.13 Bílaverkstæði Varahlutaverslun Smurstöð Dekkjaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa www.bilaattan.is Allt á einum stað Á rið 2000 gekk lífið sinn vana- gang hjá Genore Guillory, einhleypri konu sem vann hjá fyrirtækinu BlueCross og BlueShield í Clinton í Lou- isiana-fylki í Bandaríkjunum. Sjálf bjó hún skammt norður af Clinton. Heimili hennar var við enda malar- götu sem nefnist Oakwood-stígur. Kærasti Genore hafði skömmu áður en þessi saga gerist beðið bana í umferðaróhappi á leið heim frá vinnu, en Genore naut þess að eiga að fjölskyldu í nærliggjandi bæjum og vinnufélaga sem þótti vænt um hana. Greiðvikin Genore var þekkt fyrir greiðvikni og hjálpsemi í garð þeirra sem þurfandi voru. Dýr voru í miklu uppáhaldi hjá henni og mátti hún ekkert aumt sjá í þeim efnum. Flækingshundar fengu góðan viðgjörning hjá Genore og héldu um 30 hundar til á landareign hennar og tveir hestar að auki. Tilvera Genore snérist um fjöl- skyldu hennar, dýrin og vini. Um síð- ir kom í ljós að vinir hennar sumir reyndust úlfar í sauðargæru, sviku hana og lítilsvirtu þá greiðvikni sem hún hafði auðsýnt þeim. Nýir nágrannar Örfáum árum fyrr hafði Genore feng- ið nýja nágranna. Hjónin Phillip og Amy Skipper settust að í niðurníddu hjólhýsi handan götunnar gegnt heimili Genore. Skipper-hjónin áttu barnungan son og son á unglings- aldri, John Baillio sem var stjúpson- ur Phillips. Vinskapur tókst með Amy og Genore og taldi Genore aldrei eft- ir sér að gera Amy greiða; kaupa inn fyrir hana og halda afmælisveislu fyr- ir litla drenginn hennar. Genore lét Amy meira að segja fá lykil að heimili sínu svo hún gæti notað símann, enda engan síma að finna í hjólhýsinu og því erfitt um vik fyrir ungu móðurina að hafa sam- band við fjölskyldu sína. Svo mikið fóru aðstæður Skipper- fjölskyldunnar fyrir brjóstið á Gen- ore að hún lánaði þeim 8.000 Banda- ríkjadali svo Amy og Phillip gætu keypt nýtt færanlegt heimili. Síðar gerði hún hjónin að bótaþegum líf- tryggingar hennar, ef svo ólíklega vildi til að hún yfirgæfi jarðlífið fyrr en síðar. „Þessi negrakerling“ Reyndar átti Phillip Skipper til að slá garðinn fyrir Genore eða fóðra hest- ana hennar tvo og hunda og sýndi henni kurteisi augliti til auglitis. En um leið og hún hafði snúið bakinu í hann sýndi hann sitt rétta andlit. „Þessi negrakerling,“ kallaði hann Genore þegar hún heyrði ekki til. Genore átti eftir að komast að því að Philip var ekki allur þar sem hann var séður. Hann hafði alist upp hjá föður sínum, sem þegar hér var kom- ið sögu afplánaði lífstíðardóm fyr- ir morð, og móður sem gaf lítið fyrir lög og rétt. Phillip Skipper var fíkni- efnaneytandi og –sali og síðar kom í ljós að hann misnotaði kynferðislega stjúpson sinn og misþyrmdi honum. Genore myrt Einn af þeim sem Phillip var í slag- togi við var álíka vandaður maður og hann sjálfur, Johnny Hoyt sem var kvæntur systur Phillips, Lisu. Hún var víst ekki merkilegur pappír held- ur og hoppaði upp í rúm með nánast hverjum sem var. Phillip og Johnny stofnuðu Bræðralagið og með Lisu og stjúp- syni Phillips rændu þeir grafir og seldu þýfið til að geta fjármagnað kaup á áfengi og fíkniefnum. Þeir seldu hverjum sem var eiturlyf og brutu öll lög sem hægt var að nefna. Kvöld eitt eftir að Phillip, Johnny, Lisa og John Baillio höfðu setið að sumbli og eiturlyfjaneyslu brutu- st þau inn til Genore, skutu hana og stungu og börðu til bana. Í kjölfarið misþyrmdu þau líkinu kynferðislega. Fimm ára barátta Það ku hafa tekið lögregluna fimm ár að fá réttlætinu fullnægt og fá Phillip og lagsfólk hans dæmt fyrir ódæð- ið. Sagan segir að ferlið hafi verið markað af græðgi, heimsku og kyn- þáttahatri sem löngum hefur þrifist í sumum samfélögum í Suðurríkjum Bandaríkjanna. Phillip Skipper og Johnny Hoyt báru litla virðingu fyrir mannslífum og morðið á Genore Guillory var ekki þeirra fyrsta. Morðið var aftur á móti sérstaklega hryllilegt í ljósi þeirra áverka sem þeir veittu Genore áður en þeir myrtu hana. Fjórmenningarnir hlutu dóm árið 2005 og réttlætið sigraði að lok- um. n „Þessi negrakerl- ing,“ kallaði hann Genore þegar hún heyrði ekki til. n Genore Guillory var greiðviknin uppmáluð n Nágranninn var níðingur NíðiNgsverk Genore Guillory Genore var greiðvikið gæðablóð. Phillip Skipper Ómerkilegt skítseyði sem launaði gott með illu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.