Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2013, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2013, Qupperneq 22
22 Umræða 28.–30. júní 2013 Helgarblað Ólafur Sveinsson Af hverju varðst þú ekki ráðherra?  Vigdís Hauksdóttir Ekki pláss í ríkisstjórninni. Sigurður Sigurðsson Hvaða tungumál talar þú vel eða þokkalega?  Vigdís Hauksdóttir Móðurmálið, dönsku og ensku. Jörundur Þórðarson Samfylking hefur haft málefni Íbúðalánasjóðs á sinni könnu frá 2007. Nú er staða hans ekki góð. Hver er stefna ríkisstjórnarinnar í þessum málaflokki?  Vigdís Hauksdóttir Við höfum öll mál til endurskoðunar – það er rétt, staða sjóðsins er slæm. Fundarstjóri Þessi barst fundarstjóra í pósti: Stjórnmála- flokkarnir fá styrki frá almenningi sem nema tæplega milljón krónum á dag. Er ekki ástæða til að skera niður þar?  Vigdís Hauksdóttir Það er spurn- ingin um að flokkar fái takmarkaðan og gegnsæjan stuðning eins og nú er samkv. lögum frá ríki og fyrirtækj- um/einstaklingum – eða hafa allt frjálst og ógegnsætt – ég vel fyrri leiðina. Pétur Jónsson Finnst þér frumvarp innanríkisráðherra um flýtimeðferð skuldamála ganga nógu langt? Hverju myndir þú helst bæta við í því frumvarpi?  Vigdís Hauksdóttir Í raun átti þetta frumvarp alltaf að vera óþarft því þessi mál áttu öll að vera löngu afgreidd hjá dómstólum eftir 5 ár frá hruni – eins er dæmalaust að fjár- málastofnanir fari ekki að dómum Hæstaréttar. Sigfús Sigmundsson Það varð mikil umræða í kjölfar ummæla þinna um framlög Íslands til þróunarmála. Geturðu útskýrt betur hver þín skoðun er á þessum málaflokki, viltu að framlög Íslands til þróunarmála verði núll krónur á ári eða viltu einungis lækka þau? Hvað er hæfilegt framlag Íslands á ári í þróunarsamvinnu að þínu mati?  Vigdís Hauksdóttir Gott að þessi spurning kom – ég styð þróunaraðstoð – en var mótfallin aukningu í málaflokknum upp á 24 milljarða næstu 5 ár þegar staðan er grafalvarleg í ríkisfjármálum. Jóhann Hákonarson Sæl Vigdís. Ég einn af þessum mönnum sem keypti fasteign 2007, skuldirnar (lánin) hækkuðu um 12 millj. og eignin lækkaði um tæpar 5 millj. þegar ég seldi í júlí 2012. Mín spurning er: Get ég vænst þess að fá leiðréttingu?  Vigdís Hauksdóttir Ef þú hefur sett fyrirvara í kaupsamninginn ertu í góðum málum og átt að fá leiðréttingu. Jóhann Skarphéðinsson Þetta er hlægilegt hjá Eygló í sambandi við öryrkja. Þýðir hækkun upp á 2–3 þús. krónur. Finnst þér nóg gert í þeim málum? Búnir að þola skerðingu síðan 1. júlí 2009?  Vigdís Hauksdóttir Við töluðum fyrir öryrkja og aldraða í þessari kosningabaráttu og stöndum og föllum með því stefnumáli. Það er að koma mikil kjarabót til þeirra sem sættu skerðingu á síðasta kjör- tímabili um ca. 16 milljarða – þetta eru fyrstu skref í að ná skerðingum vinstri stjórnarinnar til baka. Fundarstjóri Önnur úr pósthólfinu: Ríkið hefur eytt gríðarlegum fjármunum í að markaðssetja lambakjöt erlendis. Ekki er sjáanlegur árangur. Mætti ekki hætta þeim fjárútlátum?  Vigdís Hauksdóttir Það liggur allt undir í fjárlagagerðinni. Gunnar Hólmsteinn Sæl Vigdís. Mun ríkisstjórnin leggja meira fé til fjársveltra framhaldsskóla á næsta fjárlagaári?  Vigdís Hauksdóttir Menntamála- ráðherra hefur talað um hagræðingu og styttingu náms. Við skulum leyfa honum að móta þessar tillögur. Hrafn Malmquist Gunnar Bragi utanríkisráðherra hefur sagt: „Núverandi ríkisstjórn er einhuga í því að virða okkar skuld- bindingar gagnvart NATO á þeim forsendum að þær verði borgaralegs eðlis. Við erum herlaus þjóð og verðum það, en erum einn af stofnaðilum þessa bandalags og höfum ákveðnum skyldum að gegna. Það munum við gera án þess að skammast okkar nokkuð fyrir það.“ En fjölmörg dæmi eru þess að drónaárásir NATO valdi mannfalli í röðum óbreyttra borgara. Skammast þú þín ekki fyrir að taka þátt í slíku?  Vigdís Hauksdóttir Þessi spurning er flókin og viðkvæm – auðvitað erum við öll friðelskandi og viljum ekki hafa her. Get ekki svarað þessu öðruvísi. Sigfús Sigmundsson Vilt þú að Ísland segi sig frá EES-samn- ingnum og hætti í EFTA? Hver er að þínu mati helsti munurinn á veru okkar í EES í samanburði við það ef við gengjum í ESB? Ertu t.d. hlynnt því að Ísland greiði háar upphæðir í þróunarsjóð EFTA sem sinnir þróunaraðstoð í Mið- og Austur-Evrópu?  Vigdís Hauksdóttir Ég veit allt um þróunarsjóð EFTA og greiddi atkvæði móti því þegar milljarðarnir til hans voru lögfestir í EES-samninginn – það þarf að viðhalda EES-samn- ingnum og betrumbæta – eins er ég hlynnt veru okkar í EFTA – um muninn á EES og ESB er margt að segja – en fyrst nefni ég framsal dómsvalds, framkvæmdavalds og fullveldis. Andri Sigurðsson Þú ert einn umdeildasti þingmaður landsins, hvað ætlar þú að gera til að skapa samstöðu og auka samstarf milli stjórnar og stjórnarandstöðu á yfirstandandi þingi?  Vigdís Hauksdóttir Andstæðingar mínir hafa búið til þessa mynd af mér – það hefur hjálpað mér gríðarlega pólitískt – og þakka ég fyrir það í dag eftir að við unnum stórsigur í Reykja- vík og gerðum Framsóknarflokkinn að næststærsta flokknum í borginni. Inni við beinið er ég mjög sáttfús, umburðarlynd, og skipulögð. Ég kvíði því ekki að vinna að góðu samstarfi. Hilmir Kolbeins Varðandi verðtrygginguna, eru einhver áform um að afnema hana eða setja þak á hana þannig að hún fari ekki upp úr öllu valdi. Af hverju þarf öll áhætta að vera á kostnað lántakenda?  Vigdís Hauksdóttir Þetta er baráttumálið okkar Framsóknar- manna. Nú á að taka á málinu og frétta verður vonandi að vænta með haustinu hvernig þetta verður gert. Minni líka á að verðtryggingin er fyrir dómstólum. Jörundur Þórðarson Undirskriftasöfnun þar sem mótmælt var lækkun á veiðigjaldi hlaut miklar undirtektir. Ertu sátt við kynningu RÚV á þessu máli? Hefði RÚV ekki átt að fara vel ofan í þetta mál og fá fram ólík viðhorf?  Vigdís Hauksdóttir Góð spurning. Um RÚV er þetta að segja: Stundum þegar ég sit við sjónvarpið að kvöldi er ég að horfa á allt annað þing en ég sat á um daginn. Þetta eru ótrúleg vinnubrögð. Hverjir ráða för? Jóhann Páll Jóhannsson Finnst þér að lækka megi fjárframlög til embættis sérstaks saksóknara?  Vigdís Hauksdóttir Nei, ekki að sinni – hann verður að fá rými til að klára þau mál sem þar eru á borðum. Sveinn Arnórsson Sæl Vigdís – nú hefur þú kallað IPA-styrki Evrópubandalagsins illum nöfnum víðsvegar. Af hverju er þeim ekki skilað í stað þess að þiggja þetta fé eftir að viðræður voru stöðvaðar. Er það ekki niðurlægjandi fyrir fullvalda ríki að þiggja þetta ölmusufé?  Vigdís Hauksdóttir Enginn þingmaður hefur barist jafn ötullega á móti þessum styrkjum – ég vildi aldrei hleypa málinu á þann stað að við þyrftum að taka á móti þeim. Auðvitað á að skila þeim – en nú reynir á endurgreiðslukröfu ESB sem ég spurði í sífellu Össur um – nú reynir á hvort þeir standi við stóru orðin; að um styrki sé að ræða en ekki „umsóknarríkissmútur“. Benedikta Ketilsdóttir Þessar skerðingar sem þið voruð að taka til baka hjá öryrkjum og öldruðum snerta aðeins þá sem fá peninga úr lífeyrissjóðnum líka, það er stór hópur öryrkja sem er með strípaðar örorkubætur og græðir ekkert á þessum aðgerðum, á að gera eitthvað sérstaklega fyrir þennan hóp öryrkja eins og að hækka grunnlífeyrinn til dæmis?  Vigdís Hauksdóttir Gott að þessi spurning kom. Fólk verður að skilja að grunnbætur eru bundnar við gerð kjarasamninga – við erum að færa til baka þá 16–17 milljarða sem ríkisstjórnin tók af öldruðum og öryrkjum. Við erum að bæta tjónið – þeir eru að fá leiðréttingu sem sættu skerðingu – sem höfðu orðið fyrir tjóni. Guðmundur Guðmundarson Hvað á að gera í málefnum þeirra einstæðu foreldra sem ekki ná endum saman og þurfa að leigja sér fokdýrt húsnæði, fá ekki nema lágmarks húsaleigubætur, sökum búsetu í sveitarfélagi, sem gefur ekki kost á sérstökum húsaleigubótum og veitir enga aðstoð á annan hátt?  Vigdís Hauksdóttir Þetta er mál sem verið er að skoða í félagsmála- ráðuneytinu – en það er persónuleg stefna mín að koma fólki af bótum yfir á laun. Til þess þarf að koma atvinnulífi af stað og skapa hér grundvöll að góðu lífi fyrir okkur öll. Sveinn Arnórsson Ef þið viljið skila IPA-styrkjum sem ekki er einu sinni búið að eyða – hvað ætti að stöðva ykkur í því? Af hverju svar- ar þú út í hött og vísar í Össur?  Vigdís Hauksdóttir Ég tala skýrt. Það er ekki hægt að skila neinu sem ekki er búið að taka við – ESB dró lappirnar og greiddi ekki út styrkina vegna þess að þeir vissu innst inni að breytt yrði um stefnu í ESB. Hins vegar voru skapaðar hér væntingar um að hinir og þessir gætu fengið styrkina – það var ógeðfellt af fyrr- verandi ríkisstjórn. Eins ætti að loka Evrópustofu hið snarasta. Páll Garðarsson Ef forseti myndi í kjölfar undirskriftasöfn- unar vísa frumvarpi um breytingar á lögum um veiðigjald í þjóðaratkvæði, myndir þú styðja að í leiðinni yrði þjóðin spurð um vilja hennar til að klára aðildarviðræður við ESB?  Vigdís Hauksdóttir Verið er að fara svissnesku leiðina – að leggja umsóknina til hliðar og taka hana ekki upp fyrr en að lokinni þjóðar- atkvæðagreiðslu. Umsóknin hefur legið í skúffu í Sviss síðan 1994 – þá leið erum við að fara. Það skal enginn gleyma að þjóðin kaus tvo NEI flokka til valda – og Samfylkingin fékk tæp 13%. Hvað er málið? Fundarstjóri Guðrún Njálsdóttir hringdi inn þessa spurningu: Kemur til greina að slíta algjörlega viðræðum við ESB, og það sem fyrst, í stað þess að gera hlé á þeim. Er ekki bara best að slíta þessu?  Vigdís Hauksdóttir Það verður líklega metið í framhaldi af þeirri ákvörðun sem nú hefur verið tekin; að leggja umsóknina til hliðar – utanríkisráðherra hefur boðað stöðuskýrslu um málið. Komi hún illa út fyrir ESB er alveg í stöðunni að endurskoða það. Heiða Sveinsdóttir Sæl Vigdís. Ert þú sátt með þær hugmyndir að skera niður til LÍN og að lágmarkseiningum sem standast þarf til að fá lán verði fjölgað?  Vigdís Hauksdóttir Allt kerfið liggur undir, því við stöndum á tíma- mótum. Það hefur komið fram að í alþjóðlegum samanburði stöndum við okkur ekki nógu vel í mennta- málum. Ég styð þetta að því leyti að það verði hvati settur inn í kerfið að klára námið á sem skemmstum tíma – þjóðfélaginu til hagsbóta. Þetta er hluti af þeirri hugsun. Benedikta Ketilsdóttir Ætlið þið að svíkja kosningaloforðið um að leyfa þjóðinni að kjósa um hvort hún vilji halda áfram aðildarviðræðum við ESB?  Vigdís Hauksdóttir Ég fór yfir stefnu flokksins hér að framan – engin svik í því. Arnór Elvarsson Aukin fjárfesting í rannsóknum á sviði umhverfismála innan háskóla og atvinnulífsins (hjá NMÍ m.a.) getur leitt til mikillar nýsköpunar og framtíðartekna fyrir ríkissjóð. Eru slíkar fjárveitingar á borðinu hjá fjárlaganefnd?  Vigdís Hauksdóttir Nei. Fjár- laganefnd fær ekki mál inn á sitt borð fyrr en fjárlagafrumvarpið er lagt fram. Ásdís Bergþórsdóttir Er ekki full ástæða til skera niður listamannalaunin? Er einhver þörf á að styrkja listamenn sem margir hverjir lifa vel af list sinni? Höfum við efni á að hafa fólk á styrkjum við að sinna áhugamálum sínum?  Vigdís Hauksdóttir Stefna flokksins er að afnema skuli listamannalaun í þeirri mynd sem þau eru og velja og styrkja í staðinn unga efnilega listamenn. Þessi listamannalaun fóru út í vitleysu á síðasta kjörtímabili og ég fullyrði að hefðu ráðherrar framsóknarmanna farið fyrir því að láta maka tveggja ráðherra á listamannalaun – þá hefði allt orðið vitlaust og hrópað að viðkomandi ráðherrar yrðu að segja af sér. En þar sem þetta voru sam- fylkingamakar – var málið þaggað niður og ekki rætt. Hannes Hall Telurðu að það hafi verið mistök að segja já við því að ákæra ætti Geir H. Haarde fyrir landsdómi.  Vigdís Hauksdóttir Nú beinist þessi spurning beint að mér. Ég sagði já við öllum fjórum ráðherrunum. Samfylkingarþingmenn hlífðu sínum fyrrverandi ráðherrum og því fór aðeins einn ráðherra fyrir landsdóm. Ég leit svo á að það væri allir eða enginn. Samfylkingin situr uppi með það að atkvæðagreiðslan fór eins og hún fór – og hugsa sér að ráðherra bankamála hafi verið hlíft eftir heilt bankahrun! En svona vinnur Samfylkingin – hugsar um sína! Páll Bjarnason Ég vil endurtaka spurningu nafna míns þar sem ekki kom skýrt svar. Ef forseti myndi í kjölfar undirskriftasöfnunar vísa frumvarpi um breytingar á lögum um veiðigjald í þjóðaratkvæði. Myndir þú styðja að í leiðinni yrði þjóðin spurð um vilja hennar til að klára aðildarviðræður við ESB? Við þessu eru einungis tvö möguleg svör. Nei, eða já.  Vigdís Hauksdóttir Nei. Ægir Hallgrímsson Verður tryggingargjaldið lækkað á þessu þingi?  Vigdís Hauksdóttir Tryggingar- gjaldið verður örugglega lækkað á þessu kjörtímabili – og fyrr en seinna – því þegar það verður lækkað þá geta fyrirtækin farið að ráða til sín fólk sem er á atvinnuleysisbótum. Þetta er hringrás sem auðvelt er að snúa við. Heiða Heiðars Sæl Vigdís. Hefur þú náð að upplýsa málið um þá sem þiggja greiðslur fyrir að tala illa um þig sem pólitíkus?  Vigdís Hauksdóttir Það mál er allt í vinnslu. Jón Carlsson Þiggur þú leigubætur frá Alþingi?  Vigdís Hauksdóttir Nei, ég er þingmaður Reykjavíkur. Örn Stefánsson Á að gera einhvern greinarmun á þeim sem keyptu í miðri fasteigna- bólunni og þeim sem keyptu fyrir hana (og eru þá gjarnan með laun og fasteignaverð sem „stökkbreyttust“ meira en vísitala neysluverðs yfir lánstímann) í þessum skuldaniðurfell- ingaráformum ykkar?  Vigdís Hauksdóttir Nú er verið að útfæra tillögur okkar – og bið ég um þolinmæði til haustsins – eins og forsætisráðherra hefur talað fyrir. Sigurður Sigurðsson Sæl Vigdís, þú stóðst mjög einarðlega gegn nýrri stjórnarskrá á síðasta þingi og einnig þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Framsóknarflokkurinn boðaði róttæka endurskoðun á stjórnarskránni vorið 2009 og allar þær hugmyndir rötuðu inn í frumvarp að nýrri stjórnarskrá. Gætir þú sagt okkur hvað það er nákvæmlega sem þér líkar ekki í frumvarpinu?  Vigdís Hauksdóttir Vá, eru þessar spurningar ennþá á sveimi? Samfylkingin kom þessu máli fyrir kattarnef, ein og óstudd. Árni Páll kálaði málinu endanlega með að leggja fram frumvarp um breytingar- ákvæði og sópaði þar með öllu málinu út af borðinu. Þetta mál er fortíð fyrir mér. Ég horfi til framtíðar og ætla að vinna að breytingum á stjórnarskránni á nýju þingi. Örn Anna Hvernig dettur Framsóknarflokknum í hug að styðja frumvarpið hans Illuga um RÚV þegar þið studduð frumvarp síðustu ríkisstjórnar sem var miklu betra en þessi ósköp?  Vigdís Hauksdóttir Það er þitt mat – en ég greiddi ekki atkvæði með frumvarpi síðustu ríkisstjórnar. Mig minnir að þrír þingmenn XB hafi greitt atkvæði með því. Ragnar Ragnarsson Hvað er það sem þið óttist mest ef að ESB-samningurinn verður kláraður og lagður fyrir þjóðina?  Vigdís Hauksdóttir Hvaða samningur? Þetta er aðlögun Íslands að ESB, það er heila málið, það er enginn „samningur“. Alltof mikill tími hefur farið í það hjá þinginu á síðasta kjörtímabili að innleiða lagafrum- vörp til að uppfylla skilyrði ESB um aðlögun. ESB segir sjálft að þetta sé aðlögun. Stöndum og föllum með öryrkjamálinu Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, svaraði spurningum um skuldalækkanir og listamannalaun á Beinni línu Nafn: Vigdís Hauksdóttir Starf: Þingmaður Aldur: 45 ára Menntun: Lögfræðipróf frá Háskólanum á Bifröst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.