Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2013, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2013, Blaðsíða 41
Ný leið til bíl- þjófnaðar? „Þeir virðast vera með einhvern búnað sem bara opnar bílinn.“ Svona lýsir íbúi á Hawaii því þegar brotist var inn í jeppa hans á dögunum. Jeppi hans, sem er ný­ legur, hafði verið opnaður, veski stolið og hlutum úr hanskahólfi. Þjófavörnin var þó á, bíllinn læstur og engin ummerki um inn­ brot. Tilkynnt hefur verið um fleiri slík innbrot á Hawaii. Lögreglan hefur þó bent á að hugsanlega hafi þjófarnir afritað bíllykla fórnar­ lamba sinna. 19.000 bílar innkallaðir Toyota þarf að innkalla 19.000 eintök af Crown og Lexus IS í Japan vegna galla í bremsukerfi. Bílarnir voru framleiddir milli desember 2012 og júní 2013. Bremsukerfið er byggt upp á nemum sem bregðast við þegar þeir nema hindranir. Endurk­ ast af öðrum bílum og hinum ýmsu hlutum virðast hafa truflað skynjarana og því bremsar bíllinn án þess að þörf sé á því. Tilkynnt hefur verið um sex slík atvik. Leggur sjálfur Nýjasti hugmyndabíll Volvo, eða „Concept Car“, leggur sjálfur í stæði. Bílinn finnur laust stæði og leggur í það án þess að bílstjóri sé í bílnum. Ökumaðurinn ræsir ferlið með snjallsímaforriti og bíll­ inn nemur umhverfi sitt og leggur sjálfur. Þegar ökumaðurinn snýr svo aftur kemur bíllinn til baka. Þessi tækni er þó enn í þróun og geta bílar búnir henni aðeins lagt í bílastæði sem eru til þess hönnuð. Í lok árs 2014 kemur á markaðinn bíll frá Volvo búinn sambærilegri tækni en ætla má að í framtíðinni muni bílar leggja sjálfir í stæði. F áir bílar eiga sér jafn langa og farsæla sögu og  Porsche  911. Í septem­ ber eru 50 ár liðin frá því að fyrsta eintakið kom fram á sjónarsviðið. Síðan þá hefur 911 verið einn vinsælasti sportbíll heims og í raun verið grunnur­ inn að allri hönnun  Porsche. Hið klassíska útlit bílsins hefur haldið sér í gegnum 50 ára sögu fyrirtæk­ isins. 901 varð 911 Fyrsta útgáfan hét reyndar 901 en  Peugeot  fékk á sama tíma einkaleyfi á öllum bílanöfnum með tölustafnum 0 í miðjunni. Því hét útgáfan sem fór í almenna sölu 911 og þar með var goðsögnin fædd. Til dagsins í dag hafa verið smíðuð meira en 820.000 eintök af 911 og bygging hans og tækni þróast í gegnum áratugina þó grunnútlitið hafi ávallt verið það sama.  En 911 er ekki bara fallegur heldur hefur hann lengi verið bestur sinnar tegundar þegar kem­ ur að kappakstri.  Porsche  hefur unnið yfir 30.000 sigra í hinum ýmsu keppnum í gegnum árin og 911 á heiðurinn af meirihluta þeirra. Fjölskyldusportbíllinn Útlit 911 var hannað út frá Volkswagen­bjöllunni sem  Porsche  hannaði einnig. Hug­ myndin var að gera sportbíl fyrir al­ menning en til þess að gera hann „fjölskylduvænni“ var komið fyr­ ir litlum aftursætum og nógu mik­ ið pláss undir húddinu til að geyma þar golfkylfur. 911 hefur nefnilega alltaf haft þá sérstöðu að vélin er í skottinu. Margir gagnrýndu þetta á sínum tíma en hönnunin hefur haldið allar götur síðan og veitt bíln­ um mikla sérstöðu. Fremstir í önnur 50 ár? Porsche  hefur einnig verið leið­ andi í hönnun og tækniframþróun þegar kemur að sportbílum. Þeir voru á meðal þeirra fyrstu til að tölvuvæða bíla og einnig til að not­ ast við vökvakælingu. Ekkert bendir til annars en að 911 og Porsche­bílarnir muni halda vinsældum sínum,  vel­ gengni og sérstöðu næstu 50 ár. n n Farsæl saga Porsche 911 n Sama klassíska útlitið í 50 ár Sama útlitið 911 hefur haldið grunn- útliti sínu í 50 ár. Upprunalega vélin Porsche 911 2.0 Coupe-vélin sem var sex sýlindra. Gamla útlitið Glæsilegur að innan Porsche 911 2.0 Coupe frá árinu 1963. Gamli og nýi Porsche hefur gert afmælis- útgáfu af bílnum. Ásgeir Jónsson blaðamaður skrifar asgeir@dv.is Nýja vélin Svona lítur vélin í skottinu á 2013 Porsche 911 Carrera 4S Coupe út. Hún er ennþá sex sýlindra en 3,8 lítra. Nýja útlitið Svona lítur nýi 2013 Porsche 911 Carrera 4S Coupe út. Bílar 41Helgarblað 28.–30. júní 2013 Porsche er alltaf eins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.