Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2013, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2013, Síða 39
H æsta fjall sem ég hef geng­ ið á er El Teide á Tenerife. Þetta eldfjall er 3.710 metra hátt og eitt af þeim hæstu í heiminum. Til þess að fá að fara á toppinn þarf fólk að sækja um með viku fyrirvara. Þegar leið fjöl­ skyldunnar lá þangað fyrir rúmu ári hafði ég í samráði við Trausta Haf­ steinsson, fararstjóra og gamlan starfsfélaga á DV, sótt um að ganga á toppinn. Leyfið var góðfúslega veitt og snemma í ferðinni lögðum við á fjallið. Mér til undrunar var hægt að taka kláfferju upp í 3.500 metra hæð og ganga þaðan þá 200 metra sem voru á tindinn. Það varð úr að við fórum þessa leið. Þegar við stigum út úr kláfnum hringsnérist allt fyrir augum manns. Þunna loftið hafði þau áhrif að við urðum bókstaf­ lega að fikra okkur upp á tindinn. Með því að stara ofan í stíginn náð­ ist að bægja frá mesta svimanum og ógleðinni. Þannig náði ég toppnum með eiginkonunni og yngstu dóttur­ inni. Það var sigurstund þegar við toppuðum. Samt var gleðin lævi blandin þegar ég hugsaði til þess að gangan sjálf hafi verið einungis brot af hæð eldfjallsins. Eftir að hafa not­ ið útsýnisins á toppnum héldum við niður sömu leið og í kláfinn sem flutti okkur niður í rúmlega 2.000 metra hæð. Það var léttir að losna við svimann. Þegar við komum á hótelið stóðst ég ekki mátið og uppfærði stöðuna á Facebook í þá veru að nú hefði ég toppað eitt hæsta eldfjall heimsins. Þegar ég hafði sleppt yfirlýsingunni gerði ég mér grein fyrir að framtak mitt vakti gríðarlega athygli. Göngu­ félagar úr 52ja fjallaklúbbi Ferða­ félagsins þyrptust inn á síðuna með læk og skriflegar hamingjuóskir með afrekið. Það læddist að mér sá grunur að ég hefði hlaupið á mig með því að lýsa hæð fjallsins en ekki þeim metrum sem ég hafði gengið sjálf­ ur. Síðan mín á Facebook bókstaf­ lega logaði af aðdáendum sem lýstu ánægju sinni. Svo kom kommentið sem ég óttaðist. Skýrleikskona úr 52 fjöllum sem þekkti greinilega til á Tenerife spurði: Tókstu nokkuð kláfinn. Orðin dönsuðu fyrir augum mínum. Það var verið að fletta ofan af mér. Það voru leiðindi á Facebook. Ég ákvað að svara engu; í bili. Það versta sem menn gera í fjöll­ um er að ljúga upp á sig hæð. Ég vissi um tvo ráðherra sem höfðu gortað af því að koma á Hvanna­ dalshnúk. Báðir höfðu nýtt sér öku­ tæki til að komast helming leiðar­ innar. Það loðir við þá menn alla tíð að hafa skreytt sig með hálfstolnum fjöðrum. Áhyggjur mínar í sólskin­ inu á Kanarí voru gríðarlegar. Ég var um það bil að verða alræmdur. Eftir stutta íhugun hringdi ég í Trausta fararstjóra og sagði honum frá klandri mínu. Hann sagðist hafa lausnina. Ég yrði að hætta á Face­ book í nokkra daga. Í millitíðinni myndum við ganga á fjallið. Og það varð úr. Nokkrum dögum síðar lögðum við upp í 2.000 metra hæð og geng­ um á efsta tind. Við urðum að vísu að sneiða hjá varðmönnum tindsins og fara upp að fjallabaki vegna þess að leyfi fékkst ekki til að fara upp. En þetta gekk og ég stóð í annað sinn á nokkrum dögum á efsta tindi El Teide. Við heimkomuna settist ég við Facebook og gat upplýst þessa spurulu konu uppi á Íslandi um að ég hefði ekki tekið kláfinn að þessu sinni, heldur tekið 1.700 metra hækkun. Þannig bjargaði ég mann­ orðinu. n Lífsstíll 39Helgarblað 28.–30. júní 2013 Reynir Traustason Baráttan við holdið Leiðindi á Facebook Eldfjallið El Teide Fjölskyldan gerir sig klára á eitt hæsta eldfjall heims. Bjargvættur Trausti Hafsteinsson ásamt greinarhöfundi. Mannorðinu bjargað. Kerfélagið ehf. hefur nú hafið gjaldtöku við Kerið í Grímsnesi. Aðgangseyrir fyrir hvern ferða­ mann eru 350 krónur, 2 evrur eða 3 Bandaríkjadalir en gjaldfrjálst er fyrir börn 12 ára og yngri. Svæðið hefur verið afgirt og merkt auk þess sem nestisaðstöðu hefur verið komið upp. Til að byrja með verður gjald­ takan í höndum starfsmanns Kerfélagsins en með tímanum verður skorið úr um hvert fyrir­ komulagið verður til lengri tíma. Í fréttatilkynningu frá félaginu kemur fram að gjaldtakan geri fé­ lögum kleift að vernda viðkvæma náttúru svæðisins svo unnt sé að halda áfram að taka á móti ferða­ mönnum. Kerið hefur lengi verið einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Það er staðsett í Gríms­ nesi í Árnessýslu og er algengur viðkomustaður ferðamanna í hin­ um svokallaða Gullna hring, sem er dagsferð með viðkomu á Þing­ völlum, við Gullfoss og Geysi og fleiri stöðum. Árið 2008 lokaði Kerfélagið fyrir aðgang hópbíla að Kerinu vegna náttúruspjalla sem orðið höfðu á svæðinu vegna mikillar ásóknar ferðamanna. Taldi fé­ lagið nauðsynlegt að sporna við frekari skemmdum með þessum hætti áður en í óefni væri komið. Nú hafa ferðir hópbíla hins vegar verið leyfðar á nýjan leik, en gegn gjaldi. Athygli vakti þegar Jóhönnu Sigurðardóttur, þáverandi for­ sætisráðherra, og Wen Jiabao, þá­ verandi forsætisráðherra Kína, sem og fylgdarliði þeirra var meinaður aðgangur að Kerinu vorið 2012. Ástæðan var annars vegar andstaða landeigenda við stefnu íslenskra og kínverskra stjórnvalda og hins vegar fyrrnefnt bann við hópbílum við Kerið. Eigendur Kerfélagsins eru Óskar Magnússon, Ásgeir Bolli Kristinsson, Jón Pálmason og Sig­ urður Gísli Pálmason, en hver um sig á fjórðung í félaginu. Gjaldtaka í Kerið hafin Fallegt Kerið hefur lengi verið einn vinsælasti ferðamannastaður landsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.