Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Síða 2
2 Fréttir 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað Kom heim í tómt hús 3 Atli Már Gylfason, útvarpsmaður og plötusnúður, var leikinn grátt af innbrotsþjóf­ um um verslun­ armannahelgina. Þegar hann snéri heim af Þjóðhátíð í Vestmanna­ eyjum blasti við honum tóm íbúð; eignamissir upp á meira en eina milljón króna. „Einu verðmætin sem eftir voru var örbylgjuofn. Að öðru leyti var allt tekið, meira að segja sængurnar okkar,“ sagði Atli í DV á miðvikudag. Verst fannst honum þó að missa myndir af fæðingu barna sinna sem geymdar voru í tölvu sem þjófarnir höfðu á brott með sér. Var sögð geðveik 2 Matthildur Kristmannsdóttir gekk á milli lækna í fjölda ára alvarlega veik af krabbameini án þess að fá greiningu. Veikindin voru talin stafa af alvarlegu þunglyndi sem hún þjáðist í raun og veru aldrei af. Matthildur sagði sögu sína í mið­ vikudagsblaði DV. Krabbameinið var komið á þriðja stig þegar það loksins greindist og hafði náð að dreifa sér í eitlana. Sem betur fer náði Matt­ hildur bata og er mjög þakklát fyrir að vera við góða heilsu í dag. Létust í flugslysi 1 Mennirn­ir tveir sem létust í flugslysi á mánudag hétu Páll Steindór Steindórsson, flugstjóri, og Pétur Róbert Tryggvason, slökkviliðs­ og sjúkraflutningamaður. Mikil sorg ríkir á Akureyri vegna slyssins. „Þetta eru allt saman vin­ ir okkar og samstarfsmenn til langs tíma. Þetta er lítið fyrirtæki og þetta er lítið samfélag. Það er ekki bara fyrirtækið heldur allt samfélagið fyrir norðan sem finnur fyrir þessu,“ sagði Sigurður Bjarni Jónsson, flug­ öryggisfulltrúi Mýflugs, í samtali við DV á miðvikudag. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni Aron Brink hleypur í minningu föður síns n Hleypur 21 kílómetra í minningu föður síns, Sjonna Brink heitins P abbi minn var glaðasti og jákvæðasti maður í heimi. Það var alltaf gleði í kring­ um hann hvar sem hann var. Það er ekki hægt að hugsa sér betri pabba en hann. Ég trúi ekki ennþá, daginn í dag, að hann sé farinn,“ segir Aron Brink, sonur söngvarans Sigurjóns Brink, eða Sjonna eins og hann var jafnan kallaður, sem lést langt fyrir aldur fram, aðeins 36 ára í janúar 2011 af völdum heilablóðfalls. Hleypur hálft maraþon Aron ætlar að hlaupa hálft maraþon eða 21 kílómetra í Reykjavíkurmara­ þoninu, sem fram fer þann 24. ágúst næstkomandi, í minningu föður síns. Aron safnar áheitum til styrkt­ ar Heilavernd sem er félag stofnað af aðstandendum fólks með arfgenga heilablæðingu. Fleiri úr fjölskyldu Arons hlaupa til styrktar félaginu og vonast þau til þess að safna sem mestu til styrktar því. Aron hefur ekki áður hlaupið hálfmaraþon og hefur ekki verið að æfa sérstaklega fyrir hlaupið. „Ég ætti nú kannski að fara að byrja á því. Ég er reyndar í fótbolta þannig ég er í ágætis formi,“ segir Aron sem hefur einu sinni hlaupið í Reykjavíkurmaraþoninu en þá fór hann 10 kílómetra. „Ég sá að Nína, systir pabba, ætlaði að hlaupa 21 kílómetra þannig ég ákvað að taka jafn mikið og hún, ég gat ekki tekið minna,“ segir hann kíminn. „Besti maður sem ég hef kynnst“ Eins og áður sagði lést faðir Arons, Sjonni, úr heilablóðfalli. Sjonni var landskunnur tónlistarmaður og má með sanni segja að þjóðarsorg hafi ríkt þegar hann féll svo skyndilega frá. Aron segir skyndilegt fráfall föð­ ur síns svo sannarlega hafa reynt á. „Þetta var mikið áfall, það er eig­ inlega ekki hægt að lýsa því. Hann var bara besti maður sem ég hef kynnst og það var alltaf mikil gleði í kringum hann,“ segir hann. Fjöl­ skylda Sjonna var stór og náin og segir Aron þau vera dugleg að halda minningu hans á lofti. Til að mynda haldi fjölskyldan á hverju ári golf­ mót til minningar um hann. „Við höfum haldið það þrisvar úti á Sel­ tjarnarnesi og það er alltaf dúnalogn þegar mótið er þó að það sé nú yfir­ leitt alltaf rok á Nesinu,“ segir hann. „Aðalmálið að hlaupa í minningu pabba“ Auk Arons þá ætla fleiri fjöl­ skyldumeðlimir að hlaupa í minn­ ingu Sjonna og til styrktar Heila­ vernd. „Litli bróðir minn, Haukur Örn, ætlar til dæmis að hlaupa 10 kílómetra,“ segir hann. Þeir sem vilja heita á Aron er bent á að fara inn á síðuna Hlaupastyrkur.is en þegar blaðið fór í prentun hafði hann safn­ að tæplega 30 þúsund krónum og vonast til þess að geta bætt um betur þó hann hafi ekki sett sér nein mark­ mið varðandi hve miklu hann hyggst safna. „Aðalmálið er að hlaupa í minningu pabba míns,“ segir hann einlægur. n Heilavernd Félagið Heilavernd er stofnað árið 1986 af aðstandendum fólks með arfgenga heilablæðingu. Félagið safnar fé til að styrkja rannsóknir á arfgengri heilablæð- ingu, en hér er um séríslenskan erfðasjúk- dóm að ræða, sem veldur áföllum er leiða til lömunar og ótímabærs dauða þeirra sem bera hið gallaða gen. Sjúkdómurinn er ríkjandi og enn hefur engin lækning fundist, þrátt fyrir töluverðar rannsóknir á þeim árum sem liðin eru frá því að aðferð fannst til þess að finna þá einstaklinga sem bera gallaða genið. Heilavernd hefur styrkt marga sem komið hafa að þessum rann- sóknum, bæði íslenska rannsóknaraðila og erlenda sem sýnt hafa þessum rannsóknum áhuga. Heilavernd hefur safnað fé í gegnum tíðina með sölu á minningarkortum, ásamt jólakortum og fleiru, en einnig hefur verið eitthvað um frjáls framlög að ræða. JC- hreyfinginn stóð jafnframt fyrir söfnun á Bylgjunni í febrúar 1987, sem varð til þess að hægt var að kaupa blóðskilvindu fyrir Blóðbankann, en hana þurfti m.a. til þess að geta unnið að greiningu á þeim einstak- lingum sem bera gallaða genið. tekið Af vefnum HlAupAstyrkur.is Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Í minningu pabba Aron ætlar að hlaupa í minningu föður síns, Sjonna, sem lést langt fyrir aldur fram. Aron er hér í bol með mynd af föður sínum. mynd kristinn mAgnússon feðgarnir Aron og Sjonni saman á góðri stundu á Anfield árið 2009 þegar þeir feðgar fóru saman til Englands á Liverpool leik. Óvenjulegt lögreglumál Óskað var eftir aðstoð lögreglu að húsi í Hafnarfirði um kaffi­ leytið á miðvikudag. Þar hafði ungur maður brugðið sér í bað, en móðir hans varð áhyggjufull þegar einkennileg hljóð bárust frá baðherberginu. Hún reyndi að komast þar inn, en dyrnar voru læstar og hvorki bank á hurðina né hróp konunnar virt­ ust ná til piltsins og því hringdi móðirin í lögregluna. Tveir lag­ anna verðir héldu strax á stað­ inn, en þegar þeir áttu skammt eftir á vettvang bárust þær upp­ lýsingar í talstöðina að hættan væri liðin hjá og málið því leyst. Eins og stundum áður var ein­ föld skýring á öllu saman, en hún var sú að pilturinn hafði sofnað í baðinu en hljóðin sem frá því bárust reyndust vera hroturnar í unga manninum. Lést í um- ferðarslysi Maðurinn sem lést í umferðar­ slysi á Suðurlandsvegi skammt frá Þingborg á miðvikudag hét Leifur Ársæll Leifsson til heim­ ilis að Smáragötu 5 í Vestmann­ eyjum. Leifur var 58 ára gamall, fæddur 8. febrúar 1955 og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú upp­ komin börn. Frá þessu er greint á vef lögreglunnar. Eins og greint var frá á mið­ vikudag varð slysið með þeim hætti að sendibifreið og vöru­ bifreið sem komu úr gagnstæð­ um áttum skullu saman. Öku­ maður sendibifreiðarinnar var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík en var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna þangað. Ökumað­ ur vörubifreiðarinnar var fluttur á sjúkrahús á Selfossi en er ekki alvarlega slasaður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.