Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Blaðsíða 6
6 Fréttir 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað
Hættir hjá Samfylkingu
n Ætlar að klára meistaranámið
S
igrún Jónsdóttir, framkvæmda
stjóri Samfylkingarinnar, lætur
af störfum í næstu viku. Hún
hefur gegnt því starfi í fjögur
ár, en hún var upphaflega ráðin
tímabundið. „Það er kominn tími
til að breyta, þetta eru búin að vera
annasöm fjögur ár,“ sagði Sigrún í
samtali við DV. Hún hefur starfað inn
an vébanda flokksins um árabil og var
meðal annars kosningastjóri flokks
ins fyrir alþingiskosningarnar 2007.
Nú ætlar Sigrún að setjast aftur
á skólabekk. „Nú ætla ég að fara
að skrifa meistararitgerð í opin
berri stjórnsýslu, klára bara,“ sagði
Sigrún. Hún er með BApróf í stjórn
málafræði frá Háskóla Íslands og
sömuleiðis með kennsluréttindi
þaðan. Ekki er hægt að segja annað
en hún sé vel kunn skólanum en hún
var um tímabil verkefnastjóri í fé
lagsvísindadeild sem og deildarstjóri
félags og mannvísindadeildar.
Í fréttatilkynningu segir Árni
Páll Árnason, formaður Samfylk
ingarinnar, að það hafi verið mikið
happ að njóta krafta Sigrúnar á um
brotatímum síðustu ára. „Hún hef
ur byggt upp trausta umgjörð um
innra starf flokksins og eflt tengsl og
virkni flokksfélaga um allt land. Við
þökkum henni ómetanlegt starf á
undanförnum árum og óskum henni
alls góðs á nýjum starfsvettvangi,
en treystum því að eiga hana áfram
að sem þann góða félaga og hauk í
horni sem við höfum reynt um langt
árabil,“ segir Árni.
Þegar Sigrún var spurð hvað
hafi staðið upp úr í starfi hennar
sem framkvæmdastjóri sagði hún:
„Það var mjög merkilegt að taka til
í innra starfinu eftir ákveðin áföll í
samfélaginu. Mjög sérstakt að vera
í pólitísku starfi á þessum tíma eftir
hrunið og ná samfélaginu þó saman
aftur, en ég tel að Samfylkingin hafi
lagt mjög mikið af mörkum í því.“ n
Eigandi útgErðar
kEngskuldsEttur
S
tærsti hluthafi Vinnslu
stöðvarinnar, eignarhalds
félagið Seil ehf., er
kengskuldsettur og þarf
á arðgreiðslum út úr fé
laginu að halda til að geta stað
ið í skilum með afborganir af lán
um. Þetta kemur glögglega fram
í ársreikningum félagsins á síð
astliðnum árum. Seil er eigu Har
aldar Gíslasonar, Kristínar Elínar
Gísladóttur og framkvæmdastjóra
Vinnslustöðvarinnar, Sigurgeirs
Brynjars Kristgeirssonar, Binna
eins og hann er kallaður. Seil á tæp
25 prósent í Vinnslustöðinni.
Mikil umræða hefur verið um
arðgreiðslu Vinnslustöðvarinnar
upp á 1,1 milljarð króna síðustu
vikurnar en stjórn sjávarútvegs
fyrirtækisins ákvað arðgreiðsluna
fyrir skömmu. Sú umræða varð
til þess að Sigurgeir Brynjar skrif
aði aðsenda grein í Fréttablaðið á
miðvikudaginn undir yfirskriftinni
„Að súpa hveljur yfir arði“.
Skuldsettir eigendur
Vinnslustöðvarinnar
Sigurgeir Brynjar viðurkenndi í
greininni að helsta ástæðan fyrir
arðgreiðslum út úr Vinnslustöð
inni sé skuldsetning hluthafa út
gerðarinnar: „Mörg okkar lögðu
mikið undir þegar við keyptum
VSV á sínum tíma. Við viljum
standa í skilum gagnvart lánar
drottnum VSV og okkar sjálfra.
Arðinn höfum við notað til að
greiða vexti og afborganir af lán
um sem voru tekin til að treysta
eignarhald Eyjamanna á VSV í
sessi.“
Í ársreikningi Seilar ehf. fyrir
árið 2011 kemur fram að félagið
skuldaði 2,3 milljarða króna í lok
þess árs. Skuldirnar árið áður
námu tæplega 2,6 milljörðum
króna. Skuldir félagsins lækkuðu
því um nærri 300 milljónir króna
á milli áranna 2010 og 2011. Hagn
aðurinn af rekstri Seilar ehf. árið
2010 nam rúmum 600 milljón
um króna, en þar af var móttekinn
arður 125 milljónir króna en af
gangurinn að stærstu leyti gengis
hagnaður, var tæplega 259 millj
ónir króna árið 2011. Árið 2011
borgaði Seil tæplega 154 milljónir
króna af langtímaskuldum sínum
en átti ekkert að borga af þeim árið
2012. Arðgreiðslan sem Seil fékk
árið 2010 upp á 125 milljónir króna
var því nokkru lægri en afborganir
félagsins af langtímaskuldum sín
um árið eftir.
Niðurstaða Binna
Í grein sinni í Fréttablaðinu kemst
Sigurgeir Brynjar að þeirri niður
stöðu að stjórnvöld og veiðigjöld
þeirra séu helsta vá íslenskra út
gerða: „Helsta ógnin sem steðjar
að Vinnslustöðinni, líkt og öðrum
fyrirtækjum í sjávarútvegi, stafar af
stjórnvöldum og óhóflegum veiði
gjöldum.“
Segja verður eins og er að þessi
niðurstaða framkvæmdastjórans
er ekki alveg í samræmi við þær
staðreyndir um skuldastöðu hlut
hafa Vinnslustöðvarinnar sem
hann greinir frá í þessum skrifum
sínum. Ef helsta ástæðan fyrir arð
greiðslum Vinnslustöðvarinnar til
hluthafa sinna er erfið skuldastaða
hluthafanna sem tilkomin er vegna
kaupa á hlutabréfum í útgerðinni
þá er skuldsetning þessara hlut
hafa eitt af stærstu vandamálum
félagsins þar sem þeir greiddu of
mikið fyrir þessi hlutabréf á sínum
tíma. Veiðigjöld ríkisstjórnarinnar
eru ekki ástæðan fyrir arðgreiðsl
unum þar sem Vinnslustöðin sjálf
greiðir þau gjöld en ekki hluthafar
útgerðarinnar. Umræða um arð
greiðslur út úr Vinnslustöðinni og
greiðslu á veiðigjöldum eru því í
reynd tveir óskyldir hlutir.
Vegna arðgreiðslnanna verða
minni fjármunir eftir inni í
Vinnslustöðinni til endurnýjun
ar á nýjum fiskveiðitækjum, eins
og til dæmi fiskiskipum, en skipa
floti útgerðarinnar er kominn
nokkuð til ára sinna. Ef stærstu
hluthafar Vinnslustöðvarinnar
væru ekki eins skuldsettir og þeir
eru yrðu meiri fjármunir eftir
inni í útgerðinni til að endurnýja
veiðitækin og fjármagna rekstur
félagsins. Með sama hætti mætti
segja að ef hluthafar Vinnslustöðv
arinnar væru ekki eins skuldsettir
og raun ber vitni, og þyrftu ekki
að greiða út svo mikinn arð, gæti
Vinnslustöðin greitt hærri veiði
gjöld án þess að slíkt kæmi eins illa
við rekstur útgerðarinnar. n
n Móttekinn arður og afborganir skulda nema álíka hárri upphæð
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Mörg okkar
lögðu
mikið undir þegar
við keyptum VSV
á sínum tíma
Skuldsett félag
Eignarhaldsfélagið sem
Sigurgeir Brynjar á ásamt
öðrum er kengskuldsett og
þarf á arði að halda til að
greiða af skuldum sínum.
Safnað fyrir fjölskyldur
stúlknanna sem létust í bílslysi
Þær voru
lífsglaðar
og alltaf
brosandi
„Þær voru lífsglaðar, alltaf
brosandi og hamingjusamar,“
segja þeirra nánustu um
Mögdu Hyz og Nataliu Gabin
sku, stúlkurnar tvær sem lét
ust í bílslysi á Suðurlandsvegi
þann 3. ágúst síðastliðinn. Frá
þessu er greint á fréttavefn
um icelandnews.is/poloniais
landia/ogloszenia/hjalpum
theimadkomastheim
Þar segir að Magdalena,
sem var sextán ára, og Natal
ia, sem var fimmtán ára, hafi
nýlega kynnst og strax orðið
miklar vinkonur. Báðar komu
þær hingað til Íslands í sumar
frí til að heimsækja fjölskyldur
sínar. Magdalena mun hafa
komið fyrir þremur vikum að
heimsækja frænku sína og
frænda en þetta var hennar
fyrsta heimsókn til Íslands.
Natalia hafði komið hingað til
lands einu sinni áður en hún
var stödd hér á landi að þessu
sinni til að heimsækja móður
sína sem býr á Íslandi.
Stofnaður hefur verið söfn
unarreikningur fyrir fjölskyld
ur stúlknanna en það er ósk
þeirra að þær verði jarðsungn
ar í Póllandi. Flutningurinn er
hins vegar afar dýr og kemur
fram á vef IcelandNews, sem
sérhæfir sig í að segja frétt
ir frá Íslandi á pólsku, að hvor
fjölskylda standi frammi fyrir
kostnaði upp á 1,2 milljónir
króna.
Hefur því verið opnaður
sérstakur bankareikningur þar
sem hægt er að leggja inn og
styðja fjölskyldurnar á þessum
erfiðu tímum.
Reikningsnúmer 0130 05
061895, kennitala 2005794029.
Sigrún Jónsdóttir Var meðal annars
bæjarfulltrúi í Kópavogi áður en hún tók við
sem framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar.