Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Qupperneq 10
10 Fréttir 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað Krónan fór á flug í júlí n Ferðamannastraumurinn skilaði sér ekki í mikilli styrkingu Í slenska krónan styrktist nokkuð í júlímánuði á móti gjaldmiðlum helstu viðskiptalanda okkar. Þannig stóð hún í 158,4 krónum á móti evru í lok mánaðarins sam­ anborið við 161,3 krónur í lok júní. Um þetta er fjallað í Hagsjá Lands­ bankans. Þar kemur fram að krón­ an hafi styrkst um 4,1 prósent á móti Bandaríkjadal, 4,1 prósent á móti breska pundinu og 1,1 prósent á móti norsku krónunni. Í Hagsjá er þeirri spurningu einnig velt upp hvers vegna krón­ an hafi ekki styrkst meira í sumar en raun bar vitni. „Síðasta sumar styrktist krónan nokkuð yfir sumar­ mánuðina. Sú styrking hefur með­ al annars verið rakin til þess að um metár var að ræða í komum er­ lendra ferðamanna hingað til lands. Nú stefnir allt í að ferðamannasum­ arið 2013 verði enn stærra í snið­ um,“ segir í frétt Hagsjár en þar með er ekki öll sagan sögð enda krón­ an veikari nú en hún var í lok apríl. „Svo virðist því sem að þessi mikla aukning ferðamanna í ár hafi ekki náð að skila sér í mikla styrkingu krónunnar yfir sumarmánuðina. Þarna sannast enn og aftur að það er eðli fjármálamarkaða að þekkt­ ar hreyfingar hverfa strax og þær eru þekktar. Væntanlega hafa þeir sem þurfa að kaupa gjaldeyri ver­ ið búnir að gera ráð fyrir styrk­ ingu í sumar vegna komu erlendra ferðamanna og þannig reynt að færa kaup á gjaldeyri yfir á sumar­ ið þegar þeir bjuggust við að gengið væri sterkara.“ Þá er þess getið að vöruskiptajöfn­ uðurinn hafi verið neikvæður um 6,9 milljarða króna í maí og 1,2 milljarða króna í júní. Hefur hann ekki verið neikvæður í tvo samfellda mánuði síðan fyrir fall viðskiptabankanna haustið 2008. n einar@dv.is H æstiréttur Íslands úr­ skurðaði fasteignafélag­ ið Hafhús ehf. gjaldþrota þann 23. apríl á þessu ári. Arion banki hafði far­ ið fram á að Hafhús yrði tekið til gjaldþrotaskipta í apríl árið 2012 en þeirri beiðni hafnaði Héraðs­ dómur Reykjaness með úrskurði sem kveðinn var upp í byrjun mars á þessu ári. Hafhús ehf. hét áður Athús ehf. og skuldaði Kaupþingi 2,7 millj­ arða króna við fall bankans sam­ kvæmt lánabók Kaupþings sem Wikileaks birti. Félagið átti meðal annars um 40 íbúðir við Norður­ bakka 1–3 í Hafnarfirði og nokkurn fjölda raðhúsa og lóða við Bygg­ akur á svokölluðu Arnarneslandi í Garðabæ samkvæmt yfirliti úr fyr­ irtækjaskrá. Samkvæmt ársreikn­ ingi Hafhúsa var félagið með nei­ kvætt eigið fé upp á 3,8 milljarða króna í árslok 2011. Námu eignir um 1.600 milljónum króna á móti skuldum upp á 5,4 milljarða króna. Atafl líka gjaldþrota Athús ehf. heyrði undir verktaka­ fyrirtækið Atafl sem hét áður Keflavíkurverktakar. Atafl var sjálft úrskurðað gjaldþrota árið 2010. Feðgarnir Bjarni Pálsson og Páll Ólafsson eignuðust í kring­ um síðustu aldamót Keflavíkur­ verktaka sem sumir hafa kallað fjandsamlega yfirtöku en Kaup­ þing í Lúxemborg fjármagnaði að mestu yfirtökuna í gegnum félag­ ið Eisch Holding. Keflavíkurverk­ takar urðu til árið 1957 og voru að mestu í eigu iðnaðarmanna á Suðurnesjum þar til að feðgarnir yfirtóku fyrirtækið. Atafl og tengd félög skulduðu Kaupþingi um sjö milljarða króna við bankahrunið, þar af skuldaði félagið Mænir ehf. 3,7 milljarða króna og Athús (nú Hafhús) 2,7 milljarða króna. Gengur vel að selja eignir „Það gengur mjög vel að gera upp félagið. Ég hef verið að selja eignir Hafhúsa,“ segir Jón Auðunn Jónsson, hæstaréttarlögmaður og skiptastjóri Hafhúsa. Að hans sögn nema eignir félagsins á ann­ an milljarð króna og einungis eigi eftir að selja lítinn hluta af þeim eignum sem voru í eigu þrota­ búsins. Samkvæmt Lögbirtinga­ blaðinu verður haldinn skipta­ fundur þann 23. ágúst og telur Jón Auðunn að líklega verði hægt að ganga frá skiptalokum með haustinu. Atafl enn stórtækt Þeir Bjarni Pálsson og Kári Arn­ grímsson sátu í stjórn Hafhúsa og var Kári framkvæmdastjóri fé­ lagsins. Hafhús er í eigu félagsins Atland fjárfesting en félagið Ateign ehf. á 75 prósenta hlut í því. Þess skal getið að Ateign ehf. keypti nafn Atafls af þrotabúi þess þegar það var úrskurðað gjaldþrota árið 2010. Bjarni Pálsson sem átti 60 prósenta hlut í Atafli fyrir hrun á líka 60 pró­ senta hlut í nýja félaginu á móti nokkrum öðrum starfsmönnum sem líka störfuðu hjá gamla fyrir­ tækinu. Bjarni er þó ekki skráður í stjórn Atafls. Kári Arngrímsson er framkvæmdastjóri Atafls í dag, líkt og áður en fyrirtækið fór í þrot ,en Bjarni Pálsson er skráður starfs­ maður á fjármálasviði fyrirtækis­ ins. Samkvæmt heimasíðu Atafls virðist félagið hafa haft nóg fyrir stafni eftir bankahrunið. Má þar nefna framkvæmdir við lögreglu­ stöðina við Hverfisgötu, fram­ kvæmdir við Hrafnistu og smíði 60 íbúða við Sléttuveg fyrir Samtök aldraðra svo nokkuð sé nefnt. Þá keypti Atafl Mýrargötu 26 af Lands­ bankanum árið 2011 sem bank­ inn hafði leyst til sín eftir að Nýja Jórvík ehf., eigandi hússins, hafði verið úrskurðað gjaldþrota. Þar rís nú sjö hæða fjölbýlishús sem íbúar í nágrenninu hafa lýst yfir óánægju með á svokölluðum Slippreit en þar verða alls 68 íbúðir. n Hafhús keyrt í þrot n Fasteignafélag sem tengdist Atafli n Skuldaði Kaupþingi 2,7 milljarða Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is „Það gengur mjög vel að gera upp félagið. Ég hef verið að selja eignir Hafhúsa Áttu 40 íbúðir við Norðurbakka Á meðal eigna Hafhúsa ehf. voru 40 íbúðir við Norðurbakka 1 til 3 í Hafnarfirði sem skiptastjóri félagsins hefur nú selt. MyNd KristiNN MAGNússoN BYKO í lagi – Húsasmiðjan ekki Fulltrúar Neytendastofu heim­ sóttu byggingavöruverslan­ irnar BYKO á Skemmuvegi og Húsasmiðjuna í Skútuvogi á dögunum. Tilgangurinn var að fylgja eftir könnun sem gerð var í júní þar sem athugaðar voru verðmerkingar og sam­ ræmi milli hillu­ og kassaverðs á 25 vörum. Á vef Neytendastofu kemur fram að í verslun BYKO hafi vörur verið vel merktar. Í verslun Húsasmiðjunnar hafi annað verið uppi á teningnum þar sem verðmerkingar voru ekki í lagi og ósamræmi á milli hillu­ og kassaverðs hafi verið raunin í um tuttugu prósentum tilvika. Vörur hafi ekki verið á réttum stöðum og þá hafi vant­ að verðmerkingar víða. Má bú­ ast við því að Húsasmiðjan verði sektuð vegna þessa. Fjölgun um 15 prósent Gistinætur á hótelum í júní voru 239.800 og fjölgaði um 15 pró­ sent frá júní í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru tæplega 88 prósent af heildarfjölda gistin­ átta í mánuðinum en þeim fjölg­ aði um 17 prósent frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 5 prósent. Þetta kemur fram í tölum sem Hag­ stofa Íslands birti í vikunni. Utan höfuðborgarsvæðisins var aukning gistinátta hlutfalls­ lega mest á milli ára. Á höfuð­ borgarsvæðinu voru 143.400 gistinætur á hótelum í júní sem er aukning um 8 prósent frá sama mánuði í fyrra. Á Austur­ landi fjölgaði gistinóttum um 51 prósent í 17.000 á milli ára. Á samanlögðu svæði Vestur­ lands og Vestfjarða voru 14.100 gistinætur í júní sem er um 46 prósenta aukning frá fyrra ári. Á Norðurlandi voru 25.500 gistinætur í júní sem er um 44 prósenta aukning miðað við júní 2012. Gistinóttum á hótel­ um á Suðurlandi fjölgaði um um 9 prósent en þar voru gistinætur um 30.500 samanborið við 28.000 í júní 2012. Á Suðurnesj­ um voru 9.200 gistinætur í júní sem er um 8 prósenta aukning miðað við júní 2012. Gistinætur á hótelum fyrstu sex mánuði ársins 2013 voru 931.900 til samanburðar við 777.900 fyrir sama tímabil árið 2012. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 22 pró­ sent samanborið við sama tímabil 2012 á meðan gistinótt­ um Íslendinga hefur fjölgað um 12 prósent. Krónan Gjaldmiðillinn okkar styrktist nokkuð í júlímánuði, meðal annars um 4,1 prósent á móti Bandaríkjadal. MyNd: siGtryGGur Ari Var framkvæmdastjóri Athúsa Kári Arngrímsson, núverandi framkvæmdastjóri Atafls, sat í stjórn Athúsa (síðar Hafhúsa) og var jafnframt framkvæmdastjóri fasteignafélags- ins sem nú hefur verið úrskurðað gjaldþrota.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.