Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Page 14
Þrír mánuðir fyrir tugmilljónastuld 14 Fréttir 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað Fornminjar undir kirkju sem brann n Byggðasafn Hafnarfjarðar fær 400 þúsunda króna styrk úr Fornminjasjóði Milljarða styrkir ESB til Ís lands slegnir af Evrópusambandið hyggst ekki veita svokallaða IPA-styrki til verkefna hér á landi sem ekki hefur verið skrifað undir nú þegar. Ekki stendur þó til að hætta við verkefni sem þegar eru hafin. Áætlanir gerðu ráð fyrir að 3,5 milljörðum króna yrði varið í verkefni hér á landi vegna ár- anna 2012 og 2013 en heildar- upphæðin sem Íslandi stóð til boða var rúmlega 6 millj- arðar króna. Eftir að ný ríkis- stjórn gerði formlegt hlé á að- ildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið hefur fram- kvæmdastjórn þess áréttað við íslensk stjórnvöld að skilyrði fyr- ir IPA-styrkjunum séu að stefnt sé að inngöngu í sambandið. Um er að ræða styrki til byggða- og atvinnuþróunar auk verkefna sem tengdust þýð- ingum, uppbyggingu stjórn- sýslunnar og aðlögun vegna mögulegrar inngöngu í Evrópu- sambandið. Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að stjórnvöld hyggist bera kostnaðinn af framkvæmd sumra verkefnanna. Það eigi sérstaklega við verkefni á sviði atvinnu- og byggðaþróunar. Blikum refsað Bæjarráð Kópavogs sá ástæðu til að álykta sérstaklega um leikjafyrirkomulag Breiða- bliks í meistaraflokki karla í knattspyrnu. Mikið leikja álag hefur verið á liðinu undan- farnar vikur og er þar ekki síst frábærum árangri liðsins í Evrópukeppni um að kenna. Á sunnudag mætti liðið Fram í undanúrslitum bikarkeppn- innar þar sem Blikar biðu lægri hlut, 2–1. Aðeins þremur dögum áður, á fimmtudags- kvöldi, var liðið í Kasakstan þar sem leikið var gegn Akto- be. Þrátt fyrir beiðni Blika um að fá breytt leikjafyrirkomulag og meiri hvíld milli leikja varð Knattspyrnusamband Íslands ekki við þeirri ósk. „Bæjar- ráð Kópavogs fagnar árangri Breiðabliks í Evrópudeildinni í knattspyrnu en undrast að ekki hafi verið tekið tillit til óska Breiðabliks um breytt leikja- fyrirkomulag. Með því má segja að liðinu hafi verið refsað fyrir góðan árangur,“ segir í ályktun bæjarráðs. Krýsuvík Vinna við að hreinsa moldarlagið ofan af grunninum fer fram nú í ágúst. F ramkvæmdastjóri Vélsmiðju Hornafjarðar, Jón Ragnars- son, dró sér 44.493.476 krónur af bankareikningum félagsins. Fjárdrátturinn var framinn á tímabilinu 1. janúar 2008 til 15. apríl 2010. Þann 19. febrúar síðastliðinn var Jón dæmdur fyrir háttsemina til að sæta fangelsi í 18 mánuði, en fulln- ustu 15 mánaða af refsingunni var frestað og fellur því sá hluti henn- ar niður haldi hann skilorð. Hann þarf því að sitja inni í þrjá mánuði. Brot hans var talið varða við 247. gr. almennra hegningarlaga en há- marksrefsing fyrir brot gegn því ákvæði er sex ára fangelsi, en getur verið þyngri sé brotið sérlega stór- fellt. Eftir að upp komst um brotið játaði Jón það skýlaust, og hafði það áhrif á refsiþyngdina. Óvænt Jón hafði unnið hjá Vélsmiðjunni lengi, eða frá árinu 1990 og kom fjárdrátturinn vinnufélögum hans í opna skjöldu. „Jú, það gerði það. Maðurinn var búinn að sinna starfi sínu ágætlega – eða maður vissi ekki betur,“ segir Páll Valdemar Ólafsson, fyrrverandi samstarfs- félagi Jóns og eftirmaður hans í starfi framkvæmdastjóra. Páll tel- ur að hin ólögmæta háttsemi hafi hafist um það leyti sem Jón fluttist til Reykjavíkur og fór að sinna starfi sínu úr fjarlægð. „Hann eiginlega kom upp um sig sjálfur með því að standa ekki við einhver loforð sem hann hafði gefið í bankanum um greiðslu. Þá var farið að athuga hvert þeir peningar, sem hann átti að nota í ákveðinn hlut, hefðu far- ið. Þá kom í ljós að þeir hefðu bara farið beint inn á hans einkareikn- ing. Síðan var farið að skoða mál- ið betur, og sú skoðun leiddi í ljós að eitthvað óeðlilegt var í gangi,“ segir Páll og bætir við að í kjölfarið hafi bankinn látið hann og stjórnar- meðlimi félagsins vita. Loks hringdi Páll í Jón og spurði hann út í málið. „Hann sagði fyrst að þetta væri al- gjör misskilningur, en nokkru síðar lagði hann spilin bara á borðið og viðurkenndi brot sín.“ Skellur Vélsmiðja Hornafjarðar er fyrir- tæki sem veitir alla almenna bif- reiðaþjónustu og rekur vélsmiðju. Samkvæmt síðasta ársreikningi fé- lagsins, samþykktum 10. desem- ber 2012, var eigið fé félagsins í lok síðasta rekstrartímabils neikvætt um sex milljónir króna. Ljóst er að fyrir svo lítið fyrirtæki eru 44 millj- ónir miklir peningar. Í dómi hér- aðsdóms er Jón dæmdur til að endurgreiða alla upphæðina, með vöxtum. Páll er hins vegar ekki von- góður um að féð endurheimtist. „Nei, það er búið að rukka hann en hann ætlar ekki að borga neitt að því er virðist. Hann er þegar orðinn gjaldþrota og það er verið að vinna í því að endurheimta það sem hægt er að endurheimta,“ segir Páll og bætir við að með þessu hafi hann teflt framtíð fyrirtækisins í tvísýnu. „Hann setti náttúrulega fyrirtækið í algjört uppnám; sem lífsafkoma fjölda manns veltur á, segir Páll Valdemar Ólafsson að lokum í samtali við blaðamann.“ n n Framkvæmdastjóri Vélsmiðju Hornafjarðar sakfelldur fyrir fjárdrátt B yggðasafn Hafnarfjarðar hefur fengið styrk úr Fornminjasjóði að upphæð 400 þúsund krón- ur til áframhaldandi vinnu við uppgröft á grunnfleti Krýsu- víkurkirkju. Um þetta er fjallað á vef Hafnarfjarðarbæjar. Þar kemur fram að á síðastliðnu hausti hafi hafist á vegum Byggðasafnsins vinna við að hreinsa ofan af grunni gömlu kirkj- unnar í Krýsuvík, sem var byggð árið 1857, en kirkjan brann til kaldra kola árið 2010. Þessi rannsóknarvinna fór fram til þess að hægt væri að hlaða nýjar undirstöður undir endurgerða kirkju, sem er í smíðum hjá Iðnskóla Hafnarfjarðar. Við þá vinnu kom í ljós nokk- uð samfellt hellulagt svæði við vesturhlið grunnsins, sem virtist ná undir moldar- og steinalagið sem lá yfir grunninum. Þá var tek- ið þversnið í gegnum grunninn frá suðri til norðurs. Þar kom einnig fram samfellt hellulagt svæði sem var vel í samræmi við það sem var út frá vesturhlið grunnsins. Þá var einnig hægt að fylgja hellulögn sem liggur frá norðurhlið, lang- hlið grunnsins inn að miðju. Á vef Hafnarfjarðarbæjar kemur fram að komin sé nokkuð góð mynd af þessari hellulögn, og leiða megi líkur að því að þarna sé um nokk- uð samfellt hellugólf úr eldri kirkju að ræða sem liggur þá yfir öllum grunninum. Utan við langhliðar hins eigin- lega kirkjugrunns kom einnig í ljós hleðslukantur, sem ekki var sýni- legur áður en vinnan hófst og engar heimildir voru um hann. Nú í ágúst mun fornleifafræðing- ur Byggðasafnsins ásamt tveimur nemum í fornleifafræði vinna að því að hreinsa moldarlagið ofan af grunninum og fá fram allt hellu- gólfið. Einnig að fá fram ytri hleðslur kirkjugrunnsins svo hægt sé að sjá heildarmynd þeirra. Að þessu loknu verður hafist handa við að hlaða grunn undir nýju kirkjuna sem gæti verið flutt á sinn stað á vetri komanda. n Stal 44 milljónum Jón hafði unnið hjá Vélsmiðjunni í rúmlega 20 ár. Fjárdrátturinn kom vinnu­ félögum hans í opna skjöldu. Baldur Eiríksson blaðamaður skrifar baldure@dv.is „Maðurinn var bú- inn að sinna starfi sínu ágætlega – eða maður vissi ekki betur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.