Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Page 19
Fréttir 19Helgarblað 9.–11. ágúst 2013
Óbærilegur hiti Hitinn í Sjanghæ í Kína fór í 41,1 gráðu síðastliðinn þriðjudag og var nánast óbærilegt að vera utandyra þann
daginn. Þessi kona notaði regnhlíf til að verjast sterkum sólargeislunum. Þessi gata er yfirleitt fjölfarin en fáir voru á ferli þennan daginn.
Spáð er áframhaldandi hitabylgju í Sjanghæ og verður hitinn um eða yfir 40 gráður næstu daga.
Beðið eftir aðstoð Gassprenging varð í íbúðabyggingu í Rosario í Santa Fe-héraði Argentínu á þriðjudag með þeim afleiðing-
um að sex létust og yfir fimmtíu slösuðust – þar af margir alvarlega. Slökkviliðsmenn unnu baki brotnu við að bjarga fólki úr byggingunni en
talið er að margir hafi orðið undir braki þegar hluti byggingarinnar hrundi.
Barist við elda Skógareldar hafa geisað á Grikklandi undanfarnar vikur og á
mánudag börðust slökkviliðsmenn við elda í nágrenni höfuðborgarinnar Aþenu. Yfirvöld
hafa meðal annars notast við flugvélar og þyrlur til að berjast við eldana og á meðfylgjandi
mynd má einmitt sjá flugvél losa þúsundir lítra af vatni á eldhafið. Að minnsta kosti þrjú hús
hafa orðið eldinum að bráð í bænum Maraþon.
Má bjóða þér? Mark Post prófessor heldur hér stoltur á fyrsta hamborgaranum
sem búinn var til á tilraunastofu. Borgarinn var búinn til úr stofnfrumum úr kýrvöðva og bragð-
aðist nokkuð vel að sögn þeirra sem fengu að bragða á honum. Hamborgarinn kostaði þó sitt,
eða um 30 milljónir króna, en Mark Post segir að mögulega verði hægt að framleiða kjöt með
stofnfrumum. Það sé hagkvæm leið í baráttunni gegn hækkandi matvælaverði í heiminum.
Óheppni
Slysin gera svo
sannarlega ekki
boð á undan sér
og það átti við
í tilfelli gröfu-
manns í borginni
Montreal í Kanada í
vikunni. Skyndilega
opnaðist hola (e.
Sinkhole) undir
gröfunni og eins og
sést á meðfylgjandi
mynd fór grafan á
hliðina. Sem betur
fer urðu engin slys
á fólki.
Fréttamyndir vikunnar
Ljósmyndarar Reuters eru alltaf á vaktinni og
fanga myndir af því helsta sem gerist í öllum heims -
hornum. DV birtir hér brot af því besta frá liðinni viku.