Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Side 22
22 Sport 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað
n Real Madrid, Paris St. Germain og AC Milan eiga tvo leikmenn hvert lið á listanum
10 efnilegustu
leikmennirnir
Neymar
Aldur: 21
Félag: Barcelona
n Það verður spennandi að fylgjast með
Neymar í stjörnum prýddu liði Barcelona í
vetur. Eftir stórbrotna frammistöðu í Álfu-
keppninni þar sem Brassar fóru með sigur
af hólmi reikna margir með því að Neymar
sé tilbúinn fyrir stóra sviðið. Það er augljóst
að pressan á hann er mikil en hann ætti
að geta myndað eitt eitraðasta sóknarpar
heims með Lionel Messi.
Christian Eriksen
Aldur: 21
Félag: Ajax
n Eriksen er samherji Kolbeins Sigþórssonar
hjá Ajax – ennþá að minnsta kosti. Fjöldi
stórliða hefur áhuga á þessum sókndjarfa
danska miðjumanni. Eriksen var valinn
leikmaður ársins í Hollandi árið 2011 og hefur
verið algjör lykilmaður í liði Ajax undanfarin
ár. Spurningin er einungis hvenær – ekki
hvort – eitthvert lið gerir ómótstæðilegt til-
boð í leikmanninn. Félög eins og Manchester
United og Liverpool eru sögð áhugasöm.
Mario Götze
Aldur: 21
Félag: FC Bayern
n FC Bayern vann alla titla sem í boði voru
í fyrra og liðið verður ekkert síðra í ár. Mario
Götze gekk í raðir Bayern frá Borussia Dort-
mund þar sem þessi sóknarsinnaði miðju-
maður sló rækilega í gegn. Götze getur búið
til hluti úr nánast engu, er jafnvígur með
hægri og vinstri og skorar mörk reglulega.
„Hann getur hlaupið framhjá varnarmönn-
um eins og þeir séu ekki til. Honum svipar
til Lionel Messi hvað varðar leikskilning
og tækni,“ sagði Franz Beckenbauer um
nýjasta liðsmann Bayern.
Oscar
Aldur: 21
Félag: Chelsea
n Brasilíumenn hafa stundum átt erfitt
með að aðlagast hraðanum í ensku úrvals-
deildinni en Oscar kom sem stormsveipur
inn í Chelsea-liðið í vetur. Þessi sóknar-
sinnaði miðjumaður átti flotta leiktíð með
Chelsea í fyrra og á aðeins eftir að verða
betri á komandi tímabili. Hann er klókur
í að opna glufur í vörn andstæðinganna
með sprettum sínum eða hnitmiðuðum
sendingum. Hann skoraði mark ársins hjá
Chelsea þegar hann skoraði gegn Juventus í
Meistaradeildinni í september í fyrra.
Isco
Aldur: 21
Félag: Real Madrid
n Það verður spennandi að fylgjast með
Isco í liði Real Madrid í vetur. Isco er einn
allra efnilegasti leikmaður Spánverja en
hann sló í gegn með Malaga í Meistara-
deildinni í vetur. Isco hefur þegar sýnt hvað
í honum býr í treyju Real Madrid en hann
hefur átt glimrandi góða leiki á undirbún-
ingstímabilinu. Þó að í liði Real séu margir
frábærir leikmenn þarf Isco ekki að hafa
miklar áhyggjur af því að fá ekki að spila
nóg.
Mattia De Sciglio
Aldur: 20
Félag: AC Milan
n De Sciglio er einn allra efnilegasti varnar-
maður Ítala en þessi leikmaður er þegar
orðinn fastamaður í ítalska landsliðinu.
Hann er einnig í miklum metum í Mílanó þar
sem hann leikur í treyju númer 2 sem goð-
sagnakenndir leikmenn á borð við Mauro
Tassotti og Cafú hafa klæðst. Hann getur
spilað sem miðvörður eða hægri bakvörður
þar sem honum líður best.
Lucas Moura
Aldur: 20
Félag: Paris St. Germain
n Moura gekk í raðir Parísarliðsins í janúar
og sýndi flott tilþrif seinni hluta síðasta
tímabils. Moura er eldfljótur Brasilíumaður
með frábæra tækni. Það er ljóst að Paris St.
Germain verður til alls líklegt í vetur með
Moura á kantinum og Zlatan Ibrahimovic
og Edinson Cavani í fremstu víglínu – já og
líka Ezequiel Lavezzi og Javier Pastore með
í sókninni.
Stephan El Shaarawy
Aldur: 20
Félag: AC Milan
n El Shaarawy er liðsfélagi De Sciglio en
sýnir listir sínar á hinum enda vallarins
– í framlínunni. Þessi gríðarlega efnilegi
sóknarmaður átti flotta leiktíð með Milan
í fyrra þar sem hann skoraði 19 mörk í
46 leikjum. Það er búist við miklu af El
Shaarawy sem eldfjótur og tæknilega góður
leikmaður. Kevin-Prince Boateng, liðsfélagi
Shaarawy, sagði til að mynda að Shaarawy
gæti auðveldlega fyllt það skarð sem Zlatan
Ibrahimovic skildi eftir sig.
Raphael Varane
Aldur: 20
Félag: Real Madrid
n Varane er að öðrum ólöstuðum efnileg-
asti varnarmaður. Hann er í raun ekki lengur
efnilegur heldur frábær knattspyrnumaður.
Varane sýndi flott tilþrif með Real Madrid
í vetur en hann gekk í raðir félagsins frá
Lens. Zinedine Zidane, aðstoðarstjóri Real
Madrid, hefur látið hafa eftir sér að Varane
sé besti varnarmaður Frakka síðan Laurent
Blanc var upp á sitt besta. Það eru ekki
slæm meðmæli.
Marco Verratti
Aldur: 20
Félag: Paris St. Germain
n Marco Verratti hefur verið líkt við Andrea
Pirlo, einn besta miðjumann í sögu Ítalíu.
Þó að Verratti þurfi að gera helling til að
verðskulda þá samlíkingu leikur enginn vafi
á að hann hefur hæfileikana sem til þarf.
Verratti er aðeins 1.65 á hæð en er samt eins
og kóngur í ríki sínu á miðju Parísarliðsins.
Hann býr yfir frábærum sendingum og
góðum leikskilningi. Verratti er nafn sem
allir knattspyrnuáhugamenn ættu að leggja
á minnið.