Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Blaðsíða 42
34 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað
ára stúlka var sennilega fórnarlamb Bandaríkjamannsins Donalds Leroy Evans. Árið 1991 var hann
handtekinn fyrir að ræna stúlku að nafni Beatrice Routh. Hann játaði að hafa banað henni, sýndi lögreglunni hvar hann
hafði falið líkið og til að kóróna allt viðurkenndi hann að hafa myrt yfir 70 manns í 20 fylkjum. Yfirvöld voru efins um
sannleiksgildi frásagnar hans en að minnsta kosti lýsingar á tveimur morðum komu heim og saman við óleyst mál. Hann
var dæmdur til dauða, árið 1993, fyrir morðið á Beatrice. Hann hlaut annan dóm árið 1995 fyrir morðið á Ira Jean Smith.10
M
eð nokkurri vissu má
fullyrða að ekki hafi
verið allt með felldu í
Schwartz-fjölskyldunni
í Leesburg í Virginíu-
fylki í Bandaríkjunum. Höfuð fjöl-
skyldunnar var Robert Schwartz,
vel þekktur vísindamaður á sviði
lyfjafræði og DNA-rannsókna.
Hann átti þrjú börn; Catherine
Michele, Jesse og Clöru Jane. Sem
fyrr segir var Robert vel kunnur og
var meðal annars einn stofnenda
Líftæknifræðisambands Virginíu.
En öll hans afrek á þessum sviðum
höfðu lítið að segja þegar upp var
staðið, í það minnsta hvað varðaði
hans eigin lífslíkur.
Ekki þarf að leita langt yfir
skammt
Þann 8. desember, 2001, var
Robert Schwartz stunginn til bana
með sverði á heimili sínu en lík
hans fannst þó ekki fyrr en tveim-
ur dögum síðar. Þremur dögum
eftir morðið hafði 19 ára stúlka,
Katherine Inglis, samband við lög-
regluna og samkvæmt yfirlýsingu
hennar var Clara Jane, þá tvítug,
viðriðin morðið á föður sínum.
Katherine Inglis fullyrti að Clara
hefði rætt að myrða föður sinn við
sig, 21 árs vin þeirra, Michael Pfohl,
og Kyle Hulbert, 18 ára.
Að sögn Katherine var ástæðan
sú að Robert hafði lagt hendur á
Clöru. En Clöru grunaði einnig að
faðir hennar hygðist byrla henni
eitur.
Þrískipt ákæra
Þegar þarna var komið við sögu var
Clara á öðru ári í James Madison-
háskólanum, ekki að sú staðreynd
skipti nokkru máli. Það sem aftur
á móti skiptir mál er að hún var
handtekin, og sökuð um morðið á
föður sínum 2. febrúar 2002.
Clara var þó ekki formlega
ákærð fyrir morðið fyrr en 31. mars
það sama ár og samtímis var hún
ákærð fyrir ráðabrugg um að fremja
morð og að hvetja til morðs – hér
yrði ekki teflt í tvísýnu af hálfu sak-
sóknara.
Fyrir höfðu Katherine Inglis,
Michael Pfohl og Kyle Hulbert ver-
ið ákærð fyrir morðið á Robert
Schwartz.
Bandarískir fjölmiðlar fylgdust
vel með málinu vegna þess að um
var að ræða þekktan vísindamann
en ekki síður fyrir þær sakir að sú
fiskisaga fékk vængi að morðið
tengdist hlutverkaleik og virtist
sveipað dulúð.
Undirheimar
Clara varð þess heiðurs aðnjótandi
að fara fyrst sakborninga fyrir dóm,
í október 2002. Ákæruvaldið lýsti
henni sem stjórnsamri ungri konu
sem nýtt hefði hlutverkaleik sinn,
Undirheima, til að fá vini sína til að
fyrirkoma pápa gamla.
Saksóknarar fóru ekki í launkofa
með skoðun sína; „Clara Schwartz
óskaði föður sínum dauða, hún
hafði hatað hann til langs tíma“ og
eftir að hafa mistekist að fá Patrick
nokkurn, vin sinn, til verksins fyllt-
ist hún nánast örvæntingu – þeim
gamla yrði að stúta.
Verjendur Clöru voru, eðli
málsins samkvæmt, á öndverðum
meiði. Þeir héldu því fram að sá
sem banaði Robert Schwatz, Kyle
Hulbert, hefði í hlutverkaleiknum
slitið tilmæli Clöru um að myrða
föður hennar úr samhengi; „Clara
Jane Schwatz ætlaðist aldrei til að
nokkur myrti föður hennar.“
Kannaði eiturjurtir
En saksóknarar bjuggu að eðalvitni,
áðurnefndum Patrick, sem var
ómyrkt í máli. Patrick bar fyrir dómi
að Clara hefði sýknt og heilagt talað
um að myrða föður sinn. Hún hefði
meira að segja lagst í rannsóknir á
eitruðum jurtum því henni hefði
verið mikið í mun að dauði hans
virtist eðlilegur – eða þannig.
Einnig hafði Clara, að sögn Pat-
ricks, talað mikið um hve mikið
fé hún myndi erfa við fráfall föð-
ur síns, en hafði reyndar lýst yfir
áhyggjum af því að hann gerði hana
arflausa.
Patrick sagði að Clara hefði verið
með böggum hildar því hann hefði
ekki viljað lúta vilja hennar og sagði
að Clara hefði að lokum fundið vilj-
ugt verkfæri – Kyle Hulbert.
Dómur
Hinn 16. október, 2002, komst kvið-
dómur að þeirri niðurstöðu að
Clara væri sek og var hún sakfelld.
Dómur yfir henni féll 10. febrúar,
2003, og var hún dæmd til 48 ára
fangelsisivistar. Lausnardagur
hennar hefur, með fyrirvara, verið
uppgefinn; 2. nóvember 2043.
Clara hefur árangurslaust áfrýj-
að dómnum sem var síðast stað-
festur af bandarískum áfrýjunar-
dómstól 9. mars 2010.
Kyle Hulbert fékk lífstíðardóm
og Michael Pfohl fékk 20 ára dóm
fyrir sinn snúð. Katgerine Inglis af-
plánaði eins árs dóm.
Þannig fór um sjóferð þá. n
„Clara
Schwartz
óskaði föður sín-
um dauða, hún
hafði hatað hann
til langs tíma.
n Robert Schwartz var rekinn á hol með sverði
föðurmorð
Clara Schwartz Fékk sínu framgengt að lokum.
Kyle Hulbert
Vann verkið fyrir
Clöru.