Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Blaðsíða 55
Fólk 47Helgarblað 9.–11. ágúst 2013
Óbærilega erfitt
Brjánn boðar blíðu
n Ylfa Lind er dragkóngur Íslands n Glímir við sjálfsofnæmissjúkdóm
S
teinunn Ólína ætlaði aldeilis
að gerast prjónakona kviss
bamm búmm á dögunum
eftir skemmtilega heimsókn
á heimilisiðnaðarsafnið á Blöndósi.
Fylltist hún innblæstri og tók upp
prjónana. Það gekk þó ekki að ósk-
um og þolinmæðina þraut all svaka-
lega. Vinir hennar á Facebook fengu
að fylgjast með ósköpunum.
„Þetta er óbærilega erfitt,“ sagði
Steinunn Ólína og birti mynd af sér
að höndla prjónana. Klukkutíma
seinna birti hún afrakstur mikill-
ar vinnu sem voru fáeinar lykkjur.
„Þetta er held ég orðið gott,“ sagði
hún. „Getur ekki einhver nýtt þetta ef
ég felli af núna? Tilvalið vinaband!“
Hún hélt áfram vangaveltunum
eftir erfiðið. „Hvernig gat fólk prjón-
að úr einbandi á ofurfína prjóna í
algjöru ljósleysi í baðstofum fyrr á
öldum. Sá fólk eitthvað betur eða?“
Steinunn Ólína er þó ekkert á því
að gefast upp og ætlar að þrauka
áfram í prjónaskap. n
Tilbúinn í
afahlutverkið
Söngvarinn og eilífðartöffarinn
Helgi Björnsson á von á sínu fyrsta
barnabarni í vetur. Í viðtali við Séð
og heyrt segist hann hlakka til að
takast á við nýtt hlutverk. „Maður
er alveg tilbúinn í afahlutverkið
og ég hlakka mikið til. Ætli mað-
ur eigi ekki eftir að spilla barninu
með dekri, það er hætt við því,“
segir hann í samtali við tímaritið.
Það er elsti sonur hans, Orri, sem
á von á barni með unnustu sinni,
Kristínu Maríellu Friðjónsdóttur.
Stjörnufans
á Suðureyri
Um helgina verður einleikjahátíð-
in Act Alone haldin í tíunda sinn í
sjávarþorpinu Suðureyri. Búist er
við fjölmenni á hátíðinni en með-
al þekktra nafna sem sækja ætla
hátíðina í ár eru Bjartmar Guð-
laugsson tónlistarmaður, Björn
Hlynur Haraldsson leikari og eig-
inkona hans, Rakel Garðarsdóttir,
framkvæmdastýra Vesturports,
Mugison, Margrét Örnólfsdóttir
leikkona og eiginmaður hennar,
leikarinn Friðrik Friðriksson, Ilmur
Kristjánsdóttir og Víkingur Krist-
jánsson svo einhverjir séu nefndir.
Frægir
hlaupagarpar
Reykjavíkurmaraþon Íslands-
banka fer fram þann 4. ágúst
næstkomandi. Fjölmargir hafa
skráð sig til leiks og þar á meðal
eru nokkur þekkt andlit. Má þar
nefna Smartlandsstýruna Mörtu
Maríu, lögfræðinginn Svein
Andra Sveinsson, stórleikarann
Ólaf Darra, yfirplöggarann Jón
Gunnar Geirdal, Nínu Dögg Fil-
ippusdóttur leikkonu, Hrannar
Björn Arnarsson og Lovísu Ósk
Gunnarsdóttur dansara.
Erfitt! Svipbrigðin lýsa tilfinn-
ingum Steinunnar Ólínu vel sem
finnst prjónaskapurinn allt annað
en auðveldur. Hún ætlar þó ekki að
gefast upp.
n Steinunn Ólína dembir sér í prjónaskap með látum
Tilvalið vinaband „Getur ekki einhver nýtt
þetta ef ég felli af núna?“
D
ragkeppni Íslands fór
fram miðvikudags-
kvöldið 7. ágúst í Eld-
borgarsal Hörpu. Þetta
er í 16. skiptið sem
keppnin er haldin og þriðja
skiptið í Hörpu. Keppnin mark-
ar upphafið að Gay Pride-hátíð-
inni.
Þema keppninnar í ár var
Beauty is pain (And i´m in a lot of
pain), ellefu kepptu og kynnirinn
var engin önnur en Diva Jackie
Dupree sem kom beint frá New
York til að vera með íslenskum
dragkóngum og -drottningum í
ár en Jackie er þekktur skemmti-
kraftur á Manhattan.
Dragdrottningar ársins urðu
Márky Cántalejo og Chris Mercado
sem skipuðu dúettinn Foxy Ladies.
Dragkóngur Íslands varð svo Ylfa
Lind Gylfadóttir í gervi Brjáns
Hróðmarssonar. Ylfu Lind kannast
margir landsmenn við af góðu en hún
gerði garðinn frægan í Idol árið 2005.
„Þetta var hann Brjánn
Hróðmarsson, hann er maður á
besta aldri sem finnst hann þurfa
að koma skilaboðum til kynbræðra
sinna. Hann vill leiðbeina öðrum
karlmönnum um meðferð á konum
og vill að þeir sýni þeim blíðu. Það
sé lykillinn að lífinu,“ segir Ylfa Lind
í spjalli við blaðamann um glæsta
framkomu á kvöldinu sem skilaði
henni titlinum.
Fleiri stelpur taka þátt
Ylfa Lind segir æ fleiri stelpur taka
þátt í keppninni. „Upphaflega voru
þetta strákarnir í felum að fara í
drag en nú er þetta allt fyrir opn-
um tjöldum, stelpurnar með og allir
jafnir. Þetta er flott keppni. Stelpurn-
ar verða fleiri og fleiri og það kem-
ur reglulega nýtt blóð í þetta. Hefur
þróast og er reglulega flott keppni
sem við getum verið stolt af.“
Ylfa Lind segir Brján ætla að
mæta galvaskan í gleðigönguna.
„Brjánn mætir með vini sína með
sér, einhverja iðnaðarmenn úr bóka-
klúbbnum sínum,“ segir hún og hlær.
Með sjálfsofnæmissjúkdóm
Ylfa Lind hefur látið lítið fara fyrir
sér síðan hún tók þátt í Idol. Hún
hefur þó unnið titilinn dragkóng-
ur ársins áður, árið 2007 þegar hún
brá sér í gervi Heródesar konungs.
„Ég er búin að vera í því hlutverki að
ala upp börn. Ég á einn strák og svo
hjálpa ég systur minni með barnið
hennar.
Ég er annars búin að vera í
löngu veikindafríi. Ég er með
sjálfsofnæmis sjúkdóm sem kallast
rauðir úlfar. Sá sjúkdómur getur
tekið hressilega á, en þessa dagana
reyni ég að bæta mataræði og auka
við hreyfingu til að vinna gegn sjúk-
dómnum,“ segir Ylfa Lind og von-
ast til að fólk mæti og styðji Brján á
laugardaginn. n
Dragdrottningar Íslands Dragdrottn-
ingar ársins urðu Márky Cántalejo og Chris
Mercado sem skipuðu dúettinn Foxy Ladies.
Dragkóngur Íslands Ylfa Lind Gylfadóttir
brá sér í gervi hins blíðlynda Brjáns.
MynDir: PrESSPHoToS/GEirix
Stjarna frá new york
Kynnirinn var engin önnur
en Diva Jackie Dupree.