Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 23
Helgarblað 31. janúar 2014 Fréttir 23 Þ egar X-listinn hætti að starfa með vinstri stjórn- inni í Kópavogi árið 2012 fóru í gang meirihlutavið- ræður milli Samfylkingar og Vinstri grænna við Sjálfstæðis- flokkinn. DV hefur heimildir fyrir því að í þeim viðræðum hafi ein helsta krafa Sjálfstæðismanna ver- ið að lokið yrði við frístundahús Skógræktarfélags Kópavogs í Guð- mundarlundi. Bragi Mikaelsson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi, er formaður Skógræktar- félagsins sem og verktaki hjá fé- laginu. Frístundahús Skógræktar- félagsins er rétt svo fokhelt og hafa framkvæmdir í kringum það, sem staðið hafa yfir í tæplega fimm ár, nú þegar kostað um áttatíu milljón- ir króna. Kópavogsbær hefur lagt til stóran hluta byggingarkostnaðar- ins. Fermetrinn kostar 500.000 kr. Skógræktarfélag Kópavogs og Kópa- vogsbær gerðu samning árið 2006, meðan Gunnar Ingi Birgisson var bæjarstjóri, um byggingu frístunda- heimilis og hófust framkvæmdir sumarið 2009. Talið er að um fimmtíu milljónir króna þurfi til viðbótar til að ljúka við fram- kvæmdina. Heildarverð byggingar frístundaheimilisins yrði þannig um hundrað og þrjátíu milljónir króna. Húsið er rúmlega tvö hund- ruð og fimmtíu fermetrar og þýð- ir það að byggingarkostnaður verði rúmlega fimm hundruð þúsund krónur á fermetra. Til samanburð- ar þá var verð í Hörpu sex hundruð þúsund á fermetrann. Ármann lagði áherslu á fjármögnun Samkvæmt heimildum DV lagði Ármann Kr. Ólafsson, bæjar- stjóri Kópavogs, mikla áherslu á að fá fjármagn til þess að ljúka við byggingu frístundaheimilis- ins við afgreiðslu fjárhagsáætl- unar Kópavogs í desember. Þegar í ljós kom að byggingarkostnað- ur væri orðinn mikill lagði minni- hluti kjörinna fulltrúa í tvígang fram fyrirspurnir um sundurliðun á byggingarkostnaði, hverjir stjórni og vinni verkið auk þess sem farið er fram á að lagðir séu fram verk- samningar við verktaka. Svo fór að meirihluti bæjarfulltrúa felldi aukna fjárveitingu til byggingar frí- stundaheimilisins. Skýrði styrkveitingu sem leigu til framtíðar Ármann lagði til að gerður yrði samningur við Skógræktarfélagið þess eðlis að félagið myndi missa öll afnot af húsinu í fimmtán ár og að Kópavogsbær myndi reka það. Skýrði hann málið svo að styrk- veiting bæjarins væri því í raun leiga fyrir afnot af húsinu næstu árin. Skógræktarfélagið hafnaði þeim samningi. Nú eru uppi hug- myndir þess efnis að nota húsnæð- ið sem leikskóla. Reyna að réttlæta fjárstyrki „Þeir í Skógræktinni hafa leitað til bæjarins með alls konar hugmyndir um hvernig megi réttlæta að setja pening í að klára þetta hús. Skoðun okkar í Samfylkingunni er sú að við höfum samúð með þeim í Skóg- ræktinni hvað þetta varðar en það er ekki Kópavogsbæjar að hlaupa undir bagga,“ segir Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylk- ingar, í samtali við DV. Hún segir Skógræktina ekki vera einu sam- tökin í Kópavogsbæ sem eigi í fjár- magnserfiðleikum og í því sam- hengi verði að gæta jafnræðis. Bragi hefur fengið háar greiðslur „Ég var ráðinn sem verktaki hjá Skógræktarfélagi Kópavogs árið 2009 og búinn að starfa fyrir þá síðan. Þetta er bara hlutastarf allt árið; stundum lítið, stundum ekk- ert. Ástæðan fyrir því er að það er langhagkvæmast,“ segir Bragi Mika- elsson í samtali við DV. Hann blæs á þá gagnrýni að greiðslur til hans séu óeðlilega háar. „Launakjör mín miðast út frá tvö þúsund og fimm hundruð á tímann auk annarra eðlilegra gjalda sem ber að skila,“ segir hann. Samkvæmt heimildum DV hefur Bragi Mikaelsson lagt mikla áherslu á að fá stuðning Kópavogsbæjar til að ljúka byggingu frístundaheimil- isins. Bragi er líkt og fyrr segir for- maður Skógræktarfélagsins sem og verktaki hjá Skógræktarfélagi Kópa- vogs. Hann er fyrrverandi bæjar- fulltrúi í Kópavogsbæ og áhrifa- maður meðal sjálfstæðismanna í bæjar félaginu. Hann er auk þess einn helsti bandamaður Ármanns bæjar stjóra. Samkvæmt hluta bæjar fulltrúa í Kópavogsbæ þykja þær greiðslur sem Bragi hefur fengið fyrir störf sín óhóflegar en erfiðlega hefur gengið að fá upp- lýsingar um hve háar þær eru. Bragi segir kostnað byggingar frístundahússins vera innan allra þeirra marka sem lagt hafi verið upp með. „Það var gerð kostnaðar- áætlun fyrir verkið á sínum tíma og þessi kostnaður er allur innan þeirra marka,“ segir hann. Að sögn Braga hefur ekki gengið illa að fjármagna framkvæmdirnar. „Það hefur bara gengið illa vegna þess að bærinn hefur ekki komið með það fjármagn sem gert var ráð fyrir að hann kæmi með inn í þetta,“ segir Bragi. Hann segir þá tillögu um að nýta húsið sem leikskóla hafi komið frá bænum en ekki Skógræktinni. Málið er nú í vinnslu hjá bænum samkvæmt Braga Skógræktin fer fram á tíu milljónir til viðbótar Í bréfi Skógræktarfélagsins til bæjar- ráðs, sem DV hefur undir hönd- um, kemur fram að það hafi verið mikil vonbrigði fyrir félagið þegar bæjar stjórn afgreiddi fjárhagsá- ætlun ársins 2014, í nóvember, að hluti bæjarfulltrúa skyldi fella fjár- veitingu við byggingu frístunda- heimilisins við afgreiðslu í bæjar- stjórn. Í bréfinu fer félagið fram á stuðning bæjar stjórnar upp á tíu milljónir króna, fyrir framkvæmd- um félagsins á árinu 2013 og kvitt- ar Bragi Mikaelsson undir bréfið. n Bandamaður fær fé frá skógrækt Ármann Kr. Ólafsson hefur lagt áherslu á fjármögnun frístundaheimilis Skógræktar Kópavogs Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Bandamenn DV hefur heimildir fyrir því að einn helsti bandamaður Ármanns Ólafssonar,núverandi bæjarstjóra Kópavogs, sé Bragi Mikaelsson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi og Skógræktarfélags Kópavogs. Hófst 2009 Guðríður segir að þeir hjá Skógræktinni hafi leitað til bæjarins með alls konar hugmyndir um hvernig réttlæta mætti að leggja meira fé í húsið. Framkvæmdir við húsið hófust 2009, þegar Gunnar Birgisson var bæjarstjóri í Kópavogi. Rétt svo fokhelt Framkvæmdir við frístundaheimili Skógræktar Kópavogs hafa staðið yfir í tæplega fimm ár og hafa kostað um áttatíu milljónir króna.Mynd SigtRygguR ARi „Launakjör mín miðast út frá tvö þúsund og fimm hund- ruð á tímann auk annarra eðlilegra gjalda sem ber að skila. Ákærð fyrir umboðssvik Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi forstjóri Landsbankans, og Sig- ríður Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Landsbankans, hafa verið ákærð fyrir umboðssvik. Greint er frá þessu á fréttavef Ríkisútvarps- ins en mál þeirra verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur 3. febrúar næstkomandi og er það embætti sérstaks saksóknara sem ákærir þau. Fréttastofa Ríkisút- varpsins segir málið snúast um meint umboðssvik þeirra Sigur- jóns og Sigríðar Elínar með því að heimila Landsbanka Íslands að gangast í ábyrgð fyrir aflandsfélag sem var í eigu bankans. Sjóðir GAMMA eiga 350 íbúðir Sjóðir í eigu GAM Management, eða GAMMA, eiga um 350 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu, eða ríf- lega 190 fleiri íbúðir en fullyrt er á heimasíðu félagsins. Frá þessu var greint í Kjarnanum á fimmtudag þar sem fjallað var um GAMMA um það sem tímaritið kallar spá- kaupmennsku félagsins með íbúðarhúsnæði. DV hefur fjall- að um stórfelld kaup GAMMA á fasteignum miðsvæðis í Reykja- vík. Nánar tiltekið í miðbænum, Vestur bænum, Hlíðunum og Norðurmýrinni. Þegar DV fjallaði um málið hafði fyrirtækið keypt 140 íbúðir á þessum svæðum fyrir fjóra millj- arða króna á aðeins nokkrum mánuðum. Nokkrum mánuðum síðar keypti GAMMA tvær íbúðar- blokkir í Kópavogi í heilu lagi og bætti þar við 56 íbúðum til við- bótar. Í apríl í fyrra keypti sjóður á vegum GAMMA húsnæði Lands- bankans við Laugaveg 77 þar sem upphaflega stóð til að reisa lúx- ushótel. Nú stendur til að reisa þar sex þúsund fermetra húsnæði á lóðinni sem verður blanda af íbúðar- og verslunarhúsnæði. Flestar íbúðir á GAMMA eru í miðbæ Reykjavíkur eða 70 talsins. Auglýsa eftir lögreglumönnum Embætti ríkislögreglustjóra hefur auglýst 24 stöður lögreglumanna lausar til umsóknar. Stöðurnar eru hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða þrjár rannsóknarlögreglu- stöður en annars eru það stöður lögreglumanna á vöktum. Ráð- ið verður í stöðurnar til reynslu í sex mánuði en með möguleika á skipun að þeim tíma loknum. „Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls inn- an lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstak- lega hvattar til að sækja um,“ seg- ir í auglýsingunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.