Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 47
Helgarblað 31. janúar 2014 Sport 47
Eru þEtta tíu bEstu
janúarkaupin?
n Félagskiptaglugginn hefur stöku sinnum reynst ensku liðunum vel
8 Steven PienaarLánaður til: Everton
Kom frá: Tottenham
Ár: 2012
n Vængmaðurinn átti góðan tíma hjá
Everton, undir stjórn David Moyes, á
árunum 2008 til 2011. Hann vakti athygli
annarra liða og var seldur til Tottenham
2011. Þar fann hann sig engan veginn og var
lánaður aftur til Everton eftir aðeins tólf
mánaða dvöl í London. Hann skoraði ekki
eitt deildarmark fyrir Tottenham en setti
fjögur á útmánuðum fyrir Everton, og var
um sumarið aftur keyptur til liðsins. Þar
leikur hann enn.
7 Adam JohnsonKeyptur til: Manchester City
Kom frá: Middlesbrough
Ár: 2010
n Fyrir nokkrum árum var Adam Johnson
einn efnilegasti vængmaður Englendinga.
Á lokadegi félagaskiptagluggans í janúar
2010 gekk þessi fyrrverandi leikmaður
Middlesbrough í raðir Manchester City, fyrir
sjö milljónir punda. Þar lék hann í tvö ár og
skoraði 11 mörk í 73 leikjum. Hann var í City-
liðinu sem varð deildarmeistari leiktíðina
2011–2012 og skoraði sex mörk það árið. En
samkeppnin er hörð í Manchester-borg og
hann var seldur til Sunderland 2012.
6 Andrey ArshavinKeyptur til: Arsenal
Kom frá: Zenit St. Petersburg
Ár: 2009
n Arsenal kom líklega flestum á óvart með
því að spandera fimmtán milljónum punda
á lokadegi félagaskiptagluggans í janúar
2009. Til að byrja með reyndust kaupin frá-
bærlega. Arshavin skoraði sex mörk og átti
níu stoðsendingar í fimmtán leikjum þann
vetur. Leiktíðina 2010–2011 var hann frábær
og skoraði 10 mörk auk þess að leggja upp
heil sautján. En þá fór að halla undan fæti
og hann naut ekki lengur náðar Wengers.
Hann fór aftur til Zenit 2011.
5 Jermain DefoeKeyptur til: Portsmouth
Kom frá: Tottenham
Ár: 2008
n Harry Redknapp fékk framherjann
Jermain Defoe til félagsins í janúar til þess
að halda öðrum leikmönnum á tánum í
aðdraganda bikarúrslitaleiksins í FA Cup.
Defoe hafði leikið í bikarnum með Totten-
ham og mátti því ekki spila í þeirri keppni
fyrir Portsmouth. En fimmtán mörk skoraði
hann í 31 leik fyrir Redknapp í deildinni og
myndaði eitrað framherjapar með sóknar-
manninum hávaxna, Peter Crouch.
4 Daniel SturridgeLánaður til: Bolton
Kom frá: Chelsea
n Bolton var í fallbaráttu árið 2010–2011. Í
þeirri viðleitni sinni að halda sér uppi fengu
þeir hinn stórefnilega Daniel Sturridge að
láni frá Chelsea, á lokadegi félagaskipta-
gluggans í janúar. Hann reyndist mikill
happafengur fyrir félagið og skoraði 8
mörk í 12 leikjum til vorsins. Hann þurfti
sannarlega á reynslunni að halda og hefur
blómstrað allar götur síðan. Hann hefur nú
skorað 21 mark í 28 leikjum fyrir Liverpool,
þangað sem hann fór í fyrra.
3 Alvaro ArbeloaKeyptur til: Liverpool
Kom frá: Deportivo La Coruna
Ár: 2007
n Þann 31. janúar 2007 keypti Liverpool
vinstri bakvörðinn frá spænska liðinu fyrir 3,9
milljónir evra. Þetta reyndust frábær kaup fyrir
knattspyrnustjórann Rafael Benitez. Fyrsti
byrjunarliðsleikurinn hans var gegn Lionel
Messi og félögum í Barcelona, í einvígi sem
Liverpool vann. Leikmaðurinn lék með liðinu í
á hálfa þriðju leiktíð áður en risarnir í Real Ma-
drid klófestu hann, fyrir miklu hærri upphæð.
Bakvörðurinn lék 66 leiki fyrir Liverpool.
2 Asmir BegovicKeyptur til: Stoke
Kom frá: Portsmouth
Ár: 2010
n Eftir að hafa verið á lánssamningum hjá
hinum og þessum félögum, gekk Begovic í
raðir Stoke City á síðasta degi félagaskipta-
gluggans veturinn 2010. Kaupin litu svo sem
þokkalega út á sínum tíma en fáir bjuggust
við að leikmaðurinn myndi slá í gegn, eins
og raunin varð. Félagið keypti hann á 3,25
milljónir punda en í dag er hann einhver
besti markvörðurinn í ensku úrvalsdeildinni
og hefur leikið 110 leiki fyrir Stoke.
1 Luis SuárezKeyptur til: Liverpool
Kom frá: Ajax
n Eftir að hafa skorað 81 mark fyrir hol-
lensku risana, árin 2007 til 2010, þar af 49
síðustu heilu leiktíðina hans fyrir félagið,
gekk Suárez í raðir Liverpool fyrir 22,8
milljónir punda, sem þá var félagsmet hjá
Liverpool. Síðar keypti félagið Andy Carroll
á 35 milljónir punda, leikmann sem gat
ekkert í rauðu treyjunni. Suárez hefur verið
stórkostlegur fyrir Liverpool og er líklega
besti leikmaður ensku deildarinnar eins og
sakir standa.
M
argir knattspyrnustjórar
hafa farið flatt á fé-
lagaskiptaglugganum í
janúar. Almennt er litið
svo á að leikmenn sem
fengnir eru í janúar, oft á síðustu
stundu og til að freista þess að snúa
við slæmu gengi, séu ekki góð-
ar fjárfestingar. Á því eru augljós-
ar undantekningar, eins og þegar
Manchester United krækti í Nem-
anja Vidic og Patrice Evra 2006,
þegar Chelsea keypti Gary Cahilll
2005 og þegar Everton gerði láns-
samning við Mikel Arteta, sem síð-
ar var keyptur til félagsins.
Oft er það á lokadegi félaga-
skiptagluggans sem örvæntingin
grípur knattspyrnustjóra sem óttast
um starf sitt. Þá eru stundum boðn-
ar mjög háar upphæðir í leikmenn
sem ekki er víst að standi undir
væntingum. Bleacherreport hefur
tekið saman tíu af bestu kaupunum
sem ensk úrvalsdeildarlið hafa gert
í janúar – svona í seinni tíð. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Markahrókur Suárez hefur skorað 23 deildarmörk í 18 leikjum á þessari leiktíð. Á síðustu leiktíð þurfti hann 33 leiki til að skora 23 mörk.
10 Andy ReidKeyptur til: Sunderland
Kom frá: Charlton
Ár: 2008
n Reid var látinn fara frá Tottenham til
Charlton árið 2006 og fór með því niður
um deild. Árið 2008 keypti Sunderland
leikmanninn og gerði reyfarakaup. Hann
stóð sig frábærlega með liðinu og lék 32 leiki
á fyrsta heila tímabilinu sínu, besta tímabili
sem hann hefur átt í boltanum. Reid lék 68
leiki fyrir Sunderland áður en hann var lán-
aðar til Sheffield United. Hann leikur í dag
með Nottingham Forrest og hefur skorað 16
mörk í 107 leikjum.
9 Robbie KeaneKeyptur til: Tottenham
Kom frá: Liverpool
Ár: 2009
n Markahrókurinn Robbie Keane hefur
marga fjöruna sopið á ferlinum en yfirleitt
alltaf skorað mörk. Sumarið 2008 keypti
Liverpool hann frá Tottenham, þar sem
hann hafði skorað 82 mörk í 197 leikjum.
Honum gekk illa að skora í rauðu treyjunni
og var aðeins hálft ár í Liverpool. Á síðasta
degi janúargluggans gekk hann aftur í raðir
Tottenham – þar sem hann skoraði fimmt-
án mörk fyrir félagið áður en hann færði sig
til Bandaríkjanna.